Morgunblaðið - 04.04.1997, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flugleiðir og flugvirkjar sömdu í gær
Samið var um nýtt
vaktafyrirkomulag
FLUGVIRKJAR og Flugleiðir
skrifuðu undir nýjan kjarasamning
um kl. 15 í gær eftir meira en
sólarhrings fundarsetu. Samning-
urinn gildir til 15. febrúar árið
2000 og felur í sér sömu grunn-
kaupshækkanir og samningar sem
gerðir hafa verið á síðustu vikum,
að sögn Jakobs Þorsteinssonar,
formanns Flugvirkjafélags íslands.
Millilandaflug verður því með eðli-
legum hætti í dag.
Meginágreiningurinn i kjaradeil-
unni var um vinnutilhögun í við-
haldsstöð Flugleiða í Keflavík. Jak-
ob sagði að sl. sumar hefðu Flug-
leiðir breytt vinnutilhögun og nýtt
sér 30 ára gamalt ákvæði í samn-
ingum sem aldrei hefði verið notað.
Þetta hefði haft í för með sér um-
Heilsufar
atvinnuflugmanna
Ellefu
hafa misst
skírteini á
áttaárum
ELLEFU handhafar atvinnu-
flugskírteinis misstu réttindi
sín á árunum 1988 til 1995
af heilsufarsástæðum. Reglur
Alþjóða flugmálastofnunar-
innar kveða á um að atvinnu-
flugmenn gangist tvisvar á ári
undir læknisskoðun. Með því
á að tryggja öryggi í flugi og
að flugmenn geti ekki stundað
starf sitt nema heilbrigði
þeirra sé tryggð.
Þessir ellefu flugmenn
misstu réttindin varanlega en
fyrir kemur einnig að flug-
menn missa skírteini tíma-
bundið meðan læknisrannsókn
eða meðferð stendur yfir.
„Auk þessara læknisskoð-
ana tvisvar á ári ber flug-
mönnum einnig skylda til að
tilkynna trúnaðarlækni Flug-
málastjómar þurfi þeir að leita
læknis utan reglulegra skoð-
ana og það á enginn að geta
flogið ef heilsufar hans leyfir
það ekki,“ segir Kristján Eg-
ilsson, formaður Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna, í
samtali við Morgunblaðið.
Hann segir mjög ákveðnar
reglur gilda um þessi mál og
að í raun sé stétt flugmanna,
ein stétta, seld undir þá sök
að atvinnuöryggi þeirra sé til
skoðunar á sex mánaða fresti.
Strajigar reglur
eiga rétt á sér
Kristján segir að með fram-
förum í læknisfræði valdi ein-
staka sjúkdómar ekki lengur
missi atvinnuflugskírteinis,
svo sem kransæðastífla. Með
hjáveituaðgerð megi laga slíka
sjúkdóma en alvarlegri hjarta-
sjúkdómar leiði hins vegar til
skírteinismissis svo dæmi sé
tekið. Um 300 atvinnuflug-
menn eru starfandi hérlendis
en handhafar atvinnuflugskír-
teinis eru um 470. Kristján
segir ljóst að reglur sem þess-
ar eigi rétt á sér enda verði
það að vera hafið yfír allan
vafa að heilsufar flugmanna
geti nokkru sinni ógnað ör-
yggi í atvinnuflugi.
talsverða tekjurýmun þar sem
ákveðin verk hefðu verið unnin í
dagvinnu sem áður voru unnin í
næturvinnu. Flugvirkjar hefðu
krafíst þess að þessu yrði breytt
þannig að þeir héldu óbreyttum
launum. Á þetta hefðu Flugleiðir
fallist á endanum. Hann sagði að
lausnin hefði falist í því að breyta
vinnutímanum og taka upp nýtt
vaktafyrirkomulag.
