Morgunblaðið - 10.04.1997, Síða 9

Morgunblaðið - 10.04.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 9 FRÉTTIR Fáar fjölskyldur eftir við Búrfellsvirkjun „Ég sat eftir“ „ÉG KOM hingað vorið 1969. Þá var verið að prófa vélarnar og safnað saman þeim mann- skap í landinu sem hafði reynslu á þessu sviði. Ég sat eftir,“ sagði Helgi Arason sem verið hefur aðstoðarstöðvarstjóri Búrfells- virkjunar frá því hún var gang- sett. Helgi og Hólmfríður Haralds- dóttir kona hans hafa alla tíð búið í íbúðahverfinu við Búrfells- virkjun. I upphafi settust 20 starfsmenn virkjunarinnar að í hverfinu auk starfsmanna verk- takanna sem á þeim tíma voru við framkvæmdir á svæðinu. Þetta hefur breyst, nú eru aðeins 4 eða 5 fjölskyldur eftir með heimili á svæðinu. „Já, það er orðið ansi þunnskipað hérna,“ segir Helgi. Starfsmennirnir eru búsettir á Selfossi og í Reykjavík og hluti starfsmanna kemur úr sveitinni, það er að segja Gnúp- verjahreppi, og næstu hreppum. Aðeins um 30 starfsmenn eru á launaskrá Búrfellsvirkjunar auk þess sem nokkrir starfsmenn eru við Hrauneyjar og Sigöldu. Á næstu mánuðum og árum verða miklar framkvæmdir á virkjanasvæðinu. Sultartanga- stífla verður hækkuð og byggt stöðvarhús og grafin göng og skurðir Sultartangavirkjunar, auk vinnu við vatnsmiðlun. Á vegum verktakanna verða þarna mörg hundruð manns. Fluttu með börnunum Þegar fólkið var sem flest, á fyrstu árum virkjunarinnar, voru tvær verslanir i hverfinu en þær hættu báðar á svipuðum tíma. Þá var margt ungt fólk í hverfinu og fjöldi barna í skóla í Árnesi og síðan á Flúðum. „Þjóðfélagið hefur breyst. Þegar við fluttum hingað þótti flestum sjálfsagt að konurnar væru heimavinnandi. Eina vinn- an sem þær gátu fengið hér var við ræstingar og mötuneyti en það féll illa að vöktum eigin- mannanna. Þetta byrjaði þó ekki Vikutilboð 20-50% afsláttur af herraskyrtum og herrabolum. Nýtt - Nýtt Sundföt, kjólar, bolir, blússur og peysur. Póstsendum. cos Glæsibæ, sími 588 5575. Vönduðu ítölsku gönguskómir á dömur og herra Nýr léttur og nettur dömuskór með öndun • Gritex einangrun með öndun •Vatnsvarið leður •SUPPORT stuðningur í hæl *Soðin hlífðarrönd upp á hliðar •Bólstraðir ökklapúðar • TERMOFORM innrisóli • Heil og lokuð tunga (vatnstunga) • Grófur TREKKING - göngusóli með dempun á herraskónum • Léttur TREKKING - göngusóli með dempun á dömuskónum • Fást í brúnu Opið virka daga frá 8-18 og iaugardaga frá 10-14. Grandagarði 2, Reykjavík, sími 552-8855, grænt númer 8006288. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson HÓLMFRÍÐUR Haraldsdóttir og Helgi Arason á heimili sínu við Búrfellsvirkjun. að riðlast fyrr en börnin komust á framhaldsskólaaldur. Þá varð fólk að koma upp aðstöðu fyrir þau í bænum, konurnar fóru á eftir til að sjá um heimilið þar því þær höfðu lítið við að vera hér og þá var orðið stutt í að karlarnir færu líka,“ segir Helgi þegar hann er beðinn um að lýsa þróuninni. Flestir halda þó hálfu húsi við Búrfellsvirkjun og fara heim í vaktafríum. Hestamennska og golf Helga og Hólmfríði hefur lík- að vel að búa við Búrfellsvirkj- un. „Ég hafði mikil verkefni að hugsa um, að láta þetta allt ganga. Og ég væri ekki búinn að vera hér í 27 ár nema af því að mér hefur líkað vel,“ segir hann. Þeim fannst Búrfellsvirkj- un ekki einangruð á meðan þar bjó margt fólk. „Það er frekar að maður fái það á tilfinninguna núna en það vill til að við erum flest á svipuðum aldri sem búum hér,“ segir hann. Um 130 km akstur er til Reykjavíkur og 70 á Selfoss og vegirnar hafa batnað ár frá ári. Nú er bundið slitlag komið á meginhluta leiðarinnar og unnið að lagfæringum á versta farar- tálmanum, veginum um Gauks- höfða. Þó vegirnir séu góðir skreppa menn tæplega í bíó eða leikhús. Það hefur þó komið fyrir. Fólkið sem býr við Búrfells- virkjun kemur saman hálfsmán- aðarlega til að spila félagsvist. Landsvirkjun byggði hesthús fyrir starfsmennina og stunda nokkrir þá íþrótt. Helgi segist aldrei hafa tekið þátt í hesta- mennskunni en hann er þeim mun áhugasamari um golfið. Starfsmennirnir eru að koma sér upp golfvelli, átta holur eru þegar komnar og von á fleirum. Segir hann að áhuginn sé að aukast. BERGSTAÐASTRÆTI 37, SÍMI: 552 57 00, FAX: 562 30 25, NETFANG: holt@centrum.is CHATEAUX. MATREIÐSLUMAÐURARSINS 1997 Hákon Már Örvarsson VÍNÞJÓNN ÁRSINS 1997 Haraldur Halldórsson HAFÐU ÞAÐ FYRSTA FLOIÁKS - ÞAÐ GERUM VIÐ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.