Morgunblaðið - 04.04.1997, Síða 1
72SIÐURB/C
75. TBL. 85. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Mesta
mengun-
arbælið
BORGIN Chongqing í Vestur-
Kina er liklega mesta meng-
unarbæli hér á jörð. Þar eru
10.000 verksmiðjur, sem spúa
út 800.000 tonnum af brenni-
steinstvísýringi árlega, en
hreinsibúnaður er þar næstum
óþekktur. í borginni, sem er ein
sú fjölmennasta í Kína, þrífst
næstum enginn gróður og skóg-
urinn í kring er dauður. Krabba-
mein og aðrir sjúkdómar eru
miklu algengari í Chongqing en
annars staðar í landinu og eitt
árið hafnaði herinn öllum nýlið-
um þaðan vegna heilsuleysis.
---------♦------
Vill verða
kanslari í
fimmta sinn
Bad Hofgastein, Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, hélt upp á 67 ára afmælið
í gær með því að tilkynna, að hann
hygðist leita eftir endurkjöri í
fimmta sinn í kosningum á næsta
ári.
Kohl, sem tilkynnti ákvörðun
sína í viðtali við ARD-sjónvarpið,
sagði, að hann teldi það skyldu sína
að bjóða sig fram aftur vegna
þeirra mörgu og mikilvægu verk-
efna, sem framundan væru.
í febrúar sl. kvaðst Kohl ekki
mundu ákveða framboð fyrr en síð-
ar á árinu og kom því yfirlýsing
hans nú nokkuð á óvart. Stuðnings-
menn hans hafa hins vegar lagt
að honum að taka sem fyrst af
skarið.
Jafnaðarmenn munu ákveða í síð-
asta lagi á flokksþingi í apríl að ári
hvert verður þeirra kanslaraefni og
mætti ætla, að leiðtogi flokksins,
Oskar Lafontaine, stæði best að
vígi. Hann hefur hins vegar áður
beðið lægri hlut fyrir Kohl og stend-
ur honum að baki í vinsældum. Því
er Gerhard Schröder, forsætisráð-
herra jafnaðarmanna í Neðra-Sax-
landi, talinn eiga góða möguleika
en hann skákar Kohl í vinsældum
meðal almennings en er aftur á
móti ekki í miklu uppáhaldi hjá
vinstrimönnum i eigin flokki.
Andstæðingur Mobutus tilnefndur forsætisráðherra Zaire
Skæruliðar hafna
ráðherrastólum
Goma, Kinshasa, París. Reuter.
NYSKIPAÐUR forsætisráðherra
Zaire, Etienne Tshisekedi, tilkynnti
í gær um nýja stjórn landsins en í
henni eiga engir fulltrúar Mobutus
Sese Seko forseta sæti auk þess
sem sex ráðherraembætti voru frá-
tekin fyrir skæruliða. Þeir höfnuðu
þeim hins vegar í gær og segja að
tilnefning Tshisekedis breyti engu
um fyrirætlanir þeirra um að steypa
Mobutu af stóli. Tshisekedi er svar-
inn andstæðingur Mobutus og var
skipaður til að stýra samningavið-
ræðum við skæruliða sem flestir eru
af ættbálki tútsa.
Það var stjórnarandstaðan á
þingi Zaire sem tilnefndi Tshisekedi
sem er 64 ára. Skæruliðar segja
skipan hans skipta litlu máli, hann
sé valdalaus strengjabrúða Mobutus
forseta.
Tshisekedi nýtur víðtæks stuðn-
ings í Zaire en Mobutu rak hann í
tvígang úr embætti forsætisráð-
herra, árin 1992 og 1993. Hann
var ráðherra í stjórn Mobutus fyrstu
árin eftir að hann komst til valda
árið 1965 en snerist gegn honum
á níunda áratugnum og fór i farar-
broddi þeirra sem kröfðust fjöl-
flokkakosninga árið 1990.
Skæruliðar sakaðir
um fjöldamorð
Einn starfsmanna flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna hefur
sakað skæruliða í Zaire um að hafa
framið fjöldamorð á flóttamönnum
frá Rúanda og sagði hann flótta-
fólk hafa nefnt tölur frá nokkrum
hundruðum og upp í tugi þúsunda.
Skæruliðar hefðu ekki getað gefið
viðhlítandi skýringar á hvarfí fjöl-
margra flóttamanna á svæðum sem
þeir hefðu farið um.
Starfsmenn flóttamannastofnun-
arinnar vinna nú að þvi að flytja
hútúa frá Rúanda aftur til síns
heima en þeir hafa dvalið í fiótta-
mannabúðum í Goma í Zaire í tæp
tvö ár. Þá hefur flóttamanna-
straumurinn frá Zaire aukist en
fjöldi fólks hefur komið yfír landa-
mærin til Zambíu undanfarna daga.
