Morgunblaðið - 23.04.1997, Page 48

Morgunblaðið - 23.04.1997, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Snjólaug Þor- steinsdóttir fæddist í _ Hellu- gerði á Arskógs- strönd, Eyjafirði, 20. október 1910. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 15. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru: Þor- steinn Þorvaldsson, f. á Krossum, Ár- skógsströnd, Eyja- firði, 28. 8. 1880, d. í Reykjavík 19.7. 1964, og kona hans Anna Vigfúsína Þorvaldsdóttir frá Hellu, Árskógsströnd, Eyja- firði, f. 11.7. 1885, d. 12.6. 1948 í Reykjavík. Snjólaug var önnur af níu börnum þeirra hjóna, sem voru: Soffía, f. 18.8. 1909, Siyolaug, f. 20.10. 1910, Soffía, f. 9.7. 1912, Vilhjálmur, f. 2.7. 1914, Sigurþór, f. 11.6. 1916, Garðar „Freygarður", f. 16.8. 1918, Gunnlaugur, f. 20.2. 1920, Þórgunnur, f. 19.1. 1923 og Pálína Freygerður, f. 12.4. 1927. Af systkinunum lifa nú Hún Snjólaug fékk ósk sína upp- fyllta. Hve oft hafði hún ekki beðið þess að fá „bara að sofna“ þegar hún færi héðan. Að kvöldi þriðjudagsins, 15. þ.m., er hún hafði legið í hálfan mánuð á Sjúkrahúsi Reykjavíkur eftir hjartaáfall en var óðum að hress- ast, lagðist hún til svefns og sofn- aði svefninum langa. Nú ríkir söknuður í Skálaheið- inni, þar er tómlegt. Sterk og afger- andi persóna er gengin. Minningarnar hrannast upp. Allt frá því er sjö ára telpuhnokki kom fyrst með skólasystur sinni úr Aust- urbæjarskólanum á heimili Snjó- laugar og Júlíusar við Grettisgöt- una. Telpuhnokkinn varð þar heimagangur því telpurnar urðu vinkonur og hafa verið alla tíð síð- an. Snjólaug varð telpuhnokkanum sem önnur móðir. Rúmum áratug síðar, þegar telpuhnokkinn hafði vaxið og þroskast og gekk í hjóna- band með einkasyninum á heimil- inu, varð Snjólaug alvöru móðir hennar, þ.e.a.s. tengdamóðir. Minningarnar eru margar. Á þessum árum voru Snjólaug og vin- konur hennar í saumaklúbb, eins og gengur. Ekki leið á löngu þar til vinkonurnar ungu voru komnar í saumaklúbbinn. „Saumaklúbbur- inn sívinnandi" kom saman um ára- bil og höfðu allar gaman af. Ekki var algengt að í saumaklúbbi væru saman ungar konur, ekki tvítugar, og mæður þeirra á fimmtugsaldri. Alla tíð fór klúbburinn í ferðalög um landið þvert og endilangt. Einkasonurinn átti að setja saman texta við eitthvert vinsælt dægurlag þess tíma og svo var sungið og sungið. Mikil breyting varð hjá Snjólaugu og Júlíusi árið 1971, þegar flutt var í Skálaheiðina í Kópavogi. Þau hjón bjuggu þar með tveim börnum sín- um, tengdabömum og barnaböm- um. Skálaheiðin varð sannkallað fjölskylduhús. Eftir að Júlíus lést árið 1983 bjó Snjólaug ein í íbúð sinni í Skálaheiðinni. Seint verður þökkuð sú sérstaða sem barnabörnin í Skálaheiðinni nutu. Að alast upp, fyrst með afa sínum og ömmu og síðan ömmu sinni, allt þar til að hún lést, vom ómetanleg forréttindi, en þá hafði enn eitt barnið, þ.e.a.s. bamabarna- barn, notið umhyggju langömmu í Skálaheiðinni um nokkurra ára bil, en annað barnabarnabam átti hún er býr í Svíþjóð og síðasta utanför Snjólaugar ömmu var til Stokk- hólms á liðnu ári að heimsækja Snjólaugu nöfnu sína, sem þar er læknir, og fjölskyldu hennar. Snjólaug kunni vel við sig í Kópa- Soffía, Sigurþór og Pálína. Snjólaug giftist árið 1934 Júlíusi Einarssyni, kennara og verkamanni, f. 12. júlí 1900, d. 17. júní 1983. Börn þeirra eru: 1) Þor- steinn, hrl., f. 1.1. 