Morgunblaðið - 10.04.1997, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997
MOEGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fyrstu gámarnir úr Víkartindi opnaðir í Sundahöfn í gærmorgun
F armnrinn reyndist yfir-
leitt í þokkalegu ástandi
Morgunblaðið/Þorkell
ALLT virtist þurrt og óskaddað í þessum gámi, sem opnaður var i Sundahöfn í gærmorgun.
ÁSTAND farms í fyrstu gámunum
úr Víkartindi sem fluttir voru til
Reykjavíkur í fyrrakvöld og gær-
morgun er þokkalegt, að sögn
Andrésar Bridde, fulltrúa í tjóna-
deild Eimskips.
í gærmorgun var hafist handa
við að opna gámana og kanna
ástand farmsins, í viðurvist fulltrúa
tollstjóra og Könnunar hf. sem er
hlutlaus skoðunaraðili. Átta gámar
voru komnir til Reykjavíkur í fyrra-
kvöld og gert var ráð fyrir að tæk-
ist að flytja 12-15 til viðbótar í
gær. Síðustu gámunum verður síð-
an ekið til Reykjavíkur í dag.
Samband haft
við eigendur farmsins
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Andrés í Sundahöfn í gærmorgun
var búið að tæma fyrsta gáminn
og setja innihaldið inn í vöru-
skemmu Eimskips og verið að opna
annan. Fyrsti gámurinn var dæld-
aður á annarri hliðinni og hurðin
á honum hafði skekkst nokkuð,
þannig að sjór hafði farið inn.
Andrés taldi það þó við fyrstu sýn
ekki hafa verið til skaða, þar sem
farmurinn stendur á pöllum í gám-
unum. Annar gámurinn var í betra
ásigkomulagi og virtist hann hafa
verið alveg þéttur og engin bleyta
komist inn i hann.
Ingimar Ingason, deildarstjóri
tjónadeildar og innra eftirlits, sagði
VEL gekk í gær að flytja til
Reykjavíkur gáma sem losaðir voru
af Víkartindi um síðustu helgi. Um
miðjan dag höfðu verið fluttir ell-
efu gámar og var stefnt að því að
flytja síðustu gámana af þilfari
skipsins til borgarinnar í dag.
Á félagsfundi Félags íslenskra
stórkaupamanna í gær var sam-
þykkt ályktun þar sem þess er
farið á leit við Ríkissaksóknara að
hann hlutist til um að fram fari
opinber rannsókn á björgun farms
úr Víkartindi eftir strand skipsins.
Sérstaklega verði athuguð fram-
kvæmd aðgerða og ábyrgð farm-
fiytjanda, útgerðaraðila og sýslu-
mannsembættisins í Rangárvalla-
sýslu. Mikil óánægja kom fram hjá
fundarmönnum með það hvernig
staðið hefði verið að þessu máli.
Yfír 50 félagar í FÍS sóttu fund-
inn. Lögmaður félagsins lagði fram
minnispunkta og voru hagsmunir
eigenda farms ræddir. Fram kom
á fundinum að mönnum þótti mikið
fum og fát hafa einkennt björgun-
arstarfið og blöskraði aðgerðaleysið
sem einnig hefði einkennt málið
í samtali síðdegis að varan liti yfir-
leitt mjög vel út, svo það lofaði
góðu um framhaldið. Hann taldi
ástæðu til að ætla að ástandið
lengi vel. Fundarmönnum þótti erf-
itt að henda reiður á hvar ábyrgð
manna lægi í þessu máli og vildu
þeir fá skýrari línur sem hægt yrði
að byggja frekari málarekstur á,
þ.e. hugsanlegar skaðabótakröfur.
Fram kom að umboðsmenn tiygg-
ingafélags Víkartinds hefðu sagt
að farmur um borð væri ekki á
þeirra ábyrgð og vísað á Eimskip.
Eimskip bendi aftur á eigendur
skipsins og telji þá vera ábyrga
fyrir öllu sem um borð er.
