Morgunblaðið - 17.09.1996, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afkastamiklir svíðarar
SVIÐALYKT leggur fyrir vit fólks sem leið vinna fjórir menn í sláturtíðinni við að svíða og reyna þannig að komast yfir sem stærstan
á um Húsavík í þingeysku veðurblíðunni þess- hausa með logsuðutækjum. Verkið gengur hluta af dagslátruninni hjá Kaupfélagi Þin-
ar vikurnar. í húsi við gamla frystihúsið hratt, þeir taka 150 á hverjum klukkutíma geyinga.
Jóhann Siguijónsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunar
Veiðiálag í Flæmska hatt-
inum augljóslega of mikið
JÓHANN Sigutjónsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir
ekki hlutverk stofnunarinnar að leggja mat á hveijir eigi sök á ofveiði
í Flæmska hattinum. Hins vegar sé ljóst að veiðiálag þar sé of mikið.
„íslendingar hafa aukið sinn afla mest frá því í fyrra og eru sennilega
með tæpan helming af heildaraflanum,“ segir hann.
Kolaportið
Eftirspum eftir
fótanuddtækjum
DAGAR fótanuddtækjanna virð-
ast upp runnir á ný. Að minnsta
kosti er töluverð eftirspurn eftir
gömlum fótanuddtækjum í Kola-
portinu um helgar.
Sölumenn fornmuna í Kola-
portinu sögðu blaðamanni Morg-
unblaðsins að alltaf væri töluvert
um að fótanuddtæki væru boðin
til sölu á markaðnum. Fótanudd-
tækin væri vinsæl og fþ'ót að
hverfa aftur.
Jólagjöfin fyrir um 15 árum
Fótanuddtæki voru afar vinsæl
jólagjöf hér á landi fyrir tæpum
15 árum síðan. Nokkuð var um
að sami einstaklingurinn fengi
mörg tæki frá vinum og ættingjum
að gjöf og var haft á orði að yfir
þjóðina hefði riðið svokallað „fóta-
nuddtækjaæði.“ Smám saman kom
hins vegar í Ijós að margir virtust
ekki hafa áhuga á eða þörf fyrir
fótanuddtækin og dæmi voru um
að tækjunum væri komið fyrir í
EFTIRSPURN er eftir fóta-
nuddtækjum í Kolaportinu.
geymslu í upphaflegum umbúðum.
Að því komst t.a.m. bílaumboð eitt
á höfuðborgarsvæðinu þegar aug-
lýstur var 20.000 kr. afsláttur af
notuðum bílum gegn afhendingu
fótanuddtækis í febrúar í fyrra.
Bílaumboðinu áskotnuðust 12 til
15 fótanuddtæki og var þegar fai-
ast eftir þeim. Eftirspurnin virðist
vaxandi ef marka má söluna í
Kolaportinu.
íslendingar höfðu veitt 16.000
tonn af rækju á Flæmingjagrunni
í ágúst en aflatölur annarra þjóða
sem veiða á sömu slóðum eru síð-
an í júní að Jóhanns sögn. Búist
er við að heildarafli verði 50.000
tonn á þessu ári og að íslending-
ar veiði um 20.000 tonn sem er
næstum því þrefalt meira en í
fyrra.
Allt of mikið veitt
„Það sem er augljóst mál hins
vegar er það að það er allt of
mikið veitt af rækju á Flæmingja-
grunni á þessu ári,“ segir Jóhann
sem jafnframt á sæti í vísinda-
nefnd Norðvestur-Atlantshafs-
fiskveiðistofnunarinnar, NAFO.
Ársfundi stofnunarinnar lauk í
Pétursborg síðastliðinn föstudag
og komst vísindanefndin að þeirri
niðurstöðu að best væri að dregið
yrði verulega úr rækjuveiðum á
Flæmingjagrunni. í nefndinni
sitja einnig fiskifræðingarnir
Unnur Skúladóttir og Gunnar
Stefánsson.
Hlutfall kvendýra hefur
rýrnað um 70%
„Það var álit nefndarinnar að
ekki væri einu sinni hægt að
mæla með sama heildarafla og
veiddist í fyrra, eða 33.000 tonn-
um, því yfirgnæfandi líkur væru
á því að stofninn minnkaði samt
sem áður verulega. Þetta eru því
mjög skýr skilaboð um ástand
stofnsins," segir Jóhann.
Hann segir enn fremur að verið
sé að veiða þriggja ára gamla
rækjú um þessar mundir og að
töluvert hafi verið veitt úr þeim
árgangi í fyrra líka. „Það liggur
auðvitað í augum uppi að það er
mjög óhagkvæmt að veiða rækj-
una áður en hún nær að vaxa.
