Morgunblaðið - 17.09.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996 39
+ Sigurður Flóv-
ent Gunnlaugs-
son var fæddur á
Brattavöllum á Ár-
skógsströnd 1. jan-
úar 1928. Hann lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
9. september síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Gunn-
laugur Sigurðsson
og Freygerður
Guðbrandsdóttir.
Systkini hans eru:
Kristín, Sigurlaug,
Sveinn, Anton og
Anna.
Hinn 15. september 1956
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífs-
ins degi,
hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym-
ist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynn-
astþér.
(Ingibj. Sig.)
Elsku pabbi.
Þetta Ijóð segir í raun og veru
allt sem okkur langar til að segja.
Núna þegar við kveðjum þig finnum
við hversu mikið af góðum minning-
um við eigum.
Góðar minningar eru dýrmætur
sjóður og af þeim erum við rík.
Þegar við vorum að alast upp heima
á Brattavöllum lærðum við systkin-
in hversu mikilvægt það er að eiga
góðan að, það lærðum við hjá þér
og systkinum þinum því alltaf þeg-
ar eitthvað bjátaði á þá stóðuð þig
saman, öll sem eitt. Við vitum líka
hversu mikilvæg þér var öll þeirra
aðstoð við ykkur mömmu i sumar
og fyrir hana viljum við þakka.
Eins á Krabbameinsfélagið heið-
ur skilið fyrir aðstoð sína við
krabbameinssjúklinga og þá að-
stöðu í Reykjavík fyrir fólk utan
af landi sem félagið býður upp á,
því sú aðstaða er fólki ómetanleg.
Með þessum orðum viljum við
þakka fyrir allt sem gert var fyrir
ykkur mömmu á meðan á meðferð
þinni stóð á Landspítalanum.
Fyrir hönd mömmu þökkum við
starfsfólki Lyfjadeildar FSA fyrir
góða umönnun og hlýhug í þinn
garð.
Við þökkum þér fyrir samfylgd-
giftist Sigurður
Soffíu Heiðveigu
Friðriksdóttur, f. 7.
10. 1931. Börn
þeirra eru: Frey-
gerður, maki Sæ-
mundur H. Ander-
sen, Gunnlaugur,
kvæntur Soffíu S.
Hreinsdóttur, Svan-
fríður, gift Jóni G.
Rögnvaldssyni,
Friðrik, kvæntur
Sólveigu Rögn-
valdsdóttur.
Útför Sigurðar
fer fram frá Dalvík-
urkirkju og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
ina, pabbi, og biðjum Guð að geyma
Þ>g-
Elsku mamma, vertu sterk, þú
ert ekki ein.
Freygerður, Gunnlaugur,
Svanfríður og Friðrik.
Kæri Siggi.
Ég veit þú fékkst enp, vinur ráðið um það,
en vissulega hefði það komið sér betur,
að lát þitt hefði ekki borið svo bráðan að.
Við bjuggumst við að hitta þig oft í vetur,
og nú var um seinan að sýna þér allt það
traust,
sem samferðafólki þínu hingað til láðist
að votta þér. Það var svo ástæðulaust,
að vera að slíku fýrst daglega til þín náðist.
(Tómas Guðm.)
Já, við bjuggumst við að hitta
þig oft í vetur við batnandi heilsu
og betri líðan. Það var tilhlökkunar-
efni fyrir alla eftir veikindi sumars-
ins og miklar fjarvistir undanfarin
ár við sjómennsku, bæði frá Höfn
og Raufarhöfn og reyndar þar áður
Dalvík, þar sem þú hófst þína sjó-
mennsku sem atvinnu, þá kominn
á sjötugsaldur, eftir ríflega tíu ára
starf hjá KEA á Dalvík, og lést
engan bilbug á þér finna þrátt fyr-
ir mikla og oft erfiða vinnu. Það
sýnir kannski betur en margt annað
álit yfirmanna þinna á þér að þú
vannst hjá þremur útgerðum en
alltaf á sama skipi með sama skip-
stjóra.
Frá Raufarhöfn komstu síðan í
aprílbyijun til að vera við fermingu
Huldu bamabams þíns og leita
læknis vegna óþæginda í hálsi sem
höfðu angrað þig um tíma. Þar
fannst mein það er síðan hafði náð
að dreifa sér víðar með þeim afleið-
ingum sem við nú þekkjum.
