Morgunblaðið - 04.04.1997, Side 17

Morgunblaðið - 04.04.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 17 RAGNAR Steinn eigandi Bugtar ehf. handsalar sölusamninginn við Lars Envall sölustjóra Bic Ballograf AB. Nýr dreifingaraðili með Bic BUGT ehf. hefur tekið við sölu- og dreifingu á Bic, Ballograf og Conté vörum hér á landi. Fram kemur í frétt frá Bugt að Bic fyrirtækið hafi verið stofn- að árið 1953 af frakkanum Marcel Bich, en hann hafði þá í 8 ár unn- ið að endurbótum á kúlupenna Ungveijans Laslo Biro. Bic kúlu- penninn varð fyótlega þekktur fyrir gæði og lágt verð, en nú seljast um 15 miiyónir af Bic kúlu- pennum á dag. Á árunum 1973- 1975 setti fyrirtækið á markað Bic kveikjara og Bic rakvélar. Árið 1979 var fyrirtækið sam- einað Conte sem framleiddi eink- um blýanta. Þá er fyrirtækið Ballograf jafnframt í eigu Bic, en það hefur frá árinu 1947 fram- leitt fyllingar í kúlupenna. Kúlan í fyllingunum er úr ryðfríu stáli og fylgir öllum vörum fyrirtækis- ins lífstíðarábyrgð. Arabískur prins kaupir hlut íApple Dubai. Reuter. SAUDI-ARABÍSKI milljarðamær- ingurinn al-Waleed bin Talal prins kveðst hafa keypt 5% hlutabréfa í Apple tölvufyrirtækinu á opnum markaði á undanförnum vikum fyrir 115 milljónir dollara. Um miðjan síðasta mánuð til- kynnti prinsinn að hann hefði keypt 5% í flugfélaginu Trans World Airlines. Viku síðar tilkynnti hann að hann hefði keypt 5% í norska skipafélag- inu Norwegian Cruise Lines fyrir 20 milljónir dollara. Kaupir Oracle Apple? Um svipað leyti sagði prinsinn frá byggingarframkvæmdum upp á 500 milljónir dollara í Riyadh, þar sem hann hyggst reisa verzlunarbygg- ingar og hótel í hinni frægu Four Seasons-keðju. Fréttir herma að hópur fjárfesta Morgunfundur hjá VÍ Þróuná matvæla- markaði VERSLUNARRÁÐ islands gengst fyrir morgunverðarfundi um þróun í dreifíngu og smásölu matvæla þriðjudaginn 8. apríl nk. í Sunnusal Hótels Sögu frá klukkan 8:00 til 9:30 í fréttatilkynningu frá VÍ kemur fram að framsögumenn fundarins verði Dr. John Sawson, prófessor við Háskólann í Edinborg, Höskuld- ur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs ÍS, og Sigurð- ur Jónsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka íslands. „John Dawson hefur getið sér gott orð fyrir hagnýtar rannsóknir og ráðgjöf á sviði dreifingar og smásölu matvæla bæði á Bretlands- eyjum og meginlandi Evrópu. Auk þess að sinna kennslu og fræða- störfum við Háskólann í Edinborg hefur hann starfað sem ráðgjafi nokkurra af helstu verslunarkeðjum Englands og Spánar," segir í frétta- tilkynningu. Fundargjald er 1.500 krónur og er fundurinn öllum opinn. Þátttaka tilkynnist fyrirfram í síma 588 6666. undir forystu forstjóra Oracle Corp, Larrys Ellison, hafi áhuga á meiri- hluta hlutabréfa í Apple. Um þær fréttir sagði prinsinn að hann mundi fylgjast með atburðarásinni og sjá hvaða ráðstafanir Ellison, stjórn Apples og fleiri mundu gera til að auka hagnað hluthafa Apples. Al-Waleed á hlut í bandaríska bankarisanum Citicorp, smásölufyr- irtækinu Saks Fifth Avenue og Plaza Hotel, Euro Disney og Canary Wharf í Docklands-hverfí Lundúna. Hann á einnig hlut í sjónvarps- og auglýsingafyrirtæki Silvios Berlusc- onis, fyrrum forsætisráðherra, Mediaset. Fyrr á þessu ári keypti hann hót- el Georgs V í París. í fyrra samdi hann við poppstjörnuna Michael Jackson um samvinnu um tónleika, kvikmyndir, sjónvarp, skemmti- garða og hótel. Tap hjá álfyrirtæki í Hollandi Beverwý'k, Hollandi. STÁL- og álfyrirtækið Kon- inklijke Nederlandsche Hoogo- vens en Staalfabrieken NV í Hollandi hefur skýrt verulega minni hagnaði Þó eru tölurnar talsvert hag- stæðari en búizt hafði verið við og fyrirtækið kveðst hjartsýnt á horfumar 1997. Hlutabréf í fyrirtækinu