Morgunblaðið - 24.08.1997, Side 20
20 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
María
fer víóa
BARBARA Auer, í hlutverki Maríu, og Rudolf Kowalski, sem leikur ástmann Maríu,
gyðinginn Bruno, í lautarferð við Gullfoss.
MARÍA og Hedwig hlæja að kartöflunum sem þeim er boðið upp á
við komuna til Islands.
ARNAR Jónsson, sem Einar líkir við Jeremy Irons, og Björn Karlsson
í hlutverki íslenskra bænda.
Kvikmyndm um Maríu verður frumsýnd inn-
*
an skamms í Þýskalandi og á Islandi. Mynd-
inni verður dreift í
30 eintökum í Þýska-
landi og er það mesta
upphafsdreifing
myndar eftir íslend-
ing. Helgi Þor-
steinsson ræddi við
leikstjórann og Frið-
rik Þór Friðriksson
meðframleiðanda.
MARÍA, mynd Einars Heim-
issonar leikstjóra, sem
tekin var á íslandi og í
Liibeck í Þýskalandi síð-
astliðið sumar, verður
frumsýnd í Þýskalandi 18. septem-
ber. Hún hefur þegar verið sýnd á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí
og fékk þar góðar viðtökur. Að
sögn Einars verður myndinni dreift
í 30 eintökum til kvikmyndahúsa
í Þýskalandi. „Þetta er sennilega
mesta upphafsdreifing á mynd eft-
ir íslenskan höfund. Hún var tekin
á 28-30 dögum á eina vél og það
höfðu fæstir búist við því að mynd
sem tekin var svo hratt kæmist í
bíó. Ég þakka þetta góðu íslensku
samstarfsfólki í öllum lykilstöð-
um.“
Heimildamynd sem gerð var um
töku bíómyndarinnar hefur þegar
verið sýnd í sjónvarpi í Þýska-
landi, og að sögn Einars hefur hún
vakið viðbrögð og hann er því bjart-
sýnn á viðtökur Maríu. „Eg var á
gangi úti í rigningunni í Miinchen
fyrir nokkru. Þá vék sér að mér
kona sem ég þekkti ekkert og
spurði hvenær von væri á Maríu.“
María fjallar um örlög þýskrar
Einar Heimisson.
konu sem flýr skort eftirstríðsár-
anna í Þýskalandi og kemur til
íslands til að vinna á íslenskum
bóndabæ. Aðalframleiðandi mynd-
arinnar var þýska kvikmyndafyrir-
tækið Blue Screen í Munchen, en
meðframleiðandi var íslenska kvik-
myndasamsteypan. Kostnaður var
að minnsta kosti 70 milljónir króna.
„Það er nýtt á íslandi að búin sé
til mynd með útlendu forræði,"
segir Einar. „íslenska kvikmynda-
vorinu er lokið og við erum að fara
inn í nýtt tímabil. Leikstjórar sem
eru að hasla sér völl þurfa að vinna
öðruvísi en áður. Þeir verða að
gera myndir sem útlenskir áhorf-
endur vilja horfa á. Mér fínnst
þetta ekki vera vandamál, því kvik-
myndin er í sjálfu sér alþjóðlegt
listform."
Viðkvæmur tími
fyrir Þjóðveija
Einar segir samstarfið við út-
lendinga hafí þó ákveðna erfiðleika
í för með sér því sætta þurfí ólík
sjónarmið. „María er söguleg mynd
og gerist á tíma sem er Þjóðverjum
viðkvæmur. Þeir hafa átt erfítt
með að gera upp fortíðina í bíó-
HEDWIG, vinkona Maríu, er
heppnari með húsbændur en hún
og endar á því að giftast íslensk-
um sveitamanni. Gundula Köster
og Kjartan Bjargmundsson í
hlutverkum sínum.
