Morgunblaðið - 03.05.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.05.1997, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sporslur bankastjóra: ' Subbuskapur - segir Jóhanna „Þetta er subbuskapur sem veld- ur trúnaöarbresti milli almennings og bankanna," sagöi Jóhanna Sig- SVONA gerum við þegar við þvoum okkar þvott. Morgunblaðið/Árni Sæberg FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti tveimur áhöfnum TF-LÍF afreksmerki hins íslenska lýðveldis. Einnig veitti hann Elíasi Erni Kristjánssyni afreksmerki og var merkið afhent eftirlifandi konu hans og börnum til varðveislu. Tvær þyrluáhafnir fá afreks- merki fyrir björgun FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti tveimur áhöfnum á þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, afreksmerki hins íslenska lýð- veldis við hátíðlega athöfn á Bessa- stöðum 1. maí sl. Afreksmerkin voru veitt vegna björgunar samtals 36 skipverja á Víkartindi, Dísarfelli og Þorsteini GKj 5., 9. og 10. mars 1997. Ahafnir þyrlunnar skipuðu eftir- taldir tíu menn: Benóný Ásgrímsson, flugstjóri, Páll Halldórsson, flugstjóri, Her- mann Sigurðsson, flugmaður, Jakob Ólafsson, flugmaður, Auð- unn F. Kristinsson, stýrimaður og sigmaður, Hjálmar Jónsson, stýrimaður og sigmaður, Hilmar Æ. Þórarinsson, flugvirki og spil- maður, Ágúst Eyjólfsson, flug- virki og spilmaður, Friðrik Sigur- bergsson, læknir, og Óskar Ein- arsson, læknir. Forseti íslands heiðraði einnig minningu Elíasar Arnar Kristjáns- sonar, bátsmanns á varðskipinu Ægi, en hann lét lífið við tilraun- ir til að bjarga skipinu Víkartindi og áhöfn þess 5. mars sl. Veitti forseti íslands Elíasi Erni Kristj- ánssyni post mortem afreksmerki hins íslenska lýðveldis úr silfri. Var merkið afhent eftirlifandi konu hans og börnum til varð- veislu. Blússur - Bolir Opið kl. 10.00-16.00 tískuverslun Rauðarórstíg 1, sími 561-5077 Könnun á líf- rænu gasi fyrir SVR BORGARRÁÐ hefur samþykkt að koma á fjögurra manna starfshópi til að kanna tæknilega þætti og hagkvæmni þess að nýta lífrænt gas sem eldsneyti fyrir Strætis- vagna Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að könnunin verði liður í víðtækri könnun, sem þegar er hafin á vegum SVR um rafknúna vagna eða aðra umhverf- isvæna orkugjafa. Siðfræði og lífsýnabankar Er mannhelgin brotin með miðlun erfðaupplýsinga? Göran Hermerén GÖRAN Hamerén, ■ ánn þekktastí ham- spekingur Norð- urlanda, mun í dag flytja fyrirlestur á lokaðri nor- rænni ráðstefnu í Reykjavík um lífsýna- banka. Dæmi um líf- sýnabanka eru blóð- bankar, sæðisbankar, fósturvísabankar, vefja- sýnabankar og söfn sem geyma sýni úr krabba- meinsæxlum. Meðal ann- ars verður spurt um vernd einstaklingsins gagnvart því að allar erfðafræðilegar upplýs- ingar um hann séu geymdar í lífsýnabanka. Hverjir geta ráðstafað upplýsingunum og er ef til vill rétt að sporna við þessari þróun? Áhugafólki er bent á að annar prófessor, danski læknirinn Povl Riis, heldur opinberan fyrirlestur um siðferðisvanda lífsýnabanka í Norræna húsinu í dag klukkan 13-14. Norræna lífsiðfræði- nefndin heldur ráðstefnuna, en lífsýnabönkum hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum. Morgunblaðið hitti Göran Hermerén að máli og spurði um efni fyrirlestrar hans sem nefnist Verndun mannhelginnar. En líf- sýnabankar snerta alla því þar er hægt að geyma og síðan miðla erfðafræðilegum upplýsingum um sérhvern mann. Hætta er líka á að lífsýni manna séu rannsökuð og notuð að þeim forspurðum. - Hvenær er mannhelgin brot- ► Göran Hermerén er fæddur árið 1938 í Stokkhólmi. Hann varð doktor í