Morgunblaðið - 16.07.1997, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ1997 33
FRÉTTIR
Bryggjiihátíð haldin
á Drangsnesi
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
Vistaskáli
í Vatna-
skógi
í SUMARBÚÐUNUM í Vatna-
skógi í Svínadal er verið að reisa
nýjan skáia, sem er með svefnað-
stöðu fyrir 30 manns í sitt hvorri
álmunni, alls 60 pláss. Er þessi
nýi skáli vist fyrir drengi og
starfsfólk að hluta til. Leysir skál-
inn Laufskálann af sem eru gaml-
ir vinnuskúrar frá byggingará-
rum Búrfellsvirkjunar og því
komnir til ára sinna. Vitaskálinn
hefur verið byggður í sjálfboða-
vinnu af Skógarmönnum, sem
hafa komið upp í Vatnaskóg á
laugardögum, og verður skálinn
fokheldur á næstum vikum. Vista-
skálinn er reistur við hliðina á
matskálanum í Vatnaskógi.
Nú þegar er fullt í alla flokka
sumarsins nema einn flokk í ág-
úst. Sæludagar verða í Vatna-
skógi um verslunarmannahelg-
ina, og er dagskráin mótuð fyrir
fjölskyldufólk, þótt að þessu sinni
sé sérstök dagskrá fyrir unglinga.
ÓskarGuðjónsson
saxófónleikari
Tríóið ÓHM
í Sölvasal
TRÍÓIÐ ÓHM leikur í Sölvasal
Sóions ísiandus í kvöld, miðviku-
dag. Meðlimir tríósins eru Óskar
Guðjónsson saxófónleikari, Hilm-
ar Jensson gítarleikari og Matt-
hías M.D. Hemstock trommuleik-
ari. Sérstakur gestur kvöidsins
verður Kjartan Vaidimarsson
píanóleikari.
Er þetta lokaþemakvöld tríós-
ins á Sóion í sumar. Viðfagnsefni
kvöldsins eru íslensk djassverk
eftir islenska höfunda, s.s. Tómas
R. Einarsson, Sigurð Flosason,
Pétur Grétarsson og Skúla Sverr-
isson ásamt verkum eftir flytjend-
ur.
Tónleikarnir hefjast klukkan
22.
DRANGSNESINGAR halda
Bryggjuhátíð laugardaginn 19. júlí
nk. Ymiskonar skemmtun og uppá-
komur verða fyrir alla fjölskylduna
og stendur fjörið langt fram á kvöld,
segir í fréttatilkynningu.
Ennfremur segir: „Margt verður
til gamans gert á þessum fjölskyldu-
degi. Svo dæmi séu tekin þá verða
skipulagðar ævintýraferðir út í
Grímsey á Steingrímsfirði frá kl.
11 árdegis og fram eftir degi.
Grímsey er sérstök náttúruperla
með fjölbreyttu fuglalífi og gefst
fólki kostur á að dvelja á eynni
milli ferða.
Listamaðurinn Bubbi, Guðbjörn
Gunnarsson, sýnir í Drangsnesskóla
bæði skúlptúr og málverk og verður
sýningin opin alla helgina. Einnig
verður þar sýning á munum eftir
hagleiksmanninn Jörund Gestsson
frá Hellu og gamlar myndir úr
Kaldrananeshreppi sem sýna hvern-
ig Drangsnes leit út á fyrstu árum
þéttbýlismyndunar ásamt myndum
af mannlífi, bátum og atvinnuhátt-
um fyrri tíma. í tengslum við sýn-
ingarnar í skólanum verður rekið
þar lítið kaffihús svo fólk geti sest
niður og rabbað saman yfir kaffi-
bolla pg kannski fengið sér kleinu
með. Á Drangsnesi skipar gráslepp-
an stóran sess í lífi fólks og hefur
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsmg frá Náttúru-
verndarsamtökum íslands:
„Náttúruverndarsamtök íslands
fagna yfirlýsingu umhverfisráð-
herra, Guðmundar Bjarnasonar, sem
fram kom í Morgunblaðinu á sunnu-
dag þess efnis að hann telur útilokað
að gera frekari samninga um stór-
iðju hér á landi fyrr en séð verður
hvað samningarnir í Kyoto um efl-
ingu sáttmála Sameinuðu þjóðanna
um loftslagsbreytingar koma til með
að fela í sér.
