Morgunblaðið - 24.08.1997, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tónleikar í
Siguijónssafni
Islenskt
tónverk
frumflutt
Á ÞRIÐJUDAGSTÓNLEIKUM í
Listasafni Siguq'óns ÓLafssonar
næstkomandi þriðjudagskvöld kl.
20.30 koma fram þau Hólmfríður
S. Benediktsdóttir
sópran, Guðni
F'ransson klarí-
nettuleikari og
Gerrit Schuil
píanóleikari.
Hólmfríður syng-
ur lög eftir Finn
Torfa Stefánsson,
Mendelssohn og
Johannes Brahms
við undirleik Ger-
rit Schuil. Auk
þess flytja listamennirnir, fyrir sópr-
an, klarínettu og píanó, verkin Úr
sex þýskum söngvum eftir Ludwig
Spohr og Der Hirt auf dem Felsen
eftir Franz Schubert. Þá verður
Vals milli greina eftir Hróðmar Inga
Sigurbjörnsson frumfluttur, en
Hróðmar samdi verkið sérstaklega
fyrir flytjendurna, sem hafa starfað
saman á liðnum árum.
„Verkið, sem er samið við ljóð
Garcia Lorca í þýðingu Jóns Halls
Stefánssonar myndar andstæðu við
verk Finns Torfa,“ segir Hólmfríður
um efnisskrána. Finnur Torfi samdi
verk sitt við_ kvæði Einars Bene-
diktssonar, Útsæ, sem Hólmfríður
frumflutti á Húsavík árið 1995 við
minningarathöfn um látna sjómenn.
„Ljóðatexti Lorca hefur yfir sér
dramatískan blæ og verk Hróðmars
dregur dám af því á meðan laglínan
í verki Finns Torfa endurspeglar
meiri einfaldleika."
Þetta er í annað skipti sem Hólm-
fríður syngur í Siguijónssafni, en
hún lauk magistersprófi í einsöng
við Indianaháskóla í Bloomington
árið 1990. Hún starfar nú sem
söngvari, söngkennari og kórstjóri
á Norðurlandi.
-----».--------
„Frátekið
borð“á ferð
FRÁTEKIÐ borð eftir Jónínu Leós-
dóttir verður sýnt í Rive Gauche
kaffihúsinu í Kópavogi 24. ágúst kl.
20. Leikurinn Frátekið borð verður
einnig sýndur á sunnudag í Kaffi
Flug í Keflavík kl. 15.30.
Helgina 30. og 31. ágúst verður
farið um Norðurland og sýnt á
Sveitasetrinu á Blönduósi, Ráðhús-
kaffi á Akureyri og Kaffi Menningu
á Dalvík.
-----♦ ♦ ♦-----
Verk eftir
Picasso
finnst
Madríd. Reuter.
BARNABARN spænska málarans
Joans Miros fann nýverið teikningu
eftir Pablo Picasso. Teikninguna
hafði Picasso gefið Miro.
Um er að ræða stóra teikningu
af nautaati, sem var algengt við-
fangsefni spænska málarans.
„Barnabarn Miros var að vinna við
skrásetningu í bókasafni afa síns
þegar hann rakst á upprunalegan
Picasso sér til mikillar furðu í bók
um nautaatslistina," sagði Nuria
Sureda, talsmaður Joan og Pilar
Miro-stofnunarinnar á miðvikudag.
Þetta er fyrsta gjöf meiriháttar
listaverks frá Picasso til Miros sem
vitað er um. Á myndina er letrað
„Til Miros, þinn vinur að eilífu“ og
ber hún ártalið 1963.
Strengjasveit tónlistarskólans fær góða dóma í Skotlandi
„HINIR sextán þróttmiklu strengir sveitarinnar undir stjórn
Marks Reedmans sýndu mjög líflegan ieik,“ segir meðal annars
í dómunum. A myndinni eru meðlimir Strengjasveitar Tónlistar-
skólans í Reykjavík ásamt stjórnandanum.
