Morgunblaðið - 03.05.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. MAÍ1997 43
SJÓNMENNTAVETTVANGUR
GIORGIO de Chirico: Hugleiðsla málarans.
BRUGGARINN J.C. Jacobsen.
Málverk eftir August Jerndorff 1886.
skrif, lauk sunnudaginn 27. apríl,
en full ástæða er að geta hennar
hér. Nefna má að Ströbek þessi er
í sérstöku dálæti hjá Carlsberg-
sjóðnum og má allajafna sjá verk
eftir hann á Glyptotekinu í Kaup-
mannahöfn. Drjúga athygli vakti er
hann gerði myndaröð af konum
sem sjóðurinn falaði af honum eins
og skot og reiddi af hendi 3 miljón-
ir danskra króna, eða rúmlega 31
milljón íslenzkar.
Eðlilega er maðurinn umdeildur,
en það merkilegasta við þetta er að
hann telst lifandi og lærdómsríkt
dæmi þess að allt snýst í hring.
Margur veit að Svavar Guðnason
gerði stuttan stanz á listakademí-
unni í Kaupmannahöfn, enda kærði
hann sig ekki um að mála naktar
fyrirsætur, berrassðar kellíngar.
Sama var uppi á teningnum hjá
nánasta félaga hans í abstraktinu
Egil Jacobsen, sem tolldi einuneis
eitt semester hjá prófessor Kræst-
en Iversen (1932-33).
Ströbæk þessi stundaði hins veg-
ar í heil 5 ár nám við akademíuna
og allan tímann hjá áðurnefndum
abstraktmálara og vini Svavars,
prófessomum Egil Jacobsen, og úr
varð einn þekktasti raunsæismálari
Danmerkur!
Maðurinn hefur þannig bersýni-
lega ekki farið í Ustaskóla til að
læra að mála, heldur verða málari
Tilboðsdagar
Stök teppi & mottur
O o
3 . - 1 3 . m a í
Opiö sunnudaginn 4.maí
Persía
SuSurlandsbraul 46 vlð Faxafen Síml: S68 6999
eins og hugarfarið var fyrrum.
Raunsæi Niels Ströbeks nálgast á
stundum ofurraunsæi nútímans, en
fígúrumyndir hans virka oftar en
ekki eitthvað plastkenndar og þá
einkum af nöktum konum. Portrett
listamannsins af drottningunni og
drottningarmanninum og ýmsu
öðru stórmenni eru og full yfir-
borðskennd, ofhlaðin. En þegar
dæmið gengur upp eins og sér stað
á tvöföldu andlitsmyndinni, og fleiri
hreinum afdráttarlausum andlits-
myndum á hann sér fáa jafningja.
Einfaldar myndir af hlutum, húsum
og landslagi framúrskarandi vel
málaðar.
Setrið Soffíuhólmur var byggt
sem sumardvalarstaður í lok 17.
aldar eins og fleiri afar falleg hús
auðmanna hátt uppi á bökkum
Lyngby og Bagsværd vatna. Fyrsti
eigandinn var Theodor Holm, sem
hafði mikinn áhuga á grasafræði og
skógrækt, en á tímum þess næsta
Constantin Brun, hélt Friðrikka,
hin nafnkennda kona hans, uppi
miklu menningarlífi á staðnum, en
hún hafði ómældan áhuga á bók-
menntum og fagurfræði. Á tímabil-
inu 1789-1810 ferðaðist hún vítt og
breitt um Evrópu og komst í per-
sónuleg kynni við flesta helstu and-
ans menn álfunnar. Eru til
skemmtilegar sögur af salonlífinu á
Soffíuhólmi, og í ljósi fortíðar er
hlutverk þess í dag mjög við hæfi.
Maður getur látið sér liða afar
vel á þessum stað, veitingabúðin
frábær, útsýnið sömuleiðis og mik-
ið um gönguleiðir í skóginum og,
meðfram vatninu. Mæli eindregið
með bátsferð frá Lyngby, sem á
björtum sumardegi er mögnuð lif-
un og einstakur lærdómur um líf-
ræna húsagerðarlist.
<.i> * •
tfe'A4'
Tilboð 20% afsláttur
Verð frá kr. 2.450.
Sníðum þær í gluggann þinn.
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.
* Jöfn og örugg áburðardreifing. Tværdreifiskífur.
* Auðstillanlegir. Dreifing til annarar hliðar möguleg.
-k Lágbyggðir-Auðveldáfylling.
* Kynnið ykkur prófun RALA sumarið 1988.
* Nú á sérstöku tilboðsverði. Takmarkað magn.
ÞQR HF
Raykjavík - Akurayri
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - simi: 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - sfmi: 461-1070
V
i«o/’
RE
Ætlar þú til útlanda í sumar?
*
Vandaðu undirbúninginn með
l góðum bókum og landakortum
F eráabókamarkaður
Mál og menning
Laugavegi 18 • Síðumúla 7-9