Morgunblaðið - 03.05.1997, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Pólland í
NATO ár-
ið 1999?
WLODZIMIERZ Cimoszewicz,
forsætisráðherra Póllands,
sagði í gær að Pólveijar kynnu
að verða fullgildir aðilar að
Atlantshafsbandalaginu
(NATO) fyrir hálfrar aldar af-
mæli bandalagsins í apríl 1999.
„Ég tel mjög líklegt að á næsta
ári geti öll aðildarríki NATO
staðfest slíkan samning og að
á 50 ára afmælinu í apríl árið
eftir verði Pólland gengið í
bandalagið," sagði forsætisráð-
herrann.
Cimoszewicz hafði eftir A1
Gore, varaforseta Bandaríkj-
anna, að bandaríska stjórnin
byggist ekki við „óvæntum
uppákomum“ á fundi leiðtoga
NATO-ríkjanna í Madrid 8. júlí.
Búist er við að leiðtogarnir
bjóði þá Pólveijum, Tékkum og
Ungveijum að ganga í banda-
lagið og Cimoszewicz kvaðst
telja að fleiri fyrrverandi
kommúnistaríkjum yrði boðin
aðild án þess að tilgreina þau.
Jeltsín undir-
ritar efna-
vopnalög
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, undirritaði í gær lög sem
þingið samþykkti í liðinni viku
þar sem
kveðið er á
um hvernig
eyðileggja
eigi efnavopn
landsins en
ekki hvenær
það verði
gert. Þingið
vildi ekki
staðfesta al-
þjóðlegan
samning um
bann við efnavopnum, sem tók
gildi á þriðjudag, og sagði að
Rússar þyrftu lengri frest og
fjármagn frá Vesturlöndum til
að eyðileggja vopnin.
Dönsk her-
sveit til
Albaníu
DANSKA þingið samþykkti í
gær með miklum meirihluta
atkvæða tillögu um að senda
65 hermenn til liðs við 6.000
manna fjölþjóðlegar hersveitir
undir stjórn ítala í Albaníu.
Gert er ráð fyrir að dönsku
hermennimir fari til landsins
10. maí.
Mikill sand-
bylur í Kaíró
MIKILL sandbylur gekk yfir
Egyptaland í gær og varð ein-
um manni að bana. Algjört
myrkur varð í um klukkustund
í Kaíró og loka varð alþjóða-
flugvellinum í borginni í tæpar
tvær klukkustundir vegna byls-
ins. Þetta er mesti sandbylurinn
í landinu í þijá áratugi.
97.000 e-töfl-
ur fínnast
HOLLENSKA tollgæslan
kvaðst í gær hafa fundið
97.000 e-töflur í ferðatösku 37
ára Indónesa á Schiphol-flug-
velli fyrir viku. Þetta er mesta
magn sem fundist hefur af e-
töflum í Holfandi.
Jeltsín
URSUTIN I BRESKU ÞINGKOSNIIIIGUNUM
Flest nöfnin í nýrri ríkissljórn Verkamannaflokksins kunn úr skuggaráðuneytinu
Menntamálaráðherrann
blíndur frá fæðingn
Aðstoðarforsætisráðherrann kom til
íslands í þorskastríðinu
Lundúnum. Reuter.
TONY Blair kynnti í gær hveijir af samheijum hans í Verkamannaflokkn-
um myndu skipa sjö mikilvægustu ráðherrastólana í fyrstu ríkisstjórn hans.
Flest voru nöfnin þegar kunn úr „skuggaráðuneyti" flokksins. Aðstoðarfor-
sætisráðherra verður John Prescott, sem kom hingað til lands í þorskastríð-
inu um miðjan áttunda áratuginn, og brá sér um borð í íslenskt varðskip.
Birtist mynd af Prescott og Guðmundi Kærnested skipherra í kosningasjón-
varpi BBC í fyrrinótt.
Gordon Brown, 46
ára, gamall vinur en
einnig keppinautur
Blairs í forystu flokks-
ins, verður fjármála-
ráðherra. Hann hætti
við að gefa kost á sér
til að leiða flokkinn
eftir dauða Johns
Smith 1994 og gerði
þannig Blair kleift að
verða kjörinn leiðtogi
tiltölulega átakalaust.
