Morgunblaðið - 10.04.1997, Side 64
64 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
. 1
MYIMDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
Neeson og McGregor
Jedi-riddarar
LIAM Neeson, Ewan McGregor,
Kate Winslet og Natalie Portman
hafa öll verið orðuð við nýju „Star
Wars“ mynd Georges Lucas. Sam-
kvæmt blaðafulltrúa Lucas, Lynne
Hale, hefur enginn verið ráðinn
enn til þess að leika í myndinni
og Lucas hefur gefið skyn að hann
vilji óþekkta leikara í aðalhlut-
verkin. Það er einnig ódýrara þeg-
ar haft er í huga að skærustu
karlkynsstjörnur Hollywood taka
20 milljónir dollara fyrir mynd.
Kannski að Lueas skipti um skoð-
un enda eru Bretarnir ódýrara
vinnuafl.
Neeson og Lucas hafa fundað
nokkrum sinnum en til greina
kemur að Neeson leiki nýja per-
sónu, Jedi-riddara sem er læri-
meistari Obis Wans Kenobis og
Anakans Skywalkers (þ.e. Svart-
höfði áður en hann þjónar myrkra-
völdunum).
Talað hafði verið um að Kenn-
eth Branagh færi með hlutverk
hins unga Obis Wans Kenobis en
nú þykir annar Breti líklegri til
að hreppa hlutverkið. Lucas á að
hafa rætt við breska nýstirnið
LIAM Neeson og Ewan
McGregor berjast líklega hlið
við hlið sem Jedi-riddarar í
nýju „Star Wars“ myndinni.
Ewan McGregor um að vera arf-
taki Alecs Guinness.
Hvaða hlutverk Kate Winslet og
Natalie Portman eiga að leika í
myndinni er ekki ljóst en leiða má
að því líkur að Winslet verði móðir
Lukes Skywalkers. Áhorfendur
verða að bíða spenntir eftir að
myndin komi í kvikmyndahús en
upptökur eiga að hefjast í Leaves-
den kvikmyndatökuverinu í Lond-
on síðar á þessu ári.
Mynd um gjöminga-
listamann verðlaunuð
KVIKMYNDIN „Sick“: The Life
and Death of Bob Flanagan, Super
Masochist“ fékk verðlaun á Los
_ Angeles Independent kvikmynda-
hátíðinni sem nú fer fram í Los
Angeles.
I ár voru í fyrsta sinn veitt sér-
stök áhorfendaverðlaun en þau
samanstanda af peningum og ann-
arri aðstoð við kvikmyndagerðar-
mennina sem eiga sigurmyndir há-
tíðarinnar. „Sick“, sem leikstýrt er
af Kirby Dick, segir sögu gjöminga-
listamannsins Bobs Flanagans, sem
lést árið 1995, en hann var einkum
þekktur fyrir að gera eigin sjálfs-
pyntingarhvöt að umijöllunarefni í
list sinni. Verk Flanagans voru sýnd
á myndlistarsýningu í Mokka kaffi
fyrir fáeinum árum.
apríltilboð
-M
158 kr. y
f DekkjahreinsirT\
Sámur, 11.
CMarabou 4j Ajfl .
súkkulaði 3 stk. " W kr.J
CCoca Cola ^0% \
1/2 lítra dós fcr. J
létfir þér Kfíð
MYNDBÖND
Tölvutryllir
Háskólakennari á ystu nöf
(Twilight Man)
Spcnnumynd
★ ★ ★
Framleiðandi: Ted Kurdyla. Leik-
stjóri: Craig R. Baxles. Handrits-
höfundur: Pablo F. Fenjeves og Jim
Korris. Kvikmyndataka: David
Connell. Tónlist: Gary Chang. Aðal-
hlutverk: Tim Matheson og Dean
Stockwell. 95 mín. Bandaríkin. Cic
myndbönd 1997. Útgáfudagur: 8.
apríl. Myndin er bönnuð bömum
innan 12 ára.
HÁSKÓLAKENNARI verður fyrir
barðinu á að því virðist í fyrstu
grimmlyndislegum prakkarastrikum
tölvusnillings, en brátt taka hrekkim-
ir á sig banvænni mynd og á kennar-
inn þá fótum sínum fjör að launa
undan lymskulegum þrjótnum og lög-
reglunni.
Hér er á ferð-
inni einkar vel
heppnuð spennu-
mynd í anda „The
Net“ og sjónvarps-
þátta á borð við
„The X-Files“. En
ólíkt þessum tveim
samsæriskrydd-
uðu titlum, íjallar
„Háskólakennari á
ystu nöf“ um leik kattarins að mú-
sinni. Músin er leikin af Tim Mathe-
son og stendur hann sig afskaplega
vel í hlutverki hins örvinglaða kenn-
ara, en kötturinn er skemmtilega
ofleikinn af Dean Stockwell, sem
hefur ekki verið svona góður síðan
hann var í „Blue Velvet“. Það er einn-
ig góð tilfinning að sjá loksins mynd
þar sem lögreglan reynir eftir
fremsta megni að trúa sögu hins
ofsótta einstaklings, þó svo að hún
sé hæpin í besta falli. Aðdáendur
„The X-Files“ ættu að hafa gaman
Spilling alls staðar
Jack Reed IV: Löggumorð
(Jack Reed IV: One of Our Own)
Spcnnumynd
★ ★
Framleiðandi: Steve Krantz. Leik-
stjóri: Brian Dennehy. Handritshöf-
undur: Brian Dennehy og Bill
Philips. Kvikmyndataka: Ron Ori-
eux. Tónlist: Lee Holdridge. Aðal-
hlutverk: Brian Dennehy, Susan
Ruttan og Charles S. Dutton. 97
mín. Bandaríkin. Háskólabíó 1997.
