Morgunblaðið - 24.08.1997, Síða 1
124/ SIÐUR B/C/D/F
STOFNAÐ 1913
190 TBL. 85. ÁEG. SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Auðmýkt er
góð fyrir
hjartað
London. Reuter.
KONUR, sem telja sjálfar sig vera auð-
mjúkar og af hjarta lítillátar, eiga það
síður á hættu að fá hjartaáfall en þær,
sem ágengari eru. Kemur þetta fram í
rannsókn skoskra vísindamanna en frá
henni var skýrt í breska læknablaðinu
Laacet. Því auðmýkri sem konan er, því
minni hætta er á hvers konar hjarta-
kvillum segja vísindamennirnir en við
rannsóknina studdust þeir við sérstakan
auðmýktarkvarða. I tilkynningu frá
hinni bresku Iljartavernd, sem kostaði
könnunina, sagði, að við hverja fjögurra
stiga hækkun á kvarðanum, hefðu lík-
urnar á hjartaáfalli minnkað um 31%.
783 konur á aldrinum 55 til 74 ára tóku
þátt í rannsókninni, sem stóð í fímm ár.
Ekkert kom fram um það hvort niður-
stöðurnar gætu einnig átt við um karl-
menn.
Þungar skóla-
töskur bannaðar
Rio de Janeiro. Reuter.
ÞINGIÐ í ríkinu Rio de Janeiro í Brazil-
íu hefur bannað þungar skólatöskur til
að koma í veg fyrir, að börnin verði bak-
veik. Hér eftir mun það varða við lög,
séu skólatöskurnar þyngri en sem nem-
ur einum tíunda af líkamsþyngd barns-
ins. „Mörg börn verða veik í baki vegna
þess hve töskurnar eru þungar og miklu
troðið í þær,“ sagði þingmaðurinn Carl-
os Minc en hann átti mestan þátt í nýju
lagasetningunni. Sagði hann, að með
lögunum væru skólarnir skyldaðir til að
koma fyrir hirslum undir þær bækur,
sem ekki þyrfti að rogast með til og frá
skóla á hverjum degi.
Að sögn dagblaðsins Globe ætlar Minc
sjálfur að fylgjast með því, að eftir lög-
unum verði farið og hefúr keypt sér
hentuga vog í því skyni.
Átök í S-Líbanon
Jerúsalem. Reuter.
HÖRÐ átök voru í Suður-Líbanon í gær
milli ísraelskra hermanna og skæruliða
Hizbollah-hreyfingarinnar. Að minnsta
kosti þrír skæruliðar voru felldir en
Israelar réðust gegn þeim með loftárás-
um og stórskotaliðshríð. Átökin í S-Lí-
banon eru þau mestu síðan ísraelar og
HizboIIah undirrituðu vopnahlé í apríl á
síðasta ári en þá höfðu Israelar haldið
uppi loftárásum á landið í 17 daga sam-
fleytt. Árásirnar í gær komu í kjölfar
eldflaugaárásar skæruliða. Palestínu-
menn segjast hafa heimildir fyrir því, að
Israelar séu að setja saman sveitir, sem
eigi að stunda launmorð og hryðjuverk
á palestínsku landi. Israelski herinn seg-
ist vera að kanna þetta mál.
Dyttað að Svölunni
Morgunblaðið/Golli
ÞAÐ þarf að gera bátunum til góða öðru hverju, meðal annars að
þrífa þá jafnt utan sem innan. Þeir feðgarnir Stefán Guðjónsson
og Björn Magnús voru önnum kafnir við þetta austur á Eskifirði á
dögunum.
Meiri hreyfíng á norsk-
um kjósendum en áður
MEIRI hreyfing virðist vera á norskum kjós-
endum en nokkru sinni fyrr en þingkosningar
verða í Noregi 11. september næstkomandi.
Skoðanakannanir sýna, að Framfaraflokkur
Carl I. Hagens mun bæta við sig miklu fylgi
og verða næststærstur á eftir Verkamanna-
flokknum en kosningasérfræðingar vara þó
við, að of mikið mark sé tekið á þeim enn sem
komið er, meðal annars vegna þess, að um og
yfir 40% kjósenda eru enn óráðin eða vilja
ekki gefa upp afstöðu sína.
I könnunum að undanfórnu hefur Fram-
faraflokkurinn fengið um og yfir 20% atkvæða
en Verkamannaflokkurinn, sem fer með
landsstjómina, um og undir 30% en hann fékk
36,9% atkvæða í síðustu kosningum. Könnun,
sem dagblaðið Aftenposten birti fyrir helgi,
sýnir hins vegar, að nokkuð hefur dregið úr
fylgi við Framfaraflokkinn, sem fær 17,4%, en
Verkamannaflokkurinn styrkir stöðu sína og
fær 32,7%.
Könnunin var gerð eftir sjónvarpseinvígi
þeirra Hagens og Thorbjoms Jaglands, for-
sætisráðherra og leiðtoga Verkamannaflokks-
ins, og þykir benda til, að kjósendur telji, að
Jagland hafi staðið sig betur í viðureigninni.
Þá er hún líka vísbending um, að upplýsingar
um, að Jagland hafi rætt við sovéska sendi-
ráðsmenn og njósnara fyrir um 20 árum, hafi
ekki skaðað hann og flokkinn og jafnvel, að
hann njóti meiri samúðar en áður vegna
hamagangsins í sumum fjölmiðlum vegna
þessa máls.
Litill áhugi
Þótt kosningabaráttan í Noregi hafi verið á
fullu í hálfan mánuð, virðast kjósendur furðu-
áhugalitlir um hana og í sumum könnunum
hefur allt að helmingur þeirra ekki viljað taka
afstöðu. Því telja margir, að útkoman úr þeim
geti breyst verulega á síðustu dögunum fyrir
kosningar.
Norski Verkamannaflokkurinn hefur farið
með landsstjómina lengst af um áratugaskeið
og augljóst er, að mörgum finnst tímabært að
breyta til. Þá er líka óánægja með þá stefnu
hans að leggja olíugróðann til hliðai’ í stað
þess að beina honum út í samfélagið. Sumir
andstæðinga hans vilja nota hann að einhverju
leyti til að efla heilsugæslu, menntakerfið og
samgöngur en aðrir óttast, að verði olíuarður-
inn notaður til að efla velferð, sem sé í litlum
takti við það sem er í nágrannaríkjunum, muni
það koma niður á norsku þjóðinni síðar.
Mjótt á mununum
Samkvæmt síðustu skoðanakönnun fá
Verkamannaflokkurinn, Miðflokkurinn og
Sósíalíski vinstriflokkurinn, flokkar, sem oft
hafa staðið saman, meirihluta á þingi en fyrri
kannanir hafa bent til meirihluta borgara-
flokkanna, Hægriflokksins, Kristilega þjóðar-
flokksins, Venstre og Framfaraflokksins.
10
Lífssýnabankar
24
SAMKEPPNIN
ER VEKJANDI
S
MAMIRAUA