Jakob sagði að auk þess hefði
næturvinnuhlutfallið verið lækkað
gegn því að fá hækkun á grunn-
kaupi á móti. Þetta fæli ekki í sér
kauphækkanir umfram það sem
aðrir hefðu samið um. Þá hefði
verið endurnýjaður samningur um
ferðatíðni milli Reykjavíkur og
Keflavíkur.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri og borgarfulltrúamir
Alfreð Þorsteinsson og Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson lýstu þvi yfir við
umræður í borgarstjóm í gærkvöldi
að ekki væri ástæða til að ætla ann-
að en að bjóðendur í útboði Hita-
veitu Reykjavíkur á hverfilsamstæð-
um í orkuver á Nesjavöllum hefðu
notið jafnræðis.
Borgarfulltrúamir vísuðu allir á
bug fullyrðingum Guðrúnar Zoéga,
borgarfulltrúa sjálfstæðismanna, um
að borgarráð hefði að kvöldi annars
páskadags unnið myrkraverk með
því að afgreiða málið og ganga að
tilboði Mitsubishi Corporation þvert
á tilmæli fjármálaráðuneytis um að
útboðsframkvæmdir yrðu stöðvaðar
vegna kæru, sem borist hefði frá
fyrirtækinu Sumitomo. Sagði Vil-
hjálmur að málflutningur Guðrúnar
væri henni ekki til sóma.
Borgarstjóri sagði að boðað hefði
verið til borgarráðsfundar í skyndi
til að tryggja hagsmuni Reykjavík-
urborgar. Fuiltrúar borgarinnar
Jakob sagðist vera þokkalega
sáttur við þennan kjarasamning og
myndi mæla með því við sína félags-
menn að hann yrði samþykktur.
Styrkir
viðhaldsstöðina
í fréttatilkynningu frá Flugleið-
um segir að samningurinn sé á svip-
uðum nótum og aðrir samningar á
almennum vinnumarkaði. Meðal
nýmæla í samningnum séu ákvæði
um nýtt vaktafyrirkomulag sem
auki sveigjanleika í starfseminni og
gefí fyrirtækinu færi á að sækja
fleiri verkefni á alþjóðlegan við-
haldsmarkað. Þetta kæmi því til
með að styrkja starfsemi viðhalds-
stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli
og auka starfsöryggi.
Guðrún Zoega
sakar borgarráð
um að hafa fram-
ið myrkraverk
hefðu lýst þeirri afstöðu sinni á fundi
með fulltrúum ráðuneytisins að það
hefði ekki lögsögu í málinu og borg-
in væri í fullum rétti að afgreiða
það. Vilhjálmur sagði að langvarandi
dráttur á afgreiðslu málsins hefði
getað þýtt hundruð milljóna króna
skaða fýrir borgina.
Guðrún Zoéga efaðist um að borg-
aryfirvöld hefðu farið að landslögum
við meðferð málsins. Taldi hún vafa-
samt að frávikstilboð Mitsubishi,
sem gengið hefði verið að, væri gilt
þar sem það hefði ekki verið lesið
upp við opnun tilboða að viðstöddum
fulltrúum bjóðenda.
Ingibjörg Sólrún sagði óumdeilt
að frávikstilboð Mitsubishi hefðu
verið fullgild, jafnvel þótt þau hefðu
Tilrauna-
dæling
lofar góðu
STARFSMENN Jarðborana hf.
luku í fyrradag við borun eftir
heitu vatni í Þykkvabæ þegar
jarðborinn Narfi var kominn
niður á 1.412 metra dýpi. í
framhaldi af því fór svo fram
í gær tilraunadæling holunnar
og er árangurinn framar
björtustu vonum, en upp
fengust 10-12 sekúndulítrar
af 70 gráða heitu vatni. Að
sögn Þóris Sveinbjörnssonar
borstjóra, streymir 80-90
gráða heitt vatn inn í hoiuna
á nokkrum stöðum neðan
1100 metradýpis.
„Það er trúlegt að lokaút-
koman verði e.t.v. eitthvað
færri sekúndulítrar en við
erum að fá núna, en hitinn á
vatninu verður sennilega um
eða yfir 80 gráður, sem verður
að teljast mjög góður árangur,"
sagði Þórir.
ekki verið lesin upp. Þeirra hefði
skýrt verið getið í tilboðsgögnum.
