Morgunblaðið - 24.08.1997, Page 14
14 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
REYKJAVIKURMARAÞON
Öm varð að
hætta við
Orn tók ekki þátt í 100 m bak-
sundi á Evrópumeistaramót-
inu í gær eins og til stóð vegna
meiðsla í vinstri öxl, en þau eru
samskonar og voru að hrjá hann
fyrr í sumar. „Bólgur komu í öxl-
ina eftir keppni í B-úrslitum 200
m baksundsins á fimmtudaginn og
eftir að við höfðum ráðfært okkur
við lækna var sú ákvörðun tekin
að Örn drægi sig til baka,“ sagði
Hafþór B. Guðmundsson, landsl-
iðsþjálfari, í samtali við Morgun-
blaðið.
Hafþór sagði þessi meiðsli vera
vonbrigði ekki síst fyrir Öm sem
hefði náð glæsilegum árangri í 200
m baksundi. „Auðvitað langar hann
til að keppa, en hann er skynsamur
og sér að það borgar sig ekki að
hætta á neitt heldur láta nú gott
heita og fara að huga að undirbún-
ingi næsta stórverkefnis sem er
HM í Ástralíu í janúar."
Örn hefur synt 100 m baksund
á 58,46 sekúndum en íslandsmet
FRJALSIÞROTTIR
Eðvarðs Þórs Eðvarðssonar er
57,15 frá 1987. Ljóst er að Örn
hefði þurft að bæta sig verulega til
að komast í B-úrslit í sundinu því
síðasti maðurinn inn í þau var á
57,40 sek. Alls syntu 12 sundmenn
undir 57 sek. „Ég skal ekkert full-
yrða um að Öm hefði komist í B-
úrslit en hefði öxlin verið í lagi er
ég viss um að hann hefði farið
nærri því,“ sagði Hafþór.
í dag er síðasti keppnisdagur á
Evrópumótinu og keppa þá tvær
íslenskar sundkonur. Elín Sig-
urðardóttir í 50 m skriðsundi og
Eydís Konráðsdóttir í 200 m bak-
sundi. „Það hefur verið erfitt fyrir
Elínu að bíða svona lengi en miðað
við það sem hún hefur verið að
sýna á æfingum er hún til alls lík-
leg, en ég vil ekki lofa neinu um
met,“ sagði Hafþór. Hann sagði
ennfremur að Eydís væri að bæta
sig eftir magakveisu. „Það leikur
enginn vafi á að Eydís á eftir að
gera betur en í 100 m baksundinu.“
Bretar drag-
ast afturúr
Breskir íþróttamenn hafa á síð-
ustu árum dregist aftur úr
íþróttamönnum margra þjóða, t.d.
frá fyrrum nýlendum. Þessu heldur,
Simon Glegg, fulltrúi í bresku
ólympíunefndinni fram og tekur
jafnvel svo djúpt í árinni að segja
að landar hans séu um 20 árum á
eftir Ástralíu í stuðningi, aðstöðu
og þjálfun íþróttamanna. Sem dæmi
máli sínu til stuðnings nefnir hann
að Bretar hafi aðeins unnið ein
gullverðlaun á síðustu Ólympíuleik-
KORFUBOLTI
Dregið í Evr-
ópudeildinni
DREGIÐ hefur verið í riðla í Evr-
ópudeildinni í körfuknattleik.
Fýrsta umferðin fer fram í septem-
ber, en úrslitakeppni fjögurra efstu
liðanna verður í Barcelona á Spáni
21. til 23. apríl á næsta ári.
A-riðill:
CSKA Mokva (Rússlandi)
Efes Pilsen Istanbul (Tyrklandi)
Limoges (Frakklandi)
Maccabi Elite Tel Aviv (ísrael)
Olympiakos (Grikklandi)
Real Madrid (Spáni)
B-riðill:
Porto (Portúgai)
Estudiantes Madrid (Spáni)
Turk Telekom Ankara (Tyrklandi)
Croatia Split (Króatíu)
Benetton Treviso (Ítalíu)
PAOK Salonika (Grikklandi)
C-riðill:
Partizan Belgrade (Júgóslavíu)
Pau-Orthez (Frakklandi)
Kinder Bologna (Ítalíu)
Hapoel Jerusalem (Israel)
Barcelona (Spáni)
Ulker Spor (Tyrklandi)
D-riðill:
Alba Berlin (Þýskalandi)
AEK Athens (Grikklandi)
Olimpija Ljubljana (Slóvakíu)
Cibona Zagreb (Króatíu)
PSG Racing Basket Paris (Frakkl.)
