Morgunblaðið - 24.08.1997, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
MORG UNBLAÐIÐ
Lágmúla 9, símar 581 3730 & 581 3760 • FÍLD - Félag íslenskra listdansara DÍ - Dansráð íslands
wmmmiL
'j
N HAFIN
KENNSLA HEFST IO. SEPTEMBER
Byrtendaflokkar • Framhaldsflokkar
FRAMHALDSNEME^mjR ATHUGIÐ!
Að INNRITA YKKURiÍYRIR I. SEPT.
VEGNA FLOKKARÖÐU
Tökum NEMENÐUR
INN FRÁ 7 ÁRA ALDR
Kennarar:
JAZZBALLET: Magga. Ma
Guðný, lrma, Anna, Bára o.fl.
BALLET: María, Anna
NÚTÍMABALLET: María
María
f er vída
en til dæmis hér á landi og á Norð-
urlöndum. Framleiðendur geta gert
miklar breytingar á myndum án
þess að hafa samráð við leikstjóra
og sumir framleiðendanna eru þann-
ig að þeim hentar betur að stjóma
skriðdreka heldur en fólki.“ Einar
segir að í þeirri gerð myndarinnar
sem sýnd verður í Þýskalandi sé
megnið af þvi efni sem hann vildi
koma á framfæri. „Mér fínnst ég
geta sagt mest með því sem ég
kalla sögulegt drama. Þetta form
er reyndar vinsælt í Hollywood um
þessar mundir, dæmi um það er
myndin The English Patient og
Schindler’s List. I slíkum myndum
kemur barátta fólks við samtíðina
mun betur fram en í melódrama-
myndum sem algengar eru í Þýska-
landi. Aðrir verða að dæma um það
í hvom flokkinn María fellur.“
Einar leggur áherslu á að myndir
sínar gerist ekki á tilfínningalegu
grásvæði. „Það á vel
við mig að gera sögu-
legar myndir. í þeim
er auðveldara að lýsa
tærum tilfínningum
því við höfum fengið
meiri fjarlægð á við-
fangsefnið. Eg sæk-
ist samt eftir því að
fólk geti samsamað
sig með persónunum,
og mér þykir sjálfum
vænt um þær.“
Einar segir við-
brögð við verkum
sínum vera afgerandi
á sama hátt og
myndimar sjálfar.
„Eg hóf minn menn-
ingarferil með sögu
um gyðing sem látin
var vinna við það að moka manna-
skít á tún fyrir ofan Reykjavík. Við-
brögðin vora hreint ekki á grá-
svæði, og sama var að segja um
viðbrögðin við fyrstu leiknu mynd-
inni minni, Hvíta dauðanum. Slík
viðbrögð sannfæra mann um að það
að líklegast leiðin til að bæta ein-
hverju við þá menningu sem til er
í veröldinni sé að fylgja eigin sann-
færingu. Fólki má síst af öllu vera
sama um verkið.“
Einar segist vera mjög ánægður
með skipan leikara í aðalhlutverk
myndarinnar, og nefnir sérstaklega
aðalleikkonuna Barböra Auer í hlut-
verki Maríu. „María er stórt og krefj-
andi hlutverk og það er gaman að
sjá Barböra Auer takast á við það.
Mér fínnst að hún hafí allt of iengi
eytt kröftum sínum í sjónvarps-
myndir. María var fyrsta hlutverk
hennar í bíómynd í fjögur ár. Amar
Jónssson á líka mjög glæsilega end-
urkomu sem kvikmyndaleikari.
Hann er gífurlegur leikari og þau
tök sem hann hefur á hlutverki kyn-
svelta bóndans Jónasar finnst mér
helst minna á Jeremy Irons.“
Siglingar í stríðinu
og Sirrí í Hollywood
Einar hefur margt á ptjónunum
í kvikmyndagerð á næstunni. Hann
er með í undirbúningi heimilda-
myndir fyrir Sjónvarpið. „Ég aug-
lýsti í Morgunblaðinu um daginn
eftir mönnum sem vora að sigla í
stríðinu. Viðbrögðin voru meiri en
ég hafði búist við því yfir flöratíu
manns höfðu samband. Þessir sæ-
garpar opnuðu sig mikið í viðtölum
og lífsreynslusögur þeirra verða
grunnurinn að umfangsmikilli sjón-
varpsmynd sem frumsýnd verður
um næstu páska. Önnur mynd sem
ég ætla að gera heit-
ir „Sirrý Geirs í
Hoilywood“. Hún
fjallar um íslenska
stúlku sem um 1960
fékk tilboð um að
leika í Hojlywood-
kvikmynd. Á næstu
áram lék hún í ýms-
um kvikmyndum, til
dæmis hryllings-
myndinni „The
Crawling Hand“,
sem enn er sýnd
öðru hvoru á síð-
kvöldum í Banda-
ríkjunum. Hún lék
líka í sjónvarpsaug-
lýsingum fyrir ýmis
þekkt fyrirtæki, til
dæmis auglýsti hún
Kent-sígarettur, Cadiilac og flugfé-
lagið Lufthansa. Sirrý Geirs býr
nú á Siglufirði."
Varðandi leiknar myndir segir
Einar að framtíðin muni að nokkru
ráðast af viðtökum Maríu. „Ég er
með hugmyndir um að gera mynd
um ákveðna þætti í lífi Einars
Benediktssonar.því mér finnst þörf
á aldamótabíó. Ég hef líka um ára-
bil haft ýmsar fleiri hugmyndir í
kollinum, til dæmis um sakamála-
mynd.“
ÞÝSKT veggspjald til
kynningar fyrir kvik-
myndina um Maríu.
KARCHER
GOLF ^
ÞVOTTAVÉLAR
-fyrir litla sem stóra fleti
RAFVER
SKEIFUNNI 3E-F • SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215
Fjarkennsla í gegnum Internetið
Boðið verður upp á fjarkennslu í tölvum,
haustið 1997. Um er að ræða námskeið sem
samsvarar 60 stunda hefðbundnu námskeiði í
Windows, Word, Excei og Internetinu og er
ætlað byrjendum. Námið tekur 8 til 12 vikur.
Námsgögn verða ýmist send í pósti eða í
gegnum Internetið.
Upplýsíngar og innritun í SÍma 588 5810 Faxafeni 10 Framtíðin 108 Reykjavík
Nemendur verða að hafa tölvu til umráða með
viðeigandi forritum, Internettengingu, og
mótald. Mótaldið er hægt að fá að láni frá
Viðskipta- og tölvuskólanum meðan á námi
stendur.