Varað við að leggja fram
tryggingar
Á fundinum var þeirri spurningu
velt upp hvort einhver hlutaðeig-
andi gæti haft hagsmuni af því að
dráttur varð á björgun. Einkum
beindu menn sjónum að útgerðar-
aðilanum og tryggingafélagi skips-
ins í þessu sambandi og þeirri
spurningu var velt upp hvort þeir
hefðu haft hag af því að lágmarka
kostnað við björgunina með þá vit-
nesku að leiðarljósi að björgunar-
kostnaður kæmi til viðbótar því
tjóni sem þegar væri orðið.
væri svipað á því sem eftir væri
af þeim gámum sem þegar eru
komnir á land. Hann sagði að haft
hefði verið samband við eigendur
Á fundinum var einnig rætt um
þá kröfu sýslumannsembættisins í
Rangárvallasýslu að krefjast
ábyrgðar frá farmeigendum fyrir
björgunarkostnaði. FIS hafði varað
sína félagsmenn við því að leggja
fram tryggingar af þessu tagi að
óathuguðu máli. FÍS leggur til við
farmeigendur að þeir leggi þær
ekki fram fyrr en þeir hafi kannað
ástand sinnar vöru. Að öðrum kosti
væri hægt að krefja menn um hlut-
deild í björgunarkostnaði jafnvel
þótt þeir væru búnir að tapa öllum
sínum farmi.
Trygging hugsanlega lækkuð
Sýslumannsembættið í Rangár-
vallasýslu hefur gert kröfu um að
eigendur farms ábyrgist hluta í
björgunarkostnaði og hefur verið
rætt um sem nemur 100% verð-
mætis farms þeirra eins og hann
var þegar hann fór um borð í skip-
ið. Gengju farmeigendur að þessu
gætu þeir jafnvel þurft að greiða
tvisvar sinnum fyrir farminn sem
svo reyndist hugsanlega ónýtur.
FÍS hefur því hvatt félagsmenn til
þess að kanna vel ástand farmsins
þegar hann berst til Reykjavíkur
og taka ákvörðun síðan um ábyrgð
sína í samræmi við verðmæti hans.
Sérstakt fyrirtæki, Könnun ehf.,
hefur verið ráðið til þess að yfir-
fara farminn úr Víkartindi.
Á fundi hjá sýslumanninum í
Rangárvallasýslu í gærkvöldi, sem
fulltrúar Eimskips og lögmaður
útgerðar Víkartinds sóttu, var m.a.
rætt um hve stórs hlutfalls af verð-
mæti farms ætti að krefjast af
farmsins um leið og vörur þeirra
voru komnar úr gámunum og þeim
gefinn kostur á að koma og skoða
ástand vörunnar.
farmeigendum sem ábyrgð fyrir
björgunarkostnaði. Guðjón Braga-
son, fulltrúi sýslumanns, sagði að
á fundinum yrðu rædd atriði sem
sneru að því hvernig farmi yrði
komið til eigenda, trygginga og
annars slíks.
„Það verður náttúrulega gerð
krafa um tryggingu frá eigendum
farms vegna björgunarkostnaðar
en það verður reynt að finna flöt á
því að hún verði ekki 100% verð-
mæti farmsins. Það er þó alls óvíst
hvort sá flötur finnst,“ sagði Guð-
jón.
Hann kvaðst sjálfur vera hlynnt-
ur því að gerð yrði krafa um 100%
verðmæti farms. Hann segir að
kostnaður við það að ná gámum
úr Víkartindi og flytja þá til
Reykjavíkur muni, gróflega áætl-
að, verða á bilinu 50-100 milljónir
kr.