„Sýndi
undur-
samlegan
næmleika“
STRENGJASVEIT Tónlistar-
skólans í Reykjavík er nýkomin
heim úr ferð til Skotlands þar
sem hún tók þátt í Alþjóðahátíð
æskunnar í Aberdeen sem hald-
in var dagana 30. júlí til 9. ág-
úst sl. Sveitin hlaut lofsamlega
dóma fyrir leik sinn í blöðum
en hún lék nokkur verk við
opnun hátíðarinnar og hélt alls
þrenna tónleika á sjálfri hátíð-
inni og eina tónleika utan henn-
ar. Hljómsveitin hefur tvívegis
áður tekið þátt í þessari hátíð,
árin 1983 og 1991.
Sextán þrótt-
miklir strengir
í dagblaðinu Herald segir
Alan Cooper m.a.: „Hinir sextán
þróttmiklu strengir sveitarinnar
undir stjórn Mark Reedman
sýndu mjög líflegan leik. Upp-
hafshljómar Shaconne í g-moll
eftir Purcell gripu bókstaflega
hlustandann með sínu svipmikla
tóntaki. Tónninn var voldugur
og skinandi en sveitin sýndi
einnig undursamlegan næm-
leika, svo sem í þáttunum tveim-
ur úr Hinriki V eftir Walton.
Sigurður Bjarki Gunnarsson dró
fram hlýleika og þrótt sem ein-
leikari I e-moll sellókonsert Vi-
valdis og enda þótt kvartetthóp-
urinn í Introduction and Allegro
eftir Elgar hafi ekki verið full-
komlega jafn náði sveitin þar
samt hámarki með tilfinninga-
þrunginni túlkun.“
Frábærlega
fágaður leikur
í Press and Journal segir Tim
Pauling: „Kvöldinu lauk með
frábærlega fáguðum leik
Strengjasveitar Tónlistarskól-
ans í Reykjavík. Stjórnandinn
Mark Reedman, sem hér kom í
heimsókn í þriðja sinn, lokkaði
fram tón úr hinum ungu, ís-
lensku skjólstæðingum sínum
sem var hvelfdur og hljómmik-
ill eins og fínt rauðvín. Þeir
léku af glæsileik sem margar
fílharmóníuhljómsveitir mættu
öfunda þáaf.“
Strengjasveitinni hefur verið
boðið að fara í tónleikaferð til
Skotlands næsta vor og heim-
sækja jafnvel England í sömu
ferð.
Sumar-
kvöldið
við
orgelið
KÁRI Þormar leikur á tónleik-
um í Hallgrímskirkju í kvöld
kl. 20.30. Á efnisskrá er partít-
an Was Gott tut das ist wo-
hlgetan eftir Johan Pachelbel
(1653-1706), Tokkata Undec-
ima eftir George Moffat (1653-
1704), Prelúdía og fúga um
nafn Jehan Alain eftir Duruflé
auk annarra franskra verka
eftir Vierne og Widor. Inn á
milli leikur Kári Snertur fyrir
Hörð og nýja orgelið, sem Þor-
kell Sigurbjörnsson samdi sér-
staklega fyrir vígslu Klais-örg-
els Hallgrímskirkju árið 1992.
Verk Þorkels er í fimm þáttum
og er hugmyndin á bak við
verkið Passíusálmar séra Hall-
gríms Péturssonar. I öðrum
kaflanum er kallaður fram
hugblær grasagárðsins í Get-
semane, tónklasarnir geta
minnt á vínbeijakla.sa, og í síð-
asta kaflanum gægist í gegn
laglína, sem notuð er við
nokkra af Passíusálmunum.
Kári Þormar lauk burtfarar-
prófi í píanóleik frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík árið
1993 og sama ár burtfarar-
prófi í orgelleik undir leiðsögn
Harðar Áskelssonar. Hann
stundar nú framhaldsnám í
kirkjutónlist og orgelleik við
Robert Schumann-tónlistar-
skólann í Dússeldorf. Kári hef-
ur áður haldið tónleika hér á
landi og erlendis, nú síðast á
norrænni menningarhátíð í
Essen í Þýskalandi. Fyrir
stuttu hlaut hann styrk úr
minningarsjóði Karls Sig-
hvatssonar.
Afmælishátíð
SKÚLPTÚR. Þorbjörg Pálsdóttir.
MYNPLIST
Nýlcndugata 15
SKÚLPTÚR
MYNDHÖGGVARA-
FÉLAGIÐ
FIMMTÍU LISTAMENN
Opið alla daga frá 14-18. Til 24.