1934, kvæntur Est- her Ólafsdóttur, f. 20.7. 1935. Barn þeirra Þorsteinn Freyr, f. 29.12. 1971. 2) Guðríður, deildarsljóri á Skattstofunni í Reykjavík, f. 3.9. 1935, gift Herði Jónssyni, f. 11.10. 1929. Barn þeirra Est- er, f. 18.9. 1965. 3) Anna Svan- borg, skrifstofumaður á Skatt- stofunni í Reykjavík, f. 26.10. 1944, gift Erni Sveinssyni, f. 25.10. 1941. Börn þeirra: Snjó- laug, f. 22.12. 1963 og Siguijón Örn, f. 6.10. 1978. Útför Snjólaugar verður gerð frá Digraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.00. voginum og vildi hvergi annars staðar vera. Fyrir utan ánægjuna sem hún hafði af garðinum í Skála- heiðinni, tijánum og blómunum, þá tók hún virkan þátt í félagsstarfi aldraðra í Kópavogi. Þar stóð henni til boða að sækja alls kyns nám- skeið. Hún mótaði úr leir, skar út í tré, málaði glerverk og dúka, óf myndir og ýmislegt fleira. Svo tóku ferðalögin við. Með eldri borgurum ferðaðist hún víða bæði innanlands og utan. Síðari ár tók söngurinn hug hennar. Hún æfði söng með kór eldri borgara í Kópavogi og hafði afskaplega gaman af. Síðasta minningin um Snjólaugu í Skálaheiðinni er þegar hún stóð ferðbúin í dyrunum að morgni 3. apríl, á leið í dagdvöl í Sunnuhlíð. Leit til himins, dró djúpt andann og sagði: „Nú er hann loks að byrja að vora, hvað ég hlakka til að taka til hendinni í garðinum". Trúlega er tengdamóðir mín elskuleg nú að hlúa að blómum í öðrum garði í öðru toií. Esther Ólafsdóttir. í dag kveðjum við hana ömmu. Hún hefur alltaf verið stór hluti af lífi okkar, gætti okkar þegar við vorum lítil, og tók á móti okkur þegar við komum heim úr skólan- um. Hjá henni áttum við ætið traust og öruggt skjól. Það verður tómlegt í Skálaheið- inni án hennar ömmu. Sérstaklega fyrir okkur sem nutum þeirra for- réttinda að búa í sama húsi og hún. Það verður enginn sem tekur á móti okkur, með heitu kakói og nýbökuðum kökum, þegar við kom- um heim. Við komum einnig til með að sakna helganna, þegar öll fjöl- skyldan hittist og drakk kaffi við eldhúsborðið hjá ömmu. Hún vildi alltaf allt fyrir okkur gera og hvatti okkur til þess að njóta lífsins, því æskan væri tíminn til þess að gera hlutina og reyna eitthvað nýtt. Við eigum svo margar góðar minningar um hana ömmu, við vitum að við munum búa að ást hennar og um- hyggju alla ævi og hún mun alltaf eiga hluta af hjarta okkar. Ommu prýddu margir kostir. Hún var víðlesin og fróð og hafði sérstakt yndi af ljóðum, sem hún reyndi að kenna okkur, enda hafði hún á hraðbergi mörg af öndvegis- ljóðum þjóðskáldanna. Sérstaklega var gaman að vera með ömmu á ferðalagi. Hún þekkti örnefni víðs- vegar um landið og kunni ótal sög- ur um fólk og staðhætti. Amma var listfeng og lék henni allt í höndum, enda prýða ótal listmunir, gerðir af henni, heimili hennar, barna og bamabarna. Amma unni öllum gróðri. Enda má segja að garðurinn í Skálaheið- inni hafi verið