Morgunblaðið - 10.04.1997, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.04.1997, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ URVERINU REGIN Grímsson ásamt stjórnendum Noble House Seafood fyrir framan skipasmíðastöðina í Guy Reisti 1.800 fermetra skipsmíðastöð í Guyana REGIN Grímsson bátasmiður hefur reist skipasmíðastöð í Guyana í Suður-Ameríku í samvinnu við þar- lenda útgerð og hyggst þar smíða um 30 plasttogara fyrir útgerðina, auk annarra tilfallandi verkefna. í Guyana mun Regin smíða 22 metra plasttogara fyrir Noble House Seafood og reiknar hann með að fyrsta skipinu verði hleypt af stokkunum í haust og ætlar hann að smíðuð verði um 15 skip í stöð- inni á ári. „Noble House Seafood rekur tvær rækjuverksmiðjur, eina í Guyana og eina í Surinam. Þeir gera út um 30 rækjutogara og hafa hug á því að endurnýja allan flot- Hyggst smíða um 15 skip áári ann. Þá vantar skip þar sem hægt er að frysta rækjuna um borð. Þetta er geysilega öflugt fyrirtæki, þeim hefur gengið allt í haginn, enda rækjuveiðin verið góð og eftirspurn- in og verðið sömuleiðis." Reistu húsið á 6 vikum Regin fór til Guyana i janúar sl. og hóf að reisa húsnæði undir skipa- smíðarnar í samvinnu við útgerðar- fyrirtækið. Skipasmíðastöðin er um 1.800 fermetrar og lofthæðin er um 14 metrar. „Það tók 15 manns að- eins um 6 vikur að reisa húsið frá grunni. Við höfðum engar vélar né tæki, allt var gert með handafli, utan þess að við fengum krana í hálfan dag til að hífa upp fyrir okkur sperrurnar. Það vakti sér- staka athygli mína hve fólkið þarna er duglegt og vinnusamt. Það skort- ir alla tækniþekkingu og verklag og vinnur alla vinnu með handafli. Það er ótrúlega fijótt að læra og hefur gríðarlegan áhuga á því að kynnast tækjum og aðferðum. Ég hef meðal annars verið beðinn um að kenna því rafsuðu, plastiðn og tréverk," segir Regin. Fimmtán fiskiskip sóttu um leyfi til makrílveiða SAMKVÆMT samkomulagi við færeysk stjórnvöld er íslenskum skipum heimilt á árinu 1997 að veiða í lögsögu Færeyja 1000 lestir af makríl og 2000 lestir af Hjalt- landssíld, sunnan 62. norðlægrar breiddargráðu. Alls bárust 15 umsóknir um veið- arnar en ekki hefur verið ákveðið hvernig veiðiheimildum verður út- hlutað. Samkvæmt heimiidum Morgunblaðsins sækja flestir um vegna makrílveiðiheimildarinnar. Ef öll skipin færu til veiðanna og jafnt yrði skipt á milli skipa kæmu ekki nema 66.6 tonn í hlut hvers skips og því má búast við að ein- hver skip heltist úr lestinni. íslendingar hafa litla reynslu af markrílveiðum en hafa haft heimild til veiða í færeyskri lögsögu sl. tvö ár. Jóna Eðvalds SF frá Hornafirði er eina skipið sem hefur nýtt sér heimildina til þessa en ekki gengið sem skyldi á veiðunum. Ingólfur Ásgrímsson, skipstjóri á Jónu Eð- valds SF, segir í samtali við Morg- unblaðið að líklega verði þriðja til- raunin gerð í sumar. „Við sluppum fyrir hom í fyrrasumar og höfðum þá rétt fyrir kostnaði. Sumarið 1995 vorum við of seint á ferðinni og fengum nánast ekki neitt en von- andi hefur maður öðlast einhveija reynslu," segir Ingólfur. Þau skip sem sóttu um veiðamar í ár eru nótaskipin Jón Kjartansson SU, Guðrún Þorkelsdóttir SU, Hólmaborg SU, Jóna Eðvalds SF, Sighvatur Bjarnason VE, Kap VE, Antares VE, Hersir ÁR, Bjarni Ól- afson AK, Elliði GK, Árnamúpur ÞH, Júpíter ÞH og Júlli Dan GK, auk togarans Venusar HF og Sig- urfara ÓF. Af nótaskipunum em aðeins fjög- ur útbúin kælibúnaði en Ingólfur segir það gríðarlega mikilvægt á þessum veiðum. „Sjávarhiti á veiði- svæðinu var um 15 gráður í fyrra og því þurfti að kæla aflann bæði hratt og mikið, því makríllinn