Morgunblaðið - 24.10.1996, Side 1
80 SIÐUR B/C/D
243. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Brundtland víkur eft-
ir 15 ár í eldlínunni
Thorbjorn Jagland næsti for-
sætisráðherra Noregs
Reuter
GRO Harlem Brundtland tilkynnir á norska Stórþinginu í gær
að hún muni láta af embætti forsætisráðherra.
GRO Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, greindi í gær-
morgun frá því að hún mundi láta
af embætti á morgun, föstudag, og
eftirmaður hennar yrði Thorbjorn
Jagland, sem verið hefur formaður
Verkamannaflokksins frá 1992.
Tilkynning Brundtland kom
mörgum í opna skjöldu, en búist
hafði verið við að hún mundi taka
af sk'arið, um það hvort hún hygð-
ist sitja áfram eða ekki, á lands-
fundi Verkamannaflokksins í byij-
un nóvember.
Brundtland hefur verið í forustu
Verkamannaflokksins, jafnt við
stjórnvölinn sem í stjórnarandstöðu,
frá 1981. Hún sagði að ástæðan
fyrir ákvörðun sinni væri sú að á
næsta ári yrði gengið til þingkosn-
inga í Noregi og hún vildi að flokk-
urinn gæti lagt skýrar línur um
forustu stjórnarinnar og samsetn-
ingu hennar með nægum fyrirvara
fyrir kosningarnar.
„Það eru engar aðrar ástæður,
hvorki persónulegar né pólitískar,
fyrir því að ég hef ákveðið að nú
sé rétt að breyta til.“
Brundtland hefur þurft að glíma
við ýmis vandamál þegar hún hefur
verið við völd, en nú árar vel í
Noregi, ekki síst vegna mikilla olíu-
' tekna.
„Eg hef gert mitt besta í þessu
starfi og yfirgef það með góðri sam-
visku,“ sagði Brundtland á blaða-
mannafundi.
Frá því að Jagland tók við for-
mennsku flokksins hefur honum
verið ætlað að verða eftirmaður
Brundtland. Hann þykir standa
lengra til vinstri en hún. Þó er
þess ekki vænst að hann muni
hnika mikið stefnu stjórnar
Brundtland. Hins vegar er talið að'
mörg ný andlit verði í stjórn Jag-
lands.
Jagland kvaðst ekki geta svarað
spurningum um það hvetjir yrðu
ráðherrar í stjórn sinni. Hann á
hins vegar að leggja ráðherralista
fyrir flokkinn í dag og Harald Nor-
egskonung í fyrramálið.
„Ég hef vitað og búið mig undir
að til umskipta af þessu tagi mundi
koma,“ sagði Jagland. „Það er mik-
il ábyrgð að taka við af stjórnmála-
manni á borð við Gro. En einhver
verður að vera nýgræðingur og
ekkert varir að eilífu."
Vangaveltur hófust þegar um að
Brundtland hygðist sækjast eftir
stöðu framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna. Hún svaraði ekki
spurningum um það mál og lét sér
nægja að segga að ekkert væri sér
„framandi".
Brundtland kvaðst vilja fá tíma
til að sinna hugðarefnum sínum,
skrifa bækur og gegna þing-
mennsku.
■ Vinsælasti/28
Sviknar
rær í
norskum
þyrlum
Ósló. Morgnnblaðið.
SKIPTA varð um mörg þúsund
sviknar rær í þyrlum norska
fyrirtækisins Helikopter Service
árið 1988 og nú í haust lék grun-
ur á að aðrir varahlutir, sem
ekki stæðust öryggiskröfur,
væru í þyrlunum. Kom þetta í
fyrsta sinn fram opinberlega í
gær.
I síðustu viku fór fram leit
að meintum sviknum varahlut-
um á lager Helikopter Service
og í Bell-þyrlum þess, en allt
reyndist í lagi. Leitað var í fram-
haldi af ábendingum bandaríska
loftferðaeftirlitsins (FAA) þess
efnis, að varahlutafyrirtækið
Pacific Air Logistics í Kalifomíu
hefði selt 1733 tegundir vara-
hluta í Bell-þyrlur án þess að
fullnægjandi vottorð fylgdu.
