Morgunblaðið - 23.04.1997, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Níu verkalýðsfélög und-
irrita kjarasamninga
FULLTRÚAR vinnuveitenda og sjö
verkalýðsfélaga innan Verkamanna-
sambandsins, sem felldu kjarasamn-
ingana sem gerðir voru 24. mars sl.,
undirrituðu nýjan samning kl. 14 í
gær í húsnæði ríkissáttasemjara. Þá
undirrituðu tvö félög á Vestfjörðum,
verkalýðs- og sjómannafélögin í Bol-
ungarvík og á Tálknafírði, sambæri-
lega kjarasamninga við viðsemjendur
sína síðdegis. Fimm VMSÍ-félög eiga
enn ósamið en þeim stendur til boða
að ganga inn í þann samning sem
undirritaður var í gær fyrir hádegi
næstkomandi mánudag.
Nýtt launaþrep vegna
tíu ára starfsaldurs
Með samkomuiaginu sem náðist í
gær eru gerðar breytingar á starfs-
aldurskerfi fiskvinnslufólks frá þeim
samningi sem felldur hafði verið.
Tekið er upp launaþrep fyrir sérhæft
fískvinnslufólk eftir 10 ára starf í
sama fyrirtæki, sem verður 69.450
kr. Jafnframt lækkar sjö ára launa-
þrepið og verður 68.378 kr., en það
verður ekki bundið starfi hjá sama
fýrirtæki. Einnig var samið um að
ákvæði kjarasamninga um 70 þúsund
kr. lágmarkstekjur gildi hlutfallslega
fyrir starfsfólk í 50% föstu starfí.
Að öðru leyti gildir kjarasamningur-
inn frá 24. mars. Samningurinn verð-
ur borinn undir atkvæði í félögunum
á næstu dögum en hann skoðast sam-
þykktur hafí gagnaðila ekki verið til-
kynnt um höfnun hans fyrir hádegi
28. apríl. Félögin sem stóðu að samn-
ingnum í gær eru verkalýðsfélögin á
Akranesi, Eyrarbakka, Húsavík,
Grundarfirði, Siglufirði, Selfossi og
Stokkseyri.
Björn Grétar Sveinsson, formaður
VMSÍ, sagði að þau verkalýðsfélög
sem ekki stóðu að samningsgerðinni
í gær hefðu talið sig þurfa meiri
umþóttunartíma. Hann sagði það
skoðun samningafulltrúa að tekist
hefði að ná fram atriðum sem hafi
ráðið mestu um að fyrri samningar
voru felldir. Aðalsteinn Baldursson,
formaður fiskvinnsludeildar VMSÍ,
tók í sama streng og kvaðst gera
ráð fyrir að samningarnir sem gerð-
ir voru í gær yrðu samþykktir í félög-
unum. Taldi hann einnig líklegt að
önnur VMSÍ-félög myndu ganga að
þessum samningi.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, telur líklegt að
önnur VMSÍ-félög muni ganga að
þessum samningi á næstu dögum.
„Við erum að koma til móts við þá
gagnrýni sem kom fram um að
starfsfólk með hæstan starfsaldur í
Hafís 20 sjó-
mílur norð-
ur af Kögri
ÞEGAR flugvél Landhelgisgæsl-
unnar, TF-SYN, fór í eftirlits- og
ískönnunarflug á miðunum úti fyr-
ir Vestfjörðum og Norðurlandi í
gær var ísjaðarinn næstur landi
20 sjómílur norður af Kögri, 28
sjómílur norðaustur af Horni og
31 sjómílu norðvestur af Rit.
Á meðfylgjandi korti má sjá
hvar ísinn liggur en ísdreifar lágu
allt að átta sjómílur út frá meginís-
röndinni. Einnig sást stakur jaki í
mynni Skagafjarðar, um hálfa
sjómílu norður af Drangey.
Morgunblaðið/Golli
FORYSTUMENN Verkamannasambandsins og samtaka
vinnuveitenda undirrita nýjan kjarasamning í gær.
fískvinnslu náði ekki í öllum tilfellum
4,7% hækkun,“ segir hann.
Viðræður við Iðju í dag
Þórarinn gerir ráð fyrir að viðræð-
ur hefjist í dag við forystumenn Iðju,
félag verksmiðjufólks, þar sem reynt
verði að meta hvað sé til ráða í samn-
ingum þess félags en félagsmenn
Iðju hafa tvívegis fellt gerða samn-
inga.
Ekki hefur verið boðað til nýs
sáttafundar í deilu Alþýðusambands
Vestfjarða og vinnuveitenda en þar
hefur verkfall nú staðið í tvo sólar-
hringa.
FJÁRFESTAR á fundi með fulltrúum Norðuráls í gær.
A
Ahugi á að fjár-
festa í álveri
FORSVARSMENN Columbia
Ventures Corporation sátu í gær
fund með fulltrúum íslenskra fjár-
festa, einkum lífeyrissjóða, þar sem
rædd var möguleg þátttaka í fjár-
mögnun álvers Norðuráls á Grund-
artanga.