Teamsystem Bologna (Ítalíu)
um a sama tíma og Ástralir hlutu
9. „Ástralir líta á það sem sjálfsagð-
an hlut að hafa íþróttaaðstöðuna
eins og best er á kosið hvetju sinni,“
segir Glegg. „Því er ekki fyrir að
fara hjá okkur og má sem dæmi
nefna að við eigum aðeins ellefu
50 metra sundlaugar."
Glegg segir ennfremur að landar
hans væru nú fyrst að leiða hugann
að þvi að hafa einhveija afreks-
mannastefnu líka þeirri sem Ástralir
hafa unnið eftir í á annan áratug. í
Bretlandi hafi á sama tíma ofur-
áhersla verið lögð á almennings-
íþróttir á kostnað afreksmanna.
Nauðsynlegt er, að hans mati, að
jafna áherslumar þama á milli. „Að
þessu var hugað hjá félögum okkar
fyrir löngu, en við sátum eftir og
súpum nú seyðið af því,“ segir Glegg.
Leiðrétting
ÆT
Ífrásögn af leik Víkings og KA í
1. deild karla í Morgunblaðinu
í gær var ranglega sagt að Kristinn
Jakobsson hefði dæmt leikinn. Hið
rétta er að Einar Sigurðsson dæmdi
umræddan leik en Kristinn kom þar
hvergi nærri. Er Kristinn beðinn
velvirðingar á mistökunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
UNDANFARIN ár hafa keppendur í Reykjavíkurmaraþoni verið hálft fjórða þúsund og mikill
hamagangur í öskjunni þegar fjöldinn leggur af stað í Lækjargötunni.
Brautarmet karla og kvenna í hálfu maraþoni í haettu
Útlendingar hafá
aldrei verið fleiri
Reykjavíkurmaraþon verður
haldið í 14. sinn á götum höf-
uðborgarinnar í dag og segist Ág-
Skaut son sinn í
fagnaðariátunum
TYRKIR halda enn í vonina um
að tryggja sér sæti á heims-
meistaramótinu í knattspyrnu,
sem fram fer í Frakklandi á
næsta ári, eftir að þeir sigruðu
Walesbúa 6:4 í Istanbul á mið-
vikudaginn. Aðdáendur tyrk-
neska landsliðsins fögnuðu
sigrinum vel og lengi, en gleði
eins þeirra breyttist þó í ólýsan-
lega martröð þegar hann ákvað
að halda upp á daginn með því
að hleypa af haglabyssu innan-
dyra í húsi sínu í borginni Ad-
ana. Ekki vildi betur til en að
sonur hans varð fyrir skotinu
og lést af völdum þess á sjúkra-
húsi skömmu síðar.
úst Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri maraþonsins, búast við um
3.500-4.000 þátttakendum, þar af
350 útlendingum og hafa þeir aldr-
ei verið fleiri.
„Flestir hafa þátttakendurnir
verið 3.700 og yfirleitt er ríflega
helmingur þeirra í skemmtiskokk-
inu. Skráning hefur gengið alveg
þokkalega hingað til, en veðurspáin
fyrir helgina er góð og má því
reikna með að skráningin taki
kipp,“ sagði Ágúst í samtali við
Morgunblaðið fyrir helgina.
Bretarnir líklega í sviðsljósinu
Eins og fyrri ár verður keppt í
fjórum flokkum - maraþoni, sem
er 42,2 kílómetrar, hálfu maraþoni,
sem er 21,1 kílómetri, 10 kílómetra
hlaupi og skemmtiskokki, sem er 3
kílómetrar.
„Ég á von á að keppni í karla-
flokki maraþonsins standi á milli
sigurvegara síðasta árs, Hugh
Jones frá Bretlandi, og landa hans,
Tobys Tansers, en Ingólfur Gissur-
arson gæti hugsanlega blandað sér
í þá baráttu," sagði Ágúst.
„í kvennaflokki má reikna með
sigri hinnar bresku Ruth Kings-
borough, en það er fremur ólíklegt
að einhverjir óþekktir hlauparar
skjótist fram á sjónarsviðið í
maraþoninu. í hálfu maraþoni
getur hins vegar allt gerst, en
fyrirfram er þó gert ráð fyrir sigri
Steves Greens frá Bretlandi í
karlaflokki og Gitte Karlshej frá
Danmörku í kvennaflokki. Braut-
armetið í hálfu maraþoni er
1:05,36 í karlaflokki og 1:11,40 í
kvennaflokki, en Green á best
1:04,45 og Karlshoj 1:09,51 þann-
ig að brautarmetin eru í hættu,“
sagði Ágúst.
SUND / EVROPUMOTIÐ