Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Aðlögun
Everestfar-
anna að ljúka
BJÖRN Ólafsson dvaldi í fyrrinótt
í fjórðu búðum í fyrsta skiptiðj
en þær eru í 7.400 metra hæð. I
gær gekk hann í átt að Suður-
skarði þar sem fimmtu búðir
verða, en þaðan verður gert
áhlaup á tindinn í næsta mánuði.
Félagar Bjöms, Einar K. Stef-
ánsson og Hallgrímur Magnús-
son, hafa verið kvefaðir undan-
farna daga og því ekki í formi til
að klífa erfið fjöll. Hallgrímur er
orðinn nokkuð góður og ætlar í
dag að klífa upp í þriðju búðir og
síðan áfram upp í fjórðu búðir.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að hann væri orðinn
leiður á að bíða og vildi endilega
komast af stað aftur. Heilsan
væri orðin ágæt og ekki eftir
neinu að bíða. Það hefði að vísu
snjóað talsvert og það gæti tafið
sig eitthvað.
Einar er mjög kvefaður og þarf
lengri tíma til að jafna sig. Hugs-
anlegt er að hann fari niður í
Dingboche, sem er í um 4.300
metra hæð, til að hvíla sig.
Erfið ganga í fjórðu búðir
Gangan úr þriðju búðum í
íjórðu búðir er nokkuð erfíð, að
sögn Björns, enda er hæðarmun-
urinn um 1.000 metrar. Hann
sagðist hafa verið á göngu í 8-9
klukkutíma og hefði verið orðinn
þreyttur þegar henni lauk. Sem
dæmi um hvað menn eru að leggja
á sig má nefna að félagi Björns,
Chris Brown, var liðlega 50 metr-
um á eftir Birni þegar hann kom
upp í fjórðu búðir, en hann var
samt einum klukkutíma lengur á
göngunni.
Hörður Magnússon, aðstoðar-
maður þremenninganna, sagðist
efast um að Björn færi alla leið
upp í fimmtu búðir í þessum
áfanga. Það færi eftir veðri og
heilsu. Það skipti ekki öllu máli
hvað hann færi langt að sinni.
Aðlögunin yrði svipuð. Hörður
sagði að þegar Björn og Hallgrím-
ur hefðu lokið þessum áfanga
myndu þeir hvíla sig í nokkra
daga og síðan gerðu þeir atlögu
að sjálfum tindinum. Einar hefði
einnig lokið aðlögun, en aðalatriði
fyrir hann væri að ná heilsu á ný.
Fjallgöngumennirnir eru í sam-
bandi við Island á hverjum degi.
Greinilegt er að þeir hafa fengið
fréttir af atriði spaugstofumanna,
en þeir gerðu sl. laugardag grín
að stöðugu „búðarápi“ þeirra fé-
laga. í pistli félaganna á heima-
síðu sinni segja þeir að Björn
ætli að dvelja nokkra daga í fjórðu
búðum og bæta við: „Enda þykir
verðlagið þar mjög gott.“
Margir hafa lýst áhuga á að
heyra um þann mikla tækjabúnað
sem gerir þeim félögum kleift að
vera í síma- og tölvusambandi við
umheiminn. Hörður sendi í gær
ítarlegan pistil um þessi tæknimál
inn á heimasíðu Everestfaranna.
Sjá Everestsíðu Morgunblaðs-
ins:
http://www.mbl.is/everest/
ÞAÐ þarf að sýna mikla aðgæslu þegar jöklafararnir fara
yfir sprungur Khumbu skriðjökulsins.
Qlíklegt að ísland nái að fullgilda efnavopnasamninginn fyrír gildistöku hans í næstu víku
Efnaiðnaðurmn vissi
ekki af samningnum
ÍSLENZKAR efnaverksmiðjur og
önnur fyrirtæki, sem nota kemísk
efni við framleiðslu sína, vissu ekki
fyrr en nýlega af alþjóðlegum
samningi um bann við framleiðslu,
geymslu og notkun efnavopna, sem
Island undirritaði fyrir rúmum fjór-
um árum. ísland hefur ekki fullgilt
samninginn og getur það orðið til
þess að hömlur verði lagðar á sölu
vissra kemískra efna frá aðildarríkj-
um samningsins til íslenzkra fyrir-
tækja í efnaiðnaði. Samningurinn
tekur gildi eftir tæpa viku og er
ósennilegt að Alþingi geti afgreitt
fullgildingu hans á þeim tíma. Hins
vegar á að reyna að staðfesta samn-
inginn fyrir þinglok í vor.
