Morgunblaðið - 26.10.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.10.1996, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ 6 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 FRÉTTIR Morgunblaöið/Knstinn Nýr meirihluti í Kjalameshreppi Forstjóri Þjóðhagsstofnunar um úthafsveiðar Fj árhagsávinn- ingfur og ný reynsla sjómanna MEIRIHLUTI sveitarstjómar Kjalarneshrepps klofnaði í gær og gengu tveir fulltrúar D-lista Sjálf- stæðisflokks til samstarfs við tvo fulltrúa F-lista, sem áður voru í minnihluta. í minnihluta er nú einn fulltrúi af D-lista. Nýi meirihlutinn hyggst vinna að endurskipulagn- ingu fjármála hreppsins og stuðla að aukinni samvinnu eða samein- ingu við nágrannasveitarfélög. Nýja meirihlutann, sem tekur til starfa á sveitarstjórnarfundi næstkomandi fimmtudag, skipa Pétur Friðriksson og Helga Bára Karlsdóttir af D-lista og Kolbrún Jónsdóttir og Asgeir Harðarson af F-lista. Jón Ólafsson, fráfarandi varaoddviti af D-lista, verður einn í minnihluta. sé að því að fínna fé til greiðslu á afborgunum. Jón kveðst hafa óskað eftir fundi D-listans með þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins á Reykjanesi um málefni hreppsins. Sá fundur var haldinn síðastliðinn mánudag. Þar hafi Pétur Friðriksson oddviti haft framsögu en fyrrverandi sveitar- stjóri gert athugasemdir við orð oddvita. „Mér þykir miður að fund- ur með þingmönnum okkar skyldi leiða til þessa,“ sagði Jón. „Það kann að vera að menn hafi greint á um leiðir, en ég vildi vanda til þessarar vinnu eins og kostur var.“ Forseta- hjón skoða frímerki NORRÆNA frímerkjasýningin Nordia 96 var sett á Kjarvals- stöðum í gær. Sýningin stendur fram á sunnudag, er öllum opin og aðgangur ókeypis. Þetta er umfangsmesta frímerkjasýn- ing, sem haldin er hér á landi og eru allir salir Kjarvalsstaða lagðir undir hana. Hér skoða forsetahjónin, herra Ólafur Ragnar Grímsson og frú Guð- rún Katrín Þorbergsdóttir, sýn- inguna ásamt Sigurði R. Pét- urssyni, formanni sýningar- stjórnar. Að baki þeim stendur Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri. VERÐMÆTI úfluttra sjávaraf- urða af úthafsveiðum íslendinga í ár er áætlað kringum 10 milljarð- ar króna. Ávinningurinn af úthafs- veiðunum er einkum þrenns kon- ar: Framlag þeirra til landsfram- leiðslu þjóðarinnar, fjárhagslegur ávinningur fyrirtækjanna af veið- unum og óbein áhrif, þ.e. sú reynsla og þekking sem fæst af veiðunum auk viðskipta sem orðið geta vegna nýrra sambanda í öðr- um heimshlutum. Þetta kom m.a. fram í máli Þórðar Friðjónssonar forstjóra Þjóðhagsstofnunar í erindi hans á ráðstefnu um úthafsveiðar íslend- inga sem Málþing stóð fyrir í gær. Hann sagði galla við ná- kvæma úttekt á þessum málum að upplýsingar væru af skornum skammti. Þórður Friðjónsson sagði í upp- hafí máls síns að hægt væri að skilgreina úthafsveiðar á ýmsan hátt: Allar veiðar utan Island- smiða; allar veiðar úr stofnum sem ekki væru nýttir á Islandsmiðum; allar veiðar fyrirtækja með eigna- raðild íslendinga úr stofnum sem ekki væru nýttir á íslandsmiðum. Tíu milljarðar króna Þórður sagði að gera mætti ráð fyrir að úthafsveiðar íslendinga væru alls um 270 þúsund tonn. Af úthafskarfa veiddust kringum 50 þúsund tonn, 25 þúsund af þorski í Barentshafi, 20 þúsund af rækju og um 