Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997 29
LISTIR
tNÝTT
á islandi
fflQÐ[L“Tr=[L®(gDS*
Hágæöa lyklakerfi
EINN LYKILL
- endalausir möguleikar
Land
úr lit
MYNDLIST
Nýlistasafnið
MALVERK
GUÐRÚN EINARSDÓTTIR
Opið kl. 14-18 alla daga nema mánu-
daga til 27. apríl; aðgangm- ókeypis.
VÆNTINGAR móta oftar en
ekki viðhorf okkar á sviði listsköp-
unar jafnt sem annars staðar, og
kyrrstaða eða óbreytt myndlist er
í raun ekki valkostur heldur dauði.
Því er ætíð viss spenna samfara
því að standa frammi fyrir verkum
listamanna sem eru orðnir þekktir
fyrir ákveðin vinnubrögð; standa
þau undir væntingum eða ekki -
og gefur breytingin þá tilefni til
lofs eða hnjóðs?
Margir hafa eflaust átt von á
því að verða fyrr en síðar leiðir á
þeirri fábreytni hreinleikans, sem
búast mátti við að svört eða hvít
málverk Guðrúnar Einarsdóttur
þróuðust í átt til. Þær vonir hafa
ekki ræst, þar sem listakonan hefur
stöðugt verið að leita nýrra leiða í
þeirri mótun yfirborðsins, _sem hef-
ur einkennt verk hennar. Á sýning-
unni í efri sölum Nýlistasafnsins
kemur í ljós að þetta hefur hún
gert með tvennum hætti síðasta
árið; annars vegar með því að reyna
þessa tækni með fleiri litum, og
hins vegar með því að skapa
ákveðna tilfinningu fyrir þeirri
mótun, sem fer fram í fietinum.
Málverkin tvö á palli sýna þessa
breytingu strax; annað er hvítt og
GUÐRÚN Einarsdóttir: Án titils.
Morgunblaðið/Golli
hitt rústrautt, og mótun yfirborðs-
ins er með nokkuð öðrum hætti en
fyrr, því hér rísa doppur og hrygg-
ir á móti áhorfandanum, líkt og á
myndum af yfírborði fjarlægra
reikistjarna og fylgitungla. Slikar
ímyndir eru orðnar ríkulegur hluti
af myndheimi samtímans, og sú
dulúð sem fylgir þessum framandi
stöðum er með vissum hætti endur-
spegluð í verkum listakonunnar.
Þessi tilvísun til ókunnra heima
er enn ríkulegri í þeim myndum
sem fylla efsta sal Nýlistasafnsins,
þar sem dökkblátt og dökkgrænt
yfirborð bætist við hið rauða, og
birtast hér andstætt svörtum og
hvítum myndum, listakonunnar.
Öll eru verkin án titils, en mynd
nr. 3 minnir óneitanlega á ímyndir
af rauðri stjörnu með sinum gígum,
sléttum og eyðimörkum. Græni lit-
urinn í nr. 5 skapar fyllingu, sem
ekki verður til með sama hætti í
öðrum lit; sindrandi yfirborðið
minnir jafnvel um sumt á þær ríku-
legu mosaþembur heiðanna, sem
urðu Jóhannesi Kjarval að svo
auðgandi yrkisefni. Viðlíka iðandi
ímynd nálægðar er sterkur þáttur
í því púsluspili hlykkjandi lína sem
er að fínna í verki nr. 10.
Yfirborð mynda Guðrúnar hefur
einkum byggst á ríkuiegum hrynj-
anda breiðra pensilstrokna, en að
þessu sinni má segja að ákveðin
yfirsýn ráði mestu um heildar-
myndina. Annars vegar má líkja
áhrifunum við víðáttur lands sem
rís fyrir augum farfugls eða fjar-
lægra geimskipa með fjöllum sín-
um, hryggjum, sléttum og hraun-
um, og hins vegar við hið smágerða
við fætur okkar, þar sem annar
mælikvarði verður til; í báðum til-
vikum skapar liturinn landið með
einföldum hætti fyrir augum gests-
ins.
Það hefur verið taktföst fram-
þróun í verkum listakonunnar und-
anfarin ár og vert að benda listunn-
endum á að láta sýninguna ekki
fram hjá sér fara.
Eiríkur Þorláksson
Öryggiskerfi sem uppfyllir allar kröfur
um öryggi I kerfislæsingum.
EE
gyi
UNGIR flautunemar Tónlistarskóla Keflavíkur.
Forskóla-
tónleikar
Tónlistarskóla
Keflavíkur
UNDANFARIN ár hafa nem-
endur í forskóla Tónlistarskól-
ans í Keflavík haldið tónleika
fyrir bæjarbúa á sumardaginn
fyrsta. Að þessu sinni verða tón-
leikar í sal Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja og hefjast þeir kl. 13.
Gengið er inn frá Faxabraut.
I tilkynningu segir að á tón-
leikunum munu nemendur for-
skólans, sem eru á aldrinum 6-8
ára, flytja fjölbreytta efnisskrá
þar sem saman fer mikill söng-
ur, hljóðfærasláttur og hreyf-
ing. Kennarar og stjórnandi
forskólans er Steinunn Karls-
dóttir.
Wmm'é-,
Beethoven-
tónleikar
SIGURÐUR Halldórsson og
Daníel Þorsteinsson flytja þijár
sónötur fyrir selló og píanó
eftir Beethoven í samkomusal
íþróttahúss Bessastaðahrepps
í dag miðvikudag kl. 20.30.
Tónleikarnir eru á vegum
Dægradvalar, menningar- og
listafélags á Álftanesi.
í mars sl. og apríl hafa Sig-
urður og Daníel staðið að heild-
arflutningi á verkum Ludwigs
van Beethovens fyrir píanó og
selló og eru það síðustu sónöt-
urnar þijár, sem fluttar verða
á tónleikum þeirra er Dægra-
dvöl stendur fyrir.
Vortónleikar
Lögreglu- og
RARIK-kórsins
ÁRLEGIR vortónleikar Lög-
reglukórs Reykjavíkur og RA-
RIK-kórsins verða haldnir í
kvöld miðvikudaginn 23. apríl
í Fella- og Hólakirkju og hefj-
ast kl. 20.30.
Stjórnandi Lögreglukórsins
er Guðlaugur Viktorsson en
Violeta Smid stjórnar RARIK-
kórnum. Undirleikari hjá báð-
um kórum er Pavel Smid. Að-
gangur ókeypis.
Sumartón-
leikar í
Grensáskirkju
KAMMERKÓR Grensáskirkju
og Maríus H. Sverrisson flytja
negrasálma og lög úr söngleikj-
um fimmtudaginn 24. apríl kl.
20.30 í Grensáskirkju. Píanó-
leikari er Helga L. Finnboga-
dóttir og stjórnandi Margrét J.
Pálmadóttir.
-fnrlr flölstyldunaz.