Morgunblaðið - 03.05.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997
MORGUNBLA.ÐIÐ
FRÉTTIR
Fjölmenni víða um land í kröfugöngum og við hátíðahöld á baráttudegi verkafólks 1. maí
Morgunblaðið/Golli
FJÖLMENNI var á útifundi á Ingólfstorgi á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins hinn 1. maí.
Hvatt til öflugri
samstöðu launafólks
Margir tóku þátt í hátíðahöldum víða um
land 1. maí í tilefni af alþjóðlegum baráttu-
degi verkafólks. Fjölmenni var í kröfu-
göngum og forystumenn í launþegahreyfing-
unni fluttu ávörp og hvöttu m.a. til aukinn-
ar samstöðu launafólks. Nokkur hundruð
manns tóku þátt í fyrstu kröfugöngu sem
------------------^---------------------
farin hefur verið á Isafirði í nokkra áratugi
á frídegi verkalýðsins.
NÝGERÐIR kjarasamningar á
vinnumarkaði og yfirstandandi
kjaradeilur félaga sem enn eiga
ósamið við atvinnurekendur voru
ofarlega á baugi í málflutningi
ræðumanna við hátíðahöld verka-
lýðsfélaga 1. maí. Forystumenn
verkalýðshreyfingarinnar fóru
einnig hörðum orðum um þær hug-
myndir sem uppi eru um breyting-
ar á lífeyriskerfinu og áhersla var
lögð á öflugra samstarf launafólks.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
í Reykjavík, BSRB, Iðnnemasam-
band íslands og Kennarasamband
íslands gengust fyrir fjölmennri
kröfugöngu frá Hlemmi að Ingólfs-
torgi 1. maí. Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ, og Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, voru aðal-
ræðumenn á útifundi á Ingólfs-
torgi.
Tímamót
Grétar sagði verkalýðshreyfing-
una nú vera að marka tímamót.
„Við erum að stíga eitt stærsta
skrefið í sérstakri hækkun lægstu
launa sem stigið hefur verið í lang-
an tíma. Kjarasamningarnir eiga
að tryggja umtalsverða aukningu
kaupmáttar umfram það sem gerist
í nágrannalöndum okkar án þess
að stöðugleika í verðlagi sé raskað.
Kauptaxtar eru færðir nær greiddu
kaupi og settur er rammi um vinnu-
staðasamninga þar sem starfsfólki
er tryggður stuðningur og ráðgjöf
stéttarfélags síns við að semja um
aukinn hlut umfram aðalkjara-
samningana," sagði Grétar m.a. í
ávarpi sínu.
Hann sagði næsta verkefni vera
að tryggja að ávinningurinn skilaði
sér til launafólks og verði ekki tek-
inn til baka með verðhækkunum
og opinbeum álögum. Því hafí ASÍ
og Neytendasamtökin tekið upp
samstarf í verðlagsmálum og á því
sviði þyrfti að herða róðurinn.
Grétar vék einnig að lífeyrismál-
um og sagði að lífeyriskerfið sem
samtök launafólks hefðu byggt upp
sætti nú árásum. „í tengslum við
setningu nýrra laga um lífeyrissjóði
heyrast því miður kröfur um að
þeir sem hæstar hafí tekjurnar skuli
greiða hlutfallslega minna til sam-
ábyrgðarinnar en allt almennt
launafólk. Þessi forréttindahópur á
þess í stað að geta uppfyllt félags-
legar skyldur sínar með því að safna
peningum inn á bankabækur í eigin
nafni. Og það í trausti þess að allir
hinir muni svo bjarga þeim með
skattgreiðslum sínum þegar inn-
stæðan á bókinni klárast," sagði
Grétar.
Vinnulöggjöf fær falleinkunn
„Vinnulöggjöfín sem við börð-
umst gegn fyrir réttu ári hefur
fengið algera falleinkunn. Hver
uppákoman hefur rekið aðra og
má rekja þær beint til skilningsleys-
is lagasmiðanna á aðstæðum á
vinnumarkaði. En auk þessa ytri
ramma um starfsemi stéttarfélag-
anna verðum við að huga að starfs-
háttum okkar og innra skipulagi.
Það er margt sem kallar á róttækt
endurmat um þessar mundir, innan
hreyfíngarinnar sem utan. Brýnast
er að efla samstöðu alls launafólks
svo við getum helgað baráttunni
fyrir bættum kjörum óskipta krafta
okkar í stað þess að deila innbyrð-
is,“ sagði Grétar.
