Morgunblaðið - 12.07.1997, Page 24

Morgunblaðið - 12.07.1997, Page 24
24 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Ofrægingarherferð Lífsvogar AÐ undanförnu hafa samtökin Lífsvog staðið að sérkennilegri auglýsingaherferð sem beinst hefur gegn Tryggingastofnun ríkisins. Samtökin hafa í þessari herferð spurt hvort spilling væri innan Trygg- ingastofnunar og „að gefnu tilefni auglýst eftir fólki sem farið hefur í læknisskoðun vegna örorku- mats ... og þurft að greiða fyrir matið“. Síðan er hvatt til þess að spilling innan heil- brigðiskerfisins verði upprætt. Auglýsing þessi hefur birst hvað eftir annað í prentmiðlum. En ann- að hvort hefur árangurinn ekki verið að skapi samtakanna eða undirtektir við tortryggingarher- ferðina svo dræmar, að ekki varð við unað. Síðasta hal- dreipið var því að fá inni með einhliða frétt á Stöð 2 síðastliðið mánudagskvöld, þar sem málatilbúnaður á sömu nótum er hafður uppi. Fréttastofa Stöðvar 2 var þó ekk- ert að hafa fyrir því að leita álits hjá Tryggingastofnun - sem þó var ekki nein- um vandkvæðum bundið, a.m.k. ekki af hálfu TR - við þeim ásökunum og rang- færslum sem fram komu í fréttinni, svo að almenningur fengi nú að heyra báðar hliðar þessa máls á sama tíma_ eins og eðlilegt og sjáifsagt er. Álits tryggingayfirlæknis leit- aði Stöð 2 ekki fyrr en daginn eft- ir en ummæli hans þá slitin veru- lega úr samhengi. Af þessum sök- um er nauðsynlegt að koma eftir- farandi á framfæri til að leiðrétta þann misskilning sem málflutning- ur Lífsvogar byggist á: Aldrei þarf að greiða fyrir örorkumat hjá Tryggingastofnun Fólk sem kemur í örorkumat á Tryggingastofnun ríkisins til að fá úr því skorið hvort það eigi rétt á bótum frá stofnuninni samkvæmt almannatryggingalögunum, þarf að sjálfsögðu aldrei að greiða fyrir það. Þegar talsmenn samtakanna Lífsvogar fullyrða hið gagnstæða, er annað hvort vísvitandi eða vegna vanþekkingar verið að rugla saman örorkumati fyrir Ti-yggingastofnun og einkaörorkumati. Ororkumat á Tiyggingastofnun geta verið tvenns konar. Annars vegar er örorkumat vegna lífeyristiygginga, þar sem metinn er örorkuiífeyrir (75% ör- orka) eða örorkustyrkur (50 eða 65% örorka). Hins vegar er örorku- Sigurður Thorlacius Tryggingastofnun hefur óskað eftir því að Ríkisendurskoðun kanni, segir Sigxtrður Thorlacius, hvort eitthvað sé hæft í ásökunum talsmanna Lífsvogar. mat vegna afleiðinga slysa sem bótaskyld eru hjá Tryggingastofn- un (einkum vinnuslys og óhöpp í tengslum við meðferð á sjúkra- stofnunum). Örorkumat er unnið af læknum Tiyggingastofnunar og notað til að meta rétt fólks á bótum þaðan. Einkaörorkumat hefur hins vegar ekkert gildi á Tiygginga- stofnun. Þess konar mat er hins vegar notað til að meta rétt fólks til bóta annars staðar, t.d. hjá tiyggingafélögum. Ýmsir læknar annast slíkt mat, m.a. læknar sem starfa á Tiyggingastofnun, en þeg- ar þeir meta örorku vegna slysa sem ekki eru bótaskyld hjá stofnuninni, fer það mat fram á einkastofu þeirra og er stofnuninni algerlega óviðkomandi. Alvarlegar ásakanir Talsmenn samtakanna fullyrða að það geti tekið mjög langan tíma, jafnvel nokkur ár, að fá örorku- mat, sérstaklega fyrir fólk sem tel- ur sig hafa orðið fyrir læknamistök- um og hyggst leita réttar síns. Hið rétta er að örorkumat við Trygg- ingastofnun gengur alla jafna fljótt fyrir sig. Biðtíminn er yfirleitt ekki nema fáeinar vikur, nema helst ef afla þarf mikilla gagna (t.d. læknis- vottorða), sem getur tekið nokkurn tíma. Látið er að því liggja að lækn- ar Tryggingastofnunar vinni ekki sín störf við stofnunina nema með því að greiða læknunum mútur. Þetta eru mjög alvarlegar ásakan- ir og er í athugun hvort höfða eigi meiðyrðamál vegna þeirra. Hjá talsmönnum samtakanna kemur fram að þeir þekki dæmi um' slíkar mútugreiðslur. Trygg- ingastofnun óskar eindregið eftir að þau dæmi komi fram í dagsljós- ið, þannig að hægt sé að kanna þau ofan í kjölinn. Trygginga- stofnun hefur óskað eftir því að Ríkisendurskoðun kanni hvort eitthvað sé hæft í ásökunum tals- manna samtakanna Lífsvogar. Höfundur er trygginga- yfirlæknir hjá Trygginga- stofnun ríkisins. ISLENSKT MAL Umsjónarmaður Gísli Jónsson 909. þáttur FYRST er hér bréf frá Helga Hálfdanarsyni sem mér þótti betur fengið en ófengið og ég tek mér bessaleyfi að birta: yKæri Gísli! I 907. Mbl.