hennar. Það verða því mikil viðbrigði að koma í Skála- heiðina á heitum sumardegi, án þess að sjá ömmu í garðinum, en við trúum því að nú hafi hún annan garð að hugsa um, þar sem gróður- inn nýtur hennar grænu handa. Elsku amma, þín er sárt saknað. Snjólaug Arnardóttir, Ester Harðardóttir, Þorsteinn Freyr Þorsteinsson og Sigurjón Örn Amarson. Kæra frænka mín. Nú var skammt stórra högga á milli. Við dánarbeð föður okkar fengum við systkinin fregnir af veikindum Snjó- laugar, móðursystur okkar. Ekki varð nema rúmlega vikan á milli þeirra vinanna, og strax á eftir föð- ur okkar megum við því kveðja þá konu sem næst hefur gengið móður okkar. Snjólaug ólst upp í Hellu- gerði á Árskógsströnd, elst í stórum systkinahópi. Þegar hún var nokkuð vaxin úr grasi fluttust foreldrar hennar suður á land með barnahóp- inn, fyrst að Fossi í Grímsnesi og svo að Gíslastöðum í sömu sveit. Hún giftist Júlíusi Einarssyni og- eignaðist með honum þijú börn, sem löngum voru í sveit hjá afa og ömmu. Þannig varð frá fyrstu tíð náið samband milli elstu barna hennar og móður minnar sem er lang yngst systkina hennar. Fjöl- skyldur okkar hafa fylgst að alla tíð í gleði og sorgum. Ekki aðeins sem ættingjar heldur einnig sem nánir vinir. Snjólaug vann lengi í Þjóðleikhúskjallaranum og á Hótel Borg við framreiðslu og þjónustu. Einnig vann hún hjá Sjóvá-Álmenn- um, á kaffistofunni. Eftir að Snjó- laug og Júlíus settust að í Kópavog- inum tók hún virkan þátt í safnaðar- starfi kirkjunnar og félagsstarfí eldri borgara. Jafnframt lagði hún rækt við handlistir ýmiss konar. Snjólaug var víðlesin og fróð, sjálf- menntuð kona eins og best gerist meðal alþýðufólks á Islandi. Hún var ljóðelsk og hagmælt, þótt ekki flíkaði hún því mjög. Hún var frændrækin svo af bar, vinaföst og traust. Þú varst mér alla tíð sem önnur móðir, Snjólaug mín - eða kannski það sem næst gat gengið ömmu, barni sem aldrei hafði þekkt neina. Frá því ég mar eftir mér fyrst varst þú höfuð ættarinnar, virðuleg, ákveðin í skoðunum, rökföst og greind. En engu síður tilbúin að henda gaman að sjálfri þér á fjöl- skyldusamkomum þar sem þið systkinin skutuð spaugsyrðum hvert að öðru. Sjálfsagður gestur í Kaldárhöfða við hvaða tækifæri sem var, komst þú í bernsku minni með rútunni, eða akandi með ein- hveijum okkar fjölmörgu ættingja. Sjálfsagður samastaður Kaldár- höfðafjölskyldunnar í kaupstaðar- ferðum var einnig Klapparstígur- inn, og mörg „orlofsdvölin" mín í nokkra daga í senn hjá ykkur Júl- íusi. Þegar ég fór að heiman til framhaldsnáms átti ég áfram skjól hjá ykkur og vísa handleiðslu. Hlut- verkin breyttust nokkuð með vax- andi aldri, en alltaf átti ég sama athvarfið hjá þér. Og þegar ég eign- aðist barn var sjálfsagt að þú vær- ir kölluð amma, ekki síður en móð- ir mín. Þegar aldurinn sótti að áttir þú annríkt í kórstarfi, dansi og ann- arri dægradvöl, allt þar til heilsan tók fyrir alvöru að gefa sig fyrir ári. Alltaf jafn virðuleg, ákveðin og föst fyrir, alltaf jafn gamansöm og tilbúin að taka þátt í einhveiju sprelli, alltaf jafn upptekin af þekk- ingu og hugarstarfi. Eitt það síðasta sem þú sagðir