Ekki sljórnað á farsælan hátt
nema í sátt við launafólk
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, vék einnig að samstöðu
launafólks í ávarpi sínu. Sagði hann
að gera yrði stjórnmálaöflunum í
landinu skiljanlegt að íslandi yrði
ekki stjórnað á farsælan hátt nema
í sátt við launafólk.
„Það er hjá samtökum launafólks
sem krafan um stefnubreytingu
varður að kvikna og það eru samtök
launafólks sem verða að fylgja henni
eftir. Verkalýðshreyfíngin stendur á
tímamótum. Hún stendur á tíma-
mótum einfaldlega vegna þess að
þjóðfélagið allt stendur á tímamót-
um. Peningahyggja og stjómenda-
hyggja ráða ferð nánast hvert sem
litið er enda eru þær breytingar sem
þjóðfélagið tekur í þeim anda. Og
það er þess vegna sem launafólk
þarf á sterkri verkalýðshreyfingu
að halda, verkalýðshreyfingu sem
berst fyrir atvinnu fyrir alla, verka-
lýðshreyfíngu sem tekur upp varnir
fyrir öryrkja og sjúka og berst fyrir
bættum hag þeirra, verkalýðshreyf-
ingu sem ann sér ekki hvíldar fyrr
en öldruðum er gert kleift að lifa
með reisn, sem lætur það aldrei líð-
ast að efnalitlu fólki sé vísað frá
sjúkrahúsum og skilur foreldra
veikra bama ekki eftir eina í bar-
áttu sinni. Verkalýðshreyfíngu sem
berst fyrir mannsæmandi launum,
sem stendur vörð um lífeyrissam-
tryggingu og kemur í veg fyrir að
sameiginlegum eignum þjóðarinnar
sé stolið frá henni af löglegum yfír-
völdum, stofnanir einkavinavæddar,
fiskurinn gefínn og með hann brask-
að,“ sagði Ögmundur.
Yfir 50% kaupmáttaraukning
fólks á lægstu töxtum
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
ASÍ, flutti ræðu á 100 ára afmæli
Verkamannafélagsins Fram á Seyð-
isfirði þann 1. maí. Ari vék m.a.
að nýgerðum kjarasamningum
fjölda félaga og landssambanda
sem sem hann sagði að tryggðu
umtalsverða aukningu kaupmáttar
og opnuðu fyrir möguleika á gerð
vinnustaðasamninga.
„Til að skýra aðeins fyrir sjálfum
okkur og öðrum hvaða árangri
verkalýðshreyfingin hefur náð á
undanförnum árum má nefna sem
dæmi að í ársbyrjun 1995, fyrir
aðeins tveimur og hálfu ári, voru
lægstu launataxtar rúmlega 43
þúsund krónur á mánuði. Um næstu
áramót verður tryggt að almenn
dagvinnulaun verði ekki lægri en
70 þúsund. Fyrir þann hóp fólks
sem er í raun og veru á þessum
lægstu töxtum, hina allra lægst
launuðu, er þetta kaupmáttaraukn-
ing upp á meira en 50% á þessum
tíma. En við skulum samt ekki
gleyma því að lægstu launataxtar
eru enn of lágir,“ sagði Ari.
Kröfuganga endurvakin
á Isafirði
Nokkur hundruð _ manns tóku
þátt í kröfugöngu á ísafirði 1. maí
en þar hefur ekki verið farin kröfu-
ganga á baráttudegi verkalýðsins í
meira en þijá áratugi. Að mati tals-
manna verkalýðsfélaga á Vestfjörð-
um er ástæðan fyrst og fremst sú
barátta sem stór hluti verkafólks á
Vestfjörðum á í þessa dagana vegna
yfirstandandi verkfalls. Pétur Sig-
urðsson, formaður ASV, flutti há-
tíðarræðuna 1. maí og hvatti til
áframhaldandi samstöðu um kröfur
verkalýðsfélaganna gagnvart at-
vinnurekendum.
Ekki hefur enn verið boðað til
sáttafundar í kjaradeilunni á Vest-
fjörðum. Alþýðusamband Vest-
fjarða hefur sent frá sér yfirlýsingu
vegna ályktunar forráðamanna
fiskvinnslufyrirtækja á Vestfjörð-
um á miðvikudag. Þar er mótmælt
fullyrðingum um að samkomulag
sé um flest atriði í kjaraviðræðunum
nema um launaliðinn. „Sannleikur-
inn er sá að ekkert samkomulag
er um aðalatriði nýs kjarasamn-
ings. Við teljum vinnuveitendur
ekki síst bera ábyrgð á þeirri alvar-
legu stöðu sem nú blasir við. ef
þeir vilja tryggja verkafólki 90-100
þúsund króna mánaðarlaun eins og
þeir segja að felist í tillögum þeirra
væru engin verkföll á Vestfjörð-
um,“ segir í yfirlýsingu ASV.
