Morgunblaðið - 10.04.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 21
__________ERLENT__________
Japanir deila um
styrj aldar söguna
Tókýó. Reuter.
NYTT skólaár hófst í Japan á
mánudag og eins og stundum áður
eru strax komnar upp deilur um
útlistun sögubókanna á þátttöku
eða framferði Japana í síðari heims-
styrjöld. Nú snúast þær um það,
sem segir um konumar, kynlífs-
þrælana, sem neyddar voru til fylgi-
lags við japanska hermenn.
Sagnfræðingar telja, að japanski
herinn hafi þrælkað um 200.000
asískar konur með þessum hætti
en samt er um það deilt hvort þær
hafi í raun verið neyddar til að vinna
á vændishúsunum. Hefur þessi deila
einnig vakið upp spumingar um
ímynd Japana, stöðu þeirra meðal
annarra Asíuþjóða og hvernig
stefna ríkisins í varnar- og utanrík-
ismálum er mótuð.
Vilja nýjan söguskilning
Japanir hneyksluðu mjög ná-
grannaríki sín, Kína, Suður-Kóreu
og fleiri, árið 1982 þegar ekki var
talað um innrás þeirra í þessi lönd í
síðari heimsstyrjöld, heldur aðeins
um „framsókn", en nú finnst jap-
önskum hægrimönnum of langt
gengið í frásögnum af framferði jap-
anska hersins. Segja þeir, að sögu-
skilningurinn sé farinn að einkennast
af „sjálfspyntingarhvöt", sem marx-
ískir fræðimenn hafi kynt undir ára-
tugum saman. Finnst þeim sem föð-
urlandsást sé orðið að skammaryrði
og undirlægjuhátturinn svo mikill,
að þjóðin geti ekki lengur rætt sín
öryggismál af ótta við að móðga
Kínveija og Kóreumenn.
Ftjálslyndir menn og vinstrisinn-
ar segja aftur á móti, að gangist
Japanir ekki við fortiðinni, muni
þeir annaðhvort endurtaka sín fyrri
afglöp eða verða eins konar útlagar
í samfélagi Asíuríkjanna.
Japanskir þjóðemissinnar segja,
að engar sannanir séu fyrir því, að
konurnar hafi verið þvingaðar til
fylgilags við hermennina og halda
því fram, að verði því haldið að 13
til 15 ára gömlum nemendum,
muni margir þeirra fara að skamm-
ast sín fyrir þjóðernið.
Siðferðilegt svarthol
Hægrisinnaðir fræðimenn í Jap-
an vilja beita sér fyrir ritun nýrra
sögubóka þar sem þjóðarstoltið fái
að njóta sín en rithöfundurinn
Naoki Inose, sem hefur skrifað
mikið um sögu Japans á þessari
öld, segir, að hvorki fijálslyndir
menn sé hægrimenn komi auga á
það, sem mestu skiptir.
„Þeir átta sig ekki á samheng-
inu, sem er á milli stjómmálakerfis-
ins fyrir stríð, sem leiddi til atburð-
anna í styijöldinni, og ríkisstjórn-
anna eftir stríð, sem vilja oft ekki
kannast við neina ábyrgð. Hér er
um að ræða pólitískt svarthol í
miðju stjómkerfinu, sem veitir enga
leiðsögn hvað varðar siðferðileg
gildi. Það leiddi til þess, jafnt fyrir
stríð sem eftir, að meira eða minna
sjálfstæðar stofnanir, herinn á
stríðsárunum og ráðuneytin nú á
dögum, fóru og fara sínu eigin fram
án tillits til annarra," segir Inose.
Kynning í Söru í dag og á morgun frá kl. 13.00-18.00
$ara
Bankastræti 8, s. 551 3140
SVALADRYKKU
HÚÐARINNAR
ESTEE LAUDER
100%
Time Release
Moisturizer
with BioMineral Water
Sannkallaður svaladrykkur fyrir
húðina, einstök rakagæf blanda
sem tryggir húðinni lífræna
vatnslausn í allt að 12 stundir.
Lausnin er styrkt með rúmlega 70
steinefnum og auðveldar húðinni
að taka í sig raka og binda hann.
Olíulaust. Hressir upp á húðina, hún
verður ótrúlega mjúk og svöl. Tryggir
varanlega vellíðan.
Fálð ykkur 100% Time Release
Moisturizer frá Estée Lauder strax í
dag, nú dugar ekkert minna.
Verð kr. 3.150.
Með 100% Time Release
Moisturizer fylgir:
Fruition Extra 6 ml
Pure Velvet Mascara 5 ml
Estée Lauder pleasures 4 ml spray
Estée Lauder snyrtitaska
Mc Gordon
Gallabuxur
1 stk. 1.980
á
2 stk. 2.980
■
Vinnuskyrtur
ffjií
Flispeysur
DRESS
MANN
Ath Sendum i póstkrófu. Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730. Fax 562-9731
LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK