Morgunblaðið - 04.04.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 47
BRÉF TIL BLAÐSIIMS_____
Enn um „borgara-
lega fermingn“
Frá Torfa Ólafssyni:
j ÞAÐ kann að þykja borið í bakka-
Ífullan lækinn að minnast enn einu
sinni á athöfn sem einhveijir kunn-
| áttuleysingjar um merkingu ís-
lenskra orða hafa kosið að kalla
„borgaralega fermingu" og á að
koma í stað fermingar fyrir það
fólk sem ekki vill láta ferma börn
sín.
Nú er það öllum frjálst að halda
hvaða hátíðir sem hugur þeirra girn-
ist, til minningar um hvað sem þeir
| vilja, og auðvitað er öllum í sjálfs-
Ivald sett hvort þeir láta ferma börn
sín eða ekki, en ef þau eru ekki
fermd á ekki að segja að þau séu
fermd. Ferming þýðir í huga alls
þorra manna staðfesting á skírnar-
heiti, sem gefið hefur verið fyrir
hönd ómálga barns og þegar það
er talið hafa aldur til, staðfestir það
þetta heit, ef það vill. Ferming þýð-
ir það og ekkert annað, nema þá
ferming farartækis en ég geri ekki
ráð fyrir að menn eigi við hana,
þótt hún sé að ég held ævinlega
borgaraleg.
Ég skil vel að menn skuli vilja
hafa einhveija athöfn þegar böm
þeirra kveðja æskuskeiðið og ég
skil líka vel að börnin skuli vilja fá
sína veislu og sínar gjafir. Þannig
var það líka í Austur-Þýskalandi á
dögum kommúnista, þeir ömuðust
við fermingni eins og öðmm kirkju-
legum athöfnum og bjuggu því til
í staðinn fyrir hana athöfn sem þeir
kölluðu „Jugendweihe“ (æskulýðs-
vígslu), eins og þegar Rússar tóku
upp dýrkun jarðneskra leifa Leníns
til þess að trúaður almenningur
fyndi ekki eins sárt til þess að missa
dýrlingana sína. Og enn í dag er
Jugendweihe í góðu gildi í Þýska-
landi austanverðu, 86.000 athafnir
framdar á síðastliðnu ári meðal fólks
sem ekki játar kristna trú. Nema
unglingamir em ekki lengur látnir
heita Flokknum og sósíalismanum
trú og tryggð.
Það er engin „borgaraleg ferm-
ing“ til, frekar en „borgaraleg
skírn“ eða „borgaraleg messa." Ef
þeir sem slíka athöfn vilja geta ekki
fundið upp neitt viðhlítandi heiti á
þessa athöfn sína, ættu þeir að leita
sér hjálpar hjá íslenskri málstöð eða
einhveijum sem kann betur skil á
íslensku máli en þeir eða hefur
fijórra ímyndunarafl.
TORFI ÓLAFSSON,
pósthólf 747,121 Reykjavík.
Akstur í Gígjugjá
Fri Jóni Baidri Þorbjörnssyni:
SEM betur fer hefur áhugi lands-
manna fýrir óspilltri náttúm og nátt-
úmgersemum landsins þróast mjög
til betri vegar á undanfömum ára-
tugum. Einnig hafa augu almenn-
ings opnast fyrir kostum hreyfingar
og útivistar. í samræmi við þetta
hefur t.d. akstur inn að víti í Oskju
alfarið verið aflagður og ekki er leng-
Íur ekið heldur eingöngu gengið um
Hólmatungur innan þjóðgarðs Jök-
ulsárgljúfra. Ukast til hefur verið
tekið fyrir akstur til þessara og fleiri
álíka svæða vegna þess að bílaum-
ferð þykir ijúfa friðhelgi fallegra
staða, svo ekki sé minnst á möguleg
landspjöll.
