Morgunblaðið - 04.04.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 45
!
1
i
I
I
I
I
i
í
i
(
<
(
<
<
<
I
<
Undur
veraldar
Fyrirlestraröð á vegum
Raunvísindadeildar HÍ
og Hollvinafélags hennar
KRISTJÁN Leósson eðlisfræðingur
flytur laugardaginn 5. apríl fyrirlest-
urinn „Frá rafeindum til rökrása:
Vangaveltur um tölvutækni fortíðar
og framtíðar." Fyrirlesturinn er sá
fjórði í fyrirlestraröðinni Undur ver-
aldar sem haldin er á vegum Raun-
vísindadeildar Háskóla Islands og
Hojlvinafélags hennar.
I erindinu verður lýst framleiðslu-
ferli örrása, rætt um þróun tölvunn-
ar frá upphafi og fram til ársins
2010 og velt vöngum yfir því hvaða
tækni muni taka við af tölvutækn-
inni í framtíðinni.
Fyrirlesturinn hefst kl. 14 í sal 2
í Háskólabíói. Aðgangur er ókeypis
og ölium heimill.
Námskeið
í Garðyrkju-
skólanum
GARÐYRKJUSKÓLINN heldur á
næstunni námskeið sem ætluð eru
almenningi í Garðyrkjuskólanum.
Laugardaginn 19. apríl frá kl. 10-16
verður námskeið í blómaskreytingum
fyrir áhugafólk í svonefndu Axels-
húsi við Garðyrkjuskólann. Uffe
Balslev, kennari á blómaskreytinga-
braut, mun leiðbeina þátttakendum
við gerð ýmiss konar skreytinga sem
námskeiðsgestir fara síðan með heim.
Sama dag ki. 10-16 verður hald-
ið námskeið um pottaplöntur og
stofublóm. Lorýa Björk Jónsson,
kennari við skólann og umsjónar-
maður pottaplöntusafns skólans,
mun leiðbeina um umhirðu og með-
höndlun pottaplantna. í lok nám-
skeiðsins mun hún sýna þátttakend-
um pottaplöntusafn skólans þar sem
fínna má um 350 ólíkar plöntur.
Laugardaginn 26. apríl kl. 10-16
verður haldið námskeið um matjurð-
ir í heimilisgarðinum. Umsjónarmað-
ur þess er Gunnþór Guðfinnsson
kennari við skólann.
Skráning á þessi námskeið fer
fram hjá endurmenntunarstjóra
skólans alla virka daga frá kl. 8-16
eða á skrifstofu skólans.
Islands-
meistaramót
í svarta Pétri
NÍUNDA íslandsmeistaramótið í
svarta Pétri fer fram sunnudaginn
6. apríl á Sólheimum í Grímsnesi.
Mótið hefst ki. 15 og lýkur kl. 18.
Stjómandi mótsins er Bryndís
Schram.
Keppt er um veglegan farandbikar
og eignabikar auk þess sem allir frá
verðlaun. Mótið er opið öllum sem
áhuga hafa og mun aðstoðarfólk vera
við hvert spilaborð. Settir eru saman
tveir stokkar af spilum þannig að
eins spil parast saman. Allir eiga að
hafa tækifæri til að vera með.
Gert verður hlé á mótinu og boðið
upp á pylsur og gos.
Þátttaka tilkynnist í síma
486-4430, þátttökugjald er 300 kr.
Innifalið verður pylsur, gos og sæl-
gæti. Skipulagðar sætaferðir verða
frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík
kl. 13 og komið til baka um kl. 19.30.
Fargjald kostar 1.000 kr. báðar leiðir.
Myndir Dja
Frez hjá MÍR
NÆSTU tvær kvikmyndirnar, sem
sýndar verða á sunnudagssýningum
MIR í bíósalnum Vatnsstíg 10, eru
báðar gerðar undir stjórn rússneska
leikstjórans Ilja Frez en með 20 ára
millibili.
Nk. sunnudag, 6. apríl, kl. 16.
verður myndin „Fyrstabekkjarbarn"
frá árinu 1948 sýnd, en 13. apríl
myndin „í sóttkví", sem er frá átt-
unda áratugnum. Handrit að mynd-
HÓPMYND af fulltrúum þingsins. Fremst á myndinni er heiðursfélagi Bandalagsins María Pétursdóttir. MBL/Róbert Fragapane
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
ÁSGEIR Ásgeirsson, á Selfossi, við nýju bílaþvottastöðina.
