Morgunblaðið - 23.04.1997, Page 28

Morgunblaðið - 23.04.1997, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Hvað ef listín ógnar vináttunni? í kvöld verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Listaverkið eftir unga franska skáldkonu að nafni Yasmina Reza, en það hefur slegið í gegn víða í Evrópu síðastliðin ár. Þröstur Helgason fylgdist með æfíngu á verkinu, sem dregur upp fyndna en tregablandna mynd af vináttu þriggja karl- manna, sem þeir Hilmir Snær Guðnason, Baltasar Kormákur og Ingvar Sigurðsson leika. BALTASAR Kormákur, Hilmir Snær Guðnason og Ingvar Sigurðsson leika í Listaverkinu. HVAÐ er list? Hvað er vinátta? Skyldu þessir tveir hlutir koma hvor öðrum við á einhvern hátt? Er vin- átta kannski list? Hvað ef listin ógnar vináttunni? Á þá að láta list- ina víkja? Eða vináttuna? Þessar spurningar og fleiri eru til umfjöllunar í leikritinu Listaverk- ið eftir frönsku skáldkonuna Yasm- inu Reza, en það hefur farið sigur- för um Evrópu undanfarin ár eftir að það hlaut frönsku leikskálda- verðlaunin, sem kennd eru við Mol- iere, árið 1994. Leikritið segir frá þremur vinum sem þekkst hafa árum saman, húðsjúkdómalækni, flugvélaverkfræðingi og verslunar- manni, en vinátta þeirra hangir á bláþræði þegar einn þeirra kaupir rándýrt nútímamálverk. „Þetta verk fjallar um ástarsam- band þriggja karlmanna," segir Guð- jón Pedersen leikstjóri, „þeir voru allir í sama fótboltafélaginu en nú stefnir allt í að þeir slíti félagsskapn- um og fari hver í sitt félag. Og þeg- ar svo er komið getur ýmislegt gerst og ýmislegt er látið fjúka.“ Bjart, dimmt, mjúkt, hart, heitt, kalt í verkinu er löng saga sögð með því að greina ákveðið ástand. At- burðir verða í sjálfu sér fáir í verk- inu en ástandið er hins vegar rætt fram og til baka í samtölum persón- anna þriggja. Við fáum svo einnig að sjá inn í hug hverrar og einnar persónu þegar hún stígur fram á sviðið og segir okkur hvað henni þykir um ástandið, hvaða álit hún hefur á vinunum sínum tveimur. Stundum verður allmikill munur á því sem þeim býr í bijósti og því sem þeir svo láta uppi, þeir tala sér stundum þvert um geð en að end- ingu láta þeir allt vaða. Og það er einmitt þá sem samtöl þeirra verða eins og listaverk eftir bijálaðan nútímalistamann; öfgarnar í allar áttir, allur tilfinningaskalinn er spannaður; bjart, dimmt, mjúkt, hart, heitt, kalt. Þeir ljúga, þeir særa, þeir hæðast; þetta eru þrír karlmenn og við sjáum inn í kvik- una á þeim og það er bráðfyndið en stundum líka hálfsorglegt. Listin að lifa „Ég held að þetta fjalli einfaldlega um listina að lifa,“ segir Hilmir Snær, sem leikur verslunarmanninn, „og kannski listina að eiga vini.“ „Já, kannast ekki allir við það að hafa tilheyrt einhverri klíku,“ segir Ingvar sem fer með hlutverk húð- sjúkdómalæknisins sem íjárfestir í listaverkinu góða, „sem síðan er við það að liðast í sundur þegar meðlim- ir hennar verða eldri og fara að hafa skoðanir á öllum hlutum og fara að gifta sig og fara í allar átt- ir, og kannski helst frá hver öðrum. Og svo þarf kannski ekki nema eitt- hvert smáatriði til að allt fari til fjandans. Þá reynir á vinaböndin." „Og um það að virða skoðanir