Morgunblaðið - 24.08.1997, Side 2
2 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ólympíuskákmót
16 ára og yngri
Lofa að
greiða
gistingima
SKIPULEGGJENDUR Ólympíu-
skákmóts 16 ára og yngri í Belgrad
tilkynntu þátttökuþjóðum í gær-
morgun að greidd yrði hótelgisting
fyrir keppendur og fararstjóra fram
til loka Karpov Cup 27. ágúst og
allt til 30. ágúst, ef keppendur geta
ekki breytt farmiðum sínum og kom-
ist fyrr heim. Sigurbjörn Björnsson,
fararstjóri íslensku keppendanna,
sagði í gær að ekki hefði tekist að
fá þessa yfirlýsingu skriflega og
reyndar efaðist hann um að staðið
yrði við þessi orð.
Þátttökuþjóðir ákváðu að tefla
morgunumferð skákmótsins í gær,
en hætta svo þátttöku á mótinu,
nema tryggt yrði að gisting yrði
greidd til 30. ágúst eins og samið
hafði verið um fyrir mótið. Mótið
átti upphaflega að standa frá
20.-30. ágúst, en mótshaldarar
ákváðu að tefldar yrðu tvær umferð-
ir á dag og lyki mótinu því á fimm
dögum.
Lofa öllu fögru
„Við munum taka þátt í Karpov
Cup, sem er að vísu lélegt mót og
við hefðum aldrei tekið þátt í þv!
nema af því að við erum hér hvort
eð er,“ sagði Sigurbjörn. „Mótinu
lýkur 27. ágúst og við krefjumst
þess að fá greiddan hótelkostnað
til 30., þegar við eigum pantað flug
heim. Þeir lofa öllu fögru núna, en
hingað til hefur ekki verið að marka
eitt orð, svo ég er ekki mjög bjart-
sýnn.“
íslensku keppendurnir tefldu í
gær við Ungveija og töpuðu 1:3.
Sigurbjörn sagði allt hafa gengið á
afturfótunum, því fyrirfram hefði
mátt búast við sigri íslendinga.
♦ ♦ ♦----
Hlé á út-
sendingum
Sígilds FM
ÚTSENDINGAR útvarpsstöðvarinn-
ar Sígilt FM hættu á föstudagskvöld.
Að sögn Jóhanns Briem eiganda
stöðvarinnar er ástæðan sú að stöðin
er að endurnýja tækjabúnað sinn.
Hann sagði að stöðin hefði fram
að þessu leigt tæki til útsendinga
en fyrir skömmu hefði verið ákveðið
að kaupa ný tæki og var unnið að
því að skipta út tækjum í gær. Áttu
útsendingar að hefjast á nýjan leik
að því búnu.
Morgunblaðið/Arnaldur
PLAST og annað drasl er algeng en hvimleið sjón i fjörunni í Viðey.
Drasl rekur á
fjörur í Viðey
DRASL sem fleygt er í sjóinn er
víða stórfellt umhverfisvandamál,
m.a. í Viðey, þar sem það rekur
gjarnan á fjörur. Sérstaklega er
mikið um byggingaplast, að sögn
staðarhaldarans í Viðey, séra Þór-
is Stephensens.
Hann segir áberandi hversu
mikið berist á land Reykjavíkur-
megin og telur að margir freistist
til þess í skjóli myrkurs að henda
drasli í sjóinn sem með réttu þyrfti
að greiða fyrir förgun á í Sorpu.
Fljótandi hitaveiturör
hættuleg smábátum
Þórir segir dæmi þess að hita-
veiturörum hafi verið sturtað í sjó-
inn en þau skapi mikla hættu fyr-
ir báta. „Þetta eru járnrör með
einangrun utan um, þannig að þau
fljóta í sjónum. Það hefur komið
fyrir að við höfum hirt tugi slíkra
röra eftir eitt flóð. Þetta er stór-
hættulegt, því ef lítill plastbátur á
mikilli ferð rekst á þetta þá er
hann búinn að vera,“ segir Þórir.