Eftir erfiða geislameðferð
komstu heim í lok júlí nokkuð bjart-
sýnn á framtíðina og kraftar jukust
með hverjum degi, en því miður var
það aðeins stutt stund á milli stríða
og í lok ágúst fór aftur að syrta í
álinn.
Eftir tuttugu ára samfylgd er
margs að minnast og margt að
þakka.
Við Svana dóttir þín vorum nán-
ast börn er við hófum sambúð, ný-
orðin 17 ára, en aldrei var orði að
því hallað að þú hefðir ótrú á tiltæk-
inu. Lagðir meira að segja upp í
ferð með okkur utan frá Brattavöll-
um í stórhríð svo við gætum flutt
inn í okkar fyrstu íbúð á fyrirfram
ákveðnum degi.
Síðan er mikið vatn til sjávar
runnið og samverustundirnar orðn-
ar margar, fyrst heima á Bratta-
völlum, síðan á Dalvík. Alltaf var
stutt í góða sögu, annaðhvort af
einhveiju sem hent hafði frá því
síðast við hittumst eða fyrri at-
burðum og fylgdi oftast góður hlát-
ur. Allar voru sögur þessar
græskulausar og sagðar sem krydd
í tilveruna. Einnig eru ógleyman-
legar margar sjóferðir á trillunni
með þér á stilltum vor- og sumar-
kvöldum þegar dólað var austur
með sandi eða farið inn í Sund þar
sem þú þekktir, að manni fannst,
hvern lófastóran blett og naust
þess að renna færi.
Veiðimennskan var meðfæddur
eiginleiki og ekki gefist upp þótt
ekki hlypi á færið í hveiju rennsli,
en þegar upp var staðið var aflinn
oft býsna mikill. Eins var laxveiði
mikið áhugamál, en seinni ár stóð
þó steinasöfnunin uppúr og varla
til sá steinmoli sem þú kunnir ekki
skil á bæði um tilurð og efnasam-
setningu. Því það var eitt þinna
einkenna að bijóta hvert mál til
mergjar og dáðist ég oft að því
hversu glögg skil þú gast gert hlut-
um hvort sem var úti í náttúrunni
eða í heimilisbílnum ef því var að
skipta. En þú varst ekki maður
hinna mörgu orða svo ég er hrædd-
ur um að þetta sé orðið lengra en
þú vildir en margt er ósagt og verð-
ur það víst úr þessu. Þökk fyrir
mig og mína.
Kæra Heiða og aðrir ástvinir,
innilegar samúðarkveðjur til ykkar
allra.
Jón G. Rögnvaldsson.
SIGURÐUR FLÓVENT
GUNNLA UGSSON
JÓHANNA
VILHJÁLMSDÓTTIR
+ Jóhanna Vilhjálmsdóttir
fæddist í Sandfellshaga í
Oxarfjarðarhreppi í N-Þing-
eyjarsýslu 24. október 1915.
Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur hinn 29. ágúst síðastlið-
inn og fór útför hennar fram
frá Selfosskirkju 10. septem-
ber.
Það er haust 1994. Tregabland-
ið haust líkt og önnur haust en
fullt af gleði. Ég hafði gerst hús-
freyja í litlu koti á Eyrarbakka,
Norðurkoti. Hafði eignast mitt eig-
ið heimili. Snoturt og vel búið
heimili sem skorti fátt annað en
isskáp. Og það er einmitt þessi
ísskákpur sem er svo mikilvægur.
Eg auglýsti eftir ísskáp og þú svar-
aðir auglýsingunni samstundis.
Gamall fjörutíu lítra Westing-
housinn var mér falur. Þetta voru
okkar fyrstu kynni og við urðum
perluvinkonur.
Það yljaði um hjartarætur að
hitta þig. Við þurftum alltaf ýmis-
legt að spjalla. Vinátta okkar var
djúp og einlæg, laus við nokkurt
kynslóðabil.
Manstu í vetur þegar við sátum
saman í setustofu sjúkrahússins -
það var hádegi. Við nærðumst að
mestu á vökva í æð en þennan dag
vildum við reyna að borða eitt-
hvað. í matinn var saltkjöt og
baunir.