173 þúsund tonn af norsk- íslensku síldinnf. Áætlað verð þessa afla miðað við meðal- verð á síðasta ári væri kringum 10 milljarðar króna og væri þar átt við útflutningsverðmæti af- lans. Sagði hann það samsvara 10,5% af heildarútflutningsverð- mæti sjávarafurða og um 5,7% af áætluðum heildarútflutningi á vöru og þjónustu landsmanna. Af þessum 10 miiljörðum taldi hann hlut þorsks og rækju vera um 6 milljarða. Framlag þessara veiða til landsframleiðslunnar taldi hann vera á bilinu 5 til 6 milljarða króna og sagði forstjóri Þjóðhagsstofnunar ljóst að af út- hafsveiðum væri verulegur ávinn- ingur. Um fjárhagslegan ávinning fyrirtækjanna sagði hann að erf- itt væri að fá um hann upplýs- ingar, ljóst væri að menn teldu það atvinnuleyndarmál þegar vel gengi og vildu heldur ekki upp- lýsa of mikið ef illa áraði. Sagðist hann þó geta sagt að afkoman í þessum veiðum væri að jafnaði ekki síðri en meðaltalsafkoman í öðrum veiðum. Þá sagði forstjóri Þjóðhags- stofnunar að óbein áhrif af þess- um veiðum væru margvísleg. Bent hefði verið á hin félagslegu og sálrænu áhrif þeirra sem veið- arnar stundi og ljóst væri einnig að orðstír landsmanna hefði orðið fyrir hnjaski vegna slíkra veiða og hefðu einkum Norðmenn ýtt undir það. Kvaðst hann telja að það myndi lagast þegar að því kæmi að samið yrði um veiðar á slíkum svæðum. Um önnur óbein áhrif sagði hann að reynsla, tækni og þekking manna ykist og oft hefði sýnt sig að viðskipti ykjust einnig þegar Islendingar störfuðu í fjarlægum löndum og í sjávarút- vegi mætti búast við að í kjölfar- ið fylgdu aukin umsvif varðandi veiðarfæri og búnað til veiða og vinnslu á sjávarafla. Samkomulag Islands og ESA í vörugj aldamálinu Þrenn markmið Að sögn Péturs Friðrikssonar, sem áfram verður oddviti, var óeining í fráfarandi meirihluta um aðgerðir í fjármálum sveitarfé- lagsins og mögulega sameiningu við Reykjavík. Hann sagði nýja meirihlutann hafa sett sér þrjú markmið. í fyrsta lagi að Ijúka vinnu við endurskipulagningu á rekstri og fjármálum hreppsins, en skulda- staða hans hefur verið erfið. í öðru lagi að ljúka viðræðum við Reykjavíkurborg um möguleika á sameiningu sveitarfélaganna. Að sögn Péturs áttu fulltrúar Kjalnes- inga fund með fulltrúum Reykja- víkur í gær. Þar var ákveðið að skipa viðræðuhóp sem mun fara yfir einstaka málaflokka varðandi sameiningu. í þriðja lagi hyggst nýi meirihlutinn ljúka viðræðum við fulltrúa Mosfellsbæjar um möguleika á auknu samstarfi um ýmislegt er lýtur að rekstri sveitar- félaganna. „Við ætlum að klára þessi mál og leggja þau síðan í dóm kjós- enda,“ sagði Pétur Friðriksson. Fundur með þingmönnum Jón Ólafsson segir að vinna fjár- málanefndar hreppsins vegna fjár- hagsáætlunar næsta árs hafi verið komin vel á veg en henni hafi ekki verið lokið. Búið hafi verið að leysa vaxtagreiðslur og unnið ísland viðurkennir brot á EES-samningnum ISLENZKA ríkið og Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í Brussel undirrituðu á fimmtudag sam- komulag um að ESA drægi til baka mál, sem höfðað hefur verið á hendur íslandi fyrir EFTA- dómstólnum vegna innheimtu og álagningar vörugjalds hér á landi. Samkomulagið felur í sér að ísland viðurkennir að hafa brotið EES-samn- inginn. Lög um vörugjald voru kærð til ESA af hálfu Verzlunarráðs