Morgunblaðið - 03.05.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
ÞEIR eru glaðhlakkalegir iðnaðarmennirnir frá S.G. Húsum á
Selfossi sem héldu til Grænlands þar sem þeir ætla að reisa
fullbúið hús á næstu þremur vikum.
Útflutningnr á húsum frá Selfossi
A leið til Grænlands
Selfossi. Morgunblaðið.
Osta- og smjörsalan styður
Iþróttasamband fatlaðra
ÓSKAR H. Gunnarsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar sf.,
og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Iþróttasambands fatlaðra,
undirrita styrktarsamninginn. Lengst til hægri er Ólafur Magn-
ússon, framkvæmdastjóri IF.
IÐNAÐARMENN frá S.G. Húsum
á Selfossi eru á leið til Sisimut á
vesturströnd Grænlands í þeim til-
gangi að setja þar upp íbúðarhús
sem framleitt er hjá S.G. Húsum á
Selfossi. Hús þetta verður sýningar-
hús S.G. Húsa á Grænlandi og mun
umboðsmaður fyrirtækisins þar í
landi búa í húsinu.
Um er að ræða 100 fm hús sem
fór með skipi Royal Artik Line frá
Reykjavík þann 14. apríl sl. Og
komu gámarnir til Sisimut þann 19.
apríl sl. Iðnaðarmennirnir fijúga
með Flugleiðum til Kulusuk á aust-
urströnd Grænlands og þaðan með
Grænlandsflugi þvert yfir jökulinn,
til Kangerlusak og áfram þaðan
með þyrlu til Sisimut. Sisimut er
annar stærsti bær Grænlands en
þar búa 5.500 manns.
Áætlað er að það taki þrjár vik-
ur að fullklára húsið, og þá er átt
við að fullbúa húsið að utan sem
innan, með raflögnum og ljósum,
pípulögnum og hitakerfi, frá-
rennslislögnum og rotþró, gólfefn-
um, fullmáluðu, með uppsettum
eldhús- og baðinnréttingum, inni-
hurðum ásamt fiísalögðu baðher-
bergi í hólf og gólf. Búið var að
steypa sökkul undir húsið en gólf
þess er úr timbri.
Henta vel aðstæðum
Það er hald manna að vel hönnuð
og byggð hús, fyrir íslenskar að-
stæður, henti vel aðstæðum á
Grænlandi og þess vegna m.a. er
það von forráðmanna S.G Húsa að
þegar þessi hús fái að sanna sig á
Grænlandi verði eftirspurn vaxandi
og um álitlega útflutningsvöru að
ræða í framtíðinni.
OSTA- og smjörsalan sf. hefur
samið við Iþróttasamband fatlaðra
(ÍF) um að styðja ÍF vegna undir-
búnings og þátttöku fatlaðs
íþróttafólks vegna Ólympíumótsins
í Sydney árið 2000.
„Óhætt er að fullyrða að ís-
lenska íþróttafólkið á nýafstöðnu
Ólympíumóti fatlaðra í Atlanta
hafi staðið sig frábærlega vel, þar
sem það kom heim með fimm gull-
verðlaun, fern silfurverðiaun og
fimm bronsverðlaun um leið og það
setti fjölmörg heims-, óiympíu- og
íslandsmet. Árangur íslensku
keppendanna í Atlanta var afrakst-
ur markvissrar vinnu þar sem allt
var gert til þess að búa þá 10
keppendur er þátt tóku sem best
undir mótið,“ segir í frétt frá IF.
Ennfremur kemur fram að eftir
Ólympíumótið í Barcelona 1992
hafi verið mörkuð stefna, landsliðs-
þjálfarar ráðnir og í samráði við
þá undirbúningshópur fyrir mótið
i Atlanta. Á sama tíma var unnið
að því að afla tekna til þess að
hópurinn gæti undirbúið sig sem
best og náð hámarksárangri. „Af
framansögðu má ljóst vera að
íþróttasamband fatlaðra leggur
metnað sinn í að fatlaðir íslenskir
íþróttamenn séu landi og þjóð til
sóma og nú þegar er undirbúning-
ur fyrir Ólympíumótið í Sydney
hafinn, m.a. með stuðningi Osta-
og smjörsölunnar sf.“
Sveinn Áki Lúðvíksson, for-
maður ÍF, sagði eftir undirritun
samningsins að fyrir dyrum stæðu
mörg stór verkefni og stuðningur
fyrirtækisins væri þess vegna
ómetanlegur og gerði ÍF kleift að
halda áfram þeim markvissa und-
irbúningi sem nauðsynlegur væri
til árangurs í íþróttum fatlaðra.
Óskar H. Gunnarsson, forstjóri
Osta- og smjörsölunnar, sagði að
árangur fatlaðra íþróttamanna á
síðustu árum væri hvatning öllum
landsmönnum, því hann sýndi svo
ekki yrði um villst hverju sterkur
vilji og ástundun geti fengið áork-
að.
Fyrirtækinu væri sérstök
ánægja að styðja við íþróttasam-
band fatlaðra og hvetja félaga
þess til dáða um leið og Osta- og
smjörsalan hvetti fleiri fyrirtæki
til þess að gera slíkt hið sama.
Epal flutt í Skeifuna 6
VERSLUNIN Epal flutti um síð-
ustu mánaðamót í Skeifuna 6 en
húsnæðið þar sem verslunin var
áður til húsa, í Faxafeni 7, er til
sölu.
Að sögn Eyjólfs Pálssonar hjá
Epal seldi fyrirtækið dönskum
húsgagnaframleiðanda húsnæðið
að Faxafeni 7 fyrir sex árum og
hefur leigt það síðan. Aftur á
móti hefði Epal keypt nýja versl-
unarhúsnæðið sem hentaði mun
betur fyrir fyrirtækið en í Faxa-
feninu m.a. vegna þess að það
væri allt á einni hæð og sýningar-
salurinn mun stærri.
1
í sjálfskiptan - á ferð!
Chrysler Stratus 2.5 LE
er í senn sjálfskiptur og
beinskiptur - þú getur
valið á milli skiptinga eftir aðstæðum og stemningu hverju sinni. Stratusinn er aflmikill,
fjörmikill og viljugur, ríkulega búinn, fallegur, munúðarfullur, öruggur og staðfastur. Þörfum
þínum er fullnægt í Chrysler Stratus, amerískum draumabíl.
Láttu sjá þig með honum!
Chrysler Stratus • 160 hestöfl • 2.420.000 kr.
CHRYSLER STRATUS 2.5 LE. AUKARÚNADUR Á MYND: ÁLFELGUR.
Nýbýlavegi 2, Kópavogi, sími 554 2600