Morgunblaðið - 05.11.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Stóra norræna
lestrarkeppnin hafin
Elín Hirst gagn-
rýnir Kvennalist
ann harðlega
í GÆR hófst norræn Iestrar-
keppni í öllum grunnskólum á
Norðurlöndum. Þetta framtak,
sem nýtur stuðnings Norrænu
ráðherranefndarinnar, er til
komið að frumkvæði Islendinga.
Hliðstæð keppni var haldin hér
á landi árið 1993. Keppnin heitir
Mímir - stóra norræna lestrar-
keppnin. Markmið keppninnar
er að auka lestur norrænna bóka
sem veitir innsýn í sögu og menn-
ingu þjóðanna. Lesturinn á að
fara fram dagana 4.-17. nóvem-
ber 1996 og nær til allra grunn-
skólanema. Keppt er í þremur
aldurshópum; í fyrsta tii fjórða
bekk, fimmta til sjöunda og svo
áttunda til tíunda. A meðan
keppnin stendur yfir munu flest
heimili á Norðurlöndum tengjast
keppninni á einn eða annan hátt.
Að sögn Garðars Gíslasonar,
verkefnisstjóra keppninnar á Is-
landi, er skipulag hennar þannig
að bæði verður keppt í því hver
les mest og í lesskilningi. „Það
verður ekki aðeins kannað hveijir
lesa mest heldur þurfa þátttakend-
umir líka að búa til veggspjald
þar sem þeir útfæra skilning sinn
á því sem þeir hafa lesið. Það
skiptir auðvitað öllu máli að fólk
skilji það sem það er að lesa.“
Keppnin felst í því að nemend-
ur lesa sem flestar bækur frá
Norðurlöndum, þar á meðal ís-
lenskar. Eftir lesturinn vinnur
hver bekkur úr því efni sem nem-
endur hafa kynnt sér. Sköpunar-
gleðin á að fá að njóta sín á vegg-
spjaldi, sem verður framlag
bekkjarins til keppninnar ásamt
lista yfir lesnar bækur. Hver
skóli velur síðan vinningsvegg-
spjöld og sendir til íslensku
keppnisstjórnarinnar. A Islandi
verða veitt þrenn verðlaun í
hverjum aldurshópi. Verðlauna-
afhending fer fram um miðjan
janúar 1997. Hvert land sendir
síðan þrjú veggsjöld í lokakeppn-
ina. Sameiginleg dómnefnd
Norðurlanda mun velja einn
vinningshafa í hverjum aldurs-
hópi og verða úrslitin kynnt á
stórri bókmenntahátíð í Stavan-
ger, Noregi, um miðjan febrúar
á næsta ári. Sigurverðlaun verða
afhent í mars 1997.
Að sögn Garðars var þátttak-
an, í keppninni sem haldin var
hérálandiárið 1993, geysilega .
góð og því var farið út í það stór-
virki að halda slíka keppni á öll-
um Norðurlöndunum. „Okkur
taldist til að ef bókunum sem
lesnar voru í keppninni árið 1993
hefði verið staflað upp hefðu þær
myndað stæðu jafnháa Esjunni,
eða um 900 metra háa. Það er
engin spurning að þessi keppni
skilaði sér í auknum áhuga nem-
enda á lestri og bókmenntum
MÍMIR — stóra norræna lestr-
arkeppnin hófst í gær en öll
Norðurlöndin átta taka þátt í
keppninni.
enda jukust útlán á bókasöfnum
mikið, bæði meðan á keppninni
stóð og lengi á eftir. Við heyrðum
hreint ótrúlega sögur af nemend-
um sem fóru á verulegt skrið í
lestrinum en það skal þó tekið
fram að þetta er ekki einstakl-
ingskeppni heldur keppir hver
bekkur sem heild. Það er mikill
hugur I hinum Norðurlöndunum
að vinna þessa keppni og slá
okkur, bókaþjóðinni, við en það
er auðvitað undir okkur komið
að við stöndum undir nafni.“
Fulltrúar frá móðurmálskenn-
urum, skólasljórum, sveitarfé-
lögum, menntamálaráðuneyti,
bókaúgefendum, fjölmiðlum og
bókavörðum skipa nefnd sem
staðið hefur að undirbúningi
keppninnar allt síðastliðið ár.
Þessir sömu fulltrúar munu einn-
ig skipa íslensku dómnefndina.
Til stendur að halda þessa keppni
árlega eða annað hvert ár í fram-
tíðinni.
ELÍN Hirst, fyrrum fréttastjóri
Stöðvar 2 og Bylgjunnar, gagn-
rýndi Kvennalistann harðlega á
fundi sem listinn stóð fyrir sl.
föstudagskvöld þar sem umræðu-
efnið var ímynd kvenna í fjölmiðl-
um, kvikmyndum og auglýsingum.
Að sögn Elínar ætti það að vera
áhyggjuefni Kvennalistans að
málflutningur hreyfingarinnar
hafi ekki náð til fleiri og þar af
leiðandi hafi listinn ekki meira
fylgi en raun ber vitni.
