Morgunblaðið - 24.10.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sænskur sérfræðingur kynnir aðferðir til að minnka kynbundið launamisrétti
Starfsmat leið
til að minnka
la.nna.mnn
Morgunblaðið/Kristinn
ANITA Harriman hefur sérhæft sig í vinnumarkaðsmálum.
KYNBUNDINN launamunur og
spumingin hvað séu réttlát laun er
aðalviðfangsefni sænsks sérfræð-
ings í vinnumarkaðsmálum, sem nú
er staddur á íslandi til að kynna
aðferðir til að draga úr kynbundnu
launamisrétti, sem verið er að vinna
að í Svíþjóð.
Anita Harriman er hagfræðingur
sem hefur sérhæft sig í vinnumark-
aðsmálum. Sérstakt áhugamál
hennar er að finna leiðir til þess að
draga úr kynbundnum launamun,
sem kannanir hafa leitt í ljós að
erfiðlega gengur að minnka og hef-
ur reyndar færzt í aukana á efna:
hagsþrengingaskeiði síðustu ára. í
Svíþjóð er hann nú að meðaltali í
kring um 8%, á íslandi á bilinu
11-14%. Undanfarin tvö ár hefur
Harriman stýrt viðamiklu rannsókn-
ar- og þróunarverkefni sænsku
Vinnumarkaðsstofnunarinnar, þar
sem verið er að þróa aðferðir til að
draga úr kynbundnu launamisrétti.
Harriman heldur fyrirlestur um
þessi mál á Grand Hótel Reykjavík
í dag kl. 16 undir yfirskriftinni
„Hvað eru verðug laun?“
Meðal markmiða verkefnis þess,
sem Harriman vinnur að, er að þróa
kynhlutlaust starfsmatskerfi sem
er bæði auðvelt í notkun og nægi-
lega sveigjanlegt til þess að henta
ólíkum starfsgreinum, en að hennar
sögn hefur verið sýnt fram á að
kynhlutlaust starfsmat' sé árang-
ursrík leið til að minnka kynbundinn
launamun.
Launamunur
sízt minni hér
Hér á landi er kynbundinn launa-
munur sízt minni en í nágranna-
löndunum, eins og komið hefur
fram í nýjustu könnunum. Aðilar
vinnumarkaðarins hafa enn sem
komið er ekki fundið leiðir til að
draga úr þessum launamun. Vænt-
anlegt starfsmatsverkefni félags-
málaráðuneytisins og tillögur jafn-
réttisnefndar Reykj avíkurborgar,
sem verið er að leggja fram þessa
dagana, eru þó fyrstu skrefin í þá
átt. Þetta kom fram í máli Sivjar
Friðleifsdóttur, formanns starfs-
hóps um starfsmat, sem skilaði
skýrslu um starfsmat í febrúar sl.,
og Elsu B. Þorkelsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Jafnréttisráðs, á
fundi með Harriman í gær.
Hér á landi er þegar komin nokk-
ur reynsla af starfsmati. Allt frá
árinu 1987 hafa öll stærstu sveitar-
félögin, fyrir utan Reykjavíkurborg,
beitt því, og að sögn þeirra sem til
þekkja hafa hefðbundin kvenna-
störf komið vel út í þessu starfs-
mati, þó starfsmatskerfið sjálft sé
ekki kynhlutlaust.
Að sögn Elsu lítur Jafnréttisráð
svo á, að koma Anitu Harriman og
fyrirlestur hennar sé innlegg í þessa
umræðu, sérstaklega í ljósi kom-
andi kjarasamninga. Beiting kyn-
hlutlauss starfsmats geti reynzt
mjög gagnlegt til að það megi nást
að uppfylla ákvæði jafnréttislaga
um að „konum og körlum skuli
greidd jöfn laun og skuli njóta sömu
kjara fyrir jafnverðmæt og sam-
bærileg störf“. Það velti þó á því,
að aðilar vinnumarkaðarins sann-
færist um ágæti starfsmats og
leggist á eitt um að hrinda því í
framkvæmd.