-þætti þínum bar snúna bragarhætti á góma. Þar hafði Ingvar Gíslason orð á því í skemmtilegu bréfi, „að einn og einn angurgapi hætti sér út á þann hála ís“ að yrkja tiltekna gerð af stúfhendu og lét þetta smellna dæmi fylgja (að gefnu tilefni): Ekki þijóta þakkarhót við þig og mig: „Lætur hún fótinn fæða sig.“ Og þá datt mér það í hug, að á sínum tíma sárnaði ýmsum stórlega, að Halldór Laxness skyldi hafa orð á því, að íslend- ingar væru lúsugir. Þegar hann síðar hlaut Nóbelsverðlaun, komst gamall Þingeyingur svo að orði: „Sko til! Þetta fær hann fyrir lúsina.“ - Þá varð einum angurgapa á Húsavík þessi stúfhenda á munni: Einn sem hefur illa gefinn ort um lýs tekur í nefið nobel-pris. En Nobelpris (nobel pris) þýðir, sem kunnugt er, eftir atvikum „Nóbelsverðlaun“ eða „göfugt neftóbak". Þetta er nú ekki birtingar- hæft, Gísli minn. Blessaður ævinlega." ★ Þegar ég las Skáldatíma Halldórs Laxness í fyrsta sinn, vissi ég ekki fyrir víst hvað orð- ið skemaður þýddi né hvernig það væri til komið. Merking þess hefur smám saman skýrst fyrir mér. Nú eru góðir menn að gera orðalykil að verkum Halldórs Laxness, og er það mikið þjóð- þrifaverk. Guðrún Kvaran orða- bókarritstjóri hjálpaði mér um eftirfarandi dæmi: 1) „hann [Freud] var nú um þessar mundir sjálfur orðinn pontifex maximus, sem vissi alt í jörðu og á, einn af skemönnum aldarinnar." (Skáldatími, bls. 53.) 2) „í Rússlandi sjálfu eimir enn sterklega eftir af þeirri trú ... að rithöfundurinn sé nokkurskonar skemaður." Og hvað er þá skemaður? Förum fyrst í Árna Böðvarsson: „særingaprestur, trúður, blekk- ingamaður, hræsnari.“ Þá í Ásgeir Blöndal: „ské- maður=hræsnari, sá sem er með uppgerð, sjá skímaður". [Það skal fram tekið að Á.B. gefur báðar gerðirnar sem eru í Á.B.M.]. Undir skímaður seg- ir Ásgeir (stytt): „loddari, hræsnari, líklega skylt skí (sjá hér á eftir), tæpast ummyndun úr sjaman sem komið er úr Asíumálum um rússnesku í önn- ur Evrópumál, sbr. e. shaman, þ. schamane .. . =töfralæknir, seiðkarl." Um skí hafði Ásgeir áður sagt: „Blekkingar, sjónhverf- ingar. Uppruni ekki fullljós, hugsanlega skylt skjár og nýno. skía=vera gagn- sær .. . og [hafi] upphaflega merkt ljósbrigði,rfálsýnir.“ Mér sýnist þá að Halldór Laxness noti orðið í merking- unni blekkingameistari, loddari. ★ Hlymrekur handan kvað: Mósel er göfugast matvína, mögnuðust tunpa er latína, en Gústi á Flekki hann gat bara alls ekki gert upp á milli Katrína. ★ Þakkir Umsjónarmaður vill ekki lengur láta hjá líða að þakka hér starfsfólki Morgunblaðsins fyrir langa, góða samvinnu, enda ólíklegt að hann eigi eftir að skrifa aðra níu hundruð þætti um íslenskt mál. Ég vona að lesendur hafí tekið eftir því, að lengi, lengi hafa villur verið mjög fátíðar í þáttunum. Þeir, sem á móti handritum taka, setjarar, umbijótendur og prófarka- lesarar hafa sameinast um að vinna verk sitt vel. Er það ærið vandasamt, því að handrit eru misjöfn og textinn oft erfiður setningar. Vandvirkni þess fólks, sem hér á hlut að máli, er ákaflega mikils virði. ★ Smælki 1) Enn halda menn áfram að misþyrma orðinu flóra sem merkir gróðurríki, áður blóm- eða gróðrargyðja. Fréttamaður á Stöð tvö, sá sem ég hafði áður hrósað oftar en einu sinni fyrir gott málfar, sagði að kvöldi 13. maí að nú væri fram kominn „nýr meðlimur í flóru útvarpsstöðva". Hann hefur trúlega meint að fjölbreyti- legum útvarpsstöðvum hafi enn fjölgað. 