Morgunblaðið - 23.04.1997, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 23.04.1997, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Kjósum Jón Torfa Jónasson rektor Háskóla Islands Kjósum Jón Torfa Haraldur Stefán Trygg-vi Þór Olafsson Olafsson Herbertsson REKTOR Háskóla íslands gegn- ir mikilvægu hlutverki í íslensku þjóðlífi. Hann er forystumaður æðstu menntastofnunar þjóðarinn- ar. Hann er málsvari Háskólans á vettvangi þjóðmála. Hann er virkur stefnumótandi í rannsóknum og fræðutn Ekki einasta er hann framkvæmdastjóri fjölmennasta vinnustaðar landsins heldur einnig einn helsti fulltrúi landsins gagn- vart erlendum mennta- og vísinda- stofnunum. Þegar velja skal rektor Háskóla íslands verður að hafa í huga hið margþætta starfsvið hans. Jón Torfi Jónasson hefur um árabil verið í forystusveit háskólamanna og sýnt í störfum sínum að hann á auðvelt með að takast á við flók- in viðfangsefni, bæði á sviði vísinda og stjómunar. Menntun hans er í senn á sviði raunvísinda og hugvís- inda og hann sameinar strangleika stærðfræðinnar og hin marg- greindu svið mannvísindanna. Ahugamál hans beinast öðru frem- ur að uppeldi og menntun og því Xivemig byggja megi upp háskóla- samfélag þar sem rannsóknir og menntun em liður í því að bæta og auðga mannlíf á íslandi. Há- skóli íslands verður aldrei slitinn úr samhengi við þjóðlífið. Af kynnum okkar við Jón Torfa og samstarfi við hann um margra ára skeið eram við sannfærðir um að hann sé sérstaklega vel hæfur Jón Torfi hefur um ára- bil verið í forystusveit íslenzkra háskóla- manna, segja greinar- höfundar, og hann á auðvelt með að fást við flókin viðfangsefni. til þess að gegna starfi rektors við Háskóla Íslands. Þar kemur ekki aðeins til álita menntun hans og vísindastörf heldur einnig fáguð framkoma og umgengnishættir sem gera alla stjórnunarhætti hans áreynslulausa og auðvelda. Þó að Jón Torfi sé manna prúðastur í málflutningi, og kannski þess vegna, er hann snjall samninga- maður og fylginn sér þegar um er að ræða málefni sem honum eru hugstæð. Hann ígrundar mál vand- lega en er þó fljótur að taka ákvarðanir. Við hvetjum allt starfsfólk Há- skóla íslands til þess að greiða Jóni Torfa atkvæði í rektorskjörinu. Haraldur er prófessor, Stefán er forstöðumaður Félagsvísinda- stofnunar Háskóla Islands og Tryggvi Þór forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskólans. í DAG stendur yfir kjör næsta rektors Háskóla íslands. Sem kona og nemandi við Háskólann vil ég hvetja konur til að veita dr. Jóni Torfa Jónassyni brautar- gengi til þessa æðsta embættis skólans. Eitt af baráttumálum Jóns Torfa er aukið jafnrétti innan stofnunarinnar, jafnt meðal nemenda sem kennara. Konur eru meirihluti nem- enda skólans en í mikl- um minnihluta í kenn- araliði hans og stjórn- unarstöðum. Má benda á að sl. föstudag var Helga Kress prófessor Ég skora á jafnréttis- sinna, segir Anna Guðrún Hugadóttir, aðkjósaJón Torfa sem rektor. kjörin forseti heimspekideildar og er það í fyrsta sinn í sögu skólans að kona er kjörin deildarforseti. Jón Torfi hyggst beita sér fyrir úrbótum á þessu sviði með því að leggja til að fleiri kennarar en einungis pró- fessorar séu kjörgengir til setu í æðstu stjórn stofnunarinnar. Jón Torfi vill eínnig beita sér fyrir jafnrétt- ismálum sem snúa að nemendum skólans. Hann telur að sjá verði til þess að barneignir komi hvorki niður á námsframvindu né ráðningum í störf. Margar konur eru ráðnar til rannsóknar- starfa og sérstakan sjóð þarf til að tryggja fullkomlega að barn- eignir hindri ekki ráðningu þeirra. Þetta er mikilvægt jafnrétt- ismál þeirra