myndum, þó þeir hafi til dæmis
tekið ágætlega á henni í heimilda-
myndum. Eftir stríð voru það sömu
mennirnir sem héldu áfram að gera
kvikmyndir eins og fyrir stríð. Það
var því ekki hægt að gera upp fort-
íðina og kvikmyndagerð varð hand-
verk í stað þess að hún tæki á því
sem máli skipti. Á þessu hafa auð-
vitað verið undantekningar, til
dæmis myndir Fassbinders, von
Trotta og Schlöndorfs. Þetta
vandamál endurspeglast í því að
þýskar myndir ná lítilli útbreiðslu
utan heimalandsins. Síðustu árin
hefur verið í tísku að gera eldhús-
kómedíur sem stundum hafa orðið
mjög vinsælar í Þýskalandi en ekki
annars staðar."
Einar kvartar einnig yfir ofur-
valdi framleiðenda í Þýskalandi.
„Réttur höfunda er miklu veikari
SJÁ BLS. 22
Kippir tfirista-
straumnum í lap
„MARÍA er glæsileg
fyrsta mynd leikstjóra,"
segir Friðrik Þór Frið-
riksson kvikmyndagerða-
maður og meðframleið-
andi myndarinnar. „Einar
hefur áður sýnt að hann
hefur nef fyrir góðu efni
í heimildamyndir. Þeir
sem ekki geta skapað and-
rúmsloft í heimildamynd-
um geta heldur ekki gert
það í leiknum. María er
falleg mynd þar sem ís-
lenskt landslag nýtur sín
vel og hún uppfyllir allar
mínar væntingar.“
Friðrik vonast eftir að á
annan tug þúsunda áhorf-
enda muni sjá Maríu hér á
landi. „Það er svipaður
fjöldi og við gerðum ráð
fyrij- á Börn náttúrunnar og
Tár úr steini, en að vísu
voru fleiri sem sáu þær þeg-
ar upp var staðið. Þetta er
mynd sem meðal annars
höfðar til þeirrar kynslóðar
sem tók á móti þýska verka-
fólkinu, til dæmis er ég viss
um að móður minni, sem er
82 ára, eigi eftir að líka
þessi mynd vel. En þar sem
hún er ung í anda held ég
að hún muni líka höfða til
ungra kvenna.“
Farsa.lt samstarf við
Þjóðverja
Að jögn Friðriks hafa all-
ar helstu íslensku myndir
síðustu ára verið framleidd-
ar í samstarfi við Þjóðveija.
„Þjóðveijar hafa styrkt ís-
lenska kvikmyndagerð um
hundruð milljóna króna á
þessum tíma, meira en ís-
lenska rikið. Þó tengjast
fæstar myndanna Þýska-
landi á neinn hátt. Að vísu
er María leikin af þýskri
stjórstjörnu og þar er töluð
þýska. En ástæðan er fyrst
og fremst áhugi Þjóðveija á
norrænni menningu. Hinar
Norðurlandaþjóðirnar hafa
meira fjármagn til sinnar
kvikmyndagerðar, þannig
að við höfum notið góðs af
þessum áhuga.“
Friðrik telur að fjöldi
þýskra ferðamanna sem
heimsótt hafa ísland á síð-
astliðnum árum sé ekki síst
íslenskum kvikmyndum að
þakka. „Ástæðan fyrir því
að túristastraumurinn frá
Þýskalandi hefur verið í
lægð að undanförnu er að
mínu áliti ekki efnahags-
ástandið heldur það að ekki
hefur verið frumsýnd ís-
iensk bíómynd í Þýskalandi
I tvö ár. María verður sýnd
í kvikmyndahúsum í Þýska-
landi fljótlega, Djöflaeyjan
verður sýnd í kvikmynda-
húsum í janúar og Á köldum
klaka í sjónvarpi í október.
Saman kippa þessar myndir
túristastraumnum í lag ef
við fáum nægan pening til
að auglýsa þær en hingað
til höfum við útvegað túr-
ista án þess að þeir sem
lyóta þess leggi okkur
nokkurt lið við kynningu á
myndunum erlendis."