heimspeki við háskólann í Lundi í Svíþjóð árið 1969 og hefur fengið náms- styrki og stundað rannsóknir í Princeton, háskólanum í Michigan og Temple University í Bandaríkjunum og Trinity College á Irlandi. Göran var prófessor í vísindaheimspeki við háskólann í Umeá í Svíþjóð frá 1970-75, prófessor í virkri heimspeki við háskólann í Lundi frá 1975-91, prófessor í siðfræði lækninga frá 1991 í Stokkhólmi og Lundi. Sambýlis- kona Görans er Agneta Ljung- berg arkitekt. Hann á þrjú börn. Sérsvið hans innan heim- spekinnar eru siðfræði og fag- urfræði. m' „Ég velti fyrir mér rétti ein- staklingsins, hvernig virða megi skoðanir hans og einkalíf þótt aðrir hafi upplýsingar um hann sem geymdar eru í lífsýnabönk- um. Lífsýni einstaklings geta nefnilega legið í nokkrum bönk- um og það er hægt að safna þeim saman og öðlast persónu- legar upplýsingar um einstakl- inginn. En réttur hans getur stangast á við þarfír samfélags- ins. Það þarf að finna jafnvægi milli hagsmuna einstaklinga og samfélagsins, því upplýsingarnar geta komið öðrum til góða, til dæmis varðandi ýmsa sjúkdóma. Sumir vilja banna lífsýna- banka, aðrir vilja fijálsa notkun sýna. Lífsýnabankar tefla tveimur siðaboðum saman, helgi einstakl- ingsins og hagsmunum heildar- innar og ég tel glímuna felast í að finna jafnvægi á milli þeirra. Einstaklingurinn gagnvart stjórnvöldum, atvinnurekendum, félögum og öðrum einstaklingum, hefur rétt til að ákveða ------- sjálfur hvaða upplýs- Hætta á mis- ingar um því að skilgreina raunverulega og hugsanlega ógn gagnvart mannhelgi hans. Við þurfum að skapa aðstæður fyrir fræðandi og gefandi sam- ræður um þetta mál, búa til leið- beiningar, halda ráðstefnur um mannlegan rétt, setja lög gegn misnotkun á lífsýnabönkum og hafa eftirlit með þeim.“ - Hvernig á að virða einstakl- inginn gagnvart lífsýnabönkum? „Með því 1) að aðeins fólk með tilskilin réttindi hafi aðgang að þeim, 2) að notkun lífsýna megi aðeins vera í sérstökum tilgangi, 3) að lífsýnabankar starfi fyrir opnum tjöldum eftir skýrum regl- um og lögum um hveijir megi eiga slíka banka, því í sumum tilfellum er hægt að græða pen- inga, 4) að fólk hafí rétt til að neita bönkum um lífsýni og að vera skráð, 5) að fólk hafí rétt til að leyfa að sýnin séu notuð til rannsókna, 6) að siðaráð geti fylgst óheft með starfsemi bank- anna og metið afleiðingamar af -------- rannsóknunum. 7) Sjö- _________________ unda atriðið er spum- hugsanir notkun lífsýna inS: Hvort á form hans, skoðanir og per- sónulegt ástand megi segja öðrum, í hvaða samhengi það er gert og við hvaða aðstæður það á rétt á sér og til hvers megi nota þessar upplýs- ingar. Þagnarskyldan vegur þungt. Það er líka mikilvægt að sá sem framkvæmir rannsóknir á genum viti ekki hver eigandinn er, það er nefnilega hægt að nota upplýsingarnar gegn fólki. Hér vaknar einnig spurningin um hvernig upplýsingar eru geymdar, er t.d. hægt að tengja þær við kennitölu einstakling- anna eða ekki? Aðferðin til að vernda einstaklinginn hefst með einstaklinga geymslunnar að vera á táknmáli sem hægt er að tengja við kennitölu eða þannig að ekki sé hægt að tengja sýni við persónur? Og nú spyr ég: Hvemig er þessu háttað hjá okkur núna? Verkefni okkar er að draga úr hugsanlegum skaða og auka hugsanlegan ágóða eða með öðr- um orðum að finna jafnvægi milli siðaboðanna, því lífsýnabankar era svo mikilvægir fyrir heilbrigði þjóðanna. Á ráðstefnunni í dag munum við ræða hveijar reglurn- ar eigi að vera og hvernig við getum verndað rétt einstaklings- ins til mannhelgi sinnar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.