ungu kvenna sem stunda nám og rannsóknir við Háskólann. Kynferðisleg áreitni er vanda- mál innan Háskólans eins og ann- ars staðar í þjóðfélaginu. Jón Torfi telur brýnt að settar verði reglur um meðferð kærumála á þessu sviði. Sem nemandi í uppeldis- og menntunarfræði og námsráðgjöf þekki ég Jón Torfa sem góðan og réttlátan kennara og skeleggan baráttumann fyrir þeim málum sem hann tekur að sér. Ég skora því á jafnréttissinna, konur og karla innan Háskólans að kjósa Jón Torfa sem næst rektor. Höfundur er BA í uppeldis- og menntunarfræði og nemandi í námsráðgjöf. Anna Guðrún Hugadóttir STEINAR WAAGE f SKÓVERSLUN \ Góo . so rnorgv óí Verð kr. 3.495 Litir: Bláir og rauðir Stærðir: 23-30 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR STEINAR WAAGE ? SKOVERSLUN ^ SÍMI 551 8519 STEINAR WAAGE SKOVERSLUN SIMI 568 9212 J Jón Torfi - næsti rektor! Lilja Dögg Rúnar Alfreðsdóttir Sigmundsson Guðrún Inga Ingibjörg Ingólfsdóttir Valgeirsdóttir í DAG munu starfslið og nem- endur Háskóli íslands velja sér nýjan yfirmann. Við undirrituð telj- um Jón Torfa Jónasson afar vel til þess fallinn að gegna embætti næsta rektors Háskóla íslands. Það er einkum þrennt sem við telj- um að geri Jón Torfa að hæfum rektor. Víðtæk menntun og reynsla Jón Torfi lauk BSc. Hons. prófi í eðlisfræði, frá Edinborgarhá- skóla. Hann stundaði auk þess nám í sagnfræði, heimspeki og stjórn- málafræði. MS-próf og doktorspróf hans er í hugfræði frá Háskólanum í Reading. Að námi loknu sneri Jón Torfi heim og hóf kennslu við Háskóla íslands í verklegri eðlis- fræði, aðferðafræði og forritun. Jón Torfi er nú prófessor í uppeld- is- og menntunarfræði. Víðtæk - kjarni málsins! Mannleg samskipti liggja vel fyrir Jóni Torfa, segja greinar- höfundar, og hann er virtur meðal nemenda. menntun og reynsla Jóns Torfa er að okkar mati nauðsynleg í samskiptum við stúdenta og starfslið Háskóla íslands. Jón Torfi hefur alltaf sýnt sanngirni og víðsýni í sínu starfi, því er hann verðugur rektor Háskóla ís- lands. Sij órnunarhæfileikar Síðastliðin tvö ár hefur Jón Torfi gegnt embætti deildarfor- seta félagsvísindadeilar Háskóla íslands. Það er samhljóma álit bæði nemenda og kennara að Jón Torfi hafi leyst það verkefni með sóma. Deildin hefur gengið í gegn- um mögur ár, bæði vegna niður- skurðar ríkisvaldsins og síaukins Q'ölda nemenda. Þrátt fyrir það hafa rannsóknir kennara blómstr- að og árangur nemenda ekki látið á sér standa. Vitanlega hafa marg- ir komið þar að, en við nemendur höfum fundið fyrir góðum stjórn- anda, sem við teljum að allt starfs- lið Háskóla íslands og nemendur eigi að fá að njóta. Framsýni A undanförnum árum hefur Jón Torfi rætt og ritað um þróun ís- lenska menntakerfisins og hafa framtíðarspár hans í þeim efnum staðist hingað til. Menntamál eru hans hugsjón, hann er maður at- hafna sem vill að háskólinn sé í fararbroddi í öllu sínu starfi, hvort heldur í kennslu eða rannsóknum. Háskólinn verður að standa við forystuhlutverk sitt, m.a. efla grannnám, rannsóknarstarf og gegna upplýsingaskyldu í samfé- laginu. Við teljum að til þess þurfi öflugan stjórnanda með framsýna hugsjón og erum við sannfærð um að Jón Torfi sé sá maður. Jón Torfí er virtur meðal nem- enda sinna. Mannleg samskipti liggja vel fyrir honum. Hann ber virðingu fyrir skoðunum annarra og horfir á málin frá ólíkum sjónarhornum. Framkoma hans og viðmót við nemendur eru til fyrir- myndar. Við nemendur teljum Jón Torfa vera þann mann sem muni geta leitt Háskóla Islands inn í 21. öldina á farsælan hátt. Höfundar cru háskólanemar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.