Morgunblaðið - 24.10.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1996 43
FRÉTTIR
Vestmannaeyjakvöld á Hótel Islandi á föstudag
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
MYNDIN er ekki tekin inni á gólfi á Hótel íslandi heldur í Herjólfsdal á síðustu þjóðhátíð, þar sem
menn voru í óða önn að leggja parket i eitt tjaldið.
Lundi, Logar og Hrekkjalómar
VESTMANNAEYINGAR slá upp
þjóðhátíðartjöldum á Hótel ís-
landi á föstudagskvöld og
skemmta sér eins og þeim einum
er lagið.
A matseðlinum er lundi úteyja-
mannsins, sjávarfang úr „bugt-
inni“ og ísrétturinn Heimaklett-
ur. Lúðrasveitin Stalla Hú tekur
á móti matargestum. Pétur Ein-
arsson leikari fer með gamanmál
og kvikmyndin Úr Eyjum verður
sýnd á stóra tjaldinu en hana lét
félagið Heimaklettur í Vest-
mannaeyjum gera um mannlíf í
Eyjum. Sönglagadagskrá annast
söngvararnir Bjarni Arason, Ari
Jónsson, Helena Káradóttir og
Ólafur Þórarinsson sem syngja
Eyjalög við undirleik hljómsveit-
arinnar Karma.
Hljómsveitin Logar, skipuð
þeim Helga og Hermanni Inga
Hermannssonum, Henrý Er-
lendssyni og Guðlaugi Sigurðs-
syni, tekur þátt í skemmtidag-
skránni og leikur fyrir dansi að
henni lokinni ásamt hljómsveit-
inni Karma. Logar eru meðal
annars þekktir fyrir plötuna
Minning um mann, sem út kom
árið 1973.
Gítar og harmonikka velkomin
Hrekkjalómafélagið og Árni
Johnsen mæta til leiks og gera
sitt til að auka á þjóðhátíðarbrag-
inn. Þá er enn ótalinn Eyjasöngv-
arinn Einar „klink“._I fréttatil-
kynningu frá Hótel Islandi segir
að gestir séu hvattir til að taka
með sér gítarinn og harmonikk-
una og slá upp fjöri í tjöldunum.
Sérstök afsláttarfargjöld eru í
boði hjá Heijólfi og Flugleiðum
og Hótel Island býður afslátt á
gistingu. Miðasalan á Hótel ís-
landi er opin kl. 13-17.
Guðlaugur Sigurðsson, félagi
í hljómsveitinni Logum og einn
af skipuleggjendum Vestmanna-
eyjakvöldsins, segir að tilgangur
gleðskaparins sé að skerpa á
þjóðernisvitund brottfluttra
Eyjamanna. Hann er ekki í vafa
um að stemmningin verði góð.
„Mér finnst Vestmannaeyingar
kunna betur að skemmta sér en
aðrir íslendingar. í Eyjum
þekkja allir alla og þar af leið-
andi nær fólk miklu betur sam-
an. Vestmannaeyingar uppi á
fasta landinu haga sér nákvæm-
lega eins og Islendingar í útlönd-
um. Fólk sem þekktist lítið og
heilsaðist varla í Eyjum fer allt
í einu að tala saman eins og það
hafi þekkst í mörg ár,“ segir
Guðlaugur.
Nordia
96 hefst á
Kjarvals-
stöðum á
morgnn
NORRÆNA frímerkjasýningin Nor-
dia 96 verður haldin á Kjarvalsstöð-
um dagana 25. til 27. október. Nor-
dia er haldin á íslandi á fimm ára
fresti og er stærsta frímerkjasýning-
in sem haldin er hérlendis.
Aðgangur að Nordiu 96 er ókeyp-
is. Sérstök unglingadeild er á sýning-
unni og einnig er þar sérsýning á
hátt í 3000 frímerkjatillögum sem
9-12 ára grunnskólanemar gerðu í
tengslum við Nordiu 96.
Fjöldinn allur af íslenskum og er-
lendum frímerkjasöfnurum sýnir
söfn sín á Nordiu 96 og keppa söfn
þeirra til verðlauna. Af íslenskum
frímerkjasöfnum má m.a. nefna söfn
sem tengjast póstþjónustu á íslandi
á stríðsárunum. Annað safnið er í
eigu Skota og tekur fyrir hemám
íslands, en hitt safnið er í eigu Svía
sem tekur fyrir herpóst.
í meistaraflokki Nordiu 96 sýnir
Indriði Pálsson, stjómarformaður
Skeljungs, eitt besta íslenska safnið
sem til er í eigu Islendings. I safni
Indriða er fjallað um islenska póst-
þjónustu og þróun hennar frá 1836
til 1902.
Fulltrúar frá nokkrum eriendum
uppboðsfyrirtækjum verða með aðset-
ur á Nordia 96 og bjóðast til að líta
Morgunblaðið/RAX
KJARVALSSTAÐIR, þar sem Nordia 96 fer fram.
