Morgunblaðið - 24.08.1997, Page 6
6 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ *
A
Astarævintýri Díönu Bretaprinsessu og arabíska kvikmyndaframleiðandans Dodis al Fayeds
Skopleg
sápuópera með
alvarlegum
undirtón
Þótt sápuóperan um ástarævintýri Díönu
Bretaprinsessu og Dodis al Fayeds sé að
mörgu leyti skopleg er hún margbrotin og
varpar meðal annars ljósi á tortryggni
Breta í garð araba.
SMÁSYNDIR bresku kon-
ungsfjölskyldunnar eru
ekkert nýnæmi og ekki
heldur sálarflækjur Breta
vegna tortryggni þeirra gagnvart
íbúum þeirra landa sem þeir stjórn-
uðu áður en nýlenduveldi þeirra
leið undir lok. Hins vegar telst það
til tíðinda að þetta tvennt hefur
fléttast saman í broslegri sápu-
óperu um Díönu og Dodi.
Önnur aðalpersónan í þessum
skopleik er 36 ára prinsessa, fyrr-
verandi eiginkona Karls krónprins,
næsta konungs Bretlands (ef
drottningin leyfir það), og móðir
Vilhjálms prins, tilvonandi konungs
(ef konungdæmið heldur velli svo
lengi). Henni var nýlega lýst sem
hugsunarlausri konu er teldi það
ekkert tiltökumál að ferðast 250
km með þyrlu til að ráðfæra sig
við dulspeking sem hún hefur mikl-
ar mætur á.
Dodi er gælunafn Emads al Fay-
eds, 41 árs „glaumgosa" og kvik-
myndaframleiðanda, sem fæddist 5
Egyptalandi og nam við konung-
lega herskólann í Sandhurst.
Hermt er að hann ferðist yfirleitt
með nuddara og lífvörðum og leggi
í vana sinn að gefa vinkonum sínum
rándýra skartgripi. Faðir hans,
Mohamed al Fayed, er auðugri en
drottningin og eigandi Harrods,
stórverslunarinnar frægu í
Lundúnum.
Flýr í „arabíska prísund"
Sápuóperan hefur þó alvarlegan
undirtón því hún tengist einnig
stéttaskiptingunni í Bretlandi og
togstreitu innfæddra Breta og inn-
flytjenda, sem láta æ meira að sér
kveða í bresku viðskiptalífi.
Gleny Roberts segir í grein í
Daily Mail að Díana prinsessa
muni brátt átta sig á því að hún
hafi farið úr öskunni í eldinn, flúið
úr „einu fangelsi, lífstíl konungs-
fjölskyldunnar, í annað, arabíska
prísund“.
„Ég hef aðeins áhyggjur af því
að þessi Dodi er útlendingur," sagði
skáldsagnahöfundurinn Barbara
Cartland, sem er móðir greifynj-
unnar af Dartmouth, stjúpmóður
prinsessunnar.
Slík viðbrögð hafa orðið til þess
að Bretar, sem eiga ættir að rekja
til Asíu og Miðausturlanda, hafa
áhyggjur af samdrætti bresku
prinsessunnar og Dodis, sem er
múslimi að sögn New York Times.
Margir þeirra eru þó mjög stoltir
af ástarævintýrinu. „Menn geta
hatað okkur og svívirt á götunum
og í húsasundum en strákarnir
okkar sigla um heimshöfín með
þeim konum þeirra sem mestur
fengur er í,“ skrifaði Fuad Nahdi
í The Independent."
Neitað um ríkisborgararétt
Fayed eldri hefur verið mjög
áberandi í bresku viðskiptalífi frá
því hann keypti Harrods fyrir tólf
árum. Meðal annarra eigna hans
eru Ritz-hótelið í París, tímaritið
Punch, útvarpsstöð og knatt-
spyrnufélagið Fulham. Honum hef-
ur samt verið neitað um breskan
ríkisborgararétt, þótt hann hafi
búið í Bretlandi í 34 ár.
Sértilboð
Skólatöskur - pennaveski
Vegna hagstæðra innkaupa bjóðum við:
Skólatöskur og tvöfalt
pennaveski, nú á aöeins
kr. 1.960*
Skólatöskur og einfalt
pennaveski, nú á aöeins
kr. 1.390 *
Mikið úrval af skólatöskum, pennaveskjum og
skólavörum fyrir alla aldurshópa á mjög góðu verði.
Sendum í póstkröfu.
Opið laugardaga 10-14.
* Varð með 20% afslættl
Bóka-, ritfanga- og gjafavöruverslun
Miðbæ við Háaleitisbraut 58-60 • Sími 553 5230
Reuter
DIANA prinsessa við jarðsprengjusvæði í Angóla. Fréttir um ástarævintýri prinsessunnar og Dodis
al Fayeds hafa skyggt á baráttu hennar fyrir allsherjarbanni við jarðsprengjum.
Reuter
KARL Bretaprins ásamt sonum þeirra Díönu, Vilhjálmi (t.h.)
og Hinriki, nálægt Balmoral-kastala.
