Morgunblaðið - 16.07.1997, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fínn miðill hefur
útsendingar í
Aðalstræti 6
ÚTVARPSFÉLAGIÐ Fínn miðill
hf. hefur flutt starfsemi sína að
hluta til I Aðalstræti 6, Morgun-
blaðshöllina gömlu, og hefur FM
95,7 hafið útsendingar þaðan.
Stefnt er að því að öll starfsemi
verði komin í Aðalstræti 6 í sept-
ember.
Fínn miðill hf. er sameinað
fyrirtæki FM 95,7 og Aflvaka,
sem rekur Aðalstöðina, X-ið og
Klassík FM. í stjórn félagsins eru
Baldvin Jónsson, sljórnarfor-
maður, og Árni Samúelsson.
„Það er gott að vera kominn
aftur á gamla staðinn,“ segir
Baldvin, en hann var um árabil
auglýsingastjóri Morgunblaðs-
ins. „Það má glöggt finna að fjöl-
miðlaandinn svífur ennþá yfir
vötnum.“
Hann segir ekki síður ánægju-
legt að hljóðverin verði staðsett
þar sem Gallerí Borg er til húsa,
þannig að dagskrárgerðarmenn
hafi útsýni yfir Ingólfstorg.
Framtíð Klassík FM óráðin
Með sameiningunni er fyrst og
fremst verið að hagræða og auð-
velda viðskiptavinum að nálgast
markaðinn í gegnum ljósvaka-
miðla. Er hugmyndin sú að selja
nýjum aðilum aðgengi að fyrir-
tækinu í náinni framtíð.
Markhópur X-sins og FM 95,7
hefur verið yngri kyslóðin og svo
verður áfram. Aðalstöðin mun
einnig halda sínum sérkennum
en óráðið er hvað verður um
Klassík FM.
Fastráðnir starfsmenn Fíns
miðils eru á bilinu 30 til 35 og
eru um 15 manns i hlutastarfi.
Ekki verður ráðið fleira starfs-
fólk í bili og er stefnan sú að
hver og einn haldi starfi. Frek-
ari stöðuveitingar innan félags-
ins verða faldar nýjum útvarps-
sljóra, sem ráðinn verður á næst-
unni.
Fréttir á X-inu og Aðalstöðinni
Fréttastofa FM 95,7 verður
áfram rekin með sama hætti og
hingað til. Aðalstöðin og X-ið
munu einnig hefja fréttaútsend-
ingar í haust. Ekki verður sent
út á samtengdum rásum. Fréttir
á X-inu eiga að höfða meira til
yngri kynslóðarinnar en fréttir
á Aðalstöðinni verða almennari.
„Stöðvamar munu halda áfram
því brautryðjendastarfi sem þær
hafa unnið að þvi Ieyti að gefa
ungum og óreyndum útvarps-
mönnum tækifæri," segir Bald-
vin. „Margir af vinsælustu út-
varpsmönnum landsins stigu sín
fyrstu skref hjá okkur og við
verðum áfram útungunarstöð fyr-
ir hæfileikaríka útvarpsmenn."
Morgunblaðið/Arnaldur
FM 95,7 hefur hafið útsendingar úr gömlu Morgunblaðshöll-
inni. Núverandi húsnæði er þó til bráðabirgða. Hyóðverin verða
síðar meir þar sem Gallerí Borg er til húsa.
Niu buðu í Mývatnsveg
ÞINGVIRKI sf og Akverk ehf í
Mývatnssveit buðu sameiginlega
lægst í lagningu Mývatnsvegar á
kafla milli Stekkjarness og Kísil-
vegar en tilboð voru opnuð hjá
Vegagerðinni í fyrradag.
Tilboð fyrirtækisins nam 40,2
m.kr. en kostnaðaráætlun verk-
kaupa 50,6 m.kr.
Alls bárust 9 tilboð í verkið.
Möl og sandur, Akureyri, bauð
41,3 m.kr., Jarðverk ehf á Dalvík
bauð 41,8 m.kr. og Klæðning í
Garðabæ einnig 41,8 m.kr. Jarð-
verk í Fnjóskadal bauð 43,6 m.kr.,
Héraðsverk, Egilsstöðum 44,6
m.kr., G. Hjálmarsson, Akureyri
45,1 m.kr og Sniðill hf, Mývatns-
sveit 48 milljónir króna. Hafnarverk
ehf á Akureyri og Rögnvaldur
Árnason á Sauðárkróki buðu sam-
eiginlega 65,8 m.kr.
Morgunblaðið/Golli
LISTAVERK og önnur mannvirki Samúels Jónssonar í Selárdal liggja undir skemmdum og
eru uppi hugmyndir um að reynt verði að vernda verkin og endurbyggja.
Listaverk og mannvirki Samúels Jónssonar í Selárdal
Listamenn taki verk
Samúels í fóstur
BÍLDUDALSSÓKN hefur ákveðið að leita eftir viðhorfi ein-
staklinga, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana til framtíðar
Selárdalskirkju en hún er illa farin af veðri og vindum.
FERÐAMÁLAHÓPUR atvinnu-
málanefndar Vesturbyggðar hefur
beitt sér fyrir að ná saman hópi
fólks sem er tilbúið að leggja á
sig sjálfboðavinnu til að vernda
og endurbyggja mannvirki og
listaverk Samúels Jónssonar í Sel-
árdal í Arnarfirði. Hann hefur
stundum verið nefndur listamað-
urinn með barnshjartað.
Hugmyndin er meðal annars að
fá listamenn þjóðarinnar til að
taka verk í fóstur og að félagasam-
tök iðnaðarmanna taki að sér end-
urbætur á mannvirkjum.
Haukur Már Sigurðarson á Pat-
reksfírði og einn áhugamanna um
verndun listaverkanna segir að
þau séu mjög illa farin enda hafði
þeim ekki verið haldið við árum
saman eða þar til Ólafur Gíslason
bóndi og hagleiksmaður tók upp
á því að lagfæra þau fýrir nokkr-
um árum síðan. Segir Haykur að
Ólafur hafí fram að þessu unnið
mjög óeigingjamt starf við vemd-
un verkanna og að hann hafí að
auki lagt mikið til kirkjunnar.
Haukur sagði ljóst að mikil
vinna væri fýrir höndum, sem taka
myndi mörg ár og til þess þyrfti
töluvert fjármagn. Sagði hann að
fagmenn þyrftu að koma þar að
bæði við uppbyggingu mannvirkja
og ekki síst listaverka. Fyrsta
skrefíð yrði að fá metið hvað þyrfti
að gera og hvemig bæri að standa
að verki, gera verkáætlun til nokk-
urra ára og kostnaðaráætlun. Þeg-
ar þær upplýsingar lægju fyrir
væri hægt að heíja fjársöfnun.
Hugmyndir hafa komið fram
um að listmenn tækju listaverk í
fóstur og sæju um endurnýjun og
viðhald á einu verki í ákveðinn
árafjölda. Verkið mætti vinna með
Myndlistarskólanum eða með
samningi beint við þekkta lista-
menn. Eins hafa komið fram hug-
myndir um að fá listamenn til
þess að gefa verk til sölu á upp-
boði til fjáröflunar.
Sagði Haukur að hugmyndir
væru um að sami háttur yrði hafð-
ur á við viðgerð á mannvirkjum
sem Samúel reisti en að þeim verk-
þætti þyrfti að koma önnur verk-
þekking og því væri rétt að leita
til Iðnskólans, samtaka iðnaðar-
manna eða skyldra aðila þannig
að félagasamtök iðnaðarmanna
eitt eða fleiri tækju byggingu í
fóstur.
Talsverður straumur
ferðamanna í Selárdal
„Ferðamannastraumur í Selár-
dal er nokkur og því orðið brýnt
að þar verði komið upp salemisað-
stöðu og kemur til greina að setja
upp eina slíka í hús á svæðinu sem
komið er í eyði,“ sagði Haukur.
„Þetta eru allt frumhugmyndir og
ljóst að ná þarf samstöðu allra sem
málinu tengjast áður en farið er
af stað og því er enn langt í land
með að við sjáum þessar perlur
íslenskrar alþýðulistar í þeirri
mynd sem við vildum helst sjá.“
í Selárdal er einnig Selárdals-
kirkja reist af Samúel og sam-
þykkti sóknarnefnd Bíldudals-
sóknar fýrr í sumar að leita bæði
innan sóknar og utan eftir við-
horfi einstaklinga, félagssamtaka,
fyrirtækja og stofnana til framtíð-
ar kirkjunnar. Hún þjóni ekki leng-
ur safnaðarhlutverki og þarfnast
gagngerra endurbóta.
„Okkur finnst þetta vera mikill
vandi að fást við,“ sagði Herdís
Jónsdóttir formaður sóknarnefnd-
ar. „Þetta er sögufrægur staður
og dalurinn myndi missa mikið ef
kirkjan fer en við emm fámenn
sókn og myndum eiga erfítt með
að halda uppi eftirliti og umsjón
með kirkjunni. Til þess yrðum við
að fá aðstoð annarsstaðar frá. Við
viljum því endilega að fólk hugsi
um þetta og þá sérstaklega brott-
fluttir Selárdælingar hvort þeir
hafí áhuga á að veita málinu eitt-
hvert lið.“
>
>
l
tapast í gjaldþrotum
340 millj.
TÆPAR 340 milljónir króna töpuð-
ust í gjaldþroti tveggja trésmiðja.
Önnur þeirra var tekin til gjald-
þrotaskipta í mars 1993, en hin í
febrúar 1997. Skiptum í þeim lauk
í byijun sumars.
Bú Trésmiðju Þorvaldar Ólafs-
sonar hf. var tekið til gjaldþrota-
skipta árið 1993. Samkvæmt út-
hlutunargerð úr búinu greiddust
að fullu samþykktar forgangskröf-
ur að fjárhæð rúmar 3,2 milljónir
króna. Upp í almennar kröfur, sem
samtals voru samþykktar, að fjár-
hæð tæpar 263,3 milljónir króna,
greiddust tæpar 530 þúsund krón-
ur, eða 0,2%. Ekkert greiddist upp
í eftirstæðar kröfur.
Bú Trésmiðjunnar Samtaks ehf.
á Selfossi var tekið til gjaldþrota-
skipta í febrúar sl. Skiptum lauk
án þess að greiðslur fengjust upp
í lýstar kröfur, sem voru að fjár- |'
hæð tæpar 73,6 milljónir króna, |
auk áfallinna vaxta og kostnaðar k
eftir úrskurðardag gjaldþrota- ■
skipta.