„Menn sýndu þessu áhuga, en
það er of snemmt að segja til um
hvort áhuginn leiðir til einhvers,"
sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson,
forstjóri Landsbréfa.
Landsbréf kanna nú möguleika
á að íslenskir fjárfestar sameinist
um að kaupa einn flokk skulda-
bréfa í álverinu. Um væri að ræða
8% af heildarfjármögnun verksins,
eða liðlega 1 milljarð króna.
Bankastj órar ríkisviðskiptabankanna
Ferðakostnaður
26 milljónir
FERÐAKOSTNAÐUR bankastjóra
og aðstoðarbankastjóra ríkisbank-
anna nam á árunum 1994-96 78,5
milljónum króna, eða um rúmum
26 milljónum króna á ári að meðal-
tali, og er þá ekki talinn risnukostn-
aður og símtöl.
Kostnaður Landsbankans var þar
af rúmar 12 milljónir króna á ári
að meðaltali, Búnaðarbankans 5,5
milljónir og Seðlabankans 8,5 millj-
ónir króna. Ferðakostnaður Seðla-
bankans hækkaði milli áranna 1995
og 1996 um 28%. Þetta kemur fram
í svari viðskiptaráðherra á Alþingi
við fyrirspum Jóhönnu Sigurðar-
dóttur alþingismanns.
Fargjald og gisting eru að fullu
greidd fyrir maka bankastjóra
Landsbankans og þeir fá að auki
50% dagpeninga ráðherra. Hjá
Seðlabankanum er heimilt að greiða
tvisvar sinnum á ári fargjald og
gistingu fyrir maka, auk dagpen-
inga sem svara til helmings af dag-
peningum bankastjóra. Leyfílegt er
að gera undantekningu frá þessari
reglu og greiða fargjald og gistingu
oftar fýrir maka, en ekki dagpen-
inga. Búnaðarbankinn greiðir ekki
ferðakostnað fyrir maka banka-
stjóra.
2-3 milljónir
fyrir nefndasetu
Bankastjórar ríkisviðskiptabank-
anna geta haft 2-3 milljónir króna
í laun fyrir setu í stjórnum og nefnd-
um á vegum bankanna og er það
til viðbótar við rúmlega sex milljóna
króna laun þeirra sem bankastjóra.
Bankastjóramir hafa til umráða
bifreiðir sem bankarnir eiga og
reka. Hæstu lífeyrisgreiðslur til
áári
bankastjóra í Landsbanka og Bún-
aðarbanka námu á síðastliðnu ári
um 5,4 milljónum króna en hjá
Seðlabanka 6,1 milljón króna.
Þess má geta að tveir minnihlut-
ar efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis lögðu fram breytingartil-
lögur við stjórnarfmmvarp um
breytingu Landsbankans og Búnað-
arbankans í hlutafélög þess efnis
að aðeins einn bankastjóri skyldi
vera við hvorn þeirra. Tillögurnar
voru felldar á Alþingi í gær.
I svari viðskiptaráðherra við fyr-
irspumum Jóhönnu segir ennfrem-
ur að aðild Seðlabankans að stjóm-
um Verðbréfaþings íslands og Fisk-
veiðisjóðs orki tvímælis, þar sem
bankaeftirlitið sem fylgist með
þessum stofnunum lýtur yfírstjóm
bankastjómar og bankaráðs Seðla-
bankans.
©[LMDD©
MEÐ blaðinu í dag fylgir
fjögurra síðna auglýsinga-
blað frá BYKO.
Verkfallið á Vestfjörðum
Komið í veg
fyrir löndun
VERKFALLSVERÐIR Verkalýðs-
félagsins Baldurs á ísafirði komu í
gær í veg fyrir að iandað yrði úr
Skógafossi, skipi Eimskipafélagsins.
Umboðsmaður Eimskips á ísafirði
ætlaði sjálfur að stýra gámalyftara
og losa gáma af þilfari skipsins en
verkfallsverðir mættu á 8 einkabíl-
um og króuðu lyftarann af á hafnar-
bakkanum.
Um tíma stóð í stappi milli manna
á staðnum og vildu hvorugir láta
sinn hlut en að sögn Karitasar Páls-
dóttur, starfsmanns Verkalýðsfé-
lagsins Baldurs, leystist málið fyrir
milligöngu Sjómannafélags Reykja-
víkur sem kom beiðni til skipveija
um borð um að ekki yrði gengið í
störf verkfallsmanna.
Skömmu síðar fór Skógafoss frá
Isafírði án þess að losa eða taka þar
gáma.
Að sögn Karitasar Pálsdóttur var
einnig gerð tilraun til verkfallsbrots
á Þingeyri í gær þegar reyna átti
að landa 10-11 tonnum af iðnaðar-
rækju úr Framnesinu. Hætt var við
það og er rækjan í frosti um borð.
Morgunblaðið/Kári Þór
GÁMALYFTARANUM var ekið þétt að bíl
eins verkfallsvarðarins á Isafirði.