Morgunblaðið - 10.04.1997, Qupperneq 60
60 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó GrOtt
AFTUR A BREIÐTJALDIÐ OG NU
^jVIEÐ RÆNU HLJÓÐI ^
| >« Popsilc.lkinil
j PEPSI
WA
Aðsóknarmesta mynd allra tíma í endurbættri
útgáfu fyrir allar kynslóðir. Fór beint á toppinn í
Bandaríkjunum. Leikstjóri: George Lucas
Sýnd kl. 6, 9 og 11.30.
H. T. Rás2
Sýnd kl. 6 og 9.10
★ ★★172 Hl< DV
★ ★★★1/2 SV MBL
★ ★ ★ 1 /2 O.J. Bylgian
★ ★ ★ 1 /2 A.Þ. Dagsljos
Sjáðu ÓSKARSVERÐLAUN:
Ko|ya BESTA ERLENDA MYNDIN
★★★★
Ó. H. T. Rás 2
★★★★
Þ. Ó. Bylgjan
★ ★★1/2
H. K. DV
★ ★★l/2
Á. Þ. Dagsljós
★ ★★ 1/21.
A. S. Mbl
K O L Y
„Þessi mynd er galdur sem dáleiðir þig, nær þér gjörsamlega
á sitt band og þú óskar þess að hún megi aldrei hætta."
Ásgrímur Sverrisson (Land og synir, rit kvikmyndagerðarmanna)
Sýnd kl 5, 7, 9.05 og 11.10.
Sýnd kl. 9.05 og 11.10.
l' r:V \FYRSTU K YN N I
★ ★★
Sýnd kl. 6. Siðustu sýningar!
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15.
B. i. 12 ára
LEIT Joni Mitchell að dóttur sinni er lokið.
Dóttir Joni Mitchell fann
móður sína á veraldarvefnum
Skemmtilegt
ár framundan
Breskir danstónlistarmenn hafa veríð tíðir
gestir hér á landi undanfarin misseri og
heimsækja það enn, því staddur er hér á
landi tónlistarmaðurinn John Stapleton.
Hann segist öðrum þræði vera hingað kom-
inn til að kynna sér íslenska tónlist.
►KILAUREN Gibb var á flakki
um veraldarvefinn þegar hún
rakst á mynd af söngkonunni
Joni Mitchell sem sannfærði
hana um að Mitchell væri móð-
irin sem hún hafði verið að leita
að um nokkra hríð.
Gibb, sem nýlega sneri aftur
til Toronto í Kanada ásamt
þriggja ára syni sínum, Marlin,
eftir 19 daga endurfundi með
Mitchell á heimili hennar í Los
Angeles, hóf leit sína fyrir
nokkrum árum með aðeins
örfáar staðreyndir í veganesti.
Það var síðan ekki fyrr en
hún fór inn á heimasíðu Mitch-
ell á veraldarvefnum og bar
saman 14 atriði, sem þar var
að finna, sem pössuðu öll við
hana, að hún sannfærðist um
að hún væri dóttir hinnar
kanadískættuðu söngkonu.
„Því meira sem ég las því líkari
fannst mér við vera. Hún er
söngkona og ég hef áhuga á
tónlist og hún er að fást við
myndlist og ég mála sjálf. Við
áttum greinilega margt sameig-
inlegt,“ sagði Gibb, sem er fyrr-
verandi fyrirsæta, af þessu til-
efni.
Þær mæðgur eru einnig
nauðalíkar í útliti. Þær eru báð-
ar bláeygar, hafa langa fætur
og há kinnbein.
Mitchell, sem gaf dóttur sína
til ættleiðingar fyrir 32 árum,
hefur einnig leitað dóttur
sinnar undanfarna mánuði.
„Það var yndislegt að hitta
hana og mér fannst líf mitt
hafa náð ákveðinni fullkomnun.
Mér fannst samstundis og við
hittumst að ég væri komin heim
og að við tilheyrðum hvor ann-
arri,“ sagði Gibb sem uppgöt-
vaði þegar hún var 27 ára að
hún hafði verið ættleidd og
fékk fimm árum síðar pappíra
um raunverulega móður sína
frá hagsmunaskrifstofu barna.
„Skrifstofan lýsti henni sem
vinsælli kanadiskri söngkonu.“
Áður en fundum þeirra bar
saman hafði nokkur fjöldi
kvenna haft samband við Mitch-
ell og sagst vera dóttir hennar.
