Morgunblaðið - 24.10.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1996
ERLENT
Lebed gagnrýnir Tsjúbajs í sjónvarpsviðtali
Segir Tsjerno-
myrdín verða
vikið frá næst
Washington, Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Lebed, sem var rek-
inn úr embætti yfirmanns rússneska
öryggisráðsins, spáði því í gær að
Viktor Tsjernomyrdín forsætisráð-
herra yrði næsta fórnarlambið í
valdabaráttunni í Kreml.
Lebed sagði í viðtali við banda-
ríska sjónvarpið ABC að Tsjerno-
myrdín væri orðið ofaukið í Kreml.
„Mat mitt er að næsti maðurinn til
að verða sparkað, líklega um miðjan
nóvember, sé Viktor Tsjernomyrd-
ín,“ sagði hann.
Lebed sakaði Anatolí Tsjúbajs,
skrifstofustjóra forsetans, um að
hafa fengið Jeltsín til að fallast á
brottvikninguna í vikunni sem leið.
„Hann er eini maðurinn sem hefur
aðgang að forsetanum. Hann er sá
sem hefur komið í veg fyrir að aðr-
ir embættismenn, og ekki aðeins ég,
geti rætt við forsetann."
Tsjúbajs sakaður
um lygar
Lebed sagði Tsjúbajs hafa matað
Jeltsín á „röngum upplýsingum".
„Ég tel að logið hafi verið að forset-
anum á mjög faglegan hátt. Forset-
inn tók mark á þessum lygurum og
tók ákvörðun. Ég vorkenni forsetan-
um.“
Rússneska innanríkisráðuneytið
hefur afhent saksóknurum gögn sem
sögð eru sanna að Lebed hafi lagt
Lebed
Tsjúbajs
BOB Dole ávarpar aðdáendur sína á kosningafundinum
í Troy í Michigan-ríki á þriðjudag.
Reuter
nótt í svefnherbergi Abrahams Linc-
oln? Ekkert mál. Langar þig í ferða-
lag til Indónesíu? Hvíta húsið skipu-
leggur það fyrir þig!“
En Dole talaði einnig um efnahag-
inn og tillögu sína um 15 prósenta
lækkun skatta. “Ef við lækkum
skatta, grisjum allar þessar reglu-
gerðir og breytum skattakerfinu, þá
komum við efnahagnum aftur af
stað. Hagvöxtur hefur aldrei verið
hægari en einmitt núna,“ sagði Dole
grafalvarlegur. Annálað skopskyn
hans var hins vegar aldrei langt
undan. „Meira að segja Bill Clinton
mun fá skattaafslátt, ef hann lætur
mig hafa nýja heimilisfangið sitt,“
bætti Dole við.
Eftir rúmar 20 mínútur lauk Dole
máli sínu og blandaði sér í hóp áhorf-
enda, sem flestir voru áfjáðir í að
taka í hönd hans, fá eiginhanda-
ráskrift eða jafnvel mynd af sér með
frambjóðandanum. Fyrir utan svæð-
ið var hins vegar litill hópur fólks
sem hafði lítinn áhuga á Bob Dole
sem forsetaefni. Þau veifuðu skiltum
þar sem stóð „Clinton-Gore 96“ og
einn af þeim gekk um í röndóttum
jakkafötum og með skopgrímu af
Dole á höfðinu. Sá var með flösku í
hendinni og bauð fólki að súpa af
„fimmtán prósenta töframeðali" Do-
les fyrir efnahaginn. Eins og við var
að búast, afþökkuðu flestir boðið.
Stuttu síðar var Dole horfinn á
braut, á leiðinni til Columbus í Ohio,
þar sem næsta samkoma beið hans.
á ráðin um valdarán áður en honum
var vikið frá. Heimiidarmaður í ráðu-
neytinu sagði að gögnin „staðfestu
hvert orð“ Anatolís Kúlíkovs innan-
ríkisráðherra, sem hélt því fram að
Lebed hefði ætlað að stofna sérstak-
ar úrvalssveitir til að undirbúa valda-
rán með aðstoð 1.500 skæruliða frá
Tsjetsjníju.
Lebed sagði ekkert hæft í þessum
ásökunum í viðtali við rússneska
vikublaðið Argumenty í Faktí. „Hvar
eru stöðvar þeirra?" spurði hann.
„Hvar geyma þeir vopnin? Hvar eru
þessir Tsjetsjenar sem sagðir eru
flykkjast til höfuðborgarinnar? Þetta
er algjör tilbúningur."
Níkolaj Kovaljov, yfirmaður rúss-
nesku leyniþjónustunnar, sagði í gær
að „alvarleg hætta“ hefði skapast í
Tsjetsjníju og gerðar hefðu verið
ráðstafanir til að hindra hermdar-
verk af hálfu tsjetsjenskra aðskiln-
aðarsinna í Rússlandi.
Vinsælustu skcmmtisiglingar hcimsins.
Fegursta eyjan - DOMINICANA - allt innifalið
Öruggasta vetrarfríið -
Jarðnesk paradís fyrir þig og
vini þína - klúbbinn - félagið þitt.
Verð frá kr. 100 þús.
ÞÚ GERIR EKKIBETRIKAUP!
CARNIVAL UMBOBIÐ AÍSLANDL.
FEROASKKIFSTOIAÉ
:ræti 17, 4. hæö101 Reykjavík,
sími 56 20 400, fax 562 6564
Þýskur uppruni