ágúst. Aðgangur ókeypis.
ALDARFJÓRÐUNGUR er lið-
inn síðan Myndhöggvaraféagið
var stofnað og af því tilefni bjóða
meðlimir þess upp á listaveislu í
húsakynnum sínum á Nýlendu-
götu 15. Hratt flýgur ögurstund
og er skrifara enn í fersku minni
er grafíkfélagið var endurvakið
með myndarbrag nokkrum árum
áður, en það hefur mjög sennilega
verið hvati þess að myndhöggvar-
ar fóru að hugsa sinn gang, enda
fjölgaði þeim einnig til muna á
sama tímabili. Félag íslenzkra
myndlistarmanna var á þeim tíma
meira þröngur listhópur, en heild-
arsamtök myndlistarmanna, þar
sem lítill kjarni réð öllu. Vakti ég
athygli á ástandinu og nauðsyn
þess að það yrði stokkað upp í
langri ádeilugrein í SAMvinnunni
fyrir 30 árum. Yrði félag allra
myndlistarmanna á landinu í sam-
ræmi við heiti sitt, í líkingu við
samtök myndlistarmanna annars
staðar á Norðurlöndum, með ýms-
um sérgeirum. En myndlistar-
menn skildu ekki sinn vitjunar-
tíma og því var lengi og ef enn
meiri ruglingur í félagsmálum
þeirra en annars staðar á Norðúr-
löndum, þrátt fyrir stofnun SÍM
löngu seinna, en þar hafa mál illu
heilli skipast á sama veg um harð-
an valdakjarna. Hér hefði verið
farsælla að byrgja brunninn í
tíma.
Sérfélögin, þ.e. Grafík- og
Myndhöggvarafélagið eru þó af
hinu góða, því þeim hefur tekist
svo margt sem FÍM hefði aldrei
haft bolmagn né vilja til, enda
ekki á dagskrá að mylja undir
aðra og utan hlaðvarpans heima.
Þannig er Grafíkfélagið í óða önn
að koma upp verkstæði fyrir fé-
lagsmenn og Myndhöggvarafélag-
ið er komið með vinnuaðstöðu í
gamalli smiðju, sem hefur án efa
gjörbreytt möguleikum einstakra
varðandi útfærslu verka sinna.
Báðum félögunum er þó brýn
nauðsyn að fá þaulreynda fagmenn
að utan til að byggja upp starfsem-
ina og umfram allt skapa uppör-
vandi andrúmsloft, en við eigum
enga slíka til. Einkum er hrópleg
vöntun á þessu hjá grafíkfélaginu,
en þar er aðkoman afar hrá og
köld, í andstöðu við slík verkstæði
ytra sem eru einstaklega Iífrænir
staðir, veit hins vegar skiljanlega
minna um andrúmið og vinnu-
móralinn í skúlptúrsmiðjunni.
Ástæða er til að vekja sérstaka
athygli á opnu húsi í smiðjunni,
því afar fróðlegt er að litast þar
um, en hins vegar fer minna fyrir
sýningunni innan um allt kraðak
annarra hluta, lausra og fastra sem
‘húsinu tilheyra. Sum verkanna
njóta sín beinlínis afar illa og mörg
eru nær ósýnileg og hefði trúlega
verið farsælla að gefa gesti og
gangandi innsýn í starfshætti á
staðnum og hafa meira af ljós-
myndum og sýningarskrám til að
lífga upp hið hráa andrúm. Þá
stendur gjörningurinn alltof stutt
til að hægt sé að íjalla um einstök
verk að gagni.
Ber að óska félaginu farsældar
og nýkjörnum heiðursfélaga, Þor-
björgu Pálsdóttur, til hamingju
með nafnbótina, en verk hennar
njóta sín á staðnum, einkum af
börnunum. Þá kemur fram óvænt
og sterk formtilfinning í hinum
stóra útskorna fugli Hannesar Lár-
ussonar, sem gæti boðað hvörf á
listferli hans, því auljóslega búa í
honum dijúgir hæfileikar á sviði
sjálfs rúmtaksins.
En hér er helst vakin athygli á
góðu framtaki og þá er að skunda
á staðinn.
Bragi Ásgeirsson