Náttúruverndarsamtökin hafa
bent á það ósamræmi sem felst í
stóriðjustefnu stjórnvalda annars
vegar og hins vegar þeirri yfirlýstu
stefnu að koma í veg fyrir óafturkall-
anlegar breytingar á lífríkinu af
völdum loftslagsbreytinga; breyt-
inga sem geta valdið gífurlegri rösk-
un á veðurfari og fiskgengd í Norð-
ur-Atlantshafi.
Skuldbindingar íslands gagnvart
rammasamningi Sameinðu þjóðanna
um loftslagsbreytingar, sem undir-
ritaður var í Ríó 1992, eru þegar í
uppnámi vegna aukinnar losunar
verið sett upp í einu verkunarhúsinu
sýning sem kölluð er Grásleppan
úr djúpinu á diskinn og þar er ferl-
ið sýnt allt frá ófelldu neti að kavíar.
Ungir og vaskir veiðimenn taka
að sjálfsögðu þátt í marhnútakeppn-
inni í Kokkálsvíkurhöfn sem hefst
kl. 10 árdegis svo það er vissara
að hafa veiðistöngina með.
Útimarkaður verður í tjaldi
Strandakúnstar og sjávarrétta-
smakk við frystihúsið. Hestaferðir,
ratleikur, söngur, glens og grill-
veisla eru að sjálfsögðu á dag-
skránni. Deginum lýkur svo á alvöru
sveitaballi í samkomuhúsinu Baldri
en þar mun Hjónabandið leika fyrir
dansi fram eftir nóttu. En þeir sem
ekki eru orðnir sextán ára skemmta
sér á planinu fyrir framan frystihús-
ið á dúndrandi diskóteki.
Skemmitbáturinn Húni II frá
Skagaströnd mun setja skemmtileg-
an svip á Bryggjuhátíðina en með
honum er boðið upp á sætaferðir frá
Skagaströnd og Hólmavík til
Drangsness. Skipið fer svo til baka
aftur á sunnudag.
Mjög gott tjaldstæði er við Sam-
komuhúsið Baldur á Drangsnesi en
einnig er hægt að fá gistingu á Bæ
3 eða á Hótel Laugarhóli sem er um
20 km akstur frá Drangsnesi, en þar
er sundlaug og heitur pottur.“
gróðurhúsalofttegunda frá fyrirhug-
uðu álveri Norðuráls á Grundar-
tanga, stækkunar járnblendiverk-
smiðjunnar á sama stað og stækkun-
ar álversins í Straumsvík. Sam-
kvæmt Rammasamingnum skuld-
bundu þjóðir heims sig til að láta
losun gróðurhúsalofttegunda standa
í stað á tímabilinu 1990-2000. Fyr-
irsjáanlegt er að draga verður um-
talsvert úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda miðað við það sem var viðmið-
unarárið 1990.
Fram að þessu hafa stjórnvöld lít-
ið aðhafst til að draga úr losun gróð-
urhúsalofttegunda hér á landi. Sá
árangur sem náðst hefur er fyrst
og fremst að þakka framtaki ÍSAL,
sem hefur með nýrri tækni minnkað
losun gróðurhúsalofttegunda frá
Straumsvík umtalsvert.
Náttúruverndarsamtök íslands
skora á umhverfisráðherra að leggja
fram hið fyrsta raunhæfar tillögur
um hvernig draga megi úr losun
gróðurhúsalofttegunda í samræmi
við þjóðréttarlegar og pólitískar
skuldbindingar íslands."
Viljum
endur-
heimta
fjarskipta-
búnað
AÐFARANÓTT 26. júní sl. var
brotist inn í björgunarstöð
björgunarsveitarinnar Alberts á
Seltjamarnesi og þaðan stolið
fjarskiptabúnaði, fjallabúnaði,
prentara o.fl. Fjarskiptabúnað-
urinn er nýr, af gerðinni TAIT
3020, handstöðvar.
í fréttatilkynningu segir:
„Fjarskiptabúnaður þessi er
sveitinni sérstaklega mikilvæg-
ur og er hún óstarfhæf af þess-
um sökum. Handstöðvarnar
hafa yfir að ráða sérstakri stað-
setningartækni og hægt er að
finna út staðsetningu stöðvanna
án þess að sérstaklega sé kveikt
á þeim. Hins vegar er mjög dýrt
að láta rekja stöðvarnar með því
móti og verður það ekki gert
að svo stöddu. Fer björgunar-
sveitin þess á leit við þá sem
hafa búnaðinn undir höndum að
koma honum til skila og verður
þá málið fellt niður.
