Morgunblaðið - 10.04.1997, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 10.04.1997, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Metfé á skákmóti Moskvu. Reuter. VERÐLAUNAFÉ á heimsmeist- aramóti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) næsta vetur verður fimm milljónir dollara, jafnvirði 350 milljóna króna, og hefur aldrei verið meira. Nýtt fyrirkomulag verður á mótinu og er því ætlað að auka vinsældir þess og gera sigur eftir- sóknarverðari, að sögn Kírsans Ilj- úmzhínovs, forseta FIDE. Falla menn úr leik við tap og umhugsun- artími verður styttur. I undanúr- slitum yrðu tefldar sex skákir og 4-8 í úrslitaviðureigninni. Teflt í Kalmykíu Mótið verður háð 16. desember nk. til 8. janúar 1988 í heimaborg Iljúmzhínovs, Elísta, sem er í rúss- neska sjálfstjórnarlýðveldinu Kal- mykíu. Keppendur verða um eitt- hundrað og verða tefldar átta umferðir. Heimsmeisturum FIDE, Anatólí Karpov, og skáksambands atvinnumanna (PCA), Garrí Kasp- arov, hefur verið boðin þátttaka og þurfa þeir ekki að mæta til leiks fyrr en í undanúrslitum. Reuter EIGANDI „Markgreifans af Granby“, Tony Bowler, er hér að afgreiða Tony’s-bjór en ölið er ekki við hann kennt, heldur Tony Blair, leiðtoga Verkamannaflokksins. Stuðningsmenn íhalds- flokksins geta fengið sinn „John“ og kjósendur Fijálslyndra demó- krata sinn „Paddy“ þótt um eina og sama mjöðinn sé að ræða. Þijár vikur fram að kosningunum í Bretlandi Dregnr heldur sam- an með flokkunum London. Reuter. BILIÐ milli stóru flokkanna í Bret- landi, Verkamannaflokksins og Ihaldsflokksins, hefur minnkað nokkuð samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í gær. í annarri könnun kemur fram, að sú ákvörðun stríðs- fréttaritarans Martin Bells að bjóða sig fram gegn Neil Hamilton, einum þingmanni íhaldsflokksins, sem sak- aður hefur verið um mútuþægni, nýtur mikils stuðnings meðal kjós- enda. I könnun ICM-stofnunarinnar, sem dagblaðið Guardian birti í gær, hefur stuðningur við íhaldsflokkinn aukist um tvö prósentustig og er nú 34% en Verkamannaflokkurinn stendur í stað með 46%. Munurinn er því aðeins 12 prósentustig og sá minnsti frá því á síðasta ári. Þess ber að geta, að kannanir ICM sýna ávallt minni mun á flokkunum en aðrar kannanir og er ástæðan sú, að reiknað er með, að sumir kjós- enda íhaldsflokksins séu tregari til að gefa upp stuðning sinn við hann en almennt gerist með kjósendur annarra flokka. Gallup-könnun, sem Daily Tel- egraph birti, sýnir, að fylgi við Verkamannafiokkinn hefur minnkað um tvö prósentustig og er nú 51% og stuðningur við Ihaldsflokkinn minnkað um eitt prósentustig og er 32%. í þessari könnun kom fram, að aðeins tíundi hver kjósandi taldi líklegt, að John Major yrði næsti forsætisráðherra Bretlands. Samkvæmt MORI-könnun styðja 55% kjósenda þá ákvörðun Martin Bells, fyrrverandi stríðsfréttaritara hjá breska útvarpinu, BBC, að bjóða sig fram gegn Neil Hamilton, þing- manni íhaldsflokksins í Tatton á Norðvestur-Englandi. Kjarnorkuslysið 1 Japan Rannsókn vegna yfirhylmingar Tókýó. Reuter. RYUTARO Hashimoto, forsætis- ráðherra Japans, brást í gær ókvæða við yfirhylmingu ríkisfyrir- tækis, sem annast endurvinnslu kjarnorkuúrgangs, og fyrirskipaði rannsókn á mesta kjarnorkuslysi í sögu landsins. Stjórnendur fyrir- tækisins höfðu viðurkennt að rang- ar upplýsingar hefðu komið fram í skýrslu um slysið. „Ég er svo reiður að ég er orð- laus,“ sagði Hashimoto eftir að hafa falið eftirlitsmönnum Vísinda- og tæknistofnunar Japans að hefja skyndileit á skrifstofum fyrirtækis- ins og leggja hald á gögn um slysið. Stjórnendur fyrirtækisins viður- kenndu á þriðjudagskvöld að rang- ar upplýsingar hefðu komið fram í skýrslu um sprengingu, sem varð 11. mars í kjarnorkuendurvinnslu- stöðinni í Tokaimura, 160 km norð- austur af Tókýó. 