annarra," bætir Hilmir Snær við. „Já, og hver kannast ekki við þessar eilífu deilur um listina eða smekkinn," heldur Baltasar Kor- mákur áfram, en hann fer með hlut- verk flugvélaverkfræðingsins, „þessar deilur sem leiða ekki til neins, að minnsta kosti ekki til nið- urstöðu. Listin er bara það sem við sjáum og umræður um hana alltaf jafn fáránlegar. Það getur enginn sagt til um hvað er góð list og hvað vond, það getur enginn ákveðið hvað er gott og hvað er vont. Samt er alltaf verið að gera einmitt það. Það eru einhveijir sem ráða því hvað er góð list hveiju sinni og prenta það inn í lýðinn. Sumir elt- ast við skoðanir þessara páfa og kaupa það sem þeir segja að sé gott og umfram allt nútímalegt. En hveijum eru þeir þá að þókn- ast? Er hann þá ekki bara orðinn peð í einhveiju valdatafli." Þögnin skiptir miklu Yasmina Reza fæddist í París árið 1957. Hún lagði stund á nám í píanóleik en söðlaði síðan um og gekk í leiklistarskóla Jaques Lecoq. Að loknu námi þar lék hún með ýmsum leikhópum og tók þátt í uppfærslum á leikritum Moliéres og Sascha Guithry, svo dæmi séu nefnd. Henni leiddist hins vegar að leika þegar fram í sótti; hana langaði að skrifa leikrit. Hún reyndi þó fyrst fyrir sér í handrita- skrifum fyrir kvikmyndir en árið 1986 leit uppfærsla á leikriti henn- ar Samtöl að lokinni jarðarför dagsins ljós á sviði í París. Hún hlaut Moliére-verðlaunin fyrir besta frumsamda leikritið í Frakk- landi það árið. Yasmina Reza samdi síðan einleikinn Gregor Samsa fyrir leikstjórann Roman Polanski upp úr sögu Kafka, Ham- skiptunum, og á næstu árum voru sett upp eftir hana tvö ný leikrit; Vetrarferð og Jascha. Fimmta og nýjasta leikrit hennar var frumsýnt á síðastliðnu ári en það heitir Mað- ur fyrir slysni. Yasmina er lítt hrifín af því að útskýra verk sín en segir að þótt þau séu fyndin séu þau einnig tregablandin. í þeim skipti þögnin miklu máli og hin ósögðu orð. Hún nefnir höfunda á borð við Marg- urite Duras, F. Scott Fitzgerald og þýska leikritaskáldið Botho Strauss sem sína helstu áhrifavalda. Pétur Gunnarsson rithöfundur þýðir verkið. Höfundur leikmyndar og búninga er Guðjón Ketilsson. Lýsingu hannar Guðbrandur Ægir og dramatúrg er Bjarni Jónsson. Krakkar og kölkun Lúðrablástur með sinfóníu KVIKMYNDIH Samblóin, Áifabakka AFTUR TIL FORTÍÐAR (A KID IN KING ARTH- UR’S COURT) ★ Vi Leiksljóri Michael Gottlieb. Hand- ritshöfundur Michael Part og Robert L.Kevy, byggt á skáldsögu Mark Twain. Kvikmyndatökustjóri Elemér Ragályi. Tónlist J.A.C. Redford. Að- alleikendur: Thomas Ian Nichols, Joss Acland, Art Makij, Paloma Baeza, Kate Winslet, Ron Moody. 90 min. Bretland/Ungveijaland. Buena Vista 1995. KVIKMYNDIR byggðar á hinni frægu skáldsögu meistara Mark Twain , A Connecticut Yankee In KingArthur’s Court, eru orðnar ein- ar sjö eða átta, þetta ensk/ung- verska tilbrigði er hvorki verra né betra en þær flestar. Lítil og auð- gleymd barnamynd. Hugmyndin er á tímaskekkjuplan- inu sem var orðið ofnotað þegar Zemeckis gerði mynd nr. 2 í Aftur til forf/dar-bálkinum. Og orðið langt síðan. Hér er það mallað þannig að Arthúr (Joss Ackland) og Merlin (Ron Moody), eru orðin hálfær gamal- menni, enda verður útkoman