5% af olíu eða minna lekið út
Umhverfisráðuneytið hefur tek-
ið saman greinargerð um mengun
og hreinsunaraðgerðir vegna
strands Víkartinds. Þar segir að
talið sé að um 20 tonn af olíu
hafi lekið niður í lestar skipsins
eða út í umhverfið. Lítilsháttar
olíumengunar hafi orðið vart í fjör-
um í nágrenninu. Það sé þó ljóst
að sú mengun sé aðeins lítið þrot
af því sem gæti hafa orðið við
strand af þessari stærðargráðu
sem sést á því að nú er talið að
5% eða minna af olíu um borð í
Víkartindi hafi lekið út í umhverf-
ið en langmestum hluta hennar
verið dælt í !and.
Lögreglan tók
ölvaða unglinga
Foreldrar
ósáttir við
afskipti
LÖGREGLAN hafði afskipti
af fimmtán unglingum við
verslunarmiðstöð í Eddufelli
um seinustu helgi, en hluti
hópsins reyndist undir 16 ára
aldri og nokkrir einstaklingar
voru undir áhrifum áfengis.
Lögreglan flutti þá ungl-
inga sem voru undir aldri á
lögreglustöð og foreldrar
þeirra voru látnir vita, auk
þess sem foreldrar þeirra
barna sem voru undir áhrifum
áfengis voru látnir vita.
Áfengi veitt vegna
páskaleyfis
Lögreglan hafði jafnframt
samband við fulltrúa foreldra-
gæslu í hverfinu sem lýsti sig
almennt ánægða með þetta
fyrirkomulag löggæslu, þ.e.
að sækja hverfin heim um
helgar til að fylgjast með
þessum þáttum.
„Ekki virðast allir foreldrar
jafn ánægðir með þessar að-
gerðir, því skömmu áður
höfðu nokkrir slíkir samband
við lögreglu eftir að sautján
unglingar voru færðir á lög-
reglustöð 22. mars og lýstu
yfir óánægju sinni.
Lögreglumenn reyndu að
útskýra fyrir viðkomandi til-
gang aðgerðanna, þ.e. að
halda í heiðri reglur um úti-
vist og stemma stigu við
áfengisneyslu unglinga. Hjá
sumum foreldrum kom hins
vegar hið athyglisverða í ljós;
þeir höfðu gefið börnum sín-
um bjór til neyslu á þeim for-
sendum að þau væru komin
í páskafrí úr skóla og þyrftu
að lyfta_ sér upp,“ segir Omar
Smári Ármannsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
„Þetta viðhorf er furðulegt
að okkar mati, þegar sem
flestir reyna að draga úr eða
koma í veg fyrir neyslu ung-
menna á áfengi og öðrum
vímugjöfum, og höfða til
hinna fullorðnu sem góðra
fyrirmynda. Við vonum hins
vegar að þessar kvartanir
hafi verið á misskilningi
byggðar, því að það hlýtur
að vera takmark bæði for-
eldra og yfirvalda að börn og
ungmenni verði ekki háð
ávanabindandi efnum.“
Barn ók á
myndbanda-
leign
STARFSMÖNNUM og við-
skiptamönnum myndbanda-
leigu á Höfðabakka brá
óþyrmilega í brún um klukkan
17 á þriðjudag, þegar bifreið
þeyttist á glugga á leigunni
og mölvaði hann.
Málavextir voru þeir að
kona ein hafði átt erindi í
myndbandaleiguna og yfir-
gefið bifreið sína fyrir utan
fyrirtækið til að sinna erind-
inu innandyra.
Hún gleymdi hins vegar
lyklum í kveikjulás bifreiðar-
innar, og notaði barn sem
beið í bifreiðinni tækifærið og
setti bílinn í gang.
Við það skall hann á rúðuna
með þeim afleiðingum að hún
brotnaði og nokkrar skemmd-
ir urðu á gluggaumgjörð, en
ekki urðu meiðsl á fólki.
Vilja opinbera rannsókn
á bj örgnn farmsins
Stórkaupmenn hafa faríð fram á opinbera
rannsókn á björgun farms úr Víkartindi.
Félagsmenn gagnrýna mjög drátt á björgun-
araðgerðum og vilja skýrari línur um hvar
ábyrgðin liggi til þess að byggja frekari
málarekstur á.