á frímerki og frímerkjasöfn sem kunna
að hafa geymst í skúffum og skápum.
Englendingurinn David Loe sýnir
á Nordiu 96 safn sem tekur fyrir
póstsögu Múlasýslu. Þá er eitt besta
íslenska bréfspjaldasafnið í eigu
Bandaríkjamanns og er það til sýnis
á Nordiu 96.
Sýnd frímerki
sem aldrei komu út
Þá verða sýndar prufuprentanir og
teikningar af íslenskum frímerkjum
sem aldrei komu út. Þessar prufu-
teikningar hafa ekki áður komið fyrir
sjónir almennings. Þær eru flestar frá
fjórða og fimmta áratugnum.
Fimm safnarar sýna í svokölluðum
meistaraflokki. íslenski þátttakand-
inn er Indriði Pálsson. Söfn meistar-
anna eiga það sameiginlegt að hafa
fengið verðlaun á fjölda annarra sam-
bærilegra sýninga. Eitt meistarasafn-
ið hefur að geyma safn frímerkja frá
Kambódíu og Laos, í öðru er sænsk
póstsaga og því þriðja frímerki frá
Cookeyjum, svo dæmi séu nefnd.
Póststjórnir allra Norðurlandanna,
Álandseyja, Færeyja og Grænlands,
eru með söludeildir á Nordiu 96 og
í flestum þeirra er hægt að fá póst-
stimpiþ sem er tileinkaður sýning-
unni. íslenska póststjórnin er með
sérstimpil á hveijum sýningardegi.
Fjöldi sölu- og kynningarbása er
á Nordiu 96 með efni sem tengist
frímerkjasöfnun á einn eða annan
hátt. Þar á meðal má nefna frí-
merkjakaupmenn, uppboðshaldara,
póststjórnir og Thorvaldsensfélagið,
sem kynnir jólamerki sín.
Tveir frammámenn í heimsSam-
tökum frímerkj asafnara eru meðal
gesta sýningarinnar. Annar er Knud
Mohr, varaheimsforseti Federation
Internationale Philiatelic (FIP), og
hinn er Ingolf Kapelrud, formaður
Evrópusamtaka frímerkjasafnara
(FEPA). Báðir eru þeir miklir fí-
merkjasafnarar og sýnir Knut Mohr
safn sitt í heiðursdeild en Ingolf
Kapelrud í samkeppnisdeild.
Landssamband ísienskra frí-
merkjasafnara sér um að halda Nord-
iu 96 með ijárhagslegum stuðningi
póstsögusjóðs. Að baki landssam-
bandinu standa frímerkjaklúbbarnir,
sem eru til um allt land. Formaður
LÍF er Sigurður R. Pétursson.
Alls hafa verið gefin út um 1000
íslensk frímerki og eru þau öll til
sýnis á Nordiu 96.
Ráðstefna
um málefni
barna með
krabbamein
STYRKTARFÉLAG krabba-
meinssjúkra barna (SKB) stend-
ur fyrir ráðstefnu um málefni
barna með krabbamein á Hótel
Sögu laugardaginn 26. október
klukkan 13-18. Ráðstefnan er
haldin í tilefni af 5 ára afmæli
félagsins 2. september sl.
Markmið ráðstefnunnar er að
fá heildaryfirsýn yfir stöðu barna
með krabbamein og aðstandenda
þeirra í íslensku þjóðfélagi og
að skyggnast fram á veginn. Um
leið er kastljósinu beint að mál-
efnum langveikra barna al-
mennt. í þeim tilgangi verða eft-
irfarandi erindi flutt:
Staða málefna barna með
krabbamein séð frá sjónarhóli
foreldris, Benedikt Axelsson, for-
maður SKB; Þróun lækninga á
krabbameini í börnum, Guð-
mundur Jónmundsson, sérfræð-
ingur í barnalækningum; Al-
mannatryggingar og böm með
krabbamein, Sigríður Ólafsdótt-
ir, yfirfélagsráðgjafi TR; Sálfé-
lagslegur stuðningur þegar barn
veikist, Margrét Halldórsdóttir
sálfræðingur; Menntun barna og
unglinga sem fá krabbamein,
Kolbrún Gunnarsdóttir, deildar-
stjóri í menntamálaráðuneytinu;
Félagsleg þjónusta, Áslaug Frið-
riksdóttir, deildarsérfræðingur í
félagsmálaráðuneytinu.
Á eftir hveiju erindi er gert
ráð fyrir fyrirspurnum og um-
ræðum. Ráðstefnustjóri verður
Þorsteinn Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri SKB.
Þeim sem vilja nálgast nánari
upplýsingar um ráðstefnuna er
bent á skrifstofu SKB sem opin
er alla virka daga kl. 10-15.
Jafnréttisþing
á Grand Hóteli
JAFNRÉTTISRÁÐ heldur jafn-
réttisþing á Grand Hóteli í
Reykjavík föstudaginn 25. októ-
ber nk. Þetta er í annað sinn sem
slíkt þing er haldið.
