Morgunblaðið - 24.08.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997 13
FINNSKU forsetahjónin, Eeva og Martti Ahtisaari, taka á móti
íslensku forsetahjónunum er opinber heimsókn þeirra til Finn-
lands hefst á þriðjudag.
höfuðverk, einkum umhverfísvandi
á Eystrasaltssvæðinu, en um 80%
vandamálanna þar eiga upptök sín
í Pétursborg. Það er sýnilegur
vandi, og umhverfisháski á Eystra-
saltssvæðinu gæti haft hörmulegar
afleiðingar. Hið sama gildir um
kjarnorkuver, kjarnorkuvopn,
glæpastarfsemi og fíkniefnasmygl.
I þessum efnum er mörg óleyst
þrautin á alþjóðavísu.“
- Þrátt fyrir lyktir kalda stríðsins
virðist sem Finnar taki mið af hin-
um stóra granna sínum, Rússlandi,
við mótun öryggisstefnu sinnar.
Stendur þeim eða þjóðum Eystra-
saltsríkjanna þriggja veruleg ógn
af Rússum?
„Þetta er ekki alls kostar rétt,
við tökum mið af öllum grönnum
okkar og stöðu alþjóðamála al-
mennt. Við tökum mið af Svíum,
Eystrasaltsríkjunum, og ég held við
höfum mjög svo barist fyrir rétti
þeirra og hjálpað þeim við að renna
stoðum undir sjálfstæði sitt. Þegar
menn plaga mig með spurningunni
hvers vegna við höfum ekki sótt
um aðiid að NATO hef ég oftast
svarað með því að spyija á móti
hveijir hefðu klappað fyrir okkur
þá ef við hefðum sótt um aðild fyr-
ir ári. Alltént ekkert NATO-ríkj-
anna. Ef til vill ekki Rússar heldur,
en innan NATO hefði slíkt líklega
valdið mestum hausverk. Það hefði
flækt stöðuna mjög og líklega orðið
bandalaginu til meiri vandræða en
gagns. Staða okkar og öryggistil-
finning er ótrúlega góð og þú hefur
ugglaust tekið eftir því að við kvíð-
um engu. Reyndar höfum við meiri
áhyggjur af slýmyndun við strand-
lengjuna vegna mengunar og sum-
arhlýindanna."
Engin hernaðarleg ógnun
„Við höfum til dæmis engar
áhyggjur_ af ástandinu við landa-
mærin. Ástandið þar er betra nú
en á tímum Sovétríkjanna. Við höf-
um hins vegar miklar áhyggjur af
umhverfisspjöllum í Rússlandi,
ástandi kjarnorkuvera svo og
ástandi kjarnorkuvopnaforðans því
sé hann að grotna niður vegna fjár-
hagsörðugleika Rússa höfum við
ástæðu til að vera kvíðin. En það
er engin hernaðarleg ógnun sem
við þurfum að hafa áhyggjur af.
Og það hefur heldur ekkert breyst
í því hvernig Finnar móta utanríkis-
stefnu sína. Við höfum ætíð leitað
eftir samstarfsvettvangi til að
tryggja öryggi okkar og gerum
enn. Nágranni okkar er annar nú
en áður og vill komast í tölu lýðræð-
isríkja þó enn vanti þar á. Ríki
heims þurfa með aðgerðum sínum
að hjálpa Rússum að ná því marki.
Það mun líklega taka lengri tíma
en mér endist aldur til en menn
mega ekki missa marks.“
- Eru Rússar að þínu mati á
réttri braut til að þróa lýðræði?
„í þessu sambandi er mikilvægt
að hafa í huga að Rússar hafa sjálf-
ir ákveðið að þeir vilji búa við lýð-
ræði og markaðsbúskap. Það mun
hins vegar taka þá tíma að ná settu
marki því áður þarf að þróa stofn-
anir og löggjöf sem eru forsenda
lýðræðis og markaðsbúskapar. Þró-
uninni verður ekki snúið við í Rúss-
landi. Spurningin er aðeins hvort
við höfum þolinmæði til að vinna
nógu kappsamlega að því að stuðla
að breytingunum þar sem við sjáum
ekki árangurinn strax. Þessu velti
ég fyrir mér eftir að hafa fengist
við þróunarmál mestan hluta starfs-
ævi minnar. Reynslan hefur kennt
mér að á því sviði verður að horfa
til langs tíma þyí árangur verður
seint sýnilegur. Ég var í raun mjög
heppinn að upplifa það sjálfur, eftir
rúmlega áratugar aðild að málum,
að sjá land [Namibíu] hljóta sjálf-
stæði. Það er mjög sjaldgæft í þró-
unarstörfum að menn sjái sjálfir
starf sitt bera ávöxt.“
- Menn verða þá að sýna sams
konar þolinmæði gagnvart Rússum?