Samkvæmt lögum frá 1981 má
ekki veita mönnum breskan ríkis-
borgararétt nema þeir hafi óflekk-
að mannorð. Þegar Fayed sótti um
breskt vegabréf birtu embættis-
menn viðskipta- og iðnaðarráðu-
neytisins skýrslu þar sem þeir sök-
uðu hann og bróður hans, Ali al
Fayed, um að hafa „með óheiðar-
legum hætti gefið rangar upplýs-
ingar um uppruna sinn, auð og við-
skiptahagsmuni". Embættismenn-
imir ákváðu því að mæla ekki með
því að hann fengi ríkis-
borgararétt.
Fayed telur þessa
ákvörðun til marks um
kynþáttafordóma og
ákvað að hefna sín. Hann
skýrði frá því að hann
hefði greitt tveimur þing- .....
mönnum íhaldsflokksins,
Neil Hamilton og Tim Smith, fyrir
að bera upp fyrirspurnir á þinginu.
Tim Smith viðurkenndi að þetta
væri rétt en Neil Hamilton neitar
þessu enn. Hann missti þó þing-
sæti sitt í síðustu þingkosningum
og málið er talið hafa átt stóran
þátt í því að stjóm íhaldsmanna
galt mikið afhroð í kosningunum
eftir að hafa verið við stjómvölinn
í 18 ár.
Fayed átti einnig stóran þátt í
falli Jonathans Aitkens aðstoðar-
fjármálaráðherra þar sem hann
veitti dagblaðinu Guardian upplýs-
ingar um dvöl hans á Ritz-hótelinu
og samskipti við kaupsýslumenn
frá Saudi-Árabíu þegar þeir komu
saman í París til að ræða vopna-
kaup. Aitken var gagnrýndur í
breskum fjölmiðlum fyrir vafasöm
viðskipti við arabíska kaupsýslu-
menn, sakaður um að hafa þegið
dýrar gjafir og reynt að útvega
saudi-arabískum fursta vændiskon-
ur.
„Ég hef aö-
eíns áhyggjur
af því að þessl
Dodi er út-
lendingur"
Lausmálgar ástkonur
o g tvífari
Sápuóperan um ástar-
ævintýri Díönu og Dodis
hefur einnig tekið á sig
- ýmsar furðulegar mynd-
ir. 31 árs bandarísk fyrir-
sæta, Kelly Fisher, þáði til að
mynda andvirði 23 milljóna króna
fyrir að skýra frá því í viðtali við
News of the World að Dodi hefði
beðið hennar og reynt að barna
hana á sama tíma og hann dró sig
eftir Díönu.
Fyrirsætan hyggst höfða mál
gegn Dodi fyrir heitrof. Fyrrver-
andi eiginkona hans, Suzanne
Gregard, sagði hins vegar í viðtali
við The Independent að fyrirsætan
hefði sjálf slitið sambandinu við
hann áður en prinsessan kom til
sögunnar.
Dodi skildi við Gregard eftir átta
mánaða hjónaband árið 1986 og
hann hefur verið í tygjum við ýms-
ar þekktar konur, þeirra á meðal
Brooke Shields, Marie Helvin, Mimi
Rogers, Britt Ekland, Koo Stark,
fyrrverandi vinkonu Andrésar
Bretaprins, og Tinu Sinatra, dóttur
Franks.
Nokkrar aðrar konur hafa komið
fram á sjónarsviðið og lýst ástar-
samböndum sínum við Dodi í fjöl-
miðlum. Ætli fleiri konur að fara
að dæmi þeirra væri vissara fyrir
þær að ganga úr skugga um hvort
þær hafi örugglega verið með Dodi
því í ljós hefur komið að hann á
tvífara.
Skýrt hefur verið frá því að ann-
ar Egypti, Mohamed Sead, fyrrver-
andi sjómaður, hafi verið dæmdur
í tveggja ára fangelsi í Kanada
fyrir að villa á sér heimildir og
þykjast ýmist vera Dodi eða faðir
hans. Hermt er að hann hafi tælt
fjölmargar óþekktar leikkonur til
fylgilags við sig með því að þykj-
ast vera Dodi og safnað miklum
skuldum á glæsihótelum og börum
í mörgum borgum í Bandaríkjunum
og Kanada. Ennfremur er talið að
Sead beri ábyrgð á að minnsta
kosti 19 dómsmálum, sem höfðuð
hafa verið gegn Dodi í Kaliforníu.
Dodi al Fayed nýtur mikillar
kvenhylli og dvelur mestan hluta
ársins í Los Angeles, þar sem hann
rekur kvikmyndafyrirtækið Allied
Stars.
Konungdæmið í hættu
Móðir Dodis er systir Saudi-
Arabans Adnans Khashoggi, eins
af umsvifamestu kaupsýslumönn-
um heims á sviði vopnaviðskipta,
og hann hefur boðið Díönu prins-
essu hjartanlega velkomna í fjöl-
skylduna. Mörgum Bretum óar hins
vegar við því að móðir tilvonandi
konungs Bretlands verði tengda-
dóttir manns, sem er ekki talinn
hæfur til að fá breskan ríkisborg-
ararétt.
Þessi margbrotna sápuópera
gæti einnig haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir breska konungdæmið
því samkvæmt nýlegri skoðana-
könnun er stuðningurinn við það
orðinn minni en nokkru sinni fyrr.
Aðeins tæpur helmingur aðspurðra
kvaðst hlynntur því að Bretland
yrði áfram konungdæmi.
• Heimildir: New York Times,
The Daily Telegraph, The Times
og The Independent.