Þýðir lítið fyrir Kvennalistann
að skella skuldinni á aðra
„Það þýðir lítið fyrir Kvennalist-
ann að skella skuldinni á aðra
aðila s.s. fjölmiðla og ég held að
það þurfi að fara fram sálarrann-
sókn innan hreyfingarinnar sjálfr-
ar og það strax. Mér finnst
kvennalistakonur ekkert vera að
beijast sérstaklega fyrir fram-
gangi kvenna í þjóðfélaginu. Frek-
ar finnst mér þetta vera konur í
karlaleik. Inni á þingi tala þær
um ESB, álver, kjör hinna lægst
launuðu og öll hin hefðbundnu
þrasmál hinna flokkanna. Á ís-
landi situr ein kona í tíu manna
ríkisstjórn. Ein kona sem hefur
fengið að fljóta með inn í stjórnina
meira upp á húmorinn og til þess
að minna á að konur hafi kosn-
ingarétt."
Mun meiri kröfur gerðar til
útlits kvenna en karla
Frummælendur auk Elínar voru
Anna Sveinbjarnardóttir, kvik-
myndafræðingur, sem fjallaði um
konur í kvikmyndum, m.a. um
hlutverk þeirra í Óskarsverðlauna-
myndum síðasta árs.
Auk þess ræddi Áslaug Dóra
Eyjólfsdóttir, fjölmiðlafræðingur,
um ólíkar kröfur sem gerðar eru
til kvenna og karla innan fjölmiðla
og þá sérstaklega í sjónvarpi. Að
sögn Áslaugar Dóru eru gerðar
miklu meiri kröfur til útlits kvenna
en karla í fjölmiðlum og skiptir
útlitið oft meira máli heldur en
það sem þær hafa fram að færa.
Að erindum ioknum fóru frani
pallborðsumræður sem Elfa Ýr
Gylfadóttir, bókmennta- og fjöl-
miðlafræðingur, og Steingrímur
Ólafsson, fréttamaður, tóku þátt
i auk Önnu, Áslaugar Dóru og
Elínar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
RÚMLEGA 100 borgarstarfsmenn sóttu námstefnu um gerð
starfsáætlunar í jafnréttismálum hjá stofnunum borgarinnar.
Reykjavíkurborg
Námstefna um
starfsáætlun í
jafnréttismálum
íslenskir heimsmeistarar
í parasveitakeppni
SIGURVEGARARNIR á fyrsta heimsmeistaramótinu í parasveita-
keppni á verðlaunapallinum. Frá vinstri eru Jón Baldursson, Björn
Eysteinsson, Heather Dhondy, Liz McGowan, Aðalsteinn
Jörgenlsen, Ragnar Hermannsson og Bobby Wolff, fyrrverandi
forseti Alþjóðabridssambandsins sem afhenti verðlaunin.
NÁMSTEFNA um gerð stariu-
áætlunar í jafnréttismálum hjá
stofnunum Reykjavíkurborgar var
hablin sl. föstudag í Ráðhúsinu en
hver borgarstofnun á að gera sína
starfsáætlun, þar sem lýst er
hvernig markmiði jafnréttisáætl-
unar hjá borginni verði náð.
„Jafnréttisáætlunin lýsir mark-
miðunum en starfsáætlunin iýsir
leið hverrar borgarstofnunar að
þessum markmiðum,11 sagði Hildur
Jónsdóttir jafnréttisráðgjafi
Reykjavíkurborgar. „Hver borgar-
stofnun þarf að skoða sína innviði
með tilliti til jafnréttis og setja upp
aðgerðaráætlun og með þessari
námstefnu var verið að hefja þá
vinnu.“
Tveir norskir fyrirlesarar komu
til námstefnunnar og greindu frá
j sinni reynslu. Ingrid Guldvik hefur
stundað rannsóknir á stjórnarhátt-
um og skipulagningu sveitarfélaga
og þá sérstaklega jafnréttismálum
og Torill Lundli er ráðgjafi hjá
borgarfyrirtæki í Ósló og hefur
reynslu af hvernig hægt er að ná
árangri innan borgarfyrirtækja.
„Þetta kom mjög vel út,“ sagði
Hildur en um 110 starfsmenn
borgarstofnana sátu námstefn-
una. „Þarna sáfólkjafnréttisstarf-
ið í víðu samhengi. Um ieið og
talað er um jafnrétti þá er líka
verið að tala um að Reykjavíkur-
borg verði að vera fjölskylduvænni
vinnustaður. Það er sterk tilfinn-
ing fyrir að komið sé að endimörk-
um yfirvinnu þjóðfélagsins og að
það hangi saman við jafnréttispóli-
tíkina. Launajafnrétti næst ekki
eingöngu með því að hætta að
krefjast yfirvinnu sem sumir geta
uppfyllt en aðrir ekki. Eg held að
við höfum verið að hefja mjög
merkilegt starf og það eru góðar
væntingar í fólki.“
BRIPS
Ródos, Grikklandi
ÓLYMPÍUMÓTIÐ
Ólympíumótið í brids var haldið dag-
ana 19. október til 2. nóvember.