Auk þess má benda á það að við
ákveðna stærð verða karldýrin að
kvendýrum þannig að þessar veið-
ar hafa þýtt 70% rýrnun á hlut-
falli kvendýra í stofninum 1993-
1996. Sem líka er mjög óæski-
legt,“ segir hann.
Ungt veiðisvæði
Jóhann segir erfitt að leggja
nákvæmt mat á hversu mikið eigi
að leyfa að veiða. Flæmski hattur-
inn sé ungt veiðisvæði og tæm-
andi upplýsingar um veiðiþol liggi
því ekki fyrir. „Þessi góðu afla-
brögð sem verið hafa þarna frá
því veiðar hófust 1993 helgast af
sterkum árgangi frá 1988. Það
var því byijað að veiða fimm ára
rækju. Núna er verið að veiða ’93
árganginn og ’94 árgangurinn
virðist ekki vera sterkur frekar en
árgangarnir frá ’90 til ’92 sem
þýðir að árgangurinn frá ’93 ber
uppi þessa veiði. Sá árgangur er
auðvitað mjög sterkur og alls ekki
búinn enn þá en þetta er n\jög
óskynsamleg nýting. Þó að við
getum ekki sagt nákvæmlega fyr-
ir um veiðiþolið er augljóst mál
að það er skynsamlegt að láta
þessa rækju vaxa. Menn tapa
henni ekkert,“ segir Jóhann að
lokum.
Fjórir í
fimmtán
innbrotum
LÖGREGLAN hefur í haldi
Qóra menn sem upplýst er að
beri ábyrgð á að minnsta kosti
15 innbrotum sem framin voru
í júní, júlí og ágúst síðastliðn-
um í Reykjavík. Andvirði þýfis
mun vera um 25 milljónir
króna.
Fjórmenningarnir munu
sitja eitthvað áfram í gæslu-
varðhaldi þar sem þeir eiga
enn mál til meðferðar hjá lög-
reglu og er einn þeirra meðal
annars kærður fyrir stórfellda
líkamsárás eftir að hafa lagt
til manns með öxi í sumar.
Þrettán innbrotanna voru
gerð í íbúðarhús, eitt í skóla
og eitt í húsnæði Módel-skart-
gripa við Hverfisgötu og stálu
mennirnir málverkum, skart-
gripum, listmunum, silfur-
borðbúnaði og hljómflutnings-
og heimilistækjum svo eitt-
hvað sé nefnt.
Stór hluti þýfisins kom í
leitirnar, að sögn lögreglu, og
endurheimtu sumir allt sitt
þótt ekki hafi allir verið svo
lánsamir. Fjórmenningarnir
hafa allir komið við sögu lög-
reglu áður vegna samskonar
afbrota.
Vopnað rán
í söluturni
UNGUR maður ógnaði af-
greiðslustúlku með hnífi í sö-
lutumi við Grundarstíg síðast-
liðið laugardagskvöld og hafði
á brott með sér 25.000 krón-
ur, að sögn lögreglu.
Maðurinn hvarf á braut og
hafði lögreglan uppi á honum
um fjögurleytið aðfaranótt
sunnudags í vesturbænum.
Hann viðurkenndi brot sitt
þegar. Hann hefur ekki áður
komið við sögu lögreglu.
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu fannst dálítið af
maríjúana á manninum, sem
eytt hafði fénu til þess að
gera upp skuldir þegar hann
náðist. Ránið var framið um
hálfníuleytið á laugardags-
kvöld og hafði maðurinn kom-
ið inn í söluturninn skömmu
áður til þess að fá að hringja.
Allt tiltækt lið var kallað til
að leita mannsins og vill lög-
reglan leggja áherslu á að
þeir sem verði fyrir árásum
leiti strax aðstoðar svo ekki
tapist dýrmætur tími við leit
að hinum brotlegu.
Sakaður um
8,6 milljóna
fjárdrátt
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins hefur leitt í ljós fjár-
drátt hjá fyrirtæki í Reykjavík
upp á 8,6 milljónir króna.
Stjórnendur fyrirtækisins leit-
uðu til lögreglunnar í vor
vegna gruns um að einn
starfsmanna hefði dregið sér
fé og er rannsókn lokið.
Starfsmanninum er gefið að
sök að hafa dregið sér tæpar
níu milljónir króna árin 1990-
1995 og reynt að dylja fram-
ferði sitt með rangfærslum í
bókhaldi fyrirtækisins, að sögn
lögreglu.