„Já, þolinmæði en staðfestu, ekki
halda að sér höndum. Við þurfum
einungis að horfa til sameiningar
Þýskalands, hversu erfið aðlögun
austurhluta landsins hefur reynst
og hve langur vegur er enn í að
jafnvægi náist. Til frekari samlík-
ingar mætti segja að það sem verið
væri að reyna að koma í kring í
Rússlandi í dag sé hið sama og í
Þýskalandi eftir seinna stríðið. Að
skipa Rússum á bekk með lýðræðis-
þjóðum í Evrópu. Munurinn er sá
að Þjóðveijar þekktu lýðræðishefðir
en í Rússlandi eru kringumstæður
allt aðrar, sem gerir aðlögun þess
helmingi erfiðari."
Kosningin markaði þáttaskil
- Ef við snúum okkur að málum
sem standa forsetanum ef til vill
nær, þá markaði kosning hans
þáttaskil í Finnlandi að því leyti að
hann er fyrsti þjóðkjörni forsetinn
í stað þess að vera kjörmannakos-
inn. í valdatíð hans, sem nú er nær
hálfnuð, hefur finnskt samfélag
gengið í gegnum itarleg umskipti
og nýr alþjóðlegur veruleiki hlasti
við með ESB-aðildinni. Hver telur
forsetinn vera helstu afreksverk sín
á þessum tíma, hvaða mál standa
upp úr?
„Ja, nú er stórt spurt og ekki
farið fram á lítið,“ segir Ahtisaari
og glottir. Eftir nokkra umhugsun
kemur svarið: „Mikilvægasta málið
sem við mér blasti í upphafi emb-
ættisins var aðildin að Evrópusam-
bandinu. Ég lagði mig fram í því
máli, fór ekki í kringum efnið eins
og köttur í kringum heitan graut.
Var aðildinni algjörlega fylgjandi
og niðurstaða þjóðaratkvæðisins
gladdi mig mjög. Þetta stendur upp
úr. Og einnig hversu virkir við höf-
um verið í að hafa áhrif á þróun
mála í Evrópu sem aðilar að ESB.
Við höfum skotið frekari stoðum
undir sjálfstæði Eystrasaltsríkj-
anna, erum hlynntir stækkun ESB
og höfum fengið samstarfsþáttum
öryggismála þokað fram. Staða
okkar á alþjóðavettvangi sem
stendur er ákaflega styrk, en við
leyfum okkur samt ekki að svífa inn
í einhveija dagdrauma. Virk utan-
ríkis- og öryggismálastefna okkar
er metin að verðleikum. Sú stað-
reynd að leiðtogafundurinn var
haldinn hér í mars er dæmi um
það. Landafræði átti einhvern þátt
í því en réð þó engan veginn úrslit-
um. Staða okkar er góð að því leyti
að við eigum enga óvini, aðeins
vini.“
-Að fenginni kosningu sagðist
þú vilja beita þér fyrir breyttu and-
rúmslofti í finnskum stjórnmálum
og gera samfélagið opnara. Hvað
hefur áunnist í þeim efnum?
„Hér er um að ræða starf sem
aldrei tekur enda. Ekkert samfélag
verður fullgert. Ég mundi að
minnsta kosti hika við að halda því
fram á einhveiju augnabliki að nú
gætum við ekki gert betur, allt
væri í lagi. Þvert á móti kysi ég
að umræðan um þau mál sem varða
okkur mestu yrði miklu meiri. Það
væri til bóta. En við erum þó hepp-
in að því leyti að þjóðfélagið er lít-
ið, aðeins fimm milljónir íbúa. Þið
njótið þess einnig á Islandi, geri ég
ráð fyrir."
Heldur loforð
um heimsóknir
- Forsetinn hét því einnig að
halda nánu sambandi við kjósend-
ur. Hefur hann staðið við það?
„Fólkið spurði hvort það mundi
fyrst sjá mig aftur að sex árum liðn-
um næði ég kjöri. Því svaraði ég
neitandi og hét því í kosningabar-
áttunni að ferðast einu sinni í mán-
uði til einhvers héraðs landsins. Við
það hef ég staðið. Og það hefur
verið hrífandi að fylgjast með við-
brögðunum. Almenningur kann vel
að meta þetta framtak, á því leikur
ekki vafí, viðbrögð hans eru mjög
jákvæð. Ymsir erlendir stjórnmála-
menn hafa og áttað sig á gildi þess.
Norski forsætisráðherrann segist
hafa farið að frumkvæði mínu og
orðið ágengt. En svo eru ýmsir
fræðingar sem vita ekki almenni-
lega hvað þeir eiga að lesa út úr
heimsóknunum. Sumir þeirra halda
að ég sé í þrotlausri kosningabar-
áttu. En það aftrar mér ekki frá
því að standa við loforðið, því ég
tel afar mikilvægt að fara út á
meðal fólks og kynna mér þróun
/ /
BILSKURSHURÐIR
rt'/AL-BORGA =í-lr.