í ágúst sl. varaði FAA við
fjölda svikinna varahluta í þyril-
búnaði Bell-212 þyrlna. Var um
að ræða umframbirgðir banda-
ríska hersins sem seldar höfðu
verið á almennum markaði.
Höfðu varahlutimir ekki hlotið
viðurkenningu FAA. Aukinheld-
ur banna reglur að varahlutir
úr herflugvélum séu notaðir í
þyrlum og flugvélum í almanna-
flugi.
Reuter
Chirac ávarpar þing Palestínumanna
Palestínumenn
forðist ofbeldi
Ramallah. Reuter.
JACQUES Chirac, forseti Frakk-
lands, varð í gær fyrsti erlendi þjóð-
höfðinginn til að ávarpa löggjafarráð
Palestínumanna í Ramallah og hvatti
þá til að forðast ofbeldi í baráttunni
fyrir palestínsku ríki.
„Með því að hafna ofbeldi til að
ná fram kröfum ykkar verðið þið
trúir þeirri stefnu sem Yasser Arafat
[forseti sjálfstjórnarsvæðanna] hefur
framfylgt af þrautseigju," sagði
Chirac í ávarpi sínu.
Þúsundir araba, þeirra á meðal
skólabörn og drengir í skátabúning-
um, fögnuðu komu forsetans á göt-
um Ramallah. Chirac hefur lýst yfir
stuðningi við stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestínumanna og Yasser Arafat
sagði í ræðu í löggjafarráðinu að
Frakkar og Evrópusambandið ættu
að gegna auknu hlutverki í friðarum-
leitunum Israela og araba, en því
hafa ísraelar hafnað.
Chirac gagnrýndi stefnu Benja-
mins Netanyahus, forsætisráðherra
ísraels, meðai annars stækkun
byggða gyðinga á Vesturbakkanum
og þá kröfu hans að Israelar haldi
yfirráðum yfir arabíska borgarhlut-
anum í Jerúsalem.
Hægrimenn í Israel reiddust þeirri
ákvörðun Chiracs að ávarpa palest-
ínska löggjafarráðið en ekki ísraelska
þingið þegar hann kom í þinghúsið
í fyrradag.
Chirac hélt til Gaza-svæðisins með
Arafat í gær og hugðist síðan fara
til Jórdaníu.
■ Reiðilestrinum vel tekið/18
Ungveijalands-
uppreisnin 40 ára
í GÆR voru liðin 40 ár frá því
að uppreisnin i Ungverjalandi
hófst. Var hún kæfð í blóði
skömmu síðar, en hún var mesta
ögrun, sem kommúnismanum og
hinu sovéska heimsveldi hafði ver-
ið sýnd. Var þessara örlagaríku
daga minnst við hát.íðlega athöfn
í Búdapest í gær. Hér standa tveir
þeirra manna, sem börðust næst-
um vopnlausir við sovésku skrið-
drekana, við styttu Imre Nagys
forsætisráðherra en Sovétmenn
létu taka hann af lífi.
■ „Freisisloginn/21
Tvær Boeing-707 farast
Buenos Aires, Quito. Reuter. V—✓
TVEIR menn biðu bana og sex slös-
uðust er Boeing-707 flutningaþota
í eigu argentínska flughersins brot-
lenti á alþjóðaflugvellinum í Buenos
Aires síðdegis í gær.
Þotan var að koma frá Chile með
25 tonn af físki.
Flutningaþota sörnu tegundar, í
eigu flugfélagsins Miliium Air í
Flórída, sprakk skömmu eftir fiug-
tak í fyrrinótt í hafnarborginni
Manta í Ecuador. Hún var á leið
með fisk og blóm til Miami.
Fjögurra manna áhöfn þotunnar
fórst og einnig tugir manna í Dolo-
rosa, fátækrahverfi borgarinnar,
þar sem þotan kom niður.
Að sögn sjónarvotta kviknaði í
hreyfli með þeim afleiðingum að
vélin sprakk á lofti. Dreifðist brenn-
andi brakið yfir Dolorosa-hverfið.