Honum er nú launaður
greiðinn með því að
vera treyst fyrir því
ráðuneyti sem ber
ábyrgð á einum við-
kvæmasta málaflokkn-
um, þegar deilur um
hugsanlega aðild Bret-
lands að Efnahags- og
myntbandalagi Evr-
ópusambandsins
(EMU) standa sem
hæst.
Robin Cook, 51 árs,
verður utanríkisráð-
herra. Hann þykir vera
einhver snjallasti
ræðumaður í þing-
mannaliði Verka-
mannaflokksins og var
fram til 1994 talsmað-
ur viðskipta- og iðnað-
armála í skuggaráðu-
neytinu. Blair fékk
hann til að taka við utanríkismálun-
um með það fyrir augum fyrst og
fremst að skerpa stefnu flokksins í
Evrópumálum.
„Kom vel fyrir“
John Prescott, 58 ára, varaleið-
togi Verkamannaflokksins, verður
varaforsætisráðherra og ráðherra
umhverfismála, samgangna og
skipulagsmála. Hann sóttist eftir
að taka við leiðtogasætinu 1994,
en sætti sig síðan við varaleiðtoga-
stöðuna. í því embætti hefur hann
skapað visst mótvægi við kappsama
endurnýjunarstefnu Blairs, þar sem
hann stendur fyrir mörg hefðbundin
gildi vinstrimanna í flokknum. A
yngri árum var hann m.a. leiðtogi
verkalýðsfélags.
Prescott kom til íslands í síðasta
þorskastríði, um miðjan áttunda
áratuginn, er íslendingar og Bretar
deildu um útfærslu íslensku efna-
hagslögsögunnar í 200 mílur.
Prescott var þá þingmaður Hunt-
ington-kjördæmis. Brá hann sér
m.a. um borð í eitt íslensku varð-
skipanna, þar sem Guðmundur
Kærnested skipherra tók á móti
honum. „Prescott kynnti sjónarmið
Breta og kjósenda sinna og vildi
heyra hvaða álit við hefðum á því.
Hann hefur sjálfsagt viljað friða
sína kjósendur með þessari ferð.
Þetta var viðkunnanlegur maður og
kom vel fyrir en þessi stutta heim-
sókn hans markaði svo sem ekki
vatnaskil í landhelgisdeilunni,“
sagði Guðmundur.
Jack Straw, 51 árs, verður innan-
ríkisráðherra. Hann þykir vera
holdgervingur hægrisveiflunnar í
stefnu flokksins, sem Tony Blair
hefur stýrt honum inn á. Á náms-
árum sínum fór hann
fyrir hreyfingu stúd-
enta, en frá því hann
tók við sem talsmaður
Verkamannaflokksins í
innanríkismálum 1994
hefur hann verið engu
síðri talsmaður „laga
og reglu“ en hinn rót-
tæki Michael Howard,
inn anríkisráðherra
íhaldsflokksins. ■
Fyrsti blindi
ráðherrann
David Blunkett fer
með menntamál í hinni
nýju ríkisstjórn. Hann
hefur verið blindur frá
fæðingu og átti að
ýmsu leyti erfiða æsku.
Með ákveðni og harð-
fylgi tókst Blunkett að
ljúka háskólanámi
þrátt fyrir fötlun sína.
Hann hefur verið þing-
maður frá 1987 og átti
ekki lítinn þátt í því að
menntamál, sem hann
hefur haft að baráttu-
máli á þingmannsferli
sínum, skyldu verða
eitt helzta kosninga-
málið að þessu sinni.
Hann þykir hvorki vera
til hægri né vinstri f
flokknum og er sem
slíkur orðinn einn af lykilmönn-
unum í kjarnaliði flokksforystunnar
í kringum Tony Blair.
