Morgunblaðið - 10.04.1997, Side 68
&
C3>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
<Q> NÝHERii
MORGVNBLADIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SlMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUaCENTRUMAS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Ásdís
Eldsneyti úr út-
blæstri álvera?
MIKIÐ væri unnið með því að nýta
vatnsorku í formi eldsneytis fyrir
flota landsins og farartæki. Núver-
andi tækni gerir þetta kleift ef notað
er vetni eða vetni sem umbreytt
hefur verið í metanól með koltvíox-
íði sem unnið yrði úr andrúmslofti
eða afmörkuðum uppsprettum.
Þetta kemur fram í grein eftir
Frey Sverrisson í Morgunblaðinu í
dag og segir Freyr að með þessu
væri hægt að spara stóran hluta
þess gjaldeyris sem álver skapa og
nú er notaður til kaupa á eldsneyti.
Hægt að flytja orkuna út
Freyr segir að Japanir séu að þróa
tækni til að vinna koltvíoxíð úr út-
blæstri orkuvera í stórum stíl til
blöndunar við vetni svo að gera megi
úr auðmeðfarið eldsneyti. Þannig
megi „endurvinna" koltvíoxíð enda-
laust sem hjálparefni í orkuflutningi.
Slík aðferð gæti reynst hagkvæm-
ari en áætlun um sæstreng til Evrópu
að sögn Freys. Spara mætti kostnað
af gerð strengsins og flytja heldur
orkuna í formi metanóls um borð í
skipum á hvern þann markað sem
hæst byði.
Einar Guðmundsson verkfræðing-
ur, rekstrarstjóri álversins í Straums-
vík, segir að í koltvíoxíði og vetni séu
öll efni sem eru í metanóli. „Það er
án efa hægt að gera þetta en spum-
ingin er aðeins sú að finna aðferð til
þess að gera þetta á hagkvæman
hátt,“ segir Einar.
■ Efkoltvíoxíð/33
Övissa
um starf-
semi FI
ÓVISSA ríkir um fyrirhugaða
starfsemi Flugfélags ísiands í
kjölfar ákvörðunar Samkeppn-
isráðs um ýmis skilyrði fyrir
samruna Flugfélags Norður-
lands og Flugleiða innanlands.
Forráðamenn FÍ íhuga nú stöð-
una og segja hana skýrast í
næstu viku.
Undanfarnar vikur hafa for-
ráðamenn félaganna skipulagt
nýtt fyrirkomulag innanlands-
flugs, ráðnir hafa verið starfs-
menn og gengið frá samning-
um um leiguflugsverkefni.
■ Biðstaða og óvissa/11
Háspenna
í Garðabæ
HAUKAR úr Hafnarfirði vörðu
íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik kvenna með því að vinna
Stjörnuna 26:24 í æsispennandi
og tvíframlengdum úrslitaleik I
Garðabæ í gærkvöldi.
Haukar sigruðu í fyrstu tveim-
ur viðureignunum en Sljarnan
jafnaði metin og því þurfti odda-
leik til að knýja fram úrslit. And-
rúmsloftið var rafmagnað í troð-
fullu íþróttahúsinu i gærkvöldi
enda miklar sviptingar í 80 mínút-
ur. Útlitið var ekki bjart hjá
Haukum undir lok venjulegs leik-
tíma og í fyrri framlengingunni.
Harpa Melsteð og Ragnheiður
Guðmundsdóttir, fyrirliði Hauka,
voru því að vonum kátar þegar
sigurinn var í höfn.
■ Stálum ekki/Cl
Rafiðnaðarmenn semja við Rafmagnsveitur ríkisins öðru sinni
V erkfalli aflýst
VINNUVEITENDASAMBANDIÐ,
fyrir hönd Rafmagnsveitna ríkisins,
og rafiðnaðarmenn hjá RARIK
náðu í gærkvöldi samkomulagi um
kjarasamning öðru sinni, en fyrri
samningur var felldur í atkvæða-
greiðslu. Verkfalli rafiðnaðarmanna
hjá RARIK, sem hefur staðið í
nokkra daga, hefur verið aflýst.
Að sögn Þórarins V. Þórarinsson-
ar, framkvæmdastjóra VSÍ, voru
einkum gerðar breytingar á þremur
atriðum frá fyrri samningi.
í fyrsta lagi er gengið með nýjum
hætti frá færslu ferða- og fata-
skiptagjalds inn í dagvinnukaup, en
það hafði valdið óánægju hjá rafiðn-
aðarmönnum hjá RARIK að fyrir-
tækið hefur greitt þessi gjöld út
með öðrum hætti en aðrir. I öðru
lagi er gerð breyting á færslu bón-
usgreiðslna inn í taxtakaup.
Lengri gildistími
í þriðja lagi var gildistími samn-
ingsins lengdur fram í september
árið 2000 og áfangahækkun 1. jan-
úar árið 2000 ákveðin. Auk þess
hækka laun um 4,7% nú þegar, 4%
um næstu áramót og 3,5% 1. jan-
Samið við starfs-
menn Aburðar-
verksmiðjunnar
úar 1999, eða álíka og í öðrum
samningum.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
sagðist mjög sáttur við samninginn.