HÖr nABAKKA 9. 1 19 Bl YKJAVIK
SIMI 98/* 8/90 I AX 98/ 8/91
■--------■
SLIM-LINE
dömubuxur
frá gardeur
Qhmtv
tískuverslun
Barnafatnaður úr llísetnum
íslensk framleiðsla
Laugaveg 48 B (upp í lóðinni),
sími 552 1220
mála í einstökum héruðum. Ferð
af þessu tagi er á döfinni í næstu
viku.“
- Færðu gagnrýni fyrir þessar
ferðir, sjá einhveijirþær sem tilraun
af þinni hálfu til beinna afskipta
af innanlandsmálum?
„Nei, ég held að enginn hafi lát-
ið að því liggja. En augljóslega er
ýmsum órótt út af þessu en það er
þó fyrst og fremst vegna þess að
þeir gefa þessum ferðum miklu
meira pólitískt vægi en ástæða er
til. Mér myndi þykja það afar ein-
kennilegt ef ég hefði ekki mögu-
leika á að fara út á meðal fólksins,
yrði eingungis að halda mig hér í
bústaðnum eða forsetahöllinni og
taka bara á móti opinberum gest-
um. Það væri ömurlegt hlutskipti
og fyrr myndi ég skipta um starf
en þurfa að taka því.“
- Það leiðir hugann að völdum
forsetans, hvort þau eigi að vera
meiri eða minni, og spurningunni
um að hann deili utanríkismálum
með forsætisráðherranum. Er það
raunhæft eða er það ef til vill ekk-
ert vandamál?
„Það er enginn vandi og sam-
starf okkar er með miklum ágætum.
Ég stjórna fundum utanríkis- og
öryggisráðsins og varnarmálaráðs-
ins séu málin mjög umfangsmikil,
annars er það í verkahring forsætis-
ráðherrans. Ég funda og reglulega
með utanrikisráðherranum þar sem
við höfum tækifæri til að skiptast
á skoðunum um mál sem upp kunna
að koma. Ég tel að við búum við
skilvirkt stjórnkerfi. Forsetinn hef-
ur mikil völd, það er engin spurn-
ing, og ég hef verið því fylgjandi
að hluti þeirra, til dæmis embætti-
sveitingar, verði færð frá honum.“
- Samskipti íslands og Finn-
lands. Hafa forsetarnir hist?
„Já, og ég hef notið þeirra funda
og hlakka mjög til þess að taka á
móti forsetahjónunum í Finnlandi.
Við eigum mörg sameiginleg
áhugamál og bakgrunnur hans er
að mörgu leyti líkur mínum, við
erum til dæmis báðir mjög alþjóð-
lega sinnaðir. Hleypidómalausir að
því leyti að við viljum rökræða mál
og leita raunverulegra lausna á
vandamálum. Þessi sameiginlegi
bakgrunnur hefur gert það að verk-
um að við höfum náð mjög vel sam-
an. Ég sé einnig að með forseta-
embættunum í báðum löndum gefst
okkur tækifæri til raunverulegrar
samvinnu og að því vinnum við.
Staða okkar er t.a.m. önnur en
hinna konungbornu norrænu þjóð-
höfðingja. Ég held einnig að vax-
andi áhugi sé á auknu samstarfi
milli landanna og því er ég afar
fylgjandi. Við höfum leitað ólíkra
lausna í aiþjóðamálum en ég held
það sé miklu meira sem sameinar
okkur í dag í nýrri skipan mála í
Evrópu heldur en t.d. á tímum kalda
stríðsins. Norrænt samstarf hefur
verið skerpt að vissu marki en það
er svigrúm fyrir virkt samstarf
milli landanna.“
200 VIÐBOTARSÆTI
Á TILBOÐSVERÐI
London
á kr.
19.990
Flug og hótel
24.990 kr.
London - vinsælasta borg Evrópu
Londonferðir Heimsferða hafa fengið ótrúlegar undirtektir og
hundruðir sæta hafa nú selst til þessarar vinsælustu borgar Evrópu.
Nú eru fyrstu ferðirnar að seljast upp, enda höfum við aldrei
boðið jafn ótrúlega hagstæð kjör og nú í vetur með beinu flugi
okkar til mestu heimsborgar Evrópu. Glæsilegt úrval gististaða
í boði, spennandi kynnisferðir, besta verslunarborg Evrópu og
íslenskir fararstjórar Heimsferða tryggja þér ánægjulega dvöl í
heimsborginni sem á þriðja þúsund íslendinga heimsóttu á vegum
Heimsferða síðasta vetur.
Bókaðu strax og tryggðu þér tilboðsverðið.
——- “ 1 Fáðu
íslenskir 1 bæklinginn
sendan.
Verð frá kr. 19.990
Flugsæti til London með flugvallasköttum,
flug frá ntánudegi til fimmtudags ef bókað
er fyrir 1. september.
Verð frá kr. 24.990
M.v. 2 í herbergi, Crofton Hotel, 3 nætur.
brottför á mánudögum, ef bókað er fyrir
1. september.
Austurstræti 17,
2. hæð • Sími 562 4600