Þmg Bandalags kvenna
81. ÞING Bandalags kvenna í
Reykjavík var haldið á Grand
Hótel Reykjavík laugardaginn 8.
mars. Þingið sóttu um 80 konur
af Reykjavíkursvæðinu. Bandalag
kvenna í Reykjavík var stofnað
30. maí 1917 og fagnar því 80 ára
afmæli í ár.
Stjórnina skipa Þórey Guð-
mundsdóttir formaður, Jóhanna
Gunnarsdóttir varaformaður,
Þorbjörg Jóhannsdóttir gjald-
keri, Bryndís Jónsdóttir ritari,
Kristrún Ólafsdóttir vararitari,
Sigríður Hjálmarsdóttir og
HervörJónasdóttir meðstjórn-
endur. í Bandalaginu eru aðildar-
félögin 21.
Út frá greinagerð frá atvinnu
og jafnréttisnefnd var ályktað um
kjarasamninga sem nú standa yfir:
„81. þing Bandalags kvenna í
Reykjavík haldið að Grand Hótel
Reykjavík laugardaginn 8. mars
1997 hvetur aðila vinnumarkaðar-
ins, samtök opinberra starfs-
manna, ríki og sveitarfélög, til
að sameinast um að ganga þegar
í stað til kjarasamninga. Séstök
áhersla verði lögð á að bæta stöðu
kvenna sem að stórum hluta taka
laun samkv. lægstu töxtum. Nú
er lag að afmá þann smánarblett
á þjóðfélaginu að greidd séu laun
sem eru langt undir viðurkennd-
um framfærslumörkum."
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
KOLFINNUR frá Kjarnholtum sem vakið hefur athygli fyrir
mikinn vilja og góð grip mun ekki mæta sjálfur til leiks en
hins vegar munu afkvæmin halda merki hans á lofti í sýningu
Vestlendinga og er nú að sjá hvort þar kunna að leynast föður-
betrungar. Knapi á Kolfinni hér er Olil Amble.
Vestlendingar í reiðhöll Gusts
Forsmekkur að
fjórðungsmóti
Bílaþvotta-
stöð opnuð á
Selfossi
Selfossi. Morgunblaðið.
NÝ bílaþvottastöð hefur verið
opnuð á Selfossi. Stöðin er til húsa
hjá Shell-skálananum við Suður-
landsveg. Um er að ræða mjög
fullkomna þvottastöð sem er al-
sjálfvirk. Ekki hefur bílaþvotta-
stöð verið starfrækt á Selfossi
áður og þykir mönnum vera kom-
inn tími til, enda er þjónustusvæð-
ið stórt og gífurleg umferð í gegn-
um bæinn ádegi hveijum.
Að sögn Ásgeirs Ásgeirssonar
bindur hann miklar vonir við að
fólk notfæri sér þess þjónustu.
„Stöðin er mjög vistvæn og þau
hreinsiefni sem notuð eru við
þvottin menga ekki umhverfið,“
segir Ágeir. Þvottakerfið er 7
mínutur að taka bílinn í gegn og
innifalin er Ijöruhreinsun, sápu-
þvottur, bón og þurrkun.
inni „Fyrstabekkjarbarn" samdi hið
kunna rússneska skáld Évgení
Schwartz, en nokkur ieikverka hans
fýrir börn hafa verið sýnd hér á
landi, m.a. í Þjóðleikhúsinu. Tónlistin
er eftir Kabalévskí.
I myndinni segir frá fyrstu skóla-
göngu ungrar telpu, Maijúsu. Um
langt árabil hófst skólaganga barna
í íjölmörgum skólum víðsvegar um
Sovétríkin á því að þau sáu kvik-
myndina „Fyrstabekkjarbarn" á
fyrsta degi sínum í barnaskólanum.
Enskur texti fylgh myndinni.
Aðgangur er ókeypis.
Hlutu vinning
í Sólarleik
VINNINGSHAFAR í Sólar-Bónus-
leik hafa verið dregnir út. Vinningur
var tveggja vikna ferð til Costa del
Sol með Heimsferðum. Ferðirnar
hlutu Bára Dís Benediktsdóttir, Dal-
aseli 13, Reykjavík, og Berglind
Helga Bergsdóttir, Kolbeinsmýri 1,
Seltjarnarnesi.
Þá voru einnig dregnir út vinnings-
hafar í Brazzaleik. Vinningur var
þriggja vikna ferð til Brasilíu og
Spánar fyrir tvo með Heimsferðum.
Ferðirnar hlutu Guðrún Eggertsdótt-
ir, Bjargi, Borgamesi, og þau Björg
Bragadóttir og Þorvaldur Þráinsson,
Arnartanga 54, Mosfellsbæ.