mér var að þig langaði svo austur og vera við jarðarför pabba. En þá sagðirðu mér iíka frá staðnum sem þú skrappst til og skoðaðir. Skrítinn þótti þér hann, en hélst hann ætti bara eftir að verða viðkunnanlegur. En þið hjálpist ef til vill að á nýja staðnum, að finna ykkur heima. Fyrir hönd okkar systkinanna frá Kaldárhöfða kveð ég þig frænka mín. Guð geymi þig. Frændfólki okkar, Þorsteini, Guðríði og Önnu Svanborgu, mökum ykkar, börnum og barnabörnum sendum við sam- úðarkveðjur. Anna Soffía Óskarsdóttir. Elsku besta amma. Ég minnist allra stundanna sem við áttum sam- an í Skálaheiðinni, þegar þú kennd- ir mér að spila og sauma. Ég þakka þér fyrir öll ferðalögin, sem við fór- um saman, sögurnar og söngvana sem þú söngst með mér og kenndir mér og allt sem við áttum saman í sumarbústaðnum. Það verður tóm- legt að líta inn í herbergið þitt í sumarbústaðnum „besta“ amma og geta ekki boðið þér góðan dag og fengið sætt í munninn. Ég sakna þín, amma, en ég veit að þér líður vel uppi á himnum með Júlíusi afa og Skottu. Ég fel í forsjá þína guð faðir sálu mína því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll bömin þín svo blundi rótt. (S. Egilsson.) Erna Björg. Ástkær eiginmaður minn, + VIGNIR FRIÐÞJÓFSSON, Víðilundi 18, Akureyri, lést að morgni 21. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Jónína E. Þorsteinsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GUÐMUNDA LAUFEY HARALDSDÓTTIR frá Hellissandi, Kirkjuvegi 9, Hafnarfirði, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt föstudagsins 18. apríl, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 26. apríl kl. 15.00. Jóhann Long Ingibergsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Elskuleg konan mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MAGNEA DAGMAR GUNNLAUGSDÓTTIR, Tunguvegi 34, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 16. apríl, verður jarð- sunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 25. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Krabbameinsfélagið. Henning Karl Backman, Guðrún Ólafsdóttir Regan, James Regan, Vilhelmína S. Ólafsdóttir, Kristinn Daníelsson, Eyjólfur Ólafsson, Guðný J. Karlsdóttir, Ólafur V. Ólafsson, Yvonne Ólafsson, barnabörn, barnabarnabam og aðrir vandamenn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför RAGNHEIÐAR HAFSTEIN. Jóhann J. Hafstein, Elísabet Ó. Hafstein, Pétur Kr. Hafstein, Inga Ásta Hafstein og barnabörn. + Alúðarþakkir tii allra er sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VILHJÁLMS KRISTJÁNS HALLDÓRSSONAR Brekku, Garði. Sérstakar þakkir tils tarfsfólks á Garðvangi í Garði fyrir mjög góða umönnun og hlýhug. Steinunn Sigurðardóttir, Kristján Vilhjálmsson, Sigurður Vilhjálmsson, Kristjana Vilhjálmsdóttir, Halldór Vilhjálmsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Stefanía Vilhjálmsdóttir, Vigdís Böðvarsdóttir, Svala Svavarsdóttir, Ágúst Pálmason, Gunnhildur Ásgeirsdóttir, Guðmundur Sveinbjörnsson, Kristinn Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. SNJOLA UG ÞORSTEINSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.