Forsætisráðherra afhent bréf vegna
bágs atvinnuástands á Þingeyri
30 manns flytja
á næstu vikum
SÓKNARPRESTURINN og hér-
aðslæknirinn á Þingeyri hafa afhent
forsætisráðherra bréf þar sem vak-
in er athygli á bágu ástandi vegna
atvinnuleysis. „Það er yfirlýst
stefna ríkisstjórnar yðar að halda
blómlegri byggð í þessu landi og
því teljum við hr. forsætisráðherra
að nú reyni á þau fyrirheit sem rík-
isstjórnin hefur gefið í þessum efn-
um,“ segir í bréfinu.
„Þessi bið sem staðið hefur í all-
an vetur sífellt eftir niðurstöðum
næsta fundar, hefur engum niður-
stöðum skilað. A Þingeyri hefur
lengi blómgast gott mannlíf sem á
sér djúpar rætur í vestfirskri menn-
ingu. Nú er svo komið að fólk neyð-
ist til þess að flýja bú sín og byggð
líkt og áhöfn sökkvandi skips. Eign-
ir þessa fólks og önnur verðmæti
sem það hefur skapað sér á lífsferl-
inum eru verðlaus. Og engrar mis-
kunnar er að vænta af hálfu hins
opinbera. Fasteignaagjöld, skattar
og skyldur eru innheimt af þeim
sem enga atvinnu hafa. Það liggur
nú fyrir að á næstu vikum eru að
minnsta kosti 30 einstaklingar að
flytjast brott úr byggðarlaginu þar
sem þeir geta ekki dregið fram lífið
við núverandi aðstæður," segir loks.
Blaðamannafélagið
Aðalfundur
og málþing
AÐALFUNDUR Blaðamanna-
félagsins verður haldinn laug-
ardaginn 3. maí nk. á alþjóða-
degi blaðamanna. Fundurinn
verður á Hótel fslandi og hefst
kl. 13. Strax að loknum aðal-
fundarstörfum kl. 14 hefst
málþing í tilefni af 100. af-
mælisári félagsins þar sem
rætt verður um stöðu fjölmiðla
og fjölmiðlunar hér á landi
undir yfirskriftinni: Hvernig
stöndum við okkur? Hvað má
betur fara?
Frummælendur á þinginu
verða Agnes Bragadóttir,
fréttastjóri, Elín Hirst, frétta-
stjóri, Páll Vilhjálmsson, rit-
stjóri, Stefán Jón Hafstein, rit-
stjóri og Þór Jónsson, frétta-
maður. Ráðstefnustjóri verður
Lúðvík Geirsson, formaður BI.
Andlát
SR. JÓHANN S. HLÍÐAR
JÓHANN S. Hlíðar
prestur lést á Landspít-
alanum aðfaranótt 1.
maí síðastliðins á sjötug-
asta og níunda aldurs-
ári. Jóhann fæddist 25.
ágúst 1918 á Akureyri,
sonur Sigurðar Einars-
sonar dýralæknis og al-
þingismanns og Guðrún-
ar Louisu Guðbrands-
dóttur húsfreyju.
Jóhann varð stúdent
frá Menntaskólanum á
Akureyri 1941, cand.
theol. frá Háskóla ís-
lands 1946 og stundaði
framhaldsnám í kennimannlegri guð-
fræði og samstæðilegri guðfræði við
Menighedsfakultetet í Ósló 1946-47.
Hann var vígður prestvígslu 1948.
Jóhann var ráðinn til predikunar-
starfa hjá Sambandi íslenskra kristni-
boðsfélaga 1947-53, settur sóknar-
prestur í Hvanneyrarprestakalli í
Siglufírði um tveggja
mánaða skeið 1951, sett-
ur aðstoðarprestur í
Vestmannaeyjapresta-
kalli 1954-56 og skipað-
ur sóknarprestur þar
árið 1956 og gegndi því
starfi til 1972. Hann vai'
sóknarprestur í Nes-
prestakalli í Reykjavík
1972-75, þegar hann j
var ráðinn prestur Is-
lendinga í Kaupmanna-
höfn og starfaði þar til
1983. Auk preststarfa
sinnti hann stunda-
kennslu við Menntaskól-
ann á Akureyri 1949-52, Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja 1954-72
og Stýrimannaskólann þar 1967-69. .
Eftir að hann lét af störfum bjó hann
um skeið á Spáni.
Jóhann var ókvæntur. Hann var <
útnefndur riddari Dannebrogsorð-
unnar.