Morgunblaðið - 16.07.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Bæjarstjórn ræðir styrk til KA
Fleiri beiðnir
munu berast
EINNAR milljónar króna styrkur
úr bæjarsjóði til Handknattleiks-
deildar KA vegna þátttöku félags-
ins í Evrópukeppni félagsliða var
til umræðu á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar í gær en samþykkt var
á fundi bæjarráðs í iiðinni viku að
veita styrkinn.
Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, sagðist hafa samúð með
málstaðnum en dapurlegt væri að
svo væri ástatt fyrir íþróttahreyf-
ingunni að ekki væri unnt að taka
þátt í keppni af þessu tagi án þess
að til kæmu styrkir úr bæjarsjóði.
Þá benti hún á að í þeirri dagskrá
sem fyrir bæjarstjómarfundi lá
hefði íþrótta- og tómstundaráð
þrívegis bókað að það sæi sér ekki
fært að styrkja einstaklinga eða
félög og velti því upp hvort ekki
væri ástæða til að endurskoða þá
aðferð sem viðhöfð væri á vegum
bæjarins vegna styrkja.
Þijár milljónir í styrki og
viðurkenningar
Þórarinn B. Jónsson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að bikarmeist-
ara- og íslandsmeistaratitlar KA í
handbolta á liðnum misserum væru
með mestu viðburðum í íþróttasög-
unni á Akureyri og gladdist hann
yfir góðum árangri liðsins. Hann
nefndi að á þessu tímabili hefði
liðið fengið 3 milljónir króna í við-
urkenningu og styrki úr bæjar-
sjóði. „Ég gleðst yfir því að bærinn
hafi þennan fjárhagslega styrk að
geta reitt fram úr erminni eina
milljón í þessu skyni,“ sagði Þórar-
inn.
Guðmundur Jóhannsson, Sjálf-
stæðisflokki, sem situr í íþrótta-
og tómstundaráði sagðist ánægður
fyrir hönd KA með styrkinn en
hann sæi fyrir sér að beiðnum um
styrki af þessu tagi myndi eftir
þessa afgreiðslu fjölga á næst-
unni. Benti hann á að ráðið hefði
nýlega þurft að neita ungum
íþróttamönnum um styrki vegna
landsliðsferða. KA hefði fengið þó
nokkurt fé úr bæjarsjóði vegna
góðs árangurs og hann liti svo á
að þeir peningar ættu að fara í
rekstur félagsins, m.a. í keppnis-
ferðir. „Ef tap er á svona ferðum
þá hætta menn við þær, það er
góður rekstur.“
Guðmundur Stefánsson, Fram-
sóknarflokki, nefndi að meistara-
flokkar hefðu meiri möguleika til
tekjuöflunar en aðrir en kostnaður
við rekstur þeirra væri líka mest-
ur. Endar næðu víða ekki saman.
„íþróttastarfsemi af þessu tagi
kostar meira en svo að áhuga-
mannafélög geti staðið undir
henni.“
L Y STIG ARÐURINN á Akureyri
er nú í fullum blóma og þangað
leggja fjölmargir Ieið sína, eink-
um á góðviðrisdögum. Börnin
una við leiki sína daglangt í
garðinum og sífellt ber eitthvað
nýtt fyrir augu, þeir sem eldri
eru hafa sennilega meira gaman
af að skoða þær ótalmörgu
plöntutegundir sem í garðinum
þrífast og útlendingar sem
heimsækja garðinn furða sig
margir á hversu fjölbreytt flór-
an er. Það getur líka verið gott
að slappa af í garðinum, grípa
bók og sökkva sér ofan í bók-
menntirnar líkt og þessi útlendi
gestur gerði í blíðskaparveðri
gærdagsins.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
GÍFURLEGAR endurbætur hafa farið fram á húsnæðinu við Strandgötu 7 þar sem nýr veitinga-
og skemmtistaður, Kaffi Akureyri, opnar nk. föstudag.
Kaffi Akureyri opnar
Lysti-
garðurinn
í blóma
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
KAFFI Akureyri, nýtt kaffihús,
bar og skemmtistaður verður opn-
aður að Strandgötu 7 á Akureyri
næstkomandi föstudag. Það er
hlutafélagið Strandkaffi ehf. sem
rekur staðinn en eigendur eru Sig-
ríður Beinteinsdóttir, Grétar Örv-
arsson og Magnús Sigurbjörnsson.
Staðurinn verður opinn frá kl.
11 á morgnanna og fram til kl.
01 virka daga og til kl. 03 um
helgar. Eigendur staðarins er
bjartsýnir þrátt fyrir að samkeppn-
in á þessum markaði sé mjög hörð.
„Við ætlum að vera best og hugsa
um þarfir fólksins og við munum
m.a. bjóða upp á besta kaffiúrval
í bænum,“ sagði Sigríður.
Lifandi tónlist
og diskótek
Strandgata 7 er 450-500 fer-
metra hús á tveimur hæðum og til
að byija með verður skemmtistað-
urinn á jarðhæðinni en stefnt er
að því opna upp á aðra hæð síðar.
Boðið verður upp á lifandi tónlist
og diskótek en á Kaffi Akureyri
er tæplega 70 fermetra dansgólf.
Sigga og Grétar munu að sjálf-
sögðu verða í hópi þeirra tónlistar-
manna sem troða upp á staðnum.
Timburhúsið sem hafist var
handa við að byggja við Strand-
IÐNAÐARMENN og eigendur Kaffis Akureyrar höfðu í nógu að
snúast þegar ljósmyndari Morgunblaðsins leit þar við. F.v. Magn-
ús Sigurbjörnsson, Sigríður Beinteinsdóttir, Ingibjörg Gunnars-
dóttir og Grétar Örvarsson.
götu 7 árið 1904 brann til kaldra
kola í brunanum mikla árið 1906.
Árið eftir var timburhús það sem
þar stendur nú reist og reyndar
var byggt vil húsið fyrr á öldinni.
Kristín Fggertsdóttir kennari og
bæjarfulltrai frá Kroppi í Hrafna-
gi'shreppi rak þar hótel frá árinu
1015. Síðar keyptu Kaupfélag
verkamanna og verkalýðsfélögin
húsið. Þar höfðu þau skrifstofur
sínar og fundarsal og var húsið
þá lengstum kallað Verkalýðshús-
ið, eins og segir í bók Steindórs
Steindórssonar um Akureyri.
Hlutafélagið KVA ehf. keypti
sambyggð hús við Strandgötu 7
og 9 fyrir nokkru en síðast var
húsgagnaverslunin Augsýn þar til
húsa. Hlutafélagið er í eigu Grét-
ars Örvarssonar, Magnúsar Sigur-
björnssonar og Þórhalls Arnórs-
sonar. Gífurlegur endurbætur hafa
verið gerðar á húsinu við Strand-
götu 7 og hafa þær staðið yfir í
um tvo og hálfan mánuð.
Landsbanki íslands
60 ára og
eldri í
skemmti-
ferð
í TILEFNI af 95 ára afmæli
Landsbanka íslands á Akur-
eyri bauð bankinn Akur-
eyringum 60 ára og eldri til
skemmtiferðar í samvinnu við
Félag aldraðra og verður hún
farin í dag, miðvikudaginn 16.
júlí.
Farið verður að Blöndu-
virkjun og virkjunin skoðuð
undir leiðsögn starfsmanns,
þá verður ekið í Þórdísarlund
í Vatnsdal, hann skoðaður og
ferðalöngum boðið kaffi. Eftir
það verður farið á Blönduós
og þaðan áfram yfir Þverár-
fjall til Sauðárkróks þar sem
boðið verður upp á veitingar
á Kaffi Krók áður en haldið
verður heim á leið.
Akureyrarmaraþon
Bíll í verð-
laun fyrir
Islandsmet
HIÐ árlega Akureyrarmara-
þon Ungmennafélags Akur-
eyrar, íþróttabandalags
Akureyrar og Akureyrarbæj-
ar verður haldið næstkomandi
laugardag, 19. júlí, og hefst
það kl. 12. Hlaupið hefst og
endar á íþróttavelli Akur-
eyrar.
Þátttakendur geta valið
milli þriggja vegalengda,
þriggja kílómetra skemmtis-
kokks, 10 kílómetra hlaups
og 21 kílómetra hlaups
(hálfmaraþons).
Sá eða sú sem setur ís-
landsmet í hálfmaraþoni hlýt-
ur nýja Toyota Corolla bifreið
í verðlaun. Allir þátttakendur
sem Ijúka hlaupi fá viður-
kenningarpening en veitt
verða sérstök verðlaun fyrir
þijú fyrstu sætin í 10 og 21
kílómetra hlaupum. Að auki
verður dreginn út fjöldi ann-
arra verðlauna og gildir þátt-
tökunúmer sem happdrættis-
miði. Frítt verður í Sundlaug
Akureyrar eftir hlaup.
I
)
*
I
>
L