Hún viðurkenndi á hinn bóginn að
það hefðu verið mistök að lesa ekki
upp frávikstilboð við opnun tilboða
en mikilvægt væri að bjóðandi gyldi
þess ekki.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson taldi
málsmeðferð hafa verið eins vand-
aða og kostur var en sérstök áhersla
hefði verið lögð á að leita sérfræði-
aðstoðar við að meta tilboðin.
Vilhjálmur undraðist hins vegar
með hvaða hætti fjármálaráðuneytið
hefði blandað sér í málin með því
að vísa kæru fulltrúa Sumitomo til
kærunefndar útboðsmála.
Vilhjálmur fullyrti að aðgerðir
ráðuneytisins væru lögbrot og þess
vegna mætti líta svo á að borgarráð
hefði með samþykkt sinni annan
páskadag komið í veg fyrir lögbrot.
Sagði hann fulla ástæðu til þess að
ríki og sveitarfélög tækju upp við-
ræður um hvernig meðhöndla bæri
ágreiningsmál, sem upp kynnu að
koma vegna útboða sem þessa.
BRESKA rokkhljómsveit-
in Skunk Anansie með
söngkonuna Skin fremsta
í flokki.
Skunk
Anansie i
til Islands i
BRESKA rokkhljómsveitin
Skunk Anansie er væntanleg
hingað til lands og heldur tón-
leika í Laugardalshöll 10. maí
næstkomandi. Hljómsveitin er
meðal vinsælustu hljómsveita
hérlendis og hefur síðasta plata |
hennar selst afar vel hér á landi.
Hljómsveitin Skunk Anansie
er fjögurra ára gömul og með
vinsælustu hljómsveitum Bret-
lands. Nýjasta breiðskifa
hljómsveitarinnar, Stoosh, hef-
ur notið mikillar hylli hér á
landi og er nú meðal söluhæstu
hljómplatna nokkru eftir að
hún kom út. Lög af henni hafa
mörg komist inn á vinsælda-
lista.
Skunk Anansie heldur tón-
leika í Laugardalshöll 10. maí
næstkomandi eins og áður er
getið og íslenskar hljómsveitir
munu hita upp. Ekki hefur ver-
ið gengið frá því hvaða hljóm-
sveitir það verða.
Snæfellsnes
Spýtnabrak ,
úr Skeiðar- ,
árbrú rekur
áland
SPÝTNABRAK sem greinilega er
frá brú eða bryggju hefur fundist í
Stakkhamarsfjöru á sunnanverðu
Snæfellsnesi að undanförnu og telur t
Bjami Alexandersson, bóndi á :
Stakkhamri, að þar sé um að ræða í
dekk úr Skeiðarárbrú, en hluti af '
henni fór í Skeiðarárhlaupinu í nóv-
ember síðastliðnum.
Bjami segist í samtali við Morg-
unblaðið hafa fundið um fimmtán
til tuttugu planka sem séu um tvær
og hálf tomma á þykkt og sjö tommu
breiðir. „Það er augljóst að þeir eru
úr brú eða bryggju og því tel ég
helst að megi rekja þá til Skeiðarár- I
brúar," segir hann. |
Bjarni segir ennfremur að þessi .
reköld komi honum ekki á óvart, því ’
ýmislegt gefi til kynna að straumur-
inn liggi í þessa átt í kringum land-
ið. I annálum hafí hann til dæmis
lesið að hafís hafí aldrei komið inn
á Faxaflóann að norðanverðu heldur
að sunnanverðu og því farið suður
með Austfjörðum og vestur fyrir
Reykjanes.
Meiddist í !
bílveltu
BIFREIÐ valt skammt frá Hítará á
Snæfellsnesi um klukkan 19.30 í gær
og var ein kona flutt á Sjúkrahúsið
í Stykkishólmi í kjölfarið með áverka.
Þrír voru í bifreiðinni þegar hún
valt og virðist sem ökumaður hennar
hafi misst vald á henni sökum hálku,
samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. f
Áverkar konunnar voru minni en I
búist var við þegar komið var á slys-
stað, þar sem bifreiðin er gjörónýt. I
-
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Umræður í borgarstjórn um meðferð tilboða í hverfla
Fyrirtæki talin hafa
notið jafnræðis