íslands skömmu eftir að samning- urinn um evrópskt efnahagssvæði tók gildi í ársbyijun 1994. ESA taldi eftir skoðun á málinu að tvö atriði í löggjöfinni brytu samninginn; annars vegar að finna grundvöll vörugjalds með því að áætla 25% heildsöluálagningu á innfluttar vörur, í stað þess að miða við raunverð eins og þegar um innlenda framleiðslu er að ræða, og hins vegar að innlendum framleiðendum hafi verið veittur frestur á greiðslu gjaldsins, en ekki erlendum. Eftir að hingað höfðu borist óformleg bréf, formleg athugasemd og loks rökstutt álit af hálfu ESA, án þess að lögunum væri breytt, höfðaði stofnunin mál fyrir EFTA-dómstólnum. Lögunum var ekki breytt fyrr en í júlí síðastliðn- um, tveimur og hálfu ári eftir gildistöku EES. í samkomulaginu, sem undirritað var á fimmtudag, kemur fram að með lagabreyting- unni í júlí hafi þau ákvæði laga sem ágreiningur var um verið felld brott og því sé ekki lengur lagalegur ágreiningur milli aðila. „ísland hefur því, með þessu samkomulagi, fallizt á skilning ESÁ þess efnis, að ákvæði laga um vörugjald hafi á sínum tíma ekki samrýmst EES-samningnum, að því leyti að það hefði ver- ið mögulegt að mismuna erlendum framleiðend- um gagnvart innlendum," segir Friðrik Sophus- son fjármálaráðherra. „Hins vegar fól málshöfð- un ESA ekki í sér, að samningurinn hafi verið brotinn með þeim hætti, að slík mismunum hafi átt sér stað í reynd.“ Stórkaupmenn íhuga málshöfðun Björn Friðfinnsson segir að ESA hafi skrifað EFTA-dómstólnum og beðið um að málið verði dregið til baka. Að öllum líkindum þurfi fulltrúi Islands ekki að mæta fyrir dóminn vegna þess, en málflutningur átti að verða í næsta mánuði. „ísland hefur viðurkennt brot á 14. grein EES- samningsins og ég vona að málinu sé þar með lokið af okkar hálfu," segir Björn. Hann segist ekki gera ráð fyrir að EFTA-dómstóllinn myndi dæma einstaklingum eða fyrirtækjum, sem teldu sig hafa orðið fyrir tjóni vegna hinna umdeildu lagaákvæða, skaðabætur. „Hins vegar er annað mál hvað íslenzkir dómstólar gera,“ segir Björn. Fram hefur komið að ýmsir af félagsmönnum Verzlunarráðs hafi íhugað að höfða mál á hend- ur ríkinu og krefja það um skaðabætur vegna tjóns af umræddum lagaákvæðum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verzl- unarráðs, segist ekki hafa heyrt frá stjórnendum fyrirtækja, sem hafi verið í þessum hugleiðing- um, eftir að samkomulag íslands og ESA var gert og honum sé ekki ljóst hvaða gildi það hafi fyrir dómstólum að Island hafi nú viður- kennt brot á EES. Vilhjálmur segir að núverandi vörugjaldslögg- jöf standist greinilega kröfur ESA, en eftir standi sú pólitíska og efnahagslega spurning, hvort innheimta vörugjaldsins sem slíks sé réttmæt, þar sem hún mismuni vörutegundum. „Við mun- um halda áfram með það mál á innanlandsvett- vangi,“ segir Vilhjálmur. Stefán Guðjónsson, framkvæmdastjóri Félags stórkaupmanna, segir til alvarlegrar skoðunar hjá félagsmönnum að höfða skaðabótamál vegna ofgreiðslu vörugjalds þann tíma, sem fyrri lög voru í gildi. Stefán segir einnig að FIS muni senda nýja kæru til ESA, þar sem það telji sjálfa gjaldtökuna bijóta í bága við EES og að breyt- ingarnar, sem gerðar voru í lögunum í sumar, gangi ekki upp í framkvæmd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.