Ég var dugleg við baunirnar en
þú varst hálflystarlaus. Þarna sát-
um 'við og ég reyndi af máttvana
sannfæringu að telja þig á að borða
- þó ekki væri nema ögn. Og þú
gerðir það. Kannski að hálfu fyrir
vinkonu þína.
Þrátt fyrir algert lystarleysi
dafnaði barnið í móðurlífi mínu
afar vel. Og þú, elsku Jóhanna
mín, lést þig það miklu varða.
Sendir mér fallega pijónaða vettl-
inga og sokka með þeim skilaboð-
um að þetta væri til heimferðar
af fæðingardeildinni. Litli drengur-
inn minn fæddist 13. júlí og fór
heim í sokkunum og vettlingunum
frá þér. Það var mér mikils virði.
Enn á ný haustar og þú ert farin.
Mig tekur sárt að hafa ekki
getað sýnt þér litla prinsinn Örn-
ólf. En ég hugga mig við þá trú
að þú vakir yfir okkur.
Ég kveð þig, kæra vinkona, og
bið algóðan guð að geyma þig.
Minningin um þig lýsir upp trega-
fullt haustið. Aðstandendum þín-
um votta ég innilegustu samúð
mína.
Þín,
Anita.
fyrir leiði. Minnismerki
og hefðbundnir legsteinar
úr marmara, graníti og kalksteiní
Við bjóðum sérstakt
tilboósverd á öllum
granítsteinum í þessum
mánuði.
Verkin eru öll hönnuð
af myndhöggvaranum
Þóri Barbd al.
S ÓLSTEINAR
Opið milli kl. 13 og 18.
Nýbýlavegi 30
(Dalbrekkumegin), 200 Kópavogi.
Sfmi: 564 3555. Fax: 564 3556
t
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐNI MAGNÚSSON
málarameistari,
Hlévangi,
áður Suðurgötu 35,
Keflavík,
lést sunnudaginn 15. september sl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 24. september kl. 14.00.
Hansfna Kristjánsdóttir,
Vignir Guðnason, Guðrfður Árnadóttir,
Birgir Guðnason,
Eiríkur Guðnason,
Steinunn Guðnadóttir,
Árnheiður Guðnadóttir,
Ellert Eiríksson,
Harpa Þorvaldsdóttir,
Þorgerður Guðfinnsdóttir,
Neville Young,
Jónas H. Jónsson,
Guðbjörg Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdasonur og mágur,
ALBERTI. MYRSETH,
Sivsveg 1,9019 Tromsö,
lést í Sjúkrahúsinu ÍTromsö, Noregi, föstudaginn 13. september.
Vigdís H. Myrseth,
Jón Rolf Myrseth, Inge Björn Myrseth,
Hörður Sumarliðason, Kristfn Jónsdóttir,
Heiðrún Harðardóttir,
Hörður K. Harðarson,
Guðjón Harðarson.
t
Elskulegur eiginmaður minn,
HREIÐAR JÓNSSON
bóndi f Árkvörn, Fljótshlfð,
til heimilis að Smáratúni 8,
Selfossi,
andaðist 14. september.
Jaröarförin auglýst síðar.
Guðrún E. Sæmundsdóttir.
t
Faðir okkar,
FINNBOGIINGÓLFSSON,
áður til heimilis á Hiíðarbraut 1,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 13. sept-
ember.
Börn hins látna.
t
Kær systir okkar og mágkona,
MARGRÉT ÁRNADÓTTIR,
Leirubakka 12,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum laugardaginn 14.
september.
Árni H. Árnason,
Einar H. Árnason,
Rannveig Árnadóttir,
Ólafur H. Árnason,
Gunnar H. Árnason,
Jytte Árnason,
Borgþór H. Jónsson,
Magnúsfna Guðmundsdóttir,
Margrét Steingrfmsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
ELÍN GUÐBRANDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður til heimilis í Álfheimum 52,
er látin.
Jarðarförin auglýst síðar.
Auður Vésteinsdóttir, Sveinn V. Jónsson,
Guðný Vésteinsdóttir, Guðmundur Helgason,
Gunnhildur Vésteinsdóttir, Hafsteinn Andrésson,
Hörður Guðbrandsson,
Sverrir Guðbrandsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
i____