Margaret Becker var eina konan
á meðal þeirra sem fengu staðfestan
ráðherradóm í gær, en hún mun
fara með viðskiptamál í nýju ríkis-
stjórninni. Becket, sem almennt er
álitin tilheyra vinstri armi flokks-
ins, sat til skamms tíma til bráða-
birgða í leiðtogasæti flokksins eftir
andlát Johns Smith en varð þriðja
í leiðtogakjörinu sem Tony Blair
vann. Becket hefur síðan verið
„skuggaráðherra" viðskipta- og
iðnaðarmála.
Nöfn annarra ráðherra verða
kunngerð um og eftir helgina. Þeir
úr hópi hinna 419 þingmanna
flokksins sem líklegastir þykja til
að hreppa ráðherrastóla eru meðal
annars Chris Smith, sem búizt er
að taki við heilbrigðisráðuneytinu.
Smith er 46 ára gamall háskóla-
maður sem Blair hefur fengið hið
ábyrgðarmikla hlutverk að hafa
umsjón með endurbótum á heil-
brigðiskerfinu. Hann þykir vera
frekar til vinstri í flokknum. Hann
er fyrsti brezki ráðherrann, sem
hefur lýst yfir samkynhneigð.
Sendu Blair
heillaóskir
Tony Blair bárust í gær heilla-
óskaskeyti frá Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra, Sighvati Björgvins-
syni, formanni Alþýðuflokksins, og
Margréti Frímannsdóttur, formanni
Alþýðubandalagsins.
I skeyti sínu vonast Davíð eftir
því að góð samskipti landanna megi
halda áfram og dafna.
John Prescott
HLUTFALL ATKVÆÐA
Reuter
Blindra-
hundur í
Downingstræti
DAVID Blunkett sést hér
koma með aðstoð blindra-
hunds síns af fundi með
Tony Blair í Downingstræti
10 í gær, þar sem nýi for-
sætisráðherrann skipaði
Blunkett menntamálaráð-
herra. Hann hefur verið
einn af lykilmönnum í
flokksforystunni.
íhalds- Verkam.- Frjálsl.
flokkur flokkur demókr.
SKIPT/NG ÞINGSÆTA
íhafdsfl. Friálsl. demókr. Verkam.fl.
165 ______46 419
29 (Skoski þjóðarflokkurinn, Sinn Fein,
Aðrir Sambandssinnar, óháðir þingmenn)
Meirlhluli Verkamannaflokks: 179 þlngs.
Heimild: BBC
REUTERS
KOSNINGAURSLIT
I BRETLANDI
Alþjóðadagur blaðamanna
56 frettamenn
drepnir 1996
ALÞJÓÐADAGUR blaðamanna
er í dag, 3. maí, og í tilefni af
því hafa þeir Jens Linde, formað-
ur alþjóðasamtakanna, og Fed-
erico Mayor, framkvæmdastjóri
Unescos.sent frá sér ávörp, sem
fara hér á eftir nokkuð stytt:
Blaðamenn eru ávallt fyrstu
fómarlömbin í baráttunni fyrir
fijálsum fjölmiðlum og í dag, 3.
maí, minnumst við þeirra, sem
hafa látið lífið, særst eða verið
fangelsaðir í þessu stríði.
Við skomm á blaðamenn að
fara varlega og sýna félögum
sínum fulla samstöðu. Það verður
til dæmis gert með því að styðja
Öryggissjóð alþjóðasamtaka
blaðamanna. Við viljum einnig
minna vini okkar í fjölmiðla-
rekstri, þá, sem nú era þátttak-
endur í hinni alþjóðlegu upplýs-
ingabyltingu, á það, að frétta-
mennska veltur á fólki, sköp-
unarmætti þess og kunnáttu.
Á síðasta ári voru 58 blaða-
menn drepnir vegna starfa sinna
og þegar sá listi var birtur var
einnig skýrt frá þeirri ætlan okk-
ar að setja alþjóðlegar reglur um
öragga fréttamennsku.
Í ávarpi Federicos Mayors,
framkvæmdastjóra Unesco,
Menningar- og menntamála-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna,
eru nefndar þær ofsóknir, sem
blaðamenn sæta í sumum heims-
hlutum, og minnt á, að frjáls
fjölmiðlun sé ein meginforsenda
lýðræðisins.