Morgunblaðið - 24.10.1996, Side 44

Morgunblaðið - 24.10.1996, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Dýraglens Ljóska þai> hlýturaZ ÍY/Viditjr mtS finnast bctna, \ miAa hnfiJáU $tarf fyrír mi9 i uthaid oq einh utrsS td&Ckf-J StQrfsorku hhj/tur. '£n huers veqna. x-ttiéqpib tcita. eáþuiyidtuno það/eita. ct£ mir Smáfólk Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Yetrarstarf Keflavíkurkirkju Frá Jónínu Guðmundsdóttur: VETRARSTARF Keflavíkurkirkju er nú hafið af fullum krafti. Fyrsta samvera barnanna í sunnudagaskól- anum var sunnudaginn 29. septem- ber sl. Sunnudagaskólinn verður alla sunnudaga í veteur kl. 11 f.h. og er í umsjá Málfríðar Jóhannsdóttur, Ragnars Snæs Karlssonar, Laufeyj- ar Gísladóttur og sr. Sigfúsar B. Ingvasonar auk þess sem margir foreldrar leggja þar hönd að verki. Fermingarundirbúningurinn er hafinn. Væntanleg fermingarbörn fóru í Vatnaskóg í síðustu viku septmebermánaðar, en nú tekur við regluleg fermingarfræðsla fram að fermingu. Fræðsla fermingarbarn- anna er í höndum prestanna sr. Ól- afs Odds Jónssonar og sr. Sigfúsar B. Ingvasonar. Foreldrum fermingarbarna er einnig boðin fræðsla. Miðvikudaginn 30. október nk. mun sr. Sigurður Pálsson, framkvæmdastjóri Hins ís- lenzka biblíufélags, flytja erindi um þroskaferil trúarinnar. Foreldrar fermingarbarna, svo og allir þeir sem áhuga hafa á þessu efni, eru hvattir til að koma og hlýða á sr. Sigurð Pálsson. Biblíuleshópur verður starfandi í vetur eins og síðastliðinn vetur. Les- hópurinn er í umsjá þeirra sr. Sigfús- ar B. Ingvasonar og Ragnars Snæs Karlssonar. Kirkjukór Keflavíkurkirkju heldur áfram sínu ötula starfi undir stjórn organistans, Einars Arnars Einars- sonar, og æfir reglulega. Kyrrðar- og fræðslufundir Tvennt er nýtt í starfi Keflavíkur- kirkju í vetur. Er þar fyrst að nefna kyrrðar- og fræðslustundir á fimmtudögum. Er þar annars vegar um að ræða stundir sem helgaðar verða kyrrð og bæn og hefj'ast kl. 17.30 og standa í 30-45 mínútur. Þar verður flutt stutt hugleiðing og fyrirbænir ef þess verður óskað. Þeim sem óska eftir fyrirbæn er bent á að hringja í Kirkjulund, safn- aðarheimili Keflavikurkirkju, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16-18 og ræða við starfsfólk kirkj- unnar sem þar verður að störfum. Einnig má koma óskum um fyrir- bænir til prestanna. Nokkur fimmtu- dagskvöld verða svo flutt erindi þar sem fjallað verður um tengsl trúar og menningar. Þau tengsl verða skoðuð af sjónarhóli bókmennta, myndlistar og kvikmynda. Umsjón með þessum stundum hefur Lára G. Oddsdóttir, stud. theol. Heimsóknarþjónusta Annað sem nýtt er í starfi Kefla- víkurkirkju í vetur er heimsóknar- þjónustan. Kolfinna Magnúsdóttir hefur verið ráðin til þess að sinna þessari þjónustu, sem felst eins og nafnið bendir til í því að heimsækja þá einstaklinga, einkum aldraða og sjúka, sem ekki eru á faraldsfæti. Heimsóknarþjónustan er líknarstarf á vegum kirkjunnar, þar sem hlýja og umhyggja er í fyrirrúmi og fyllsta trúnaðar við skjólstæðinga er gætt. Reglubundið helgihald kirkjunnar verður á sínum stað, guðsþjónustur og messur alla sunnudaga og helgi- daga kirkjunnar. Það er einlæg von starfsfólks Keflavíkurkirkju að í hinu fjölbreytta starfi kirkjunnar finni allir eitthvað við sitt hæfi og megi njóta þess frið- ar og kyrrðar sem trúarlífið veitir. JÓNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, form. sóknamefndar Keflavíkurkirkju. Ég sá að garðsk- Ég hef verið svolítið einmana i Þakka þér úrinn ykkar var kvöld ... mega vinur minn og ég fyrir. opinn ennþá. koma inn og sitja í einni af verand- arrólunum ykkar í fáeinar mínútur? Hvað skal segja? 46 Væri rétt að segja: Ég er hlynntur þessu hvortveggju. Svar: Fornafnið hvortveggi beygist eins og greinir og veik- beygt lýsingarorð (t.d. hinn góði). Því væri rétt að segja: Ég er hlynntur þessu hvorutveggja (eins og. .. hlynntur þessu hinu góða). MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.