Það hefði verið markmið RSI að
vera ekki með lausa samninga á
sama tíma og Verkamannasam-
bandið og lausn hefði náðst á þeim
vandamálum varðandi færslu
greiðslna inn í dagvinnukaup, sem
menn hefðu séð í fyrri samningnum.
Atkvæðagreiðsla í
Aburðarverksmiðj u
Kjarasamningur tókst í gær milli
Vinnuveitendasambandsins __ og
stéttarfélaga starfsmanna Áburð-
arverksmiðjunnar í Gufunesi.
Samningurinn er svipaður öðrum
kjarasamningum, sem gerðir hafa
verið að undanförnu, og gildir fram
í febrúar árið 2000.
Áfangahækkanir samkvæmt
samningnum eru þær sömu og í
samningum, sem gerðir hafa verið
að undanförnu, eða 4,7% nú þegar,
4% um næstu áramót og 3,65% um
þarnæstu. Að sögn Þórarins V.
Þórarinssonar, framkvæmdastjóra
VSÍ, er auk þess tilfærsla á milli
launaflokka í neðstu flokkunum,
þar sem tekið er mið af því, sem
gerzt hefur annars staðar.
Sameiginleg atkvæðagreiðsla
starfsmanna verksmiðjunnar verð-
ur um samninginn og verða úrslit
tilkynnt 22. apríl.
Samið við hárskerasveina
Samningaviðræðum VSÍ og flug-
freyja var hætt í húsnæði ríkissátta-
semjara í gær og nýr fundur ekki
boðaður fyrr en á mánudag í næstu
viku. Starfsmenn íslenzka álfélags-
ins sátu enn á samningafundi í
gærkvöldi en ekki hafði náðst árang-
ur í viðræðum.
í gærkvöldi tókust hins vegar
samningar milli Félags hárgreiðslu-
og hárskerasveina og Meistarafélags
hárskera. Samningurinn er sam-
bærilegur við samninga, sem gerðir
hafa verið við önnur iðnsveinafélög.
Morgunblaðið/Þorkell
STEFÁN Karlsson tekur við handritunum úr hendi
Nikulásar Halldórssonar.
Afhendingn hand-
ritanna að ljúka
Sting heldur
tónleika á íslandi
SÍÐUSTU handritin úr Konungs-
bókhlöðu í Kaupmannahöfn komu
til landsins með Brúarfossi Eim-
skipafélagsins í gær. Nikulás
’=s**Halldórsson, skipstjóri, afhenti
Stefáni Karlssyni, forstöðumanni
Stofnunar Árna Magnússonar,
tuttugu böggla sem innihéldu
handrit allt frá öndverðri fjór-
tándu öld, þar á meðal eiginhand-
arrit Bjarna Thorarensen og Jón-
asar Hallgrímssonar af ljóðum
sínum.
Síðustu handritin úr Árnastofn-
un í Kaupmannahöfn koma til
landsins 19. júní í sumar en í til-
efni af því verður efnt til málþings
um handritin í Reykjavík.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Stefán Karlsson að þessi afhending
Dana á handritunum væri af þeirra
hálfu stórkostlegur hlutur sem
varla nokkur önnur þjóð hefði gert
með sama hætti og þeir hafa gert.
„Og það þótt þeir hafi ekki látið
okkur hafa allt.“
■ Síðustu handritin/24
BRESKI tónlistarmaðurinn
Sting er væntanlegur hingað til
lands til tónleikahalds í sumar.
Sting Ieikur hér með hljómsveit
sinni 25. júní í sumar í Laugar-
dalshöll, en hann hyggst nota
tímann hér meðal annars til að
bregða sér á hestbak.
Sting er einn þekktasti popp-
tónlistarmaður heims og hefur
einnig getið sér orð fyrir kvik-
myndaleik. Hann hóf tónlistar-
feril sinn með hljómsveitinni
Police sem hann stjórnaði og
gerði að einni vinsælustu popp
hljómsveit heims. Eftir að Sting
hóf að koma fram einn hefur
hann sent frá sér fjölda hljóm-
platna sem náð hafa mikilli hylli.
Að sögn Ingvars Þórðarsonar,
eins aðstandendatónleikanna,
kemur Sting hingað með 26
manna fylgdarlið og 40 tonn af
tækjum og tólum fyrir tónleik-
ana.
Hann segir að Sting dveljist
hér aðeins í tvo daga, en hann
hafi óskað sérstaklega eftir því
að fá að komast á hestbak, enda
sé hann mikill hestamaður, eigi
meðal annars íslenskan hest. Var
mynd af hestinum á umslagi
þarsíðustu plötu Stings.
Ingvar Þórðarson segir að
miðasölu verði líkt háttað og
fyrir tónleika Davids Bowies á
BRESKI tónlistarmaður-
inn Sting.
síðasta ári og hefjist miðasala í
hraðbönkum Islandsbanka 5.
maí næstkomandi.