er viðkæmur í þessum hita,“ segir Ingólfur. Reuter HELMUT Kohl (t.v.) ásamt Paavo Lipponen, forsætisráðherra Finnlands, sem kom í opinbera heimsókn til Þýskalands í gær. Meirihlutinn andvigur Kohl - en býst samt við endurkjöri hans Bonn. Reuter. GÓÐUR meirihluti Þjóðveija vill ekki, að Helmut Kohl verði endur- kjörinn kanslari Þýskalands en býst samt við, að svo verði. Kemur þetta fram í skoðanakönnun, sem birt var í gær. Kohl tók af skarið um framboð sitt á næsta ári á 67 ára afmæli sínu í síðustu viku en samkvæmt skoðanakönnuninni, sem birtist í vikublaðinu Die Zeit í dag, eru 57% andvíg endurkjöri hans en 59% telja, að hann nái kosningu eftir sem áður. Um 63% sögðust telja Kohl hafa mesta forystuhæfileika en næstur honum og langt á eftir kom Gerhard Schröder, forsætis- ráðherra jafnaðarmanna í Neðra Saxlandi, með 20% og Oskar La- fontaine, leiðtogi Jafnaðarmanna- flokksins, fékk aðeins atkvæði 7%. Líklegt er, að annarhvor þeirra Schröders eða Lafontaines verði kanslaraefni jafnaðarmanna en það verður hugsanlega ekki ákveðið fyrr en á næsta ári. Jafnaðarmenn með mest fylgi Jafnvel stuðningsmenn jafnaðar- manna töldu Kohl meiri leiðtoga en Schröder eða 48% á móti 32% en Lafontaine fékk 10% meðal þeirra. Kjósendur hafa þó aðeins óbein áhrif á kjör kanslarans þvi að það er sambandsþingið, sem velur hann. Vinsældir Kohls og samsteypu- stjórnar kristilegra demókrata og frjálsra demókrata hafa dvínað mikið vegna mikils atvinnuleysis og vegna þess hve stjórninni hefur gengið illa að koma á umbótum í skatta- og lífeyrismálum. í skoð- anakönnuninni kvaðst 41% ætla að kjósa jafnaðarmenn í næstu kosn- ingum, 35% studdu kristilega demó- krata, 11% græningja og 5% fijálsa demókrata. Danskur maður skotinn á Kúbu Havana. Reuter. UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ á Kúbu sagði í gær að danskur ferða- maður hefði verið skotinn til bana á svæði, sem herinn hefði bannað óbreyttum borgurum að fara á. Danskir fjölmiðlar sögðu að her- menn hefðu skotið ferðamanninn, Joachim Lovschall, sem var 26 ára, eftir að hann hefði ekki orðið við fyrirmælum þeirra um að fara af bannsvæðinu. Kúbverska fréttastofan Prensa Latina hafði eftir Marianela Ferri- ol, taismanni utanríkisráðuneytis- ins, að „þessi sorglegi atburður“ hefði átt sér stað 29. mars. Daninn hefði ekki verið með persónuskilríki og því hefðu yfirvöld ekki komist að nafni hans fyrr en á föstudag. Ferriol kvaðst ekki vilja veita frekari upplýsingar um málið og sagði ráðuneytið hafa heitið fjöl- skyldu hins látna fullri þagmælsku. Ráðuneytið hefði skýrt dönskum yfirvöldum frá atburðinum og hafið rannsókn á málinu. oll limmtudagskvold Fræðsla & fjör í Tölvukjör «... .Tölvukjör Tolvur verslun heimilanna Mytfd & hljóð yfir Internetið / Líttu við í kvöld og kynntu þér hvernig þú getur unnið með mynd & hljóð í samskiptum þínum á Internetinu. Nær óendanlegir möguleikar í óravíddum netsins! Stafræn myndavél Munið vinsælu gjafabréfin Frábær nýjung frá Sony sem gerir þér kleyft að taka kyrr- og lifandi myndir í lit á stafrænu formi. Tilvalið til að setja á netið! Aðeins kr. 19.900.- Prenthugbúnaður fyrir Internetið y Skemmtilegur hugbúnaður frá Canon sem auðveldar útprentun gagna af Internetinu og að tengir upplýsingar af netinu við þin gögn - afar athyglisverður hugbúnaður! Aðeins kr. 1.990.- j Fræðsla & fjör í Tölvukjör - öll fimmtudagskvöld til kl. 22:00 TttlMUKIlR Faxafeni 5 108 Reykjavík Sími 533 2323 Fax 533 2329 tolvukjor@itn.is Opiö virka daga 12:00-18:30 fimmtudaga 12:00-22:00 og laugardaga 10:00-16:00 A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.