Málefni samkyn-
hneigðra á kirkjuþingi
Opinskárri
umfjöllun
fagnað
TILLAGA um samkynheigð og
kirkju var samþykkt á kirkjuþingi í
gær en afgreiðslu hennar hafði verið
frestað m.a. að frumkvæði sr. Geirs
Waage, formanns Prestafélagsins
sem lagði til að síðasta setning álykt-
unarinnar yrði felld út. Þar segir að
athugaðir yrðu möguleikar á að
kirkjan móti atferli við fyrirbæn og
blessun á staðfestri samvist. Sr.
Geir varð ekki að ósk sinni og var
því ályktunin samþykkt nánast
óbreytt.
í tillögunni er nefnd, sem nýlega
skilaði ítarlegri skýrslu um samkyn-
hneigð og kirkju, falið að vinna
áfram að málinu. Jafnframt er mælst
til að fjölgað verði í nefndinni og að
fulltrúi samkynhneigðra fái þar sæti.
Hvatt er til kærleika og umhyggju
gagnvart samkynhneigðum og að
ósk þeirra sem og annarra minni-
hlutahópa verði virt en kirkjuþing
telur að opinská og hreinskilin um-
fjöllun á kirkjulegum vettvangi efli
skilning á málstað samkynhneigðra.
Kirkjuþing væntir þess að nefndin
efni til nærfærinnar jafnt sem ein-
lægrar umræðu og fræðslu í kirkj-
unni um málefni samkynhneigðra.
Kirkjan vöruð við
í málj herra Ólafs Skúlasonar
biskups íslands á kirkjuþingi í gær,
kom fram að töluvert hafí verið um
símhringingar á Biskupsstofu þar
sem fólk hafi lýst yfir skoðun sinni
á umijöllun kirkjunnar um samkyn-
hneigða. Mikill meirihluti þeirra er
fólk af eldri kynslóðinni sem varaði
kirkjuna við að ganga of langt því
það gæti þýtt skii á milli þeirra og
þjóðkirkjunnar. „Ég segi þetta aðeins
til að við áttum okkur á hversu við-
kvæmt þetta mál er hjá þjóðinni,"
sagði biskup.
Ólafur sagði ennfremur að strang-
trúaður maður hafi komið að máli
við sig og krafist þess að fengi full-
trúi samkynhneigðra sæti í nefndinni
þá ætti fulltrúi þeirra einnig rétt á
að koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi.
Biskup um skýrslu um fjármál þjóðkirkju
Farið að til-
mælum Ríkis-
endurskoðunar
„VIÐ höfum brugðist við þessum at-
hugasemdum Ríkisendurskoðunar
eins og okkur er skylt og rétt að
gera. Þannig hefur Biskupsstofa nú
ráðið fjármálastjóra til að hafa eftir-
lit með bókhaldi og við munum að
sjálfsögðu hlíta þeim tilmælum að fé
verði ekki fært milli sjóða,“ sagði
herra Ólafur Skúlason, biskup Is-
lands, í samtali við Morgunblaðið.
Ríkisendurskoðun skilaði skýrslu
um fjármál þjóðkirkjunnar í febrúar.
Að sögn biskups var efni skýrslunnar
kynnt kirkjuráði en ákveðið að gera
hana opinbera eftir að kirkjuþing
hefði Qallað um hana. Kirkjuþing
kemur saman einu sinni á ári og
stendur nú.
„Ríkisendurskoðun bendir á að
vegna anna skrifstofustjórans hafi
hann ekki getað sinnt yfirumsjón með
bókhaldi og ijárvörslu Biskupsstofu
sem skyldi," sagði biskup. „Við höfum
þegar brugðist við þessu með því að
ráða viðskiptafræðimenntaðan fjár-
málastjóra."
Annað gagnrýniatriði Ríkisendur-
skoðunar laut að því að fé hefði verið
fært milli hinna ýmsu sjóða þjóðkirkj-
unnar. „Slíkar tilfærslur tíðkuðust svo
árum skipti," sagði herra Ólafur
Skúlason. „Sem dæmi um slíkar til-
færslur get ég nefnt, að ef greiða
átti styrk úr Jöfnunarsjóði, en framlag
í hann hafði ekki borist, þá fékk sá
sjóður lán úr Kristnisjóði. Slík lán
voru að sjálfsögðu greidd um leið og
framlag barst. Ríkisendurskoðun tel-
ur þetta ekki til fýrirmyndar og því
verður þessu kippt í liðinn. Við mun-
um þá framvegis leita til viðskipta-
banka okkar, ef taka þarf lán af þessu
tagi, eða segja viðkomandi söfnuði
að hann þurfi að bíða framlags."