Þá getur einnig að líta fiski-
kassa, plastbrúsa undan olíu og
ýmislegt sem borgarbúar sturta
niður í salernið en ætti ekki að
fara þá leið, eins og t.d. dömu-
bindi og eyrnapinna. Ljóst er að
eitthvað af því sem rekur á land
í Viðey er drasl sem hefur fokið út
í sjó en er ekki fieygt af ásettu
ráði en Þórir segir þó fulla þörf á
að menn gæti betur að sér.
Hópar unglinga frá Vinnuskóla
Reykjavíkur sjá um að halda Viðey
hreinni á sumrin og vill staðarhald-
ari taka sérstaklega fram að þeir
hafi unnið mjög gott starf, en
draslið komi jafnóðum aftur.
Umgengni batnað við höfnina
Hallur Árnason hjá Reykjavík-
urhöfn segir umgengni hafa batn-
að til muna í og við höfnina á síð-
ustu árum. „Ég get fullyrt að skip
eru eiginlega alveg hætt að henda
rusli í sjóinn, enda mjög strangt
tekið á því hjá skipafélögunum og
skipstjórum almennt. Það er m.a.s.
ekki óalgengt að skip sem koma
til hafnar óski eftir að fá gáma
til að losa í úrgang, en skipin bera
að sjálfsögðu allan kostnað af
því,“ segir Hallur. Hann bætir við
að vissulega geti það komið fyrir
að drasl §'úki út í sjó eða því sé
fleygt þar af ásettu ráði, en
strangt eftirlit sé með því á hafn-
arsvæðinu.
Metróvélin
rannsökuð
í Banda-
ríkjunum
LOKIÐ var skoðun á Metró-
flugvél Flugfélags íslands, sem
lenti í sviptingum yfir ísafjarð-
ardjúpi um síðustu helgi, um
hádegi í gær. Sérfræðingar
framleiðanda hafa annast skoð-
unina síðustu daga.
Ráðgert er að fljúga vélinni
síðan til Bandaríkjanna til ná-
kvæmari rannsóknar. Er ekki
vitað á þessari stundu hversu
lengi hún verður úr leik. í Ieið-
inni verður bætt í hana ýmsum
búnaði sem ráðgert er að setja
í allar Metró-vélar félagsins í
haust.
Eldur út frá
sígarettuglóð
ELDUR kom upp í verbúð á
Bolungarvík um kl. 7 í gær-
morgun. Húsið er þriggja hæða
og logaði í herbergi á miðhæð.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglu þykir Ijóst að eldurinn
hafi kviknað í dýnu út frá glóð
úr sígarettu.
Enginn var í herberginu
þegar eldurinn kom upp, hann
var fljótslökktur og skemmdir
voru litlar. íbúum verbúðar-
innar varð ekki meint af.
Umfjöllun ríkisstjórnar um fj ár lagafr umvarp að mestu lokið
Utgjöld til heil-
brígðismála aukast
RÍKISSTJÓRNIN kom saman til
fundar í gærmorgun þar sem tókst
í aðalatriðum að ljúka umfjöllun um
útgjaldalið fjárlagafrumvarps fyrir
næsta ár. Unnið verður á næstu
dögum að endanlegum frágangi
frumvarpsins.
Að sögn Ingibjargar Pálmadóttur
heilbrigðisráðherra er ljóst að út-
gjöld til heilbrigðismála munu auk-
ast að raungildi á næsta ári og eru
ástæðurnar bæði bættur hagur rík-
issjóðs og aukin þörf fyrir fjármagn
í þessum málaflokki.
. Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra segir ljóst að í föstum fjár-
hæðum aukist útgjöld ríkissjóðs á
næsta ári samkvæmt frumvarpinu
„en hins vegar verður aukning út-
gjalda minni en aukning landsfram-
leiðslunnar þannig að útgjöld ríkis-
ins sem hlutfall af landsframleiðslu
munu lækka,“ sagði hann.
Þingflokkar fjalla um málið
Fjárlagafrumvarpið verður lagt
fyrir þingflokksfund sjálfstæðis-
manna næstkomandi fimmtudag og
þingflokkur framsóknarmanna mun
fjalla um frumvarpið á fundi sem
boðaður er mánudaginn 1. septem-
ber. Ef stjórnarflokkamir sam-
þykkja fyrirliggjandi drög verður
frumvarpið að því búnu sent til
prentunar og lagt fram á fyrsta
starfsdegi Alþingis 1. október.
RÍKISSTJÓRNIN kom saman í Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu klukkan tíu í gærmorgun til að fjalla um fjárlaga-
frumvarpið fyrir næsta ár. Þingflokkar sljórnarflokkanna
ræða um frumvarpsdrögin á næstunni, en frumvarpið verður
lagt fram á Alþingi 1. október.
í
Á að markaðssetja
erfðaupplýsingar?
►Hér á landi ertil mikið safn
vefjasýna og annarra lífssýna, sem
geyma upplýsingar um erfðaefni
fjölda íslendinga. /10
Aukin tiltrú Finna á
framtíðina innan ESB
►Gífurleg efnahagsumskipti hafa
átt sér stað í Finnlandi sl. 3-4 ár.
Rætt er við Martti Ahtisaari Finn-
landsforseta um þessi umskipti.
/12
María fer víða
►Kvikmyndin um Maríu verður
frumsýnd innan skamms og fær
fyrirsjáanlega mestu upphafsdreif-
ingu myndar eftir islending. /20
Samkeppnin
er vekjandi
► í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Benedikt
Kristjánsson, kaupmann í Vöruvali
á norðaverðum Vestfjörðum. /24
B
► l-20
Mamirauá — land
flæðiskógarins
►Amazon-frumskógurinn er ein
af gersemum veraldar. John Thor-
bjarnarson hefur um árabil unnið
að rannsóknum á þessu svæði.
/1,18-19
Það kom aldrei
gustur að mér
►Þannig mælir Brynhildur Jó-
hannsdóttir, ekkja Álberts Guð-
mundssonar. /4
Læknir framtíðarinnar
► Menntafólkstendurgjamaná i
afdrifaríkum tímamótum. Jón
Tómasson er þar vel í stakk búinn,
dúxinn í læknadeild í vor. Hann
er á kandídatsári að hugsa sinn
gang. /
í mark eftir 90 km
► Keppendur í Reykjavíkurmara-
þoninu mega prísa sig sæla að
þurfa ekki að hlaúpa 90 km eins
og Ágúst Kvaran sem tók þátt í
ofurmaraþoni í S-Afríku í vor. /10
c
V FERÐALOG
► 1-4
Krít
►Grísk fegurð og fornar hefðir. /2
ísland kynnt á
japanskri grundu
►Við rætur Fuji fjalls í Japan
hefur verið opnaður 300.000 fer-
metra norrænn skemmtigarður. /4
BÍLAR_____________
► 1-4
Ekið um í dönskum
draumabíl
►Af ökuferð í mjög sérstökum
Buick í Danmörku. /2
Reynsluakstur
►Hressilegur Carisma frá Mitsub-
ishi. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 40
Leiðari 26 Stjömuspá 40
Helgispjall 26 Skák 40
Reykjavíkurbréf 26 Fðlk i fréttum 44
Skoðun 28 Bíó/dans 46
Minningar 30 Útv./sjónv. 42,50;
Myndasögur 38 Dagbók/veður 51
Bréf til blaðsins 38 Gárar 6b
Hugvekja 40 Mannlífsstr. 6b
ídag 40 Dægurtónl. 12b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6