Fjarskiptabúnaður þessi er
skráður og kemur því engum
öðrum að notum. Ef einhveijir
geta gefið upplýsingar um hvar
búnaðurinn er niðurkominn er
viðkomandi beðinn að hafa sam-
band í síma 561 1722. Þeir sem
ekki vilja að símanúmer sitt birt-
ist geta notað „stjarna" 31
(*31*) á undan símanúmerinu
sem hringja á í. Þetta er sérþjón-
usta símans og er öllum opin.“
Gengið
með strönd
Kollafjarðar
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
heldur áfram göngu sinni með
strönd Kollafjarðar í kvöld, mið-
vikudag. Farið verður frá Hafn-
arhúsinu kl. 20 og eftir stutta
heimsókn með SVR inn undir
Höfða.
Þar hefst sjálf gönguferðin
kl. 20.40. Gengið verður inn á
Laugarnestanga og um Sunda-
höfn, Kleppskaft, Holtabakka,
Vogabakka og inn að Elliðaárós-
um. Þaðan verður hægt að fara
með SVR til baka. Þátttaka er
öllum heimil.
Flugdagur
á Blönduósi
ÞRIÐJI flugdagur Flugsmíðar,
félags áhugamanna um heima-
smíði flugvéla, verður á Blöndu-
ósflugvelli laugardaginn 19. júlí
kl. 13.30. Aðgangur er ókeypis.
Á dagskrá verður flug heima-
smíðaðra flugvéla; flug á mótor-
drifinni fallhlíf; flugmódelflug;
flug á „girokopta"; svifdrekaflug;
listflug á vélflugu og útsýnisflug.
Einnig verða flugvélar og smíðis-
hlutir til sýnis í flugskýli.
Fyrirlestur
í líffræði
Á vegum Líffræðistofnunar Há-
skóla íslands verður haldinn
gestafyrirlestur um harðgerari
plöntur með aðstoð erfðatækni
á föstudaginn kemur. Dr. Einar
Mántylá flytur fyrirlesturinn
sem hefst klukkan 15 í stofu
G-6 á Grensásvegi. Öllum er
heimill aðgangur.
í fréttatilkynningu segir: „Við-
brögð lífvera við vatnsskorti fela
í sér uppsöfnun osmótískt virkra
efna svo sem sykra og amínó-
sýrufafleiða ýmiss konar. Marg-
ar tegundir lífvera aðlagaðar að
vatnslitlu umhverfi framleiða
tvísykruna trehalosa. Það hefur
sýnt sig að trehalosi er fær um
að verja stórsameindir fyrir
virknistapi og eðlissviptingu af
völdum þurrks. Einar mun
greina frá rannsóknum sem
hann hefur staðið að þar sem
erfðavísum fyrir ensímum sem
stýra myndun trehalosa í ger-
sveppi var komið fyrir í plöntum
í þeim tilgangi að kanna áhrif
á þurrkþol plantna og hvort
framleiðsla trehalosa í plöntum
væri fysileg."
Tónleikar
í Víðistaða-
kirkju
í TILEFNI af tvö hundruð ára
afmæli tónskáldsins Gaetano
Donizetti (1797-1848) halda
sendiráð Ítalíu á íslandi og
Menningarstofnun Ítalíu í Ósló
tónleika í Víðistaðakirkju, Hafn-
arfirði, í kvöld, miðvikudag, kl.
2L
Á tónleikunum koma fram
Alda Ingibergsdóttir sópran
ásamt Ólafi Vigni Albertssyni
píanóleikara og Ágúst Ólafsson
baríton ásamt Sigurði Marteins-
syni píanóleikara. Þau flytja
verk eftir Donizetti, Verdi, Pucc-
ini, Rossini og fleiri.
Gaetano Donizetti er í hópi
fremstu tónskálda Ítalíu og
samdi þekktar óperur, s.s. Ást-
ardrykkinn, Lucia di Lam-
mermoor og Don Paquale.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Galdrar á
Nelly’s Café
GALDRASÝNING verður á Nel-
ly’s Café í kvöld, miðvikudag
kl. 22. Þar mun galdramaðurinn
Bjarni Baldvinsson sýna listir
sínar.
Aðgangur á sýninguna er
ókeypis. Hún verður endurtekin
sunnudaginn 20. júlí nk.
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
RANGLEGA var farið með föð-
urnafn Ásgeirs Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra flugumferðar-
þjónustu, í frétt í Morgunblaðinu
í gær. Eru hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á mistökunum.
Mikíá úrval ðf
fdlegum rúfflfttnaái
Skólavöröustig 21 Simi 551 4050 Reykiavik
C \
ALOE VERA
N áttúrusnyrtivörur
úr ekta
ALOE VERA
Fagna yfirlýsingu
umhverfisráðherra