Biskup benti á að Ríkisendurskoð-
un hefði ekki fundið neitt athugavert
við reikninga þjóðkirkjunnar sem
slíka.
Við erum
flutt.....
20% afsláttur
af öllum glösum.
Gildir til 26. október
Við Faxafen - Suðurlandsbraut 52, símí 553 6622
Talsmenn B- og D-lista á Húsavík um sölu-
gengi bréfanna í FH og Höfða
Skynsamleg og hag-
stæð sala fyrir bæinn
„EF litið er hlutlaust á þessa sölu
þá er hún mjög hagstæð fyrir Húsa-
víkurbæ," segir Stefán Haraldsson,
Framsóknarflokki, um sölu á hluta-
bréfum Framkvæmdalánasjóðs
bæjarins til væntanlegs sameinaðs
hlutafélags Fiskiðjusamlags Húsa-
víkur og Höfða á genginu 1,95.
Fulltrúar Alþýðubandalags voru
andvígir sölunni á fundi bæjar-
stjórnar í vikunni og lögðu til að
9% hlutafjárins yrðu seld á opnum
markaði til að fá sanngjarnt verði
fyrir bréfin. en þeir héldu því fram
að gengið 1,95 væri langt undir
raunverulegu gengi og ekki í þágu
hagsmuna bæjarfélagsins.
Aðspurður af hveiju ekki var
valin sú leið að selja bréfín á opnum
hlutabréfamarkaði sagði Stefán:
„Ég þykist vita að hugmynd stjórn-
ar Fiskiðjusamlagsins, sem kaupir
bréfin, muni vera að setja þau út á
markað, eftir því sem talið er skyn-
samlegt. Ef bærinn hefði valið þann
kost að setja þau á opinn markað
þá hefði það verið framkvæmt með
svipuðum hætti. Menn vildu ná þeim
árangri fyrir hluthafafundinn í
næstu viku og aðalfund félagsins
eftir einn til tvo mánuði að bærinn
væri orðinn minnihlutaaðili að fé-
laginu. Það hefði verið þvinguð
staða fyrir bæinn að ætla að selja
þetta magn hlutabréfa í fyrirtækinu
fyrir þann tíma. Það var lítil skyn-
semi í því að vera með svoleiðis til-
burði,“ sagði Stefán.
Aðspurður um skýringar á geng-
inu 1,95 sagði Stefán að talið væri
að innravirðisgengið í hinu væntan-
lega sameinaða félagi væri á bilinu
2,3 til 2,6. „Sölugengi í mörgum
stærstu fyrirtækjum sem eru skráð
á Verðbréfaþingi, eins og t.d.
Granda og Síldarvinnslunni, er um
80% af innra virði. Ef við gefum
okkur að innravirðisgengi bréfa í
Fiskiðjusamlaginu sé 2,6, og sölu-
gengi í þessu sameinaða fyrirtæki
yrði lægra eða jafnvel allt að 60%,
þá eru menn að tala um gengið
1,66. Menn geta einnig skoðað
þetta í þessu samhengi."
Hluthöfum ekki fjölgað nema
gengið sé aðgengilegt
Sigurjón Benediktsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokks, sem er í minni-
hluta í bæjarstjórn, greiddi atkvæði
með framsóknarmönnum í bæjar-
stjórninni þegar salan var samþykkt
og segir það skynsamlegri ráðstöf-
un fyrir bæinn en tillögur alþýðu-
bandalagsmanna. Tillögur þeirra
hefðu verið illa ígrundaðar og þeir
verið með hugmyndir um að selja
á genginu 3. „Ég taldi það glóru-
laust og hvorki bæjarfélaginu né
hlutafélaginu hagkvæmt," sagði
hann. „Gengið á þessum bréfum
mun hins vegar hækka í tímans
rás. Það hefur allt sinn meðgöngu-
tírna," sagði Siguijón.
„Auk þess markmiðs að sameina
félögin og koma þeim á markað
álít ég að þetta sé kjörið tækifæri
til að fjölga hluthöfum. Það er ekki
hægt nema gengið sé aðgengilegt,“
sagði Sigutjón.
)
)
I
I
I
i
I
I
i
I