Hin sérkennilega náttúmsmíði
Gígjugjá og svæðið þar sem flóðið
rauf Skeiðaráijökul flnnst mér ekki
síður merkilegt á sinn hátt heldur
en áðumefnd svæði, jafnvel þó að
þessi náttúmsmíð eigi ekki eftir að
reynast jafn varanleg. Æskilegt er
að íslendingar sýni henni sömu virð-
ingu og öðram sambærilegum nátt-
urusmíðum. Því vil ég hvetja öku-
menn, aðra en þá sem beinlínis þurfa
að fara í rannsókna- eða atvinnutil-
gangi um svæðið, að leggja bíl sínum
þar sem Stóri farvegur og flóðsfar-
vegurinn mætast og fá sér heilsu-
samlegan göngutúr þaðan upp í jök-
ulgjána. Sýna öðram tillitssemi og
upplifa þannig ósnortinn hrikaleik
náttúmnnar án vélardruna, án út-
blástursfnyks.
Allt verður þetta reyndar hinn
sjálfsagðasti hlutur þegar tekið er
tillit til þess að umrætt svæði er —
samkvæmt mínu landakorti — innan
þjóðgarðsins í Skaftafelli.
JÓN BALDUR ÞORBJÖRNSSON,
Fögrubrekku v/Vatnsenda, Kópavogi.
t
.1
I
I
:
í
4
4
4
Ert þú
EINMANA
Vantar þig vin að
tala við?
VINALÍNAN
561 6464 • 800 6464
öll kvöld 20 - 23
Skiny bómuilar joggingbolir
og buxur. Skiny nærföt íyrir
dömur og herra
iMpl BÚÐIN |
GARÐATORGl SÍMI 565 6550
Noröurlandaráð veitir umhverfisverölaun aftur í ár. Verðlaunin
nema 350.000,- dönskum krónum og verða veitt einka-
fyrirtæki eða opinberri stofnun, rannsóknarstofnun eða
ráðgjafa sem með afgerandi hætti hefur stuölað að því
aö draga úr álagi á umhverfi af völdum framleiðslu-
starfsemi, notkunar eða förgunar á framleiösluvöru.
Tilgangur verðlaunanna er aö beina augum manna
aö náttúru- og umhverfismálum á Noröurlöndunum.
Viðfangsefnið er að þessu sinni: Vinnslu-
eða vöruþróun sem leiðir til verulegra
umbóta fyrir umhverfið.
Öllum er heimilt að koma meö tillögur um verð-
launahafa. Tillögum skal fylgja rökstudd verkefnis-
lýsing ásamt upplýsingum um hver vinnur eða hefur
unnið verkið. Verkefniö veröur aö standast kröfur
um sérfræöiþekkingu og hafa gildi fyrir breiöa hópa
á einu eða fleirum Norðurlandanna. Verkefnislýsingin
má í hæsta lagi vera tvær A-4 blaðsíöur. Verðlaunin
er ekki hægt að veita vöru sem framleidd er eða unnin
undir skrásettu vörumerki.
Verðlaunahafinn verður valinn af dómnefnd sem í sitja
fulltrúar allra Norðurlandanna ásamt sjálfstjórnar-
svæðunum Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum.
Tillagan veður að hafa borist eigi síöar en 30. mat 1997 til:
Nordisk Rád
Danmarks Riges Delegation
Christiansborg, 1240 Kbbenhavn K.
Sími 0045 3337 5958, fax 0045 3337 5964
Nánari upplýsingar fást hjá Huga Ólafssyni I umhverfisráöuneytinu.
Kynning í apótekinu Iðufelli
í dag kl. 14-18
Skemmtileg sumartaska með þremur lúxusprufum
fylgir kaupum á nýja kreminu Lift Activ eða
ef keypt er fyrir kr. 2000 eða meira *
VICHYI
LABORATOIRES
HEILSULIND HÚÐARINNAR
Fæst eingöngu í apótekum
Mánaðartilboð
1.04.97 - 01.05.97
^5% af allri trévöru.
Tréhitafeönnur
nú ÍBtJCm 5*990 áður fer. 7.990
Vorum að taka upp stell frá Wedgwood
í nýju „HOME“ llnunni. Þola ofn,
örbylgju, frysti og uppþvottavél.
SUÐo
nL*ND
10
lei
við Faxafen - Suðurlandsbraut 52
Sími 553 6622
<
x
<
SBRAur
MC
IDONALDS
rtur Nielsen