Morgunblaðið - 24.08.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 24.ÁGÚST 1997 15
1,4 millj. kr. úthlutað
úr Menningarsjóði
STJÓRN Menningarsjóðs íslands og
Finnlands kom saman ti! fundar á
ísafirði nýverið til að ákveða árlega
úthlutun styrkja úr sjóðnum. Alls
bárust 119 umsóknir, þar af _83 frá
Finnlandi og 36 frá Islandi. Úthlut-
unin nam 108.000 finnskum mörk-
um eða jafngildi um 1,4 millj. ísl.
króna og hlutu eftirtaldir umsækj-
endur styrki sem hér segir:
1. Anna María Geirsdóttir mynd-
listarmaður, 4.000 mörk, til að halda
sýningu á veflist í Hangö ásamt
Heli Jaskanen. 2. Ásdís Olafsdóttir
listfræðingur, 3.000 mörk til útgáfu
doktorsritgerðar hennar um verk
Alvars Aaltos arkitekts. 3. Bjarni
Jónatansson orgelleikari, 4.000
mörk til tónleikaferðar til Finnlands
til að kynna íslenska kirkjutónlist
ásamt Sigurði Bragasyni söngvara.
4. Björn Thoroddsen tónlistarmaður,
4.000 mörk, til að stofna finnsk-
íslenskan kvartett, halda tónleika í
Finnlandi og taka upp tónlist á
hljómdisk. 5. Camilla Söderberg
blokkflautuleikari, og Guðrún Ósk-
arsdóttir semballeikari, 8.000 mörk
til tónleikaferðar til Finnlands til að
kynna íslenska nútímatónlist. 6.
Hallveig Thorlacius brúðuleikstjóri,
4.000 mörk, ferðastyrkur til að fara
með brúðuleikhús til Finnlands og
halda þar sýningar. 7. Karl Vil-
hjálmsson ljósmyndari, 1.000 mörk,
til að undirbúa ljósmyndasýningu.
8. Kjartan Einarsson ljósmyndari,
1.000 mörk, vegna efniskostnaðar
til að setja upp Ijósmyndasýningu.
9. Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistar-
maður, 4.000 mörk, til að kynna sér
finnska ljósmyndalist. 10. Sigrún
Guðmundsdóttir lektor, 4.000 mörk,
til að kynna sér veflist og hönnun í
Finnlandi. 11. Sigurður Bragason
söngvari, 4.000 mörk til tónleika-
ferðar til Finnlands til að kynna ís-
lenska kirkjutónlist ásamt Bjarna
Jónatanssyni orgelleikara. 12. Snæ-
björn Arngrímsson ritstjóri, 4.000
mörk, ferðastyrkur til að vinna með
tímaritinu LIKE að kynningu og
útgáfu finnskra bóka á íslandi. 13.
Hannu Hautala ljósmyndari, 5.000
mörk til að taka ljósmyndir af ís-
lenskri náttúru með áherslu á suð-
urströnd landsins. 14. Eva Jansson,
fíl. mag., 1.000 mörk til að vinna
að ljósmyndasýningu í sambandi við
íslandsvikuna í Vasa. 15. Tittamari
Marttinen-Envall rithöfundur, 4.000
Handrita-
sýningu
að ljúka
HÁTÍÐARSÝNINGU _ í Stofnun
Árna Magnússonar á íslandi fer nú
senn að ljúka.
Á sýningunni í Árnagarði við
Suðurgötu gefst fólki einstakt tæki-
færi til að sjá nokkra af mestu dýr-
gripum þjóðarinnar því að þar eru
til sýnis Konungsbók eddukvæða,
Snorra-Edda, Flateyjarbók, sem er
stærst allra íslenskra handrita, og
Möðruvallabók með 11 íslendinga-
sögum m.a. Egils sögu, Njálu og
Laxdælu. Einnig eru á sýningunni
handrit Landnámu, íslendingabókar,
Grágásar og Jónsbókar og kaupbréf
fyrir Reykjavík. Vönduð sýningar-
skrá um öll þessi handrit er innifalin
í aðgangseyri.
Nú hefur verið bætt á sýninguna
handritunum tveimur sem síðast
koinu til landsins. Annað þeirra hef-
ur að geyma prédikanir og er líklega
það elsta sem varðveist hefur á ís-
lensku máli, en hitt handritið er
annað aðalhandrit Stjórnar, þýðing-
ar úr Gamla testamentinu með skýr-
ingum og myndum, eitt fegursta
handritið frá mesta blómaskeiði ís-
lenskrar bókagerðar á miðöldum.
