Morgunblaðið - 03.05.1997, Page 57

Morgunblaðið - 03.05.1997, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MAÍ1997 57 Merkjasala og hlaup hjá Lions ÁRLEG merkjasala Lions-hreyfing- arinnar verður nú um helgina, 3. og 4. maí. Auk merkjasölunnar standa Lionsklúbbar víða um land fyrir ýmsum skemmtunum og uppá- komum. Lions-hreyfingin hefur selt merki sín undanfarin 10 ár, en ágóði af sölunni rennur til að styrkja verk- efni hreyfingarinnar í skólum, „Að ná tökum á tilverunni“. Til að vekja athygli á baráttu Lions-hreyfingarinnar gegn vímu- efnanotkun standa Lions-klúbbar víða um land fyrir ýmsum uppá- komum um helgina. í Hafnarfirði verður t.d. skemmtun á Víðistaða- túni, sem Lionsklúbbur Hafnar- Ijarðar, Lionsklúbburinn Kaldá og Lionsklúbburinn Ásbjörn skipu- leggja. Þar hefst víðavangshlaup skólanna klukkan 13 í dag, en upp- hitun fyrir fjölskylduhlaup hefst kl. 13.30 og leggja Hafnfirðingar á öllum aldri af stað í hlaupið kl. 14. í Reykjavík verður haldin skemmtun fyrir merkjasölubörn Lions í fjölskyldugarðínum í Laugardal kl. 15-18 á laugardag. Fjölmargir Lionsklúbbar skipu- leggja uppákomur heima í héraði. Á Seyðisfirði verður t.d. keppt í hlaupi í aldursflokkunum 0-6 ára, 6-8 ára og 8-12 ára. Það er þó viðbúið að yngsti hópurinn þurfí aðstoð til að komast á leiðarenda, svo hlaupið á Seyðisfirði verði fjöl- skylduhlaup eins og víða annars staðar. -----» ♦-4----- Fulltrúaþing Kennarasam- bandsins ÁTTUNDA fulltrúaþing Kennara- sambands íslands verður haldið á Hótel Loftleiðum dagana 3. til 6. maí nk. Þingið verður sett í dag, laugardaginn 3. maí, kl. 13. Áð lokinni setningarræðu for- manns munu menntamálaráðherra, formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga og forystumenn annarra stéttarfélaga ávarpa þingið. Fyrir þinginu liggja tillögur um brejdingar á lögum sambandsins og skólastefnu ásamt tillögum um sameiningu kennarafélaganna. Þá verða rædd kjara- og réttindamál ásamt öðrum hagsmunamálum fé- lagsmanna Kennarasambands ís- lands og annarra launamanna. Á þinginu fer fram kjör for- manns, varaformanns og nýrrar stjórnar^ og nefnda Kennarasam- bands íslands. Þingið sitja 112 kjörnir fulltrúar _ auk stjórnar Kennarasambands íslands. OPIÐ OLL KVÖLD VIKUNNARTILKL 21.00 HRINGBRAUT 1 19, -VIÐ JL HÚSJÐ. Opið alla daga vikunnar 9-22 GblYFJA Lágmúla 5 Slmi 533 2300 FRÉTTIR Vorkaffi í Hússtjórnar- skólanum í TILEFNI vorkomu verður kaffi- samsæti í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík, Sólvallagötu 12, sunnu- daginn 4. maí nk. milli kl. 14 og 17. Boðið verður upp á heitar vöfflur og kaffi fyrir 300 kr. og rennur allur ágóði í lautarferðarsjóð nem- enda. Sýndar verða hannyrðir verð- andi húsmæðra og einnig verður boðið upp á nokkra skemmtun. Hússtjórnarskólinn var stofnaður 1942 og er enn í sama húsi á Sól- vallagötunni. FRÁ lautarferð Hússtjórnarskólans í Reykjavík árið 1961 Kompusala í Kolaportinu KOMPUSALA á vegum stuðnings- aðila skólabarna á Indlandi í gegn- um Hjálparstofnun kirkjunnar verð- ur í Kolaportinu 3. og 4. maí nk. Hagnaði af sölunni verður varið til þess að kaupa borð og stóla fyrir börnin. Báða dagana verður sýnt mynd- band frá ferð þangað í fyrra og sjást þar glögglega aðstæður barn- anna og þættir úr daglegu lífi þeirra. Gestir eru velkomnir að kynna sér starfið en forsvarsmenn kompusölunnar munu bjóða upplýs- ingaefni og svara spurningum. Við val á salernispappír hættir okkur um of til að láta verðið ráða kaupunum. Það er oftast á kostnað þægind- anna því þegar upp er staðið snýst málið um gæði. Lotus er þægilegur og endingargóður salernispappír. Hann er mýkri og sterkari en aðrar ódýrari tegundir og er því drýgri fýrir vikið. Prófaðu Lotus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.