hækkuðu í verði. Nettóhagnaður 1996 nam 326 milljónum gyllina eða 169 milljónum dollara miðað við 507 milljónir gyllina 1995 og 260-310 milljónir, sem sér- fræðingar höfðu spáð. Sanana Biddu um Banana Boat ef þú vilt spara 40-60% Hlutabréf íNewcastle á yfirverði London. Reuter. HLUTABRÉF í úrvalsdeildarliðinu Newcastle United seldust á yfirverði, þegar þau voru sett í umferð í kaup- höllinni í London á miðvikudag. Hlutabréf í knattspyrnufélögum snarhækkuðu í verði í fyrra, en mik- il leiðrétting hefur átt sér stað á síðustu vikum og hafa lið í neðstu sætum úrvalsdeildar og fyrstudeild- arlið orðið harðast úti. Bjartsýni vegna hugsanlegra tekna af útsendingum í greiðslu- sjónvarpi hefur gufað upp og vax- andi framboð hlutabréfa í knatt- spyrnufélögum hefur gert fjárfesta vandlátari. Þó setja æ fleiri félög bréf í um- ferð. Bréf í Bolton Wanderers verða boðin til sölu síðar í þessum mánuði eftir 22 milljóna punda yfirtöku fjár- festingarfyrirtækis er kallast Mosaic Investments. ------♦ ♦ ♦ Airbus vill selja tugi véla til Kína Pekin^. Reuter. EVRÓPSKA flugiðnaðarsamsteypan Airbus Industrie vonast til að geta notfært sér þörf Kínveija á skjótri eflingu innanlandsflugs og selt þeim 75 flugvélar í næsta mánuði. Samningurinn kann að verða und- irritaður þegar Jacques Chirac Frakklandsforseti fer til Peking í maí samkvæmt góðum heimildum. Auk þess að selja Kínveijum 75 flugvélar gerir Airbus sér vonir um að þeir tryggi sér forkaupsrétt á 25 til viðbótar. Aðalfundur Aöalfundur Granda hf. verður haldinn föstudaginn 4. apríl 1997, kl. 17:00 í matsal fyrirtækisins að Norðurgarði, Reykjavík. DAGSKRÁ___________________________ í. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Tillaga félagsstjórnar um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. . í ' Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Óski hluthafar eftir að ákveðin mál verði tekin til meðferðar á aðalfundinum, þarf skrifleg beiðni um það að hafa borist félagsstjórn með nægjanlegum fyrirvara, þannig að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. Hluthafar, sem ekki geta mætt á fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega. STJÓRN GRANDA HF. GRANDI HF. NORÐURGARÐI, 101 REYKJAVÍK Lavamat 9205 „Öko-System" sparar allt aS 20% sápu Taumagn: 5 kg VindingarhraSi: 1000 og 700 snúninga UKS kerfi: Jafnar tau í tromlu fyrir vindingu Variomatik vinding: Sérstakt vindingarkerfi fyrir viSkvæman þvott og ull Ullarkerfi: Ullarvagga; ullinni vaggaS „Bio kerfi" Fuzzy-logig: Sjálfvirk vatnsskömtun eftir taumagni, notar aldrei meira vatn en þörf er á Aukaskolun: Sér hnappur, skolar fjórum sinnum í staS þrisvar Þýskt vöpumepki þýskt hugvit þýsk fpamlelðsla ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ Á ÖLLUM AEG ÞVOTTAVÉLUM ...bjóðum við mest seldu AEGþvottavélina á íslandi á sérstöku afmælisverði BRÆÐURNIR Umboðsmenn: Lágmúla 8 • Sími 533 2800 Votturlend: Málnlngarþjónustan Akranosi, Kf. Borgfirölnga, Borgarnesl. Blómsturvollir, Hellissandl. Quöni Hallgrímsson, Qrundarfirði. Ásubúö.Búöardal. Vestfirðlr: Geirseyrarbúðin.Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvfk.Straumur,(safiröi.Norðurland: Kf.Steingrímsfjarðar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi Kf. Þingeyinga, Húsavík.Urö. Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi.Verslunin Vfk, Neskaupstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirklnn, Selfossi. Rás, Þortákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubœjarklaustri. Brlmnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Qrindavík. II ii l^l■lll■■■lll■illl■■l^|||ll i imii iii I tílefni sjötíu og fimm ára atmælisárs Bræðranna Ormsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.