í anddyri Árnagarðs og sérstökum
sýningarsal er einnig hægt að fræð-
1 ast um gerð handrita, myndlist í
handritum, útgáfur fornrita og sögu
' handritanna og þar má einnig hlusta
á rímnakveðskap og söng úr segul-
bandasafni Árnastofnunar með þjóð-
fræðaefni.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
13-17 til 31. ágúst.
mörk til íslandsferðar til að safna
efni í bók. 16. Hópur fínnskra kenn-
aranema og kennara, 6.000 mörk
til Islandsferðar til að kynna sér
móðurmálskennslu fyrir verðandi
bekkjarkennara. 17. Heikki Mákelá,
leikstjóri og leikhússtjóri, 4.000
mörk, ferðastyrkur til að safna efni
í leikrit á íslandi. 18. Nuoren Voim-
en Liitto ry, 6.000 mörk til íslands-
ferðar finnskra ljóðskálda. 19. Nor-
ræna félagið í Vasa héraði, 10.000
mörk til íslandsviku þar sem kynnt
verður íslensk menning og matar-
gerð. 20. Dr. Pirkko-Liisa Rauhala,
4.000 mörk til að vinna með Guðnýju
Björk Eydal að samstarfsverkefni
um þjóðfélagsþróun í Finnlandi og
á íslandi. 21. Rauman Elokuvakerho
ry, Jarmo Mákelá, 4.000 mörk til
að bjóða íslenskum kvikmyndaleik-
stjóra á kvikmyndahátíðina „Blue
Sea Film Festival". 22. Katriina
Salminen lektor, 6.000 mörk, styrk-
ur tij námsferðar menntaskólanema
til íslands. 23. Jyrki Siukonen,
myndlistarmaður og ritstjóri, 4.000
mörk til íslandsferðar til að vinna
að sérhefti um íslenska menningu
fyrir listatímaritið TAIDE ásamt
Timo Setálá, ljósmyndara og grafík-
listamanni. 24. Ung Nordisk Musik,
6.000 mörk til þátttöku níu tónlist-
armanna frá Finnlandi í norrænni
tónlistarhátíð í Reykjavík. 25. Heim-
ilis- og listiðnaðarfélag í Österbott-
en, 3.000 mörk til að bjóða íslensk-
um veflistarmanni að halda sýningu
og fyrirlestur á íslandsviku.
Ennfremur var ákveðið að veita
Lina Antman, fíl. stud., styrk tii
náms í íslenskum fræðum við Há-
skóla íslands skólaárið 1997-98.
Stofnað var til sérstaks námsstyrks
úr sjóðnum vegna 50 ára afmælis
íslenska lýðveldisins 1994 og er hann
nú veittur í fjórða sinn.
Stofnfé sjóðsins var 450.000
fínnsk mörk sem fínnska þjóðþingið
veitti í tilefni af því að minnst var
1100 ára afmælis byggðar á íslandi
sumarið 1974, en nemur nú um 2,6
millj. marka. Stjórn sjóðsins skipa
Matti Gustafson, deildarstjóri í
finnska menntamálaráðuneytinu,
formaður, Juha Peura, fíl. mag., dr.
Njörður P. Njarðvík prófessor, og
Þórunn Bragadóttir deildarstjóri.
Bryndís Berg
hefur misst 13 kg.
Hildur Ingvarsdóttir
hefurmisst 10 kg.
María Pétursdóttir
hefur misst 12 kg.
8-vikna fitubrennslu-
námskeið:
• Þjálfun 3-5x í viku
• Fræðslu- og kynningarfundur
• Fitumælingar og vigtun
• Matardagbók
• Uppskriftabókin “Léttir réttir,,
150 frábærar uppskriftir
• Nýr upplýsingabæklingur:
„í formi til framtíðar
• Mjög mikið aðhald
• Vinningar dregnir út
í hverri viku
áótœdivc tií ad u&ta með:
- ná settu þyngdarmarkmiði
- verða hressari á sál og líkama
- æfa í skemmtilegum og
hvetjandi félagsskap!
Þeim fjölgar stöðugt konunum sem hafa
náð frábærum árangri á fitubrennslu-
námskeiðunum hjá okkur. Vertu með
þetta er auðveldara en þú hyggur!
RGUSTU fr HRHFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 533-3355
KA HEIMILINU 600 AKUREYRI S. 462 621 1
Kvöldhópar
Daghópur
Morgunhópur
Framhaldshópur
Barnagæsla
Hefst 1. sept.