Morgunblaðið - 12.07.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 39
I
I
I
I
:
1
.
i
1
1
i
1
i
i
<
I
\
<
<
<
<
I
I
BREF
TBL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Til yfirvalda
Frá Þorbjörgu Pálsdóttur:
SUMIR eru „drengskaparmenn" -
aðrir skilja ekki einu sinni hvað átt
er við með orðinu. Það er alltaf ver-
ið að látast og blekkja - einiægni
og hreinskilni þykja blátt áfram
hlægileg - eins og það er mikið ein-
faldara.
Stjórnmálamenn leika þetta enda-
laust en flestir sjá í gegnum þá -
svo lítið dæmi sé tekið: að sami
flokkur (eða maður) talar alltaf
öðruvísi eftir því hvort hann er í
stjórn eða andstöðu - allt gjörbreytt
- aðalatriðið er aldrei að byggja upp
- heldur að rífa niður - allt svo
ótrúlega neikvætt. Að láta sér detta
í hug að þeir þingmenn eða ráðherr-
ar þroskist með tímanum eins og
maður ætlast til af skólabörnum og
unglingum, dettur engum í hug.
Breyttur hugsunarháttur er það,
sem við þurfum númer eitt en hvern-
ig má breyta heilli þjóð - þó lítil sé
- í þroskaðra fólk? Fólk sem hefur
farið til þróunarlandanna og unnið
þar um tíma hefur flest (ef ekki allt)
haft orð á hvað það hafi breytt hugs-
unarhætti þess og verðmætamati.
Þetta hefur mér dottið í hug að við
ættum að notfæra okkur og senda
alla þjóðina í smáskömmtum - mis-
lengi - eftir því sem við reynumst
þurfa - læra um leið og við hjálpuð-
um til - ódýrasti og líklega árang-
ursríkasti lífsins skóli, sem hugsan-
lega gæti bjargað okkur. Mig langar
að koma því hér að - langt síðan
mér datt það í hug - að í stað þess
að prestarnir kenni börnunum allt,
sem þeir eru að reyna að troða í
fermingarbörnin - fari sér hægar -
töluðu bara einlægt við börnin og
útlistuðu fyrir þeim þýðingarmesta
boðorðið - „að koma fram við aðra
eins.og þú vilt að aðrir komi fram
við þig“. Bara þetta allan veturinn,
kannski eitthvað sitji þá eftir. Stjórn-
málamenn ættu fyrstir manna að
æfa sig í þessu. Ég var að lesa ágæta
grein Halldórs Þorsteinssonar „I
stríði okkar við yfirvöld" sem eru
ótrúleg og ódrengileg - eins og við
ættum við misindismenn!
Fyrir löngu las ég einhvers staðar
að það mætti mæla (meta) menningu
þjóðar af því „hvernig hún kæmi
fram við þá, sem minnst mættu sín“.
Þessi græðgi sem hér viðgengst er
á lægra plani, en „skepnan" sýnir
eftir að hún er södd. Sumir hafa
enga samvisku eða vantar þá greind?
ÞORBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Sjafnargötu 14.
Fóstri Jóns
Guðmundssonar
Frá Hilmari Biering:
ÉG LAS greinar Einars Laxness í
Lesbók Morgunblaðsins um Jón
Guðmundsson, ritstjóra og alþingis-
mann, mér til
mikillar ánægju.
Einar gerir
Kristínu, dóttur
Jóns, Harald
Krabbe, manni
hennar og niðj-
um góð skil. Um
Jón Guðmunds-
son skrifaði Ein-
ar Laxness bók
sem út kom 1960
á vegum Sögufé-
lagsins og Ísafoldarprentsmiðju.
í grein Einars í Lesbók, 31. maí,
segir hann, að þegar slitnaði upp
úr hjónabandi foreldra Jóns Guð-
mundssonar hafi drengurinn ient
meðal vandalausra. Rétt er það en
þarna hefði verið gott tækifæri til
að leiðrétta villu sem er í áður-
nefndri bók Einars um Jón Guð-
mundsson.
I bók sinni segir Einar Laxness
að Jón Guðmundsson hafi 7 ára
gamall, árið 1815, verið tekinn í
fóstur af James Biering, kaupmanni
í Reykjavík. Þetta er rangt því eng-
inn með því nafni var þá til í Reykja-
vík. Hið rétta er að Hans Peter
Vilhelm Biering, verslunarstjóri, og
kona hans Anna Catherine, fædd
Hölter, tóku Jón Guðmundsson í
fóstur og ólu hann upp til 15 ára
aldurs. Þetta staðfestir til dæmis
Jón Helgason, biskup, í bók sinni
„Þegar Reykjavík var fjórtán
vetra“.
Það er sagt að töluð orð verði
ekki aftur tekin og enn síður verða
líklega skrifuð orð í sagnfræðibók
aftur tekin. Mér þykir samt rétt að
vekja athygli á þessari villu og ég
vona að hún eigi ekki framhaldslíf
ef sagnfræðingar fara að sækja
fróðleik í eldri fræði.
Við þetta má svo bæta, til gam-
ans, að Hans Peter Biering, fóstri
Jóns Guðmundssonar, settist að í
Reykjavík árið 1797 og því hefur
hann og niðjar hans búið í Reykja-
vík í 200 ár.
HILMAR BIERING,
Flyðrugranda 6.
Stuðningur við starf-
andi prest í Osló
Frá Félagi ísl. námsmanna í Ósló
og nágrenni:
VIÐ undirrituð í stjórn FÍSN viljum
lýsa yfir stuðningi okkar við Sigrúnu
Oskarsdóttur sem er starfandi prest-
ur í Ósló. Hún er einn umsækjenda
um stöðu íslendingaprests hins_ ný-
stofnaða íslenska safnaðar í Ósló.
Við teljum hana vel til þess fallna
að sinna þessu starfi þar sem hún
hefur sérþekkingu á högum náms-
manna vegna setu sinnar í Háskóla-
og stúdentaráði við Háskóla Islands,
auk þess_ sem hún er í góðum tengsl-
um við íslendinga hér í Ósló.
F.h. FÍSN í Ósló og nágrenni,
HANNA P. FRIÐBERTSDOTTIR,
formaður,
JÓN ÆVARR SIGURBJÖRNSSON,
gjaldkeri,
ELÍN BERGLIND VIKTORSDÓTTIR,
fulltrúi SÍNE og SÍDS,
KATRÍN ÝR KJARTANSDOTTIR,
ritari,
GUÐBJÖRG GRÍMSDÓTTIR,
meðstjórnandi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan bátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Xí®lbM.i‘SOTte*8' Inc.
Dýraglens
Tommi og Jenni
Að eiga eldri systur er eins og að eiga áttavita sem vísar manni leiðina gegnum lífið ... Er þetta satt?
Ég er ekki hérna ...