Island undirritaði efnavopna-
samninginn í janúar árið 1993.
Málið hefur verið til meðferðar í
utanríkisráðuneytinu um tveggja
ára skeið, en er enn ekki tilbúið
fyrir þinglega meðferð af hálfu
ráðuneytisins.
Á þeim fjórum árum, sem liðin
eru frá því að ísland undirritaði
samninginn, hefur ekki verið haft
samband við íslenzkar efnaverk-
smiðjur vegna ákvæða hans af hálfu
utanríkisráðuneytisins. Samkvæmt
samningnum geta ríki, sem ekki
hafa staðfest efnavopnasáttmálann,
orðið fyrir því að aðildarríki hans
leggi hömlur á viðskipti með kemísk
efni, sem notuð eru við framleiðslu
efnavopna en eru mörg hver jafn-
framt nýtt í venjulegum efnaiðnaði.
í öðrum ríkjum, til dæmis Bandaríkj-
unum, hefur efnaiðnaðurinn hvatt
til staðfestingar sáttmálans.
Sementsverksmiðjan birgir sig
upp af hraðsementsvökva
Gylfi Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Sementsverksmiðjunnar, seg-
ir að utanríkisráðuneytið hafi aldrei
haft samband við fyrirtækið vegna
þessa máls. Eftir að Morgunblaðið
greindi frá því í síðasta mánuði að
ekki væri víst að Island myndi stað-
festa sáttmálann fyrir gildistöku
hans og að hugsanlegt væri að ís-
lenzkur efnaiðnaður yrði fyrir áhrif-
um þess vegna, hefði málið hins
vegar verið kannað. Erlendur selj-
andi hraðsementsvökva hefði þá
ráðlagt verksmiðjunni að birgja sig
upp af vökvanum til árs, þar sem
ekki hefðu fengizt skýr svör um
það hvenær staðfestingar íslands á
samningnum væri að vænta.
Helgi Magnússon, framkvæmda-
stjóri málningarverksmiðjunnar
Hörpu, segir að hann hafi ekki
kynnt sér hvaða áhrif gildistaka
samningins kunni að hafa á rekstur
hans fyrirtækis. Hann hafi engar
upplýsingar fengið um það frá opin-
berum aðilum og aðeins frétt af
málinu nýlega.
Efni á listanum notað
hjá Frigg
Sigurður Geirsson, fram-
kvæmdastjóri hjá sápugerðinni
Frigg, segir að utanríkisráðuneytið
hafi ekki haft samband við fyrir-
tæki hans vegna efnavopnasamn-
ingsins. „Ég veit ekki hvort skortur
er á sérfræðiþekkingu þar innan-
húss, en við eium hér með efna-
fræðinga, sem hafa skilning á þess-
um málum,“ segir hann.
Sigurður segir að a.m.k. eitt
þeirra efna, sem háð verða við-
skiptahömlum eftir gildistöku
samningsins, sé notað við fram-
leiðslu fyrirtækisins. Þar er um að
ræða efnið tríetanólamín. „Ef það
verður erfiðara að kaupa þetta efni
getur það valdið okkur vandræð-
um,“ segir Sigurður.
Aðalsteinn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Efnaverksmiðjunnar
Sjafnar, segist ekki hafa vitað af
þessu máli. „Það hefur ekki verið
leitað til okkar um álit og mér fínnst
það skrýtið, ef á að fara að hindra
að við getum keypt ákveðin kemísk
efni,“ segir hann. „Mér sýnist að
það vanti einhveijar meiri upplýs-
ingar frá því opinbera. Ef samning-
urinn getur haft áhrif á íslenzkan
efnaiðnað, finnst mér skrýtið ef
upplýsingar eru ekki sendar til
a.m.k. þeirra fyrirtækja, sem kenna
sig við efnaiðnað."
Eina EES-ríkið sem
ekki hefur staðfest
ísland er nú eina aðildarríki Evr-
ópska efnahagssvæðisins, sem ekki
hefur staðfest efnavopnasamning-
inn eftir að Lúxemborg skilaði inn
fullgildingarskjölum sínum í síðustu
viku.