Útgáfudagur: 8. apríl. Myndin er
bönnuð bömum innan 16 ára.
ÞETTA er fjórða myndin í hinni
vinsælu sjónvarpsmyndaröð um hinn
þungbúna lög-
reglumann Jack
Reed, fjölskyldu
hans og sam-
starfsmenn. I
þetta sinn fæst
hann við mál þar
sem ung kona er
næstum því drep-
in af tveimur eit-
urlyfjaneytend-
um, en í staðinn fellur félagi Jacks
fyrir byssukúlu frá þeim. Þegar nán-
ar er að gáð kemur í ljós að mennirn-
ir hafa verið ráðnir til að drepa kon-
una af einhverjum ástæðum og þá
taka hjólin að snúast.
Löggumorð er sísta myndin í Jack
Reed-myndaröðinni, en það segir
Nr.; var Lag Flytjandi
1. i (1) Block rockin'beats Chemical brothers
2. ; (3) Encore une fois Sash
3. i (-) Around the world Daft punk
4. i (22) Pöddur Botnleðja
5. 1(12) Switchstonce Qaurashi
6. ! (2) Eye Smashing Pumpkins
7. i (4) Reody to go Republica
8. i (5) Song 2 Blur
9. i (9) Minn hinsti dons Páll Óskar Hjálmtýsson
ío.i (ii) Lozy Suede
11.1(13) The boss Braxtons
12.1(16) Talk show host Radiohead
13.: (15) Who do you think you ore Spice girls
14.: (6) Staring at the sun U2
15.1, (7) Spin spin sugar Sneaker Pimps
16.; (-) You got the love The source
17.'; (18) Hypnotize Notorious B.I.G.
18.i (-) Flash BBE
19. i (8) Local god Everdear
20. i (19) Shady lane Pavement
21.: (-) Its no good Depeche mode
22.: (24) Into my arms Nick Cave
23.; (28) Before today E. b. t. g.
24.; (-) All that 1 got is you Ghostface killah
25.i (10) Firewater burn Bloodhound gang
26.i (26) Hush Kula Shaker
27.i (20) Outta space Jimi Tenor
28.1(21) On and on Erika Badu
29.1(17) Star people George Micheal
30.1(14) i Remember me Blueboy
af uppbyggingu myndarinnar og ör-
ugglega hlakkar í einhveijum þegar
illmennið er kynnt til sögunnar, en
hann er ekki ólíkur erkifjanda Muld-
ers og Scully í útliti og háttemi. Öll
tæknvinna er til fyrirmyndar og
handritið er uppfullt af brögðum og
brellum til að afvegaleiða kennarann
og um leið áhorfendur. Þessi mynd
kom mér svo mikið á óvart að ég
horfði á hana tvisvar sama kvöldið
og hafði gaman af.
Ottó Geir Borg
ekki að hún sé slæm heldur nokkuð
um gæði hinna þriggja. Leikurinn
er það sem stendur uppúr í mynd-
inni og er ávallt gaman að sjá hinn
ýturvaxna Dennehy í hlutverki
Reeds og samstarfsmönnum hans
eru gerð einkar góð skil af þeim
Dutton og félögum. Helsti gallinn
við myndina er sá að fjölskylda Re-
eds er orðin helst til stöðnuð og
hægir saga hennar á framvindu
myndarinnar. Aðdáéndur Dennehys
ættu að gleðjast yfir þessari mynd,
en aðrir ættu að athuga hinar
myndirnar í myndröðinni áður en
þessi verður fyrir valinu.
Ottó Geir Borg
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Ást og skuggar
(OfLove and Shadows) ★ ★
Stolt Celtic - liðsins
(Celtic Pride) ★ ★ 'h
Töfrandi fegurð
(Stealing Beauty) ★ ★ ★
Eyja Dr. Moreau
(The Island of Dr. Moreau) ★ 'h
Ihefndarhug
(Heaven’s Prisoner) *'/i
Skriftunin
(Le Confessional) ★ ★ ★ ★
Margfaldur
(Multiplicity)★ ★ 'h
Hættuleg ást
(Sleeping With Danger) ★
Draumar og brimbretti
(Blue Juice)* ★
Draumurinn um Broadway
(Manhattan Merengue)
I nunnuklaustri
(Changing Habits) ★ ★
Morðstund
(A Time to Kill)★ ★ ★
Ibúð Joe
(Joe’s Apartment) ★ 'h
Alaska
(Alaska) ★ ★
Tryggingasvindl
(Escape Clause) ★ ★ 'h
Drápskrukkan
(The KillingJar)★ 'h
Stóra blöffið
(The Great White Hype)-k ★
Hin fullkomna dóttir
(The Perfect daughter)★ 'h
Englabarn
(Angel Baby)* ★ 'h
Fatafellan
(Striptease) ★ ★