sú er Merlin hyggst hressa uppá riddaralið Camelot með sínum rykföllnu göld- rum að hann hefur unglingsgrey frá ofanverðri 20, öldinni uppúr krafsinu. Um þetta snýst gamanið, sem skapar brosviprur þregar best lætur, oftar geispa og augnagotur á arm- bandsúrið - hjá fuliorðnum, vel að merkja. Tímaskekkjubrandararnir eru því miður sjaldnast virkilega sniðugir og leikurinn er vandræða- legur hjá sveinstaulanum í aðalhlut- verkinu. Meira að segja gamli, góði Joss Ackland er utanveltu sem kalk- aður Arthúr kóngur. Það er einna helst að hin efnilega Paloma Baeza rumski við manni og Art Malik er margreynt illfygli í hæsta gæða- flokki. Vel boðleg börnum og ungum táningum, aðrir ættu að taka á sig krók. Handritshöfundamir og leik- stjórinn hafa engu við bókina að bæta, nema að síður sé Sæbjörn Valdimarsson Stykkishólmur. Morgunblaðið SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ís- lands kom nýlega til Stykkis- hólms og hélt skólatónleika fyrir nemendur Grunnskólans árdegis og almenna tónleika um kvöldið. Hljómsveitin var skipuð 70 hljóðfæraleikurum og voru tón- leikamir haldnir í íþróttamiðstöð- inni. Lúðrasveit Stykkishólms, sem í em 25 hljóðfæraleikarar, lék í einu verki með hljómsveit- inni „Syngdu gleðinnar óð“ sem er syrpa af íslenskum lögum í útsetningu Herbert Agústssonar. Heimsókn Sinfóníuhljómsveitar- innar til Stykkishólms er liður í verkefninu „Tónlist fyrir alla“ sem menntamálaráðuneytið stendur að með styrk frá sveitar- félögum. Þetta er þriðja heim- sókn listamanna í vetur í tengsl- um við þetta verkefni. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveit- arinnar var Petri Sakari og ein- leikari á trompet var Einar St. Jónsson. Tónleikarnir vom vel sóttir og voru áheyrendur mjög ánægðir með það sem þeir fengu að heyra. Tónleikar í Ólafsvík Sinfóníuhljómsveit íslands heim- sótti líka Ólafsvík og lék í félags- heimilinu Klifi fyrir nemendur grunnskólanna á Snæfellsnesi. Lúðrasveitin Snær lék nokkur lög með hljómsveitinni við góðar undirtektir áheyrenda. Nýlega var nýtt hljóðkerfi vígt í félagsheimilinu og að sögn hljómsveitarmanna og tónleika- gesta er það mjög gott og hljóm- burður með því besta sem gerist. Fullt hús var á tónleikunum og þökkuðu áheyrendur fyrir sig með miklu Iófaklappi. Kynnir á tónleikunum var Margrét Örn- ólfsdóttir. Nýjar bækur Fjölskyldan og borgin ÚT er komin ný ljóðabók eftir dr. Sturlu Friðriksson sem hann nefnir Ljóð líðandi stundar. Þetta er þriðja ljóðabók dr. Sturlu en hann sendi frá sér Ljóð langför- uls árið 1988 og Ljóð líffræðings árið 1990. í inngangi segist dr. Sturla hafa einkum „tínt til kvæði, sem ég hef ort fyrir fjölskyldu og kunningja, eða við einhver sér- stök tímamót, og jafnvel hu- grenningar um Reykjavík. Eitt elsta kvæðið úr þessum hópi er Landnám, sem ég orti um 1942, en önnur kvæði um Reykjavík eru yngri.“ í bókinni er einnig að finna nokkrar þýðingar dr. Sturlu, m.a. ljóðin Fanginn í Chillon kastala eftir George G. Byron lávarð. Ljóð líðandi stundar er 82 bls. í bandi og unnin í prentsmiðjunni Odda. Utgefandi er Muninn- íslen dingasagnaú tgáfan. Bókin kostar 1.680 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.