Amnesty
Pyntingar
í Rússlandi
London. Reuter.
AMNESTY International for-
dæmdi í gær harðlega kerfis-
bundnar pyntingar í Rúss-
landi og sagði höfundur
skýrslu um þessi mál, að
Borís Jeltsín, forseti landsins,
bæri sína ábyrgð á ástandinu.
Mariana Katzarova, sem
tók skýrsluna saman, nefnir
ýmis dæmi um pyntingar á
föngum og sakborningum og
segir, að þær eigi sér stað
þegar fólk er í gæsluvarð-
haldi eða í fangelsi og í hern-
um.
Katzarova sagði að Jeltsín
hefði bætt gráu ofan á svart
með tilskipunum um aukna
baráttu gegn glæpum en með
þeim hefði verið leyft að
halda fólki í 30 daga einangr-
un í stað tveggja sólarhringa
áður.
Netanyahu, forsætisráðherra Israels
Afram byggt
hvað sem
hver seeir
Jerúsalem. Reuter. ^ ^
BENJAMIN Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, sagði í gær, að stjórn
sín myndi áfram leyfa nýbyggðir gyðinga á hernumdu svæðunum
hvað sem liði mótmælum Palestínumanna. Kvaðst hann mundu færa
Bili Clinton, forseta Bandaríkjanna, þau skilaboð en þeir eiga fund
með sér í Washington í næstu viku.
„Við munum halda áfram við
nýja hverfíð í Austur-Jerúsalem og
við munum reisa ný hús í byggðum
gyðinga á Vesturbakkanum. Um
það er ekki meira að segja,“ sagði
Netanyahu á fundi með flokks-
bræðrum sínum í Likudflokknum í
Tel Aviv í gær. Gagnrýndi hann
einnig palestínsk yfirvöld harðlega
og sakaði þau um að hafa gefið
hermdarverkamönnum „grænt
ljós“.
Beðið eftir Clinton
Palestínumenn krefjast þess að
ísraelar hætti við að reisa nýja
hverfíð í A-Jerúsalem og eru nú
bundnar vonir við að Clinton leggi
hart að Netanyahu að verða við því.
Hassan Asfour, einn helsti samn-
ingamaður Palestínumanna, sagði í
gær, að yfirlýsing Netanyahus væri
enn einn steinninn í dysina þar sem
hann hefði huslað friðarsamning-
ana. Jafnframt væri hún áminning
til Bandaríkjastjómar um að fara
að bregðast af alvöru við ruddaleg-
um kröfum ísraelsstjórnar.
Mótmælin gegn byggingarfram-
kvæmdum ísraela í A-Jerúsalem
héldu áfram í dag, 15. daginn í
röð, og settu námsmenn á svið
táknræna útför friðarsamninganna
við Israel.
Reuter
PALESTÍNSKIR námsmenn efndu til táknrænnar útfarar friðar-
samninganna við ísraela í gær og á spjöldum, sem þeir báru,
mátti m.a. lesa, að banamein þeirra hefði verið Netanyahu.
Vilja bóluselja við lifrarbólgu
BELGÍSKIR læknar hafa hvatt til allsheijar-
bólusetningar við lifrarbólgu B og segja þeir,
að það sé ódýrari kostur en að meðhöndla þá,
sem sýkjast. Lifrarbólguveiran er önnur helsta
ástæðan fyrir krabbameini nú á dögum á eftir
reykingum að þvi er fram kemur í Keuters-frétt.
I grein, sem belgíski læknirinn Pierre van
Damme og samstarfsmenn hans skrifa í Breska
læknablaðið, segja þeir, að þótt bóluefni við
lifrarbólgu B hafi verið til í tíu ár sé það óvíða
notað í almennri bólusetningu. Sé hún almennt
ekki talin svara kostnaði en van Damme er á
öðru máli. Talið er að þriðjungur mannkyns
hafi smitast af veirunni.
Engin ákvörðun hér
Haraldur Briem smitsjúkdómafræðingur
sagði í viðtali við Morgunblaðið, að þessi mál
væru ávallt til skoðunar hér en ekki hefðu ver-
ið teknar neinar ákvarðanir um almenna bólu-
setningu barna eins og gert væri sums staðar
í Suðaustur-Asíu þar sem sjúkdómurinn væri
hvað algengastur. Talið væri, að hér smitaðist
einn af hverju þúsundi en gangurinn væri sá,
að langflestir læknuðust sjálfkrafa en 1-5%
fengju skorpulifur eða krabbamein.
Haraldur sagði, að um 1990 hefði verið lifrar-
bólgu B-faraldur meðal eiturlyfjaneytenda hér
á landi en nú væri lifrarbólga C viðvarandi í
þeim hópi. Yrði hún að varanlegum sjúkdómi
í 75% tilfella og við henni væri ekkert lyf til.
■ Veira í beijum/20