Bandaríkin og Tyrkland eru einu
ríki Atlantshafsbandalagsins, auk
íslands, sem ekki hafa staðfest
samninginn. Bill Clinton, forseti
Bandaríkjanna, hefur lagt mjög að
bandaríska þinginu að greiða at-
kvæði um samninginn nú þegar og
sagði forsetinn í síðustu viku að
ella yrðu Bandaríkin „í hópi utan-
garðsríkjanna, sem er markmið
þessa sáttmála að einangra".
Innritun hafin í
sumarbúðirnar í
Vatnaskógi
Um 650
skráðir á
fyrsta degi
INNRITUN í sumarbúðir KFUM í
Vatnaskógi hefur farið mun hraðar
af stað nú en í fyrra. Segir Ársæll
Aðalbergsson, formaður Skógar-
manna, að um 650 hafi verið skráð-
ir sl. mánudag, fyrsta innritunardag-
inn, sem er nærri 20% meira en á
fyrsta degi í fyrra.
Alls verða 11 dvalarflokkar í
Vatnaskógi í sumar auk feðgahelgar
og karlaflokks seinast á sumrinu.
Búið var að fylla í nokkra flokka
eftir fyrstu tvo innritunardagana en
Ársæll sagði að aðsókn hefði að
þessu sinni dreifst mjög vel. I hvern
flokk eru skráð 95 börn og alls má
gera ráð fyrir að um 1.100 börn og
unglingar gisti sumarbúðirnar i sum-
ar. Nýtingin hefur verið kringum
94% og kveðst Ársæll gera ráð fyrir
að hún verði svipuð í ár. Verð hefur
hækkað svipað og vísitala og kostar
vikan kr. 15.400.
Hafnar eru framkvæmdir við
byggingu nýs svefnskála og segir
Ársæll stefnt að því að hann leysi
af Laufskála sumarið 1998 en þeir
eru farnir að láta á sjá.
------♦ ♦ ♦
Lagt hald á
54 kassa af
rauðvíni
KVÖRTUN barst til lögreglu
skömmu eftir hádegi í fyrradag
vegna stöðu sendibifreiðar á Frakka-
stíg fyrir ofan Laugaveg. Þegar
málin voru könnuð kom í ljós að
verið var að flytja muni á milli gáms
sem þar stóð og bifreiðarinnar.
Þetta reyndust vera vínkassar en
gámurinn innihélt að mestu leyti
húsgögn. Haft var samband við toll-
gæslu sem sendi menn á staðinn og
var lagt hald á 54 kassa af rauð-
víni, ætlað vera smygl.
Mistök við vörusendingu
í kjölfarið sendu Samskip frá sér
yfirlýsingu þar sem mistök sem áttu
sér stað við vörusendingu frá Spáni
til innflytjanda í Reykjavík eru
hörmuð. í gámnum frá Spáni voru
húsgögn fyrir tiltekinn innflytjanda,
en fyrir mistök ytra var settur í
sama gám einn pallur með áfengi,
sem Samskip áttu líka að flytja til
landsins fyrir annan innflytjanda.
„Þetta kom ekki fram á venjuleg-
um vinnuskjölum Samskipa og
starfsmönnum félagsins í Reykjavík
var því ekki kunnugt um að húsgögn
og áfengi væru í sama gámnum,"
segir í yfirlýsingunni.
Þegar innflytjandi gámsins fékk
hann í hendur lét hann Samskip
þegar í stað vita að í honum væri
einnig áfengi. Það voru því starfs-
menn á vegum Samskipa sem voru
að flytja áfengið úr gámnum yfir í
sendibílinn, þegar lögreglan kom á
vettvang.
------♦ ♦ ♦----
Blaðamenn
samþykktu
BLAÐAMENN á Morgunblaðinu og
DV samþykktu í gær í atkvæða-
greiðslu kjarasamning Blaða-
mannafélags íslands og Samtaka
iðnaðarins.
Á kjörskrá voru 128 og greiddi
41 atkvæði eða 32%. Já sögðu 39,
eða rúmlega 95% en 2 sögðu nei.
Gengið hefur verið frá hliðstæðum
samningum milli Blaðamannafélags-
ins og útgefenda Viðskiptablaðsins
og Helgarpóstsins. Kjaraviðræðum
er ekki lokið við útgefendur nokk-
urra blaða og tímarita, þar á meðal
Dags-Tímans og Iceland Review.