VESTLENSKIR hestamenn munu
um helgina gefa forsmekkinn að
væntanlegu fjórðungsmóti sem
haldið verður á Kaldármelum um
mánaðamótin júní og júlí í sumar.
Bjóða þeir upp á fjórar sýningar
í reiðhöll Gusts í Kópavogi og
verður fyrsta sýningin í kvöld og
hefst hún klukkan 21. Tvær sýn-
ingar verða á laugardag klukkan
14 og 21 og ein á sunnudag klukk-
an 15.
Meðal þess sem boðið verður
upp á er fyrst að nefna afkvæma-
sýningu Kolfinns og Dags frá
Kjarnholtum og Stíganda frá
Sauðárkróki en allir hafa þessir
hestar hlotið fyrstu verðlaun fyrir
afkvæmi og verða sýndir til heið-
ursverðlauna í sumar ef að líkum
lætur. Þá verða einnig sýnd af-
kvæmi Geysis frá Gerðum. Ingi-
mar Sveinsson mun sýna hross út
af Pílu frá Eyjólfsstöðum auk þess
að luma á leyninúmeri. Skúli í
Svignaskarði mætir með hryssuna
Maísljörnu frá Svignaskarði og
sýnir listir sínar og hryssunnar.
Nemendur Bændaskólans á
Hvanneyri munu mæta með trippi
sín sem þeir koma til með að sýna
á skeifudaginn og gefa sýningar-
gestum kost á að sjá hvernig
gengur með tamningu þeirra.
Verða þeir væntanlega undir
sljóm og handleiðslu Ingimars
Sveinssonar. Dagskránni lýkur
með skeiðsprettum í gegnum höll-
ina og þykir líklegt. að elsti
iþróttamaður ársins sem hlotið
hefur það sæmdarheiti hjá félagi
muni mæta á laugardagssýning-
una. Er hér átt við gömlu kemp-
una Jón Hallsson frá Búðardal
sem var valinn íþróttamaður árs-
ins hjá Glað í Dalasýslu á síðasta
ári. Jón sem er áttatíu og fjög-
urra ára mætir þar væntanlega
með vekring sinn Gosa.
Vestlendingar komu með 90
hross í bæinn sem koma munu
fram en hver sýning stendur yfir
í rúma tvo tíma með hléi. Reiðhöll-
in tekur aðcins á fjórða hundrað
manns svo fólki er ráðlagt að
tryggja sér miða í tíma.
Ráðstefna um
framtíðarsýn í
atvinnu- og um-
hverfismálum
KVENNALISTINN stendur fyrir
ráðstefnu laugardaginn 5. apríl
undir yfirskriftinni: Framtíðarsýn
í atvinnu- og umhverfismálum.
Ráðstefnan verður haldin í Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6, og
stendur frá kl. 9-16. Ráðstefnan
er öllum opin og aðgangur er
ókeypis.
Dagskráin er tvískipt, annars
vegar verður fjallað um um-
hverfismál og hins vegar varpað
fram ýmsum möguleikum til um-
hverfisvænnar atvinnuuppbygg-
ingar. Fyrir hádegi verður fjallað
um umhverfisvernd og alþjóða-
samninga, umhverfismat og áhrif
stóriðju á ímynd landsins. Einnig
munu Erfingjar, samtök ungs
fólks um umhverfisvernd, greina
frá sjónarhorni ungs fólks á um-
hverfismálin. Eftir hádegi verður
rætt um framleiðslu og notkun
vetnis sem eldsneytis, lífræna
ræktun og nýtingu á sérstöðu ís-
lands til heilsuræktar og lækn-
inga, útflutning á hugviti og hug-
búnaði, nýtingu á sérstöðu þjóð-
arinnar til rannsókna á lífvísind-
um og læknisfræði, möguleika á
ferðaþjónustu og hönnun sem
óþrjótandi auðlind.
■ HÓTEL KEA Á laugardags-
kvöld skemmta Snörurnar ásamt
hljómsveitinni KOS.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn
í FRÉTT { Morgunblaðinu 27.
marz síðastliðinn um tilraunahús
fyrir Háskóla íslands við Reykja-
víkurhöfn var rangt farið með nafn
Jóns Braga Bjarnasonar prófess-
ors. Velvirðingar er beðist á þess-
um mistökum.
Ford en
ekki Bedford
í MYNDARTEXTA í útvarpskynn-
ingu í gær var ranghermt að mynd-
in væri af Bedford-bifreið, hið rétta
er að þetta er amerískur Ford ár-
gerð 1942.