37 starfsmenn stöðvarinnar urðu fyrir lítilsháttar geislamengun. Getur leitt til lögsóknar Fyrirtækið hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að skýra yfirvöldum of seint frá slysinu. Endurvinnslu- stöðin hefur einnig verið gagnrýnd fyrir slæmar eldvarnir og úrelta tækni. í skýrslu fyrirtækisins sagði að starfsmenn þess hefðu staðfest að eldur, sem kviknaði í stöðinni, hefði verið slökktur. Eldurinn blossaði aftur upp níu klukkustundum síðar og olli sprengingu og geislamengun í andrúmsloftinu. „Reyndin var sú að enginn stað- festi að eldurinn hefði verið slökkt- ur. Starfsmenn stöðvarinnar vissu þetta en héldu að ekki væri hægt að breyta skýrslunni eftir að hún var gerð opinber," sagði Hiromasa Nakano, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, á blaðamannafundi á þriðjudag. „Ég trúði því að það væru engar lygar í skýrslunni," sagði Toshiyuki Kondo, stjórnarformaður fyrirtæk- isins og kvaðst harma rangfærsl- urnar í skýrslunni. Talsmaður Vísinda- og tækni- stofnunarinnar sagði að skýrslan væri opinbert skjal og samkvæmt lögum bæri fyrirtækinu að afhenda stjórninni eintak af henni. „Slíkar rangfærslur geta leitt til lögsókn- ar,“ bætti hann við. Kynþroskaskeiðið hefst fyrr en áður Chapel Hill. Reuter. NÝ rannsókn bendir til þess að kyn- þroskaskeið bandarískra stúlkna heflist fyrr en áður, hugsanlega vegna vöru sem hefur meira af kyn- hormónum kvenna en verið hefur. „Við vitum ekki hver skýringin er,“ sagði dr. Marcia Herman-Gidd- ens, sem stjórnaði rannsókninni. „Þetta eru eintómar vangaveltur, en við veltum því fyrir okkur hvort vaxandi notkun varnings með estrógen geti haft áhrif.“ Herman-Giddens nefndi nauta- kjöt, plastefni, hársnyrtivörur og skordýraeitur sem dæmi um siíkar vörur. Hún sagði að rannsókn hefði bent til þess að tengsl væru á milli minni sæðisframleiðslu karla og estrógens og því væri ekki ólíklegt að vörurnar hefðu áhrif á ungar stúlkur. Rannsóknin benti ennfremur til þess að svartar stúlkur hæfu kyn- þroskaskeiðið fyrr en hvítar stúlkur og Herman-Giddens kvaðst ekki hafa skýringu á því. Rannsóknin benti þó ekki til að kynþroskaskeiðinu lyki fyrr en áður. EÞ gagnrýnir meint mannréttindabrot í ESB Strassborg. Reuter. Norðmenn svartsýnir eftir fund með Sir Leon Brittan Telja refsitolla vera nær óhjákvæmilega Brussel. Morgunblaðið EVROPUÞINGIÐ gagnrýnir ýmis aðildarríki Evrópusam- bandsins fyrir meint brot á mannréttindum. Þetta kemur fram í þriðju ársskýrslu þingsins um mannréttindi í ESB. Þingið ræðst á Bretland, Belg- íu og Grikkland fyrir að stað- festa ekki bókun við mannrétt- indasáttmála Evrópu um afnám dauðarefsingar. Þá leggst þingið gegn öllum tegundum líknar- dráps. Skilgreining grundvallar- mannréttinda útvíkkuð Lengi hefur verið deilt um það hvort svokölluð efnahagsleg og félagsleg réttindi eigi að teljast til algildra mannréttinda. Evr- ópuþingið, þar sem sósíalistar eru öflugasti flokkahópurinn, fer nú í fyrsta sinn þá leið í skýrslu sinni að skilgreina lágmarks- tekjutryggingu, aðgang að lækn- isþjónustu og húsnæði og rétt á hreinu umhverfi sem grundvall- armannréttindi. Þingið gagnrýn- ir m.a. Bretland fyrir að taka ekki þátt í stórum hluta félags- málastefnu