BRESKIR danspostular hafa verið
tíðir gestir hér á landi undanfarin
ár og sækja margir í að koma hing-
að. Nýjasti gesturinn í þeim hópi
er John Stapleton, sem hefur
meðal annars unnið sér til
frægðar að setja sama vin-
sæla safnplöturöð, Dope on
Plastic, en fjórða bindið
í þeirri útgáfu hefur
notið mikillar hylli
hér und-
anfarið. /,
John
Stapleton
segist fást
við sitthvað um
þessar mundir, þar á
meðal ekki síst undirbún-
ing að næstu Dope on Plastic
skífu, sem verði samsafn sígildra
laga frá níunda og tíunda áratugn-
um. Af þeirri plötu hefur lagið
Remember Me með Blueboy orðið
gríðarlega vinsælt og hann segir
að vinsældirnar hafi komi á óvart,
„að minnsta kosti hversu vinsælt
lagið varð og er, því þó að ég hafi
verið sannfærður um að það ætti
eftir að ná hylli, átti ég ekki von
öðrum eins vinsældum. Þetta er
alltaf happdrætti því mér fannst
hvert einasta lag á plötunni frá-
bært.“
John Stapleton segist fá grúa
laga sendan á hveijum degi, en
hann sé líka fastagestur í öllum
plötuverslunum að leita að nýrri
tónlist, sérstaklega lögum á plöt-
um sem kannski séu ekki
fluttar inn til Bretlands
nema í fáeinum eintök-
um. „Það koma góð lög
úr ólíkum áttum,
ég komst til að
mynda _ yfir
plötur frá Ástr-
alíu með þónokkru
af lögum sem ég hafði
ekki heyrt áður og mjög
góð lög inni á milli. Fyrir
stuttu var ég líka á ferð í
Hollandi og keypti þá plötubunka
með afbragðslögum sem ég hafði
ekki heyrt áður. Það er því víða
að finna góða tónlist, þó að sam-
keppnin sé hörð og fjölmargir að
gefa út tónlist. Eg er sífellt að
kynnast danstónlist ólíkra landa og
tónlistin er sífellt að breytast þann-
ig að segja má að það sé sífellt
eitthvað nýtt að gerast. Reyndar
er svo mikið að gerast í danstónlist
um allan heim að ógerningur er
að kynnast nema litlu broti af því;
maður þyrfti að flytja til viðkom-
andi landa og búa þar einhvern
tíma til að fá almennilega nasasjón
af því sem er í gangi.“
John Stapleton segir að víða sé
að finna sérkenni í danstónlistinni
og þá þjóðerniseinkenni, þó segir
hann ekki auðvelt að átta sig á
ástæðunni. „Belgísk tónlist er ansi
harkaleg, þýsk vélræn, spænsk og
ítölsk mýkri og svo mætti lengi
telja.“
John Stapleton segir að danstón-
list sé að þróast í margar áttir sam-
tímis í Bretlandi, sem er vel að
hans mati. „Tónlist eins og Chemic-
al Brothers flytja á eftir að verða
gríðarlega vinsæl á þessu ári og
platan þeirra eftir að seljast mjög
vel. Samtímis þeirri þróun er jungle
enn að sækja í sig veðrið og það
er líka mikil hreyfing í nýrri gerð
house-tónlistar. Þetta ár á eftir að
verða skemmtilegt fyrir þá sem á
annað borð hafa gaman af tónlist.“
John Stapleton er hingað kominn
til að leika tónlist úr safni sínu og
segist meðal annars ætla að gefa
nasajón af því sem hann hyggst
setja á næstu safnskífu, 'Dope on
Plastic, en hann hafi gaman af að
hræra saman ólíkum hlutum. „Ég
hyggst taka með mér eins mikið
af plötum og ég get og sjá hvað
setur, en ekki má gleyma því að
með í för verður Crash Slaughter,
hiphop plötusnúður, þannig að mik-
ið verður skrámað.“
John Stapleton segir að sig hafi
langað að koma til íslands í langan
tíma og því sé hann spenntur yfir
því að fá loks tækifæri til að sækja
heim land og þjóð. „Vonandi á ég
síðan eftir að komast á snoðir um
nýja, skemmtilega tónlist á Islandi
sem ég get notað á safnplötu síð-
ar.“
John Stapleton og Crash Slaug-
hta skemmta í kvöld á skólaböllum,
í Hinu Húsinu kl. 17.00 á morgun
og unglingaballi í Fjörgyn um
kvöldið og loks í Tunglinu laugar-
dagskvöld. Hljómsveitin Súrefni
leikur með öll kvöldin, en hún fagn-
ar útgáfu fyrstu plötu sinnar um
þessar mundir.