Morgunblaðið - 17.09.1996, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Smáfólk
Skyldi einhver annar
vera svo heimskur
að vera að veiða í
rigningu?
BREF
TDL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: Iauga@mbl.is
Hvers eiga hinir
sjúku að gjalda?
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur
og Ásdísi Frímannsdóttur:
HVAÐ hefur vor menntun að
mæla? Spyr sá sem ekki veit, er
deilur heimilislækna lama heilu
landsbyggðirnar af ótta. Er ekki
nægilegt að búa við hinn venju-
bundna ótta við náttúruöflin, þótt
mennirnir komi ekki einnig þar við
sögu, með úrræðaleysi sínu og/eða
þijósku? Það er í raun ótrúlegt
hvað íslendingar eru þolgóðir, er
slíkt ástand kemur upp er nú er
viðvarandi. Slíkt þolgæði ætti svo
sannarlega ekki að þurfa að koma
við sögu á tuttugustu öld, þar eð
upplýsingar og boðstreymi er með
slíkum hætti að ekki ætti að vefj-
ast fyrir neinum, að koma skilaboð-
um sínum og óskum um áherslu-
breytingar á framfæri við rétta
aðila. Getur verið að Læknafélag
Islands hafi ekki staðið í stykkinu
við að koma áherslum lækna á
framfæri við stjórnvöld? Hvers
vegna segja sérfræðingar ekki upp
störfum sínum til þess að styðja
baráttu starfsbræðra sinna?
Samtökin Lífsvog myndu telja
það kraftaverk, ef sumir hverjir í
sérfræðingahópi gætu sinnt fleiri
ársverkum, en þeir gera nú þegar,
einkum þó og sér í lagi hér á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þegar talinn er saman fjöldi
sjúklinga er sumir sérfræðingar
segjast sinna, teljast vart nógu
margar klukkustundir í sólar-
hringnum, né heldur dagar í árinu,
er virðast duga til þess að komast
yfir allan þann fjölda er um er að
ræða.
Því miður ber slíkt ekki endilega
vitni gæðum þjónustunnar, heldur
aðeins ofnotkun tækja og tóla sem
til eru til rannsókna hér og þar,
ef til vill án greiningar á hinu raun-
verulega vandamáli.
Því lengur sem sjúklingur heim-
sækir sérfræðinginn, þeim mun
meiri skatta gæti sá hinn sami
sjúklingur þurft að greiða, því það
kostar jú meira að hitta sérfræð-
inga, fyrir samfélagið, en heimilis-
lækni, enn sem komið er. Frá sjón-
arhóli okkar er störfum í Sam-
tökunum Lífsvog, teljum við það
hreint og beint til skammar fyrir
læknastéttina í heild að láta ástand
það er nú ríkir viðgangast.
Það hlýtur að finnast fær leið
innan þessara fræða, er getur
metið sanngjörn laun til handa
sérfræðingum og heimilislæknum,
eftir því hve mikið viðkomandi er
ætlað að leggja á sig af ábyrgð
starfa sinna. Orðið ábyrgð er ef
til vill afstætt í þessu sambandi,
því hingað til hafa menn að því
er virðist ekki þurft að standa æði
ábyrgir gerða sinna. Ef til vill ligg-
ur þar hluti af rót þess vanda er
nú er við að etja.
Hvað sem því líður, er það sið-
ferðileg skylda lækna, og samfé-
lagsleg skylda stjómvalda að finna
lausn á deilu þessari hið bráðasta.
F.h. Samtakanna Lífsvogar,
GUÐRÚN M. ÓSKARSDÓTTIR,
ÁSDÍS FRÍMANNSDÓTTIR.
Annarlegt mat á
frétt um dráp á dýri
Frá Auði Matthíasdóttur:
DRÁP hjóna á ref hefur vakið
umfjöllun á síðum Morgunblaðsins.
Það undarlega í þessu máli virðist
mér vera hvernig þessi frétt er á
borð borin fyrir okkur landsmenn.
Þetta viðbjóðslega athæfi er gert
að einhvers konar afreki í frétta-
flutningi RÚV. Það er svo sannar-
lega kominn tími til að fjölmiðlar
skoði sinn gang þegar morð og lim-
lestingar á dýrum eru annars veg-
ar. Hætti að birta myndir af ungum
börnum og fullorðnum með vesal-
ings myrt dýr dinglandi í höndum
og hætti að úthrópa gjörðir sem
hér um ræðir á þann veg að þetta
sé vel gert. Þetta er hreinlega and-
styggilegt og engum manni til
sæmdar að stæra sig af.
AUÐUR MATTHÍASDÓTTIR,
Garðabæ.
Hvað skal segja? 14
Væri rétt að segja: Lögreglumaðurinn lét sem honum kæmi það
ekki við?
Svar: Þetta mætti skilja svo, að „honum“ ætti við einhvern
annan en lögreglumanninn. Rétt væri: Lögreglumaðurinn lét sem
sér kæmi það ekki við.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.