ESB. Evrópuþingmenn gagnrýna Grikkland fyrir að leggja hömlur á fundahöld þjóðernis- og trúar- minnihluta og benda á að mann- réttindasáttmálinn leyfi því að- eins skorður við fundahöldum að þau ógni öryggi ríkisins. Irland er átalið fyrir lög, sem banna birtingu hvers konar efnis þar sem hvatt er til fóstureyðing- ar, og Austurríki fyrir lög um lögaldur til holdlegs samræðis, sem talinn eru mismuna samkyn- hneigðum. Frakkland og Þýzkaland eru gagnrýnd fyrir að leyfa æ fleiri sveitarfélögum að banna betl. Misnotkun á börnum fordæmd Evrópuþingið hrósar Grikk- landi fyrir frumvarp til laga, sem myndi leyfa mönnum, sem samvizku sinnar vegna vilja ekki gegna herþjónustu, að sinna þess í stað samfélagsþjónustu. Þá fær Svíþjóð lof fyrir áform um að banna vörzlu barnakláms. Fram til þessa hefur ekki verið lagt bann við því í Svíþjóð og Danmörku að hafa slíkt efni í fórum sínum. Þingmenn for- dæma „afdráttarlaust" hvers konar misnotkun á börnum en nefna ekki afstöðu danskra sljórnvalda til barnakláms sér- staklega. BJ0RN Tore Godal, utanríkisráð- herra Noregs, og Karl Eirik Schjott- Pedersen, sjávarútvegsráðherra Noregs, áttu í gær fund með Sir Leon Brittan, fulltrúa fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins (ESB) um fyrirhugaða refsitolla sambandsins á norskan lax. Fundurinn stóð yfir í röskar 30 mínútur og kynntu ráðherrarnir Sir Leon ítarlega afstöðu Norðmanna og ræddu við hann um næstu skref framkvæmdastjórnarinnar. Sagði Brittan hann hafa verið tímabæran og gagnlegan en vildi ekkert gefa út á hvort afstaða framkvæmda- stjórnarinnar til refsitolla á norskan lax hefði breyst. Norðmenn eru hins vegar svartsýnir á að sú sé raunin og telja líklegast að refsitollar verði lagðir á. Brittan rakti ástæður fyrir þess- um aðgerðum ESB í stuttu máli, en eins og fram hefur komið telur framkvæmdastjórnin þörf á 14% refsitolli á norskan lax sem fluttur er inn til aðildarríkja Evrópusam- bandsins, vegna meintra undirboða norskra laxeldisstöðva í skjóli ríkis- styrkja. Sagði Brittan að ekki væri hér um verndaraðgerðir að ræða, heldur aðgerðir til að tryggja eðlilega sam- keppni á jafnréttisgrundvelli, og væru aðgerðir af þessu tagi í sam- ræmi við reglur Alþjóða viðskipta- stofnunarinnar (WTO). Þá benti hann á að samkvæmt EES-samn- ingnum væri heimilt að grípa til slíkra aðgerða á þeim sviðum sem sameiginlegar reglur ESB næðu ekki til. Ekki meirihluti í ráðherraráði fyrir refsiaðgerðum Norska blaðið Aftenposten hefur eftir heimildarmönnum innan ESB í gær að meirihluti muni ekki nást fyrir tillögum framkvæmdastjórn- arinnar undirboðsnefnd ráðherra- ráðsins sem á að gefa álit sitt á þeim. Þjóðveijar og Danir hafi lýst sig andvíga henni og Svíar muni einnig greiða atkvæði gegn henni. Sömu heimildir herma hins vegar að framkvæmdastjórnin muni engu að síður hrinda þessum aðgerðum í framkvæmd. Talsmaður norsku sendinefndar- innar við Evrópusambandið sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Norðmenn byggjust við því að fram- kvæmdastjórnin myndi leggja um- ræddan refsitoll á, hugsanlega strax í næstu viku. Hann sagði Norðmenn hins vegar telja að með viðræðum sínum við aðildarríki ESB á undanförnum dögum hefði þeim tekist að vinna málstað Noregs betri skilning fyrir aðra lotu, eins og hann orðaði það, en ráðherraráð ESB þarf að taka afstöðu til þess hvort gera skuli refsitollana varan- lega 6 mánuðum eftir að þeir eru settir á til bráðabirgða. i I I i \ >
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.