Fyrsta heimsmeistaramótið í pai’a-
sveitakeppni var haldið 29. október
til 2. nóvember.
ÍSLENDINGAR gerðu sér lítið
fyrir og unnu á laugardag fyrsta
heimsmeistaratitilinn sem keppt
hefur verið um í parasveitakeppni
í brids.
Parasveitakeppnin var haldin á
vegum Alþjóðbridssambandsins
samhliða úrslitum Ólympíumótsins.
Reglur mótsins voru nokkuð frjáls-
legar því ekki var nauðsynlegt að
sveitarféjagar væru frá sama landi.
Þegar íslendingar töpuðu fyrir
Indónesum í 8 liða úrslitum ákvað
hluti liðsins að taka þátt í para-
sveitakeppninni bg myndaði sveit
með tveimur breskum landsliðskon-
um, sem einnig höfðu tapað sinni
viðureign í 8 liða úrslitum kvenna-
flokksins. Liðið var því skipað þeim
Birni Eysteinssyni, Áðalsteini Jörg-
ensen, Ragnari Hermannssyni, Jóni
Baldurssyni, Heather Dhondy og
Liz McGowan.
Fyrst voru spilaðar 15 umferðir
í undankeppni, með 10 spila ieikj-
um. íslensk-breska sveitin vann alla
sína leiki og endaði með 289 stig.
Næst kom bandarísk sveit undir
stjórn Marks Feldmans með 267
stig og tvær franskar sveitir, Na-
hmens og Faivre, voru í 3. og 4.
sæti með 266 og 260.
í næstu sætum voru ýmis kunn
nöfn. Norsk-sænsk sveit var í 5.
sæti en í henni spiluðu Tor og Gunn
Helness, Geir Helgemo og Cathar-
ine Midskog. Og í 6. sæti var sveit
undir forustu Bandaríkjamannsins
Edgars Kaplans sem spilaði við
franska Evrópumeistarann Bene-
dicte Cronier en sveitarfélagar
þeirra voru Bobby Wolff og Sylvie
Willard.
Vildi gull
íslendingarnir tiyggðu sér a.m.k.
3. sætið í mótinu með því að vinna
undankeppnina og fengu einnig rétt
til að velja sér andstæðing í undan-
úrslitum. Þeir völdu Faivre og unnu
77-48 í 30 spila leik.
Hinn undanúrslitaleikinn vann
sveit Feldmans, en hann var í
bandaríska landsliðinu sem keppti
um Bermúdaskálina i Yokohama
1991. Með honum spilaði margfald-
ur heimsmeistari kvenna, Sharon
Osberg, og hjónin Rozanne og Bill
Pollack, sem m.a. unnu bronsverð-
laun á heimsmeistaramóti í paratví-
menningi fyrir nokkrum árum.
Úrslitaleikurinn var 32 spil, og
spilaður samhliða tveimur síðustu
lotunum í úrslitaleik opna flokksins
á Ólympíumótinu. Liz McGowan
hefur spilað tvívegis til úrslita á
heimsmeistaramótum í kvenna-
flokki en tapað í bæði skiptin og
nú bað hún sveitarfélaga sína um
gullverðlaun. Þeir hlýddu: í fyrri
lotunni náði íslensk-breska sveitin
góðu forskoti, 42-11, og þótt
Bandaríkjamennirnir næðu að saxa
á forskotið í þeirri síðari dugði það
ekki til. Ixikastaðan var 66-55 fyr-
ir Ísland-Bretland.
Þótt þetta sé að sjálfsögðu ekki
eins verðmætur heimsmeistaratitill
og Bermúdaskálin eða Ólympíu-
meistaratitillinn, er þetta samt
heimsmeistaratitill og íslensku spil-
ararnir hafa komið sér á spjöld
bridssögunnar með því að vinna
hann í fyrsta skipti. Um leið hafa
þeir enn og aftur staðfest styrkleika
Islendinga í íþróttinni.
Frakkar vörðu titilinn
Frakkar vörðu Ólympíumeistara-
titii sinn í opna flokknum með því
að vinna Indónesíu 358-268 í 128
’spila úrslitaleik. í franska liðinu
spiluðu Alain Lévy, Herve Mouiel,
Henri Szwarc, Frank Moulton,
Christian Mari og Marc Bompis. I
kvennaflokki unnu Bandaríkin yfir-
burðasigur a Kínvetjum í 98 spila
úrslitaleik. í bandaríska liðinu spil-
uðu mæðgurnar Gail Greenberg og
Jill Blanchard, Irina Levitina,
Shawn Quinn, Linn Deas og Juan-
ita Chambers.
Danmörk og Tævan spiluðu 32
spila leik um 3. sætið í opna flokkn-
um og Danir unnu hann örugglega
svo þeir hrepptu bronsverðlaunin.
Þá vann Kanada Austurríki í leik
um 3. sætið í kvennaflokki.
Guðm. Sv. Hermannsson