Tilgangur þess er að vera
stjórnvöldum til ráðgjafar og
umsagnar á sviði jafnréttismála
samhliða því að vera vettvangur
almennrar umræðu um jafnrétt-
ismál, uppspretta og farvegur
nýrra hugmynda. Félagasamtök-
um sem vinna að jafnrétti kvenna
og karla hefur verið boðið að
kynna starfsemi sína á þingstað
og hafa viðbrögð við því framtaki
verið góð.
Þingið hefst kl. 8.30 og stend-
ur til kl. 17. Það er opið öllum
og fer skráning fram á Skrifstofu
jafnréttisráðs.
Fundur um
launamál og
verkalýðsfélög
FUNDUR um launamál og fleira
sem tengist komandi kjarasamn-
ingum verður haldinn á Digra-
nesvegi 12 í Kópavogi í kvöld,
fimmtudaginn 24. október, og
hefst hann kl. 20.30.
Á fundinn mætir félagsmála-
ráðherra, Páll Pétursson. Frum-
mælendur verða Sigrún Hallew-
ell á Akranesi sem spyr „fyrir
hveija eru verkalýðsfélögin?" og
Þórður Ólafsson í Þorlákshöfn en
hann fjallar um „hvort launin séu
of lág“.
Fundurinn er öllum opinn og
það eru framsóknarkonur í
Reykjavík og Freyja, félag fram-
sóknarkvenna í Kópavogi, sem
boða til fundarins.
Hausthátíð
varnarliðs-
manna
VARNARLIÐSMENN halda ár-
lega hausthátíð sína með
„karnival“-sniði laugardaginn
26. október nk. og eru allir vel-
komnir.
Hátíðin fer fram í stóra flug-
skýlinu næst vatnstanki vallarins
og gefst gestum kostur á að njóta
þar fjölbreyttrar skemmtunar
fyrir alla fjölskylduna frá kl.
11-17. Þátttaka í þrautum og
leikjum og hressing af ýmsu tagi
verður á boðstólum. Milli atriða
gefst gestum kostur á að skoða
flugvélar og annan búnað varn-
arliðsins sem verður til sýnis á
svæðinu.
I fréttatilkynningu kemur
fram að aðgangur sé ókeypis og
allir velkomnir. Umferð er um
Grænáshlið ofan Njarðvíkur.
Gestir eru vinsamlegast beðnir
um að hafa ekki með sér hunda.
Canon-dagar
hjá Nýherja
CANON-DAGAR standa nú yfir
í höfuðstöðvum Nýheija í Skafta-
hlíð. Dagarnir hófust á miðviku-
dag og lýkur á föstudag.
Á Canon-dögum eru kynntar
helstu nýjungar í ljósritunarvél-
um, faxtækjum, prenturum og
reiknivélum frá Canon auk ljós-
myndavélar sem tekur stafræn-
ar ljósmyndir. Myndir úr vélinni
er hægt að prenta út í venjuleg-
um prentara. Opið er frá kl.
9-17.
■ SKÓLAFUNDUR Mennta-
skólans við Hamrahlíð sam-
þykkti á þriðjudag eftirfarandi
ályktun:
„Við, nemendur í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð, skorum á
allsheijamefnd að samþykkja þá
tillögu sem liggur fyrir kirkju-
þingi um að þjóðkirkjan leggi
blessun sína yfir sambúð sam-
kynhneigðra sem þess óska. Að
öðrum kosti teljum við að kirkjan
stuðli að fordómum í samfélag-
inu. Ekki þýðir fyrir þjóðkirkjuna
að bera það fyrir sig að hugsan-
lega muni fólk segja sig úr þjóð-
kirkjunni ef tillagan verði sam-
þykkt. Líklegra verður að telja
að jafnvel fleiri muni segja sig
úr kirkjunni þegar litið er til
lengri tíma, verði tillagan ekki
samþykkt.“
LEIÐRÉTT
Banvænn leikur
á Stöð 3
Á dagskrársíðu blaðsins í gær
var myndaflokkurinn Banvænn
leikur (Deadly Games) sagður
vera á Sýn. Rétt er að hann er
á dagskrá Stöðvar 3 kl. 21.05 á
miðvikudögum. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
Árétting um
viðræðuáætlun
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
formaður Landsambands ís-
lenzkra verzlunarmanna, vill
taka fram vegna ummæla Þórar-
ins V. Þórarinssonar, fram-
kvæmdastjóra VSI, í blaðinu í
gær, að Landssamband íslenzkra
verzlunarmanna hefur ekki sam-
ið um viðræðuáætlun við VSÍ.
Það hefur hins vegar gengið frá
viðræðuáætlun við Vinnumála-
sambandið og Félag íslenskra
stórkaupmanna.
í viðtali við Magnús L. Sveins-
son formann Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur, gætir mis-
skilnings, þar sem segir að ekki
hafi verið fallist á að gert yrði
hlé á viðræðum yfir jól og ára-
mót. Það yrði að sjálfsögðu gert.