Morgunblaðið - 04.04.1997, Blaðsíða 60
qrœtvru
‘ grein
0BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Jtewu&t
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.1S / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ný tegund hjartaskurðaðgerðar gerð á Landspítalanum
Hluti hjartavöðva
miminn brott
NÝ tegund hjartaskurðaðgerðar var
nýlega gerð á hjarta- og lungna-
skurðdeild Landspítalans. Aðgerðin
fólst í því að skera brott stóran
hluta af vinstri slegli hjartans og á
að gera hjartanu kleift að starfa
eðlilega á ný.
Að því er fram kemur í nýjasta
hefti Læknablaðsins var aðgerðin
gerð á fertugum karlmanni með
endastigs hjartabilun af völdum
hjartavöðvakvilla með ofþenslu.
Sjúklingurinn var með öðrum orð-
um með of stórt hjarta. Hann var
á biðlista vegna hjartaígræðslu en
líkur á því að líffæri fengist í tæka
tíð voru hverfandi.
Þvermál vinstri slegils hjartans
var minnkað um 50% með því að
nema brott 120 grömm af hjarta-
vöðva og gerviloku komið fyrir í
stað míturloku. Aðgerðin var um-
fangsmikil og áhættusöm en gekk
að óskum og útskrifaðist sjúkling-
urinn af gjörgæsludeild á níunda
degi við góða líðan.
Bjarni Torfason, yfirlæknir á
hjarta- og lungnaskurðdeild Land-
spítalans, sem framkvæmdi aðgerð-
ina, skýrir frá henni í erindi sem
hann flytur á þingi Skurðlæknafé-
lags íslands 12. apríl nk.
Lofar góðu
Upphafsmaður þessarar tegund-
ar aðgerðar er brasilíski skurðlækn-
irinn Randas Batista. Sífellt fleiri
sjúkrahús í Bandaríkjunum beita
henni og er árangurinn hingað til
talinn lofa góðu.
í nýlegu fréttabréfi frá lækna-
deild Harvard-háskóla, Harvard
Health Letter, kemur fram að af
34 sjúklingum sem undirgengust
aðgerðina á Cleveland-sjúkrahúsinu
voru 33 á lífi fimm mánuðum síðar
og 80% þeirra sögðu að líðan þeirra
væri betri, þeir ættu auðveldara með
öndun og hefðu meiri orku en áður.
Haft er eftir hjartaskurðlækninum
Patrick McCarthy að frekari rann-
sóknir séu þó nauðsynlegar til að
komast að því hvers vegna aðgerðin
bætir ekki líðan 20% sjúklinganna.
Morgunblaðið/Golli
GÚSTAF skorar eitt af 21 marki sínu á Selfossi.
Eigendur vöru
í Víkartindi
Gert að
greiða fyr-
ir flutning
ÞEIR einstaklingar og fyrirtæki sem
áttu farm um borð í Víkartindi verða
að greiða flutningsgjald þótt skipið
hafi farist, á þeim forsendum að
gjöldin gjaldfalla þegar vara fer um
borð í skip.
Sumir þeirra sem um ræðir höfðu
þegar greitt gjöldin en aðrir eru að
fá rukkanir frá Eimskip um þessar
mundir.
Sterk viðbrögð
„Við höfum fengið sterk viðbrögð
frá fólki sem finnst óréttlátt að fá
rukkun vegna flutninganna, en Eim-
skip hefur þegar greitt ýmsan kostn-
að eins og leigu á skipinu og lestun
vörunnar,“ segir Hlynur Halldórsson
hjá tjónadeild fyrirtækisins.
Hann segir að væri þessi háttur
ekki hafður á flutningum fengist
ekkert skipaféiag við flutninga.
Væri ábyrgð farmflytjanda ótak-
mörkuð væru flutningsgjöldin
óheyriiega há.
■ Þurfa að greiða/6
■ Fyrsta gámi/11
Gústaf
bætti 31 árs
markamet
GÚSTAF Bjarnason, leikmaður
Hauka, gerði 21 mark í lands-
leik í handknattleik gegn Kín-
verjum í heimabæ sínum^ Sel-
fossi, í gærkvöldi þegar Islend-
ingar sigruðu 31:22 í öðrum vin-
áttuleik þjóðanna á jafn mörg-
um dögum. Hann bætti þar með
31 árs gamalt markamet Her-
manns Gunnarssonar, sem skor-
aði 17 mörk í sigurleik gegn
Bandaríkjamönnum 1966 í New
Jersey. Gústaf gerði fjögur
fyrstu mörk íslands á Selfossi
og alls níu í fyrri hálfleik. Hann
gerði 10 mörk eftir hraðaupp-
hlaup, sex úr horni, þijú af línu
og tvö úr vítakasti.
LANGAR biðraðir voru í bönkum í gær og náðu þær víða út á götu. Morgunbiaðið/Kristmn
Gústaf bætti/Cl
Bankamenn sömdu í nótt
og frestuðu verkfallinu
-----» ♦ ♦
Islenskur
sigur í
Blackpool
BERGLIND Ingvarsdóttir og Bene-
dikt Einarsson sigruðu í suður-
amerískum dönsum í flokki 11-15
ára í Blackpool í Englandi í gær-
kvöldi. Þetta er sterkasta mót árs-
ins í heiminum og tóku 220 pör
þátt í henni.
Berglind og Benedikt urðu í 5.
sæti í fyrra en stóðu á efsta þrepi
verðlaunapallsins í gærkvöldi. Sig-
urvegarar í fyrra urðu Elísabet Sif
Haraldsdóttir og Sigursteinn Stef-
ánsson.
VERKFALL liðlega 3.000 bankamanna hófst á
miðnætti en samningaviðræðum var haldið
áfram. Um klukkan 01,30 í nótt tókust svo
samningar og var búist við því að þeir urðu
undirritaðir á þriðja tímanum. Bankamenn
frestuðu verkfalli og er talið að hið stutta verk-
fall hafi ekki jafn mikil áhrif á starfsemi bank-
anna í dag eins og óttast var um tíma.
Flugvirkjafélag Islands og Flugleiðir skrifuðu
undir samning í gær og í gærkvöldi samdi
Matvæla- og veitingasamband íslands við
vinnuveitendur og var verkföllum þessara hópa
sem áttu að hefjast á miðnætti frestað.
Breyttist í Sáttahús
„Vel hefur gengið að semja í dag. Karphúsið
virðist vera að breytast í Sáttahús," sagði Þórir
Einarsson ríkissáttasemjari seint i gærkvöldi.
Þá voru horfur á því að bankamenn myndu semja
um hliðstæðar kauphækkanir og aðrar stéttir
að undanförnu og fresta verkfalli fram í maí.
Samningur þeirra yrði þó til skemmri tíma, eða
Matvís samdi til lengri
tíma en aðrir
til 1. september 1999, og minni kauphækkun
síðasta árið.
Fengu 3% hækkun fyrir að semja um
lengri kjarasamning
Samningur Matvís, Matvæla- og veitinga-
sambands íslands, er til lengri tíma en al-
mennt gerist og gengur, eða til 1. nóvember
árið 2000, og fyrir það fær starfsfólkið auk-
lega 3% hækkun í byrjun árs 2000.
Matvís semur fyrir bakara, kjötiðnaðar-
menn, framreiðslumenn og matreiðslumenn.
Níels Sigurður Olgeirsson hjá Matvís segir að
samningurinn sé efnislega svipaður öðrum sem
gerðir hafa verið að undanförnu nema lengd
hans og sú viðbótarhækkun sem það skilar.
Hann segist ánægður með niðurstöðuna,
sérstaklega að tekist hafi að samræma veru-
lega kjarasamninga starfshópanna fjögurra
sem þarna komu sameiginlega fram.
Mikið að gera alla vikuna
Mjög mikið var að gera í bönkum og sparisjóð-
um í gær. Sigurveig Jónsdóttir, upplýsingafull-
trúi íslandsbanka, sagði að mikið hefði verið að
gera hjá Islandsbanka alla vikuna eins og eðli-
legt væri eftir mánaðamót og páska, en ösin í
gær hefði þó verið meiri en hina dagana. Fólk
væri að borga reikninga, kaupa tékkhefti, milli-
færa og taka út peninga.
Reiknistofa bankanna hóf undirbúning að því
strax í gær að stöðva starfsemi sína, en tals-
vert mikil vinna er að stöðva starfsemina, sem
er í gangi 24 tíma á sólarhring.
Helgi Steingrímsson, forstöðumaður Reikni-
stofu bankanna, sagði að einhvern tíma tæki
að koma starfsemi stofnunarinnar í eðlilegt horf
að nýju.
■ Samið var um/2