2) Margsinnis var sagt í fréttum að Hans Markús Hafsteinsson hefði fengið „flest atkvæði", enda þótt fram- bjóðendur væru aðeins tveir. H.M.H. fékk fleiri atkvæði en hinn. 3) Greina verður á milli kvenmannsnafnsins Ástríður og fleirtölunnar af ástríða. í kvenheitinu er á-ið stutt, eins og í ást, en í hinu orðinu er á-ið langt, enda er það forskeyti, orðið samsett á-stríður. Eitthvað stríðir á menn, en það er engin ?ríðandi ást. 4) Ábendingarfornafnið sá er í hvorugkyni fleirtölu þau. Tildrög málsins voru þau. Heyra mátti góðan fréttamann segja: tildrög málsins voru sú. 5) Mér finnst að Sjónvarpið ætti að banna „ókei“, og það allt eins í leiknum auglýsingum. Auk þess hringdi til mín góður maður og hafði heyrt viðmælanda í útvarpsfréttum um orkumál nota sögnina að „verkefnafjármagna". Er þetta það sem kallað var að lána? Þá þótti umsjónarmanni skorta j-hljóð í fréttum Sjónvarpsins 2. júlí. Þar heyrðist: „Tíðni tvíburafyla er misjöfn eftir hestakynum", sbr. þátt nr. 903. Og skilríkir menn eru með ágætt heiti á Pathfinder, sem sé Stígfinnur. Mannskemm- andi skoð- anakannanir ÞANN 23. f.m. gerði „Stöð 2“ mikla frétt úr skoðanakönn- un, sem birst hafði í síðasta blaði tímarits- ins „Mannlíf" (5. tbl.). „Gallup" hafði gert hana fyrir „Mannlíf". Spurt var um traust almennings til ís- lenska dómkerfisins og um leið um Geirf- inns- og Guðmundar- málið svokallaða. Rit- stjóri „Mannlífs" hafði fjallað alleinhliða um það mál í næst síðasta „Mannlífi“ (4. tbk). Skoðanakönnun þessi er svo ómerkileg, að hún getur tæpast talist frétt. Ríkissjón- varpið hafði látið hana fram hjá sér fara, þar til 9. þ.m., að sagt var frá henni og fleiri hæpnum könnunum, sem „Gallup“ hafði gert. Lítið upp úr svona skoðanakönnun leggjandi Ríkissjónvarpið hefur í tvígang á þessu ári sýnt kvikmynd um sama sakamál og að ofan greinir og umræðuþátt í beinu framhaldi um það. Kvikmyndin er aðeins séð frá einni hlið sakamálsins og ýkt. Kvikmyndin gat ekki talist mark- tæk. Orð sumra höfðu verið tekin úr samhengi. Til dæmis höfðu lög- fræðingarnir Valtýr Sigurðsson síðar héraðsdómari og Örn Höskuldsson hrl. verið klipptir inn í kvikmyndina eitt augnablik á óviðeigandi hátt. Hvorugur þeirra verðskuldaði slíka meðferð, báðir trausts verðir. Einn dómur er ekki nægur til alhliða umsagnar Þá er þess að gæta, að dóms- störf snerta svo mörg svið mann- lífs, að það er nánast vonlaust, að lögmenn geti t.d. með einu orði metið dómstörf Hæstaréttar; eins og spurningarnar höfðu verið lagð- ar fyrir. Engan lögmann þekki ég, sem efast yfirleitt um réttsýni Hæstaréttar, enda þótt niðurstaða í máli hljóti venjulega að ganga gegn skoðun annars málsaðilans og valda oft vonbrigðum. Fæstir eru dómbærir í eigin sök. Hitt má ekki gleymast, að hæsta- réttardómarar eru að- eins venjulegir menn; velmenntaðir í lögum og góðum kostum búnir að ætla má. Niðurstaða byggð á ótraustu úrtaki Aðeins 300 karlar og 300 konut' voru spurð álits á íslenska dómskerfmu. Af þeim neituðu um 150 manns að-svara. Eftir stóðu ca 225 konur og jafnmargir karlar á öllum aldri. I okkar litla þjóðfélagi virðist harla auðvelt, segir Gunnlaugur Þórðarson, að kalla fram með skoðana- könnun hvaða niður- stöðu sem vera skal. Af þeim voru þó nokkrir, aðallega karlar, sem töldu dóminn réttan. Sá fámenni hópur, sem eftir stóð, gaf „sláandi niðurstöður", að sögn fréttamanns Stöðvar 2 m.a.: „Kon- ur og yngra fólk hefur minni trú á dómskerfinu en karlar og eldra fólk.“ Þessi staðreynd segir miklu meira en „Gallup“ áttar sig á. Það eru nefnilega talsvert fleiri karlar og eldra fólk, en ungt fólk og kon- ur, sem hafa reynslu af dómstólum. Vafasamt er að sumt af því síðar- talda viti fyllilega livað „dóm- skerfi" merkir. Fjarstæð fullyrðing Álit þess